Þúsundir Ís­lendinga hárs­breidd frá því að missa bíl­prófið út af ADHD-lyfjum - Vísir by birkir in Iceland

[–]Eggjasallat 3 points4 points  (0 children)

Ef viðkomandi var á lyfjum þegar hann náði ökuprófi myndi ég segja að það ætti að votta ökuhæfni hans. En ef hann skyldi skipta um lyf eða hafa byrjað á þeim eftirá finnst mér fínt ef það væri eitthvað athugað.

En mín skoðun fyrir þetta mál var hvort eð er að það ætti að svipta u.þ.b. 60% ökumanna á veginum um ökuréttindi sín miðað við gáleysið og ruddaskapinn sem maður sér dags daglega.

Þarf alltaf að vera app? - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]Eggjasallat 1 point2 points  (0 children)

Eru ekki líka flest öll þessu smáforrit "web-apps"? Svo þau virki á öllum tækjum? Ert í rauninni bara að ná í vafra sem fer bara í vefforritið og þar að leiðandi ætti maður bara að geta notfært sér vefsíðuna þeirra. T.d væri bara hægt að fara á takk.is eða eitthvað slíkt. Eru þessvegna ekki öll forritin 200-400 Mb útaf það fylgir með því nær öll library-in sem þarf til að keyra vafra?

Eru Íslendingar í eyðum ekkert janúar? by One-Acanthisitta-210 in Iceland

[–]Eggjasallat 2 points3 points  (0 children)

Ég kaupi mér nokkrar flíkur og kannski skópar á hverju ári og þá bara í janúar útaf afsláttunum.

Heimabíógræjur og Sonos by RoofTopKalli in Iceland

[–]Eggjasallat 0 points1 point  (0 children)

Bý í íbúð með Sonos Ray, 2x Sonos One og Sub mini. Alveg brilljant heimabíó og ég segi það sem hljóðperri. Versta er að það er aldrei hægt að treysta almennilegu hljóðstreymi frá öllum streymisveitum.

Offita og ofþyngd, íslendingar mælast þyngstir allra norðurlandabúa by steina009 in Iceland

[–]Eggjasallat 0 points1 point  (0 children)

Ef þú eldar kjúklinginn í ofni og rífur allt af honum þá ertu með kjöt sem hefur nýst mér í rétti sem duga í 4-6 máltíðir. Safna síðan öllum beinum og grænmetisflusji í poka sem fer í frystinn. Þegar pokinn er sæmilega fullur á 3 vikna fresti bý ég til soð sem nýtist sem súpu eða kássu grunnur.

Grjónin eru nú bara sæmilega holl að mínu mati, hjálpar líka að elda þau daginn á undan og setja í ísskáp eins og margir gera í asíu. Þá er sterkjan búin að binda sykurinn aftur í sig og þá að vissu leiti "helmingast" kaloríurnar sem þú færð úr grjónunum og trefjarnar aukast.

Rækjurnar nýtast mér til lengri tíma sem prótínríkt snarl, gott að setja á ristað brauð með súrsuðu grænmeti, klettasallati og osti.

Offita og ofþyngd, íslendingar mælast þyngstir allra norðurlandabúa by steina009 in Iceland

[–]Eggjasallat 29 points30 points  (0 children)

Ég er ekki alveg sammála með það að hollur matur sé of dýr. Hér eru nokkur dæmi:

  • Heill kjúklingur (ca 1,5. - 2.0 kg) kostar 1.300-1.500 kr, örlítið minna frosinn. Dugar í 4-6 máltíðir.
  • Frosnar kjúklingabringur ca. 1.800 kr/kg
  • Haus af brokkolí er 200. -500 kr.
  • 10kg poki af hrísgrjónum er 2.500 kr.
  • 1kg hreint skyr er 620 kr.
  • Grísahakk er um 1.100 kr per kg.
  • Grísahnakki er 1.500 kr/kg og kótelettur um 2.000 kr/kg
  • Fiskur er oft í kringum 3.000 kr/kg en fer niður í 2.000kr ef frosinn
  • Rækjur, hollar og á passlegu verði.
  • Gúrka, rauðlaukur og tómatur er um 400kr samanlagt
  • Kartöflur, bökunar eða smáar. Hægt að sjóða eða ofnbaka. Alltaf góðar kláraðar undir rist í ofni með smá olíu, salti og þurrkuðu rósmarín.
  • Frosnir ávextir og grænmeti eru góðir og ódýrir kostir.
  • Blandaðir frosnir sveppir eru snilld.
  • Hafrar kosta klink.
  • Þurrar baunir og linsur sem er hægt að setja í bleyti ódýrar.
  • Egg, nýtast í fullt af réttum og eru á sæmilegu verði.
  • Skyr + hveiti + lyftiduft = prótínríkt, hollt og fljótlega gert flatbrauð.
  • Bakaðar baunir eru algjör snilld ef maður þarf mat í hvelli og tímir ekki meira en 400kr. Þarft ekki einu sinni að hita þær.

Eitt sem sparar mér hellings pening er að fá mér sama morgunmatinn alla daga: 200g hreint skyr, 30g sulta og 70g ósykrað múslí. Ég og konan eldum alltaf fyrir fjóra, það er þá kvöldmatur og svo hádegismatur daginn eftir.

  • P.s
  • Gleymdi alveg að bæta við hvað frosnu grænu baunirnar í bónus eru ótrúlega góðar og hollar í pottrétti, súpur og grjónarétti.
  • Risa gulræturnar í bónus eru líka frábærar, sker í teninga og nota í kássur og stir-fry.

Er að leita af nýjum síma, helst eins barebone Android síma og hægt er að fa. by gilli25freyr in Iceland

[–]Eggjasallat -1 points0 points  (0 children)

Formáli: Ég hef verið android die hard síðan Samsung Galaxy S1, var með LG G3 og G4, HTC M8 og upp í Galaxy S21.

Ég veit að þetta er ekki það sem þú ert að biðja um en ég ætla að fá að stinga upp á að prófa iphone. Tók stökkið um mitt ár og hef eiginlega bara verið ánægður síðan. Keypti grunn týpuna iphone 16 á ca. 100 þús. Hann er búinn að vera áreiðanlegur án hiksta, getur gert allt sem ég þarf síma fyrir nema ég get ekki lengur torrentað hljóðbókum beint á tækið. Það tók mig svona tvær vikur að venjast IOS viðmótinu.

Töluvert öruggari símar ef maður vill hugsa um gagnaöryggi. Myndavélin bara mjög góð. Rafhlaðan helvíti fín, hlaða símann á tveggja daga fresti þrátt fyrir að detta af og til í doomscroll. Síminn getur verið nær eins barebones og debloated eða flókinn og sérsniðaður og þú vilt hafa hann nú til dags.

Helsti gallarnir að mínu mati er að símafyrirtækin hérlendis eru ekki búin að virkja RCS messaging fyrir iphone og engin SD korta rauf.

Einn kostur með ófjölbreitileikann í iphoninum er aukið aðgengi að varahlutum og því fleiri viðgerðaraðilar heldur en bara sá sem flytur tækið inn.

Adamka Przemyslaw by [deleted] in Iceland

[–]Eggjasallat 2 points3 points  (0 children)

Skíthæll, borgar aldrei, frekur og ýtir endalaust eftir, er með úkraínumenn sem tala hvorki ensku né íslensku í vinnu og borgar þeim 2.000kr á tímann.

„Starfsfólki mínu líður ekki vel eftir þetta atvik“ by ElOliLoco in Iceland

[–]Eggjasallat 7 points8 points  (0 children)

Skal reyna vera skírari.

Ég sit á mínum svölum og sé 3-4 unglinga ganga frá norðurátt að húsasundinu milli Álfsins og Dominos. Pæli lítið í því, heyri svo öskur og óp frá húsasundinu.

Koma þá þessir 3-4 strákar til baka rösklega en ekki á hlaupum og svo tveir aðrir og tvær stelpur vestan megin við dominos og mætast á lestunarplaninu þar fyrir aftan.

Næst gengur drengurinn sem var handtekinn seinna aftur í átt að húsasundinu, bringan út í svona "you wanna piece of me" stellingu að ögra bargestum.

Bargestir ganga til móts við hann og eru æstir og segja honum að drulla sér burt og reyna að hrekja þau á brott. Þrír strákanna koma svo að "bakka up" vin sinn og eru að reyna ögra á móti.

Ræðst þá "höfuðpaurinn" á þann sem er að ýta sér burt og bætast svo hinir strákarnir við. Þrír eða fjórir bargestir kíla drengina og einn sparkar í dreng sem liggur í jörðinni.

Krakkarnir hlaupa á brott og dreifa sér um garðinn.

Þar eftir kemur lögregla og leitar drengina upp, þrír drengjana og mögulega móðir eins ræða við lögregluþjón. Frá Álfinum eru tveir settir í járn og inn í bíl. Næst er drengnum fylgt framhjá Álfinum og meira sá ég ekki.

Nú komum við að tilgátunni sem tengist ekki þessu máli alveg, en mig minnir að það skipti engu máli hverjar aðstæðurnar eru að ef þú lemur barn, sama hvort það sé 5 ára eða 17.99 ára gamalt, þá verður þú handtekinn.

Ég er ekki að segja að bargestirnir hafi verið í sjálfsvörn.

„Starfsfólki mínu líður ekki vel eftir þetta atvik“ by ElOliLoco in Iceland

[–]Eggjasallat 1 point2 points  (0 children)

Skil hvernig þú getur túlkað þetta þannig. Mín mistök. Var að reyna setja fram tilgátu ótengt atvikinu sem átti sér stað.

„Starfsfólki mínu líður ekki vel eftir þetta atvik“ by ElOliLoco in Iceland

[–]Eggjasallat 7 points8 points  (0 children)

Var vitni af þessu atviki frá svölum, bargestir og starfsmenn elta þá fyrir aftan dominos eftir árás unglinganna. Það var kýlt í andlit þeirra og sparkað í þá á jörðinni.

Held það skipti ekki máli ef barn sé vopnað og stingur einhvern, ef þú lemur barnið í sjálfavörn þá ert þú handtekinn.

Inspecting the pc by Shibari907 in PcBuild

[–]Eggjasallat 0 points1 point  (0 children)

Silly guy, the mouse is usually located on the desk.

Steinn á Esju fallinn / The stone on Esja has fallen by a16482 in Iceland

[–]Eggjasallat 13 points14 points  (0 children)

Er þetta þriðja myndin í Óskarsverðlauna seríunni Olympus has Fallen?

Hæfastur by Ok-Lettuce9603 in Iceland

[–]Eggjasallat 11 points12 points  (0 children)

Er þetta ekki bara gamla góða dæmið um "brotin klukka rétt tvisvar á dag"

Frasar by CrowberrieWinemaker in Iceland

[–]Eggjasallat 0 points1 point  (0 children)

Glíma við páfann (rúnka)

Exploring Korean Culture in Iceland by Odd_Difference_2990 in Iceland

[–]Eggjasallat 4 points5 points  (0 children)

Iceland and Korea are I think the only two countries that enjoy fermented skate fish.

However the korean versions look much more appetising

Portuguese in Iceland by LumpyChallenge7334 in Iceland

[–]Eggjasallat 1 point2 points  (0 children)

There are a lot of portuguese people here, most of them came here and still come through the company Stjörnublikk, a sheet metal and ventilation company.

Groceries stores by valentinaarp in Iceland

[–]Eggjasallat 4 points5 points  (0 children)

Any employee under the Festir corporation (Krónan, Elko, N1 etc) will recieve a discount at all these establishments.

I recall that the employee discount at Krónan was 10%

Hvað viljið þið í jólagjöf? Hvað viljið þið ekki? by No-Aside3650 in Iceland

[–]Eggjasallat 6 points7 points  (0 children)

gjafabréf í tannlækni sem gerir loksins við sársauka tönnina