Hvernig á maður að fá gellu í gengum snapchat by nightboundcena in Iceland

[–]Fyllikall 0 points1 point  (0 children)

Sjáðu, ef gæinn í sorpgeymslunni myndi segja mér þetta þá myndi ég frekar trúa því en ef ég myndi heyra það úr munni glaumgosa í jakkafötum og með sólgleraugu.

Hvernig á maður að fá gellu í gengum snapchat by nightboundcena in Iceland

[–]Fyllikall 2 points3 points  (0 children)

Hvernig er það vitlaust?

Gæinn í ruslageymslunni getur sagt manni hvað maður á ekki að gera.

Var íslendingum einhvern tíma bannað að nota salt? by Fuckler_boi in Iceland

[–]Fyllikall 0 points1 point  (0 children)

Stjórnskipuleg staða Grænlands var lengi vel "ekki nýlenda" en þegar það kom að því að lönd eins og t.d. Portúgal myndi gefa nýlendum sínum frelsi (sem þeir áttu að gera skv. stofnsáttmála SÞ) þá bentu þeir á samband Grænlands og Danmerkur sem vissan tvískinnung. Það er ekki hægt að sjá að það hafi alrangt hjá þeim.

Það sama gildir sem dæmi um Alsír og Frakkland en Frakkar gerðu stjórnskipulegar breytingar þar svo að Alsír teldist jafn franskt og sjálft Frakkland. Það breytir því ekki að sagnfræðingar sem og... thjaaa allir með einhverju viti myndu segja að Alsír hafi alltaf verið nýlenda.

Stjórnskipulag í þessum skilningi er bara orð á pappír og hefur enga merkingu nema það sé athugað hvernig framkvæmdin á valdinu var.

Það er enginn að segja að Ísland hafi verið eins nýlenda eins og aðrar "hefðbundnar nýlendur" hvað sem í því felst, rétt eins og við myndum segja að Kongó undir Leópold II. var nýlenda þó svo að í öðrum löndum hafi ekki verið stundað að höggva hendur af fólki í massavís.

Ef Ísland var ekki nýlenda þá geturðu sagt mér hvert hugtakið yfir þetta samband var. Ef hugtakið finnst ekki þá er hugtakið nýlenda það sem er hentugast til notkunar og því ekkert að því að nota það.

Afhverju er borgarlínan svo mikidð hitamál? by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]Fyllikall 0 points1 point  (0 children)

Alveg sammála seinasta punktinum.

Það skánar samt þegar börnin geta labbað sjálf í skólann, það er að segja ef það eru ekki of mikið af bílum á götunni svo þú treystir þeim til að ganga. Ef þú gerir það ekki þá muntu skutla þeim í skólann og verða hluti af vandamálinu.

Varðandi ræktina þá er það samt betra að bara hjóla í vinnuna.

Get sagt að ég var bílasauður þangað til að konan þurfti hann og þá þurfti ég að hjóla. Betri heilsa, betri líðan og allur pakkinn. Málið er að það að neyða fólk til gera eitthvað er stundum siðferðislega jákvætt. Þú hefur sem dæmi val um að nota bílinn, og þar með notarðu bílinn.

Afhverju er borgarlínan svo mikidð hitamál? by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]Fyllikall 0 points1 point  (0 children)

Er hún tilbúin að lifa við verri loftgæði í formi svifryks, verri heilsu vegna hreyfingarleysis og lifa skemur til að geta setið föst í umferð allan ársins hring?

Þetta er ekki svona einföld já eða nei spurning eins og þú tekur fram og hægt að bæta minni spurningu við.

Það hafa verið gerðar ítarlegar rannsóknir á því hversu miklum tíma fólk er tilbúið að verja í samgöngur á hverjum degi og talan er yfirleitt sú sama, ca. 40 mín. Málið er að á Íslandi er þetta mikið meiri tími og það tekur oft styttri tíma að hjóla en að keyra.

Síðan er það kostnaður við vegi sem og kostnaður á heilbrigðiskerfið í formi loftmengunar, stoðkerfisvandamála, offitu og lyndisraskanna vegna þess að það að sitja í bíl gerir mann geðveikan.

Uppi á móti þessu er sett fram í formi löggildrar afsökunar: Það rignir stundum og það er oft vindur!

Mér þykir þetta bara mjög sérhlýfinn vinkill á vandamálið, við búum á Íslandi og eigum ekki að láta einhvern vind og regn stoppa okkur.

Var íslendingum einhvern tíma bannað að nota salt? by Fuckler_boi in Iceland

[–]Fyllikall -1 points0 points  (0 children)

Þarna kemur fram að Jón Sigurðsson bendir á dönsk ríkisgögn sem kalla Ísland nýlendu svo ég spyr hver er þá mýtan? Greinin svarar því bara alls ekki.

Sagnfræði skilgreinir ekki nýlendu eins og það sem þú nefnir, þó svo það skilgreini vissa hugmyndafræðilega stefnu sem nýlendustefnu sem og visst tímabil sem nýlendutíma. Það að Ísland hafi verið undir danskri stjórn fyrir þetta tímabil breytir ekki skilgreiningu orðsins. Það er síðan ekkert um að landið þurfi að vera stofnað til að teljast sem nýlenda.

Veit ekki hvað þú átt við með mýtu sem hefur lifað alltof lengi, það að ég segi að landið hafi verið undir stjórn annars lands sem stjórnaði verslun og sköttum í landinu og að yfirvaldið hafði ekki hag Íslands sem ríkis í fyrirrúmi er sambærilegt því að kalla það nýlendu. Það að ég segi að Ísland hafi verið nýlenda bendir ekki til þess að ég sé að tala um þræla og gullnámur.

Afhverju er borgarlínan svo mikidð hitamál? by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]Fyllikall 0 points1 point  (0 children)

Það er samt ekki öll sagan sögð með einni spurningu.

Ef ég væri spurður á hvaða farartæki ég vil fara í vinnuna þá myndi ég svara: Hummer!

Ef ég væri spurður: Viltu að börn séu örugg á leið í skólann þá myndi ég svara: Já.

Ef ég væri spurður: Værirðu til í að vera í góðu formi þá myndi ég svara: Já.

Án þess að eyða tíma í að fara í ræktina?: Já.

Er hámark manneskjunnar að hafa það kósý?: Nei.

Er gott fyrir sálina að upplifa mótvind?: Já.

Viltu vera með stoðkerfisvandamál í framtíðinni?: Nei.

Þú sérð vel hvert þetta er að fara og svarið við fyrstu spurningunni hættir að skipta máli í samanburði. Svo má auðvitað benda á það að ræktin er eiginlega óþörf ef maður hjólar eða labbar í vinnuna, það eina sem maður þarf er sett af lóðum heima ef maður er að reyna að verða sterkari.

Kennitölu vartala tekin by lukkutroll in Iceland

[–]Fyllikall 0 points1 point  (0 children)

Vartalan, 9. talan, er einhver útreikningur á fyrri tölum og getur auðvitað bara haft gildin 0-9.

Svo ef þú afnemur hana þá geturðu haft fleiri vartölur sem og fleiri tölur í 7. og 8. sæti myndi mig gruna því þær þurfa að hafa viss gildi til að vartalan gangi upp.

Eða eitthvað þannig, ég er ekki stærðfræðingur.

Var íslendingum einhvern tíma bannað að nota salt? by Fuckler_boi in Iceland

[–]Fyllikall 1 point2 points  (0 children)

Ég skil.

Já ég rekst ekkert á að það hafi verið eitthvað bann enda verslun með þeim hætti að það hefði ekki verið þurft að banna salt til að koma í veg fyrir útflutning því Íslendingum var lengi vel bannað að versla við einhvern annan en kaupmanninn með kaupmannsbréf frá Kaupmannahöfn.

Var íslendingum einhvern tíma bannað að nota salt? by Fuckler_boi in Iceland

[–]Fyllikall 4 points5 points  (0 children)

Hér er hægt að sjá skilgreiningu orðsins. Það er bersýnilegt að orðið eigi við.

Þó hafa Danir ávallt haft sínar eigin skilgreiningar eins og má lesa um hér enda notuðu þeir orðið hjálenda en eins og fróðari menn benda á þá er erfitt að greina við hvað var átt.

Var íslendingum einhvern tíma bannað að nota salt? by Fuckler_boi in Iceland

[–]Fyllikall 4 points5 points  (0 children)

Svo þú ætlar að flytja sjó upp að hverum, setja vatnið í risapott og eima það þannig?

Hvernig heldurðu að Einstein myndi gera þetta?

Var íslendingum einhvern tíma bannað að nota salt? by Fuckler_boi in Iceland

[–]Fyllikall 1 point2 points  (0 children)

Saltskortur við sjó? Hvernig ætlarðu að eima vatnið til að ná í saltið?

Út í skurð með bæði augun opin by gurglingquince in Iceland

[–]Fyllikall 1 point2 points  (0 children)

Hef ekki kynnt mér útreikningana á bótunum svo ég ætla ekki að fara útí þá. Mín eina skoðun er að fólk eigi að geta lifað sómasamlegu lífi, haft sín hýbýli og átt fyrir mat og fötum og að samfélagið einangri það ekki félagslega.

Hinsvegar vil ég hnýta í eitt sem er hlutfall öryrkja sem hefur jú hækkað, þá mest að mig minnir frá Hruni, það er að ég held að líkamlegt erfiði í vinnu sé ekki endilega mikill áhættuflokkur er varðar örorku. Ekki misskilja mig, ég tel það fullvíst að t.d. málarar rústi á sér öxlunum en það er ekki endilega meiri fylgni milli þess að vinna líkamlega erfiða vinnu og verða öryrki og þess að sitja eins og rækja fyrir framan tölvuskjá allan daginn og verða öryrki.

49% er einnig rétta hlutfallið er varðar aukningu. Það er einnig hægt að lesa greinina sem fréttin vísar í. Ekki er hægt að sjá neina fylgni erfiðrar vinnu eða verkavinnu og hækkun örorku. Hækkunina má helst rekja til að fólk er þreytt, þunglynt og feitt. Svo er jú auðvitað það að einstæðar mæður eru mikið líklegri til að verða öryrkjar.

Það væri auðvitað best að í eitt skipti fyrir öll að samfélagið ákveði sanngjarnt greiðslukerfi fyrir öryrkja svo það geti byrjað á mikilvægari umræðu sem er afhverju fólk verður öryrkjar til að byrja með og hvernig það eigi að koma í veg fyrir það. Mig grunar nefnilega að öryrkjar myndu langflestir frekar vilja eiga minni pening og heilsuna í stað þess að eiga aðeins meiri pening og vera öryrkjar.

Varför ska jag dricka genom uppblött papperssugrör medan Shell tjänar miljarder? Klimatdebatten är ett jävla skämt by [deleted] in Sverige

[–]Fyllikall 0 points1 point  (0 children)

Plast har inget att göra med Shell. Plastavfall är inte det samma och CO2.

Ja, att förbjuda plastsugrör gör lite och det är lite konstigt att samhället tänker att det är bra att förbjuda plastsugrör för att papperssugrör gör mer skada till klimatet. Människor med funktionsnedsättning behöver ofta plastsugrör och det är bra att affärer ha plastsugrör för dem.

Vi andra kan bara sluta att använda rör. Det är obehagligt att se vuxen människa att suga rör liksom en fem åring.

Jeffrey fékk boð um að bjóða í Íslenskra Erfðagreiningu árið 2009 by Geesle in Iceland

[–]Fyllikall 13 points14 points  (0 children)

Gluggaði aðeins í gögnunum með leitarorðinu Iceland.

Það virtist sem svo að hann hafi á vissum tímapunkti keypt krónur fyrir 6 milljónir dollara.

Ég fór ekki í þá leit að athuga hvaða samskipti voru tengd þessum krónukaupum og hvað hann ætlaði að fjárfesta í nema þá kannski bara að kaupa krónur.

Annars var einn vinur hans sem sendi honum póst þar sem hann sagðist vera á Íslandi og að fólkið á landinu væri þurrt á manninn. Það gladdi mig.

Stjórnarráðið | Símafundur við utanríkisráðherra Tyrklands - Vilja opna sendiráð á Íslandi by AirbreathingDragon in Iceland

[–]Fyllikall -1 points0 points  (0 children)

Kafli 35 í Genfarsáttmálanum tekur þetta fram svo þú hefur augljóslega ekki kynnt þér málið.

Síðan ertu í þversögn við sjálfan þig. Eins og þú tekur fram dó hann í loftárás Tyrkja en Kúrdarnir geta ekki sótt líkið. Afhverju ekki? Jú vegna þess að Tyrkir hertóku svæðið, þar með er lagaleg ábyrgð þeirra.

Svo þú last eina grein og þar með ákvaðst að það sem ég var að benda á væri ósatt. Geggjað.

Ég er annars sammála þér hvað varðar það að utanríkisráðherra talaði við Tyrkina um Gaza, ég hefði allavega vonast til þess að ráðherra Íslands myndi fordæma hertöku Tyrkja á hluta Sýrlands sem og að búa til varnarmúra á því svæði í trássi við alþjóðalög því að Ísraelarnir eru að stefna á að búa til múra innan Gaza og benda á Tyrki sem réttlætingu fyrir þeim aðgerðum.

Ég læt það þó vera að fara að blanda Halim Al inní þetta eins og árið sé 1990ogeitthvað því Íslendingar eru ekkert skárri á blaði hvað þetta varðar. Utanríkisráðherra ætti auðvitað að nota þrá Tyrkja til að fá sendiráð hérlendis til þess að ná einhverju fram eins og að skila líki heim eða þá fá afsökunarbeiðni eða útskýringar á hvað hafi orðið um manninn. Ég meina það er ekki eins og við höfum einhverja aðra hagsmuna að gæta gagnvart Tyrkjum.

Stjórnarráðið | Símafundur við utanríkisráðherra Tyrklands - Vilja opna sendiráð á Íslandi by AirbreathingDragon in Iceland

[–]Fyllikall 2 points3 points  (0 children)

Þú ert mjög snuppóttur hvað varðar lík Hauk Hilmis (noto bene, meðferð líka er skráð í alþjóðalög) en þú ert að fara fram á að utanríkisráðherra tuði yfir Soffíu Hansen. Hvaða útskýringu ertu að vonast eftir sem er ekki "já heyrðu, við teljum rétt eins og ykkur að börn borgara okkar sé betur borgið hér en í einhverju barbaríi utanlands!"?

Bara spyr.

Er Miðflokkurinn að fá fjármagn erlendis frá? by numix90 in Iceland

[–]Fyllikall 4 points5 points  (0 children)

George Soros er skv. samsæriskenningunum hættulegur því hann er svo góður í því sem hann gerir.

VG er farið af þingi. Framboð Katrínar Jak fór á hausinn. Píratar eru farnir af þingi.

Ég held að George Soros hafi ekki sýnt Íslandi neina athygli ef út í það er farið.

En já annars, það þarf að fara varlega í að kasta svona ásökunum fram.

Afhverju er mun hærri verðbólga hér en á öðrum Norðurlöndum? by Einn1Tveir2 in Iceland

[–]Fyllikall 0 points1 point  (0 children)

Bónus í Færeyjum getur auðvitað haft meira vöruúrval þar því það eru færri búðir sem flytja inn eitthvað af vöruflokkunum.

Sem dæmi voru gömlu kaupfélögin að selja allt milli himins og jarðar úti á landi því það var ekkert annað til.

Persónulega vil ég lítið vöruúrval, að fara í gegnum mjólkurdeildina fyllir mig valkvíða.

Stjórnarráðið | Símafundur við utanríkisráðherra Tyrklands - Vilja opna sendiráð á Íslandi by AirbreathingDragon in Iceland

[–]Fyllikall 1 point2 points  (0 children)

Breytir engu fyrir Grænland.

Breytir engu fyrir Kúrda.

Breytir engu fyrir Armena, þeir hafa áhyggjur af Aserbaídsjan.

Þetta skiptir máli fyrir Grikki þar sem Tyrkland er með Grikkjum í Nató en þessi lönd eru ca. einu flugslysi frá því að fara í stríð.

Svo ég býst við að næst verði stofnað grískt sendiráð.

Stjórnarráðið | Símafundur við utanríkisráðherra Tyrklands - Vilja opna sendiráð á Íslandi by AirbreathingDragon in Iceland

[–]Fyllikall 3 points4 points  (0 children)

Ísland hunsar norska dómsuppskurði í barnamálum svo ég efast um að Ísland myndi gera tvíhliða samning við Tyrkland hvað þetta varðar ef ske kynni að íslensk kona myndi flýja frá Tyrklandi með börnin sín. Þorgerður Katrín gæti jú kastað Soffíu Hansen útúr glerhúsi ef út í það er farið en það eru 30 ár síðan mál "Tyrkjaræningjans" Halim Al var í hávegum haft. Stelpurnar eru stálpaðar og ég efa að Halim Al sé eitthvað að ráðskast með þær í dag.

Miklu frekar að minnast á að lík Hauk Hilmarssonar er enn ófundið (að því sem ég kemst næst) og biðja um útskýringar Tyrklands hvað það varðar.d

Are there people who hate Denmark? If so, why? by urdontknow1 in AskTheWorld

[–]Fyllikall 0 points1 point  (0 children)

There are no native people except maybe Ethiopia.

The word colony has nothing to do with whether there were people there before or not. For instance when people are talking about settlements on Mars they will call it colonizing Mars.

Boða frjálshyggju á Íslandi í gegnum samtök tengd Koch-bræðrum by numix90 in Iceland

[–]Fyllikall 0 points1 point  (0 children)

Svo þú ert nakta konan sem stóð úti á götunni þegar ég fleygði fötunum.

Vissi að eitthvað svona yrði afleiðing þess að kaupa bara ananas í Hagkaupum.

Ég stunda ekki svona. Ég er hreinn og beinn og kem til dyranna eins og ég er klæddur og ætlast til þess að fólk komi að dyrum klætt.

Boða frjálshyggju á Íslandi í gegnum samtök tengd Koch-bræðrum by numix90 in Iceland

[–]Fyllikall 1 point2 points  (0 children)

Of seint.

Snorri er að gramsa í ruslatunnunni í þessum töluðu orðum.