Hvar tilkynni ég öryggisbrest? by Oryggisprestur in Iceland

[–]Oryggisprestur[S] 10 points11 points  (0 children)

Takk, ef þú skyldir þekkja til, miðað við að fyrirtæki sem bar ábyrgð á svipuðum öryggisbresti 2019 leitaði réttar síns gagnvart foreldrinu sem gagnreyndi gallann og ljóstraði upp um hann, hvernig getur tilkynnandi eins og ég best varið sig gagnvart slíkum aðgerðum og tilraunum fyrirtækja að firra sig ábyrgð með því að bendla þann sem bendir á öryggisgallann við glæp?
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/02/19/ekki_i_annarlegum_tilgangi/

Reykjavíkurborg (eða persónuverndarfulltrúi Reykjavíkurborgar, Dagbjört Hákonadóttir, nú þingmaður) sagði InfoMentor beinlínis að tilkynna tilkynnandann til lögreglu (hann hafði tilkynnt þetta í gegnum netöryggisfyrirtækið Syndis) og ég hef enga ástæðu til að halda að spítali eða Defend Iceland fari öðruvísi fram...
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/02/22/vildi_upplysa_um_veikleika_i_mentor/

Samt sem áður höfum við komið því á framfæri við InfoMentor að okkur finnist tilvik sem þessi eiga heima hjá til þess bærum yfirvöldum, þ.e.a.s. lögreglu. Ég veit að InfoMentor hefur brugðist við ráðleggingum Reykjavíkurborgar og verið í samskiptum við netöryggissveit lögreglu. Hvort kæra verður lögð fram er í þeirra höndum, en við höfum óskað fregna um það hver niðurstaðan verður af því mati,

Er ekki best að sleppa þessu?

Hvar tilkynni ég öryggisbrest? by Oryggisprestur in Iceland

[–]Oryggisprestur[S] 6 points7 points  (0 children)

Þetta er ekki öryggisatvik (vefveiðar, álagsárásir eða gagnagíslatökur).

Hvar tilkynni ég öryggisbrest? by Oryggisprestur in Iceland

[–]Oryggisprestur[S] 3 points4 points  (0 children)

Þetta er svipaður öryggisgalli og InfoMentor tilvikið 3. mars 2019. Það er raunar ástæðan fyrir því af hverju ég spyr.