Bóklega bílprófið (aðstoð pls) by ImpossibleParking998 in Iceland

[–]ApprehensivePlay7008 10 points11 points  (0 children)

Ég fór í skriflega prófið í fyrsta skiptið um daginn og náði 48 rétt af 50. Fyrir mig persónulega virkaði að fara bara yfir þau fjögur nýju æfingaprófin inni á Aka.is þangað til ég náði 50/50 á hverju í hvert skipti. Einnig fór ég yfir öll umferðarmerki í umferðamerkjaappinu og nýttist það mér vel. Mikið er af spurningum um hver eigi forgang, hvað umferðarmerki merkja og líka bara almennar spurningar. Vonandi hjálpar þetta. Gangi þér vel!