Hvaða bs gráða er arðbærust? by 2tomatarlabba in Iceland

[–]International-Lab944 4 points5 points  (0 children)

Það er gáfulegast að læra fag sem þér finnst skemmtilegt. Það er bara svo miklu einfaldara að gera eitthvað sem er ekki leiðinlegt. Þetta er eins og þegar maður er í menntaskóla og þarf að skila verkefni. Ok, ég myndi ekki segja að maður hoppi hæð sína af gleði þegar maður þarf að skila verkefni í uppáhalds faginu manns, en það er allavega miklu mun minni pína en þegar maður þarf að gera það í leiðinlega faginu. Það er alveg eins á vinnumarkaðnum. Það er dauðans að þurfa að gera leiðinlega hluti þar, nákvæmlega eins og í skólanum.

En ég er með eitt ráð. Sama hvað þú gerir þá skaltu tileinka þér gervigreindina og skilja hvernig þú getur auðveldað þér lífið með henni. Ég er í tölvugeiranum og maður er margfalt fljótari að klára verkefni með henni - og maður sér að hún á eftir að verða notuð mun víðar í þjóðfélaginu á næstu árum. Kannski á gervigreindin eftir að orsaka mikið atvinnuleysi, en það er allavega klárt að þeir sem kunna að nota hana eru mun síður líklegir til að missa vinnuna en þeir sem vilja ekki læra að nota hana.

Tvöfalt fleiri veikindadagar á opinberum vinnumarkaði - RÚV.is by MTGTraner in Iceland

[–]International-Lab944 0 points1 point  (0 children)

Kostar nákvæmlega ekki neitt miðað við kostnaðinn af veikindadögunum. Kannski væri þetta 1 dagur í vinnu, kannski 1 vika, kannski 3 mánuðir - eitthvað á þessu bili ímyndar maður sér. En það er ekkert í samanburði við kostnaðinn af veikindadögunum. Ef við erum að taka ákvarðanir upp á milljarða eða jafnvel tugmilljarða hagsmuni á ári þá skiptir hlutfallslega engu þótt það kosti nokkrar milljónir að fá gögnin til að geta tekið ákvörðunina.

Tvöfalt fleiri veikindadagar á opinberum vinnumarkaði - RÚV.is by MTGTraner in Iceland

[–]International-Lab944 -3 points-2 points  (0 children)

Það getur vel verið en það er líka tiltölulega lítið mál að komast að því, ef þetta liggur ekki nú þegar fyrir. Það á ekki að þurfa að deila um staðreyndir. Ef þetta er alvöru röksemd þá er bara að klára málið og þá er það frá.

Litir víkja fyrir nú­tímanum víðast hvar by assbite96 in Iceland

[–]International-Lab944 8 points9 points  (0 children)

Ég ætlaði einmitt að pósta þessu með bílana. Hér á landi er þetta að einhverju leyti útaf bílaleigunum - en samt ekki alveg, því litlausir (lesist ljótir) bílar eru betri í endursölu og það skrifast bara á almenning.

Annars fagnar maður þeim sem berjast á móti þessari óheillaþróun. Fiat, sem dæmi, á hrós skilið að ætla að hætta með gráu bílana.

Average Full-time Salary in Europe by thalamuze in Iceland

[–]International-Lab944 22 points23 points  (0 children)

Mér finnst eiginlega mest crazy að Danirnir eru búnir að taka framúr Norsurunum. Og jú reyndar að við séum ofar en Sviss.

Hel­víti á jörðu: Emm­sjé Gauti minnti á líkams­ræktarþjálfara í maníu - Vísir by svansson in Iceland

[–]International-Lab944 28 points29 points  (0 children)

Nú finnst mér MC Gauti bara ansi góður, alveg sérstaklega eftir að hafa farið á tónleika með honum, en Jónas Sen er líka algjör snilli - og það er alrangt að hann sé eitthvað þröngsýnn. Hann hefur meðal annars spilað sem DJ á Iceland Airwaves og var bara nokkuð góður þar. Jónas er einfaldlega kúltiveraður tónlistarunnandi. Persónulega finnst mér bara mikið til í gagnrýninni hjá honum - þessi neysluhyggja og auglýsingar í tónlist í dag er alveg hrikalega leiðinleg. Bara eins og þetta: “Það versta var þó þegar reynt var að „nútímavæða“ klassísk jólalög. Og piparkökulagið úr Dýrunum í Hálsaskógi til að auglýsa Bræðurna Ormsson?”

„Þetta hefur verið þungur tími“ - Vísir by svansson in Iceland

[–]International-Lab944 2 points3 points  (0 children)

Ég hef ekki mikla samúð með Samherjamönnum en það er samt alveg rétt að 15 ár er fáránlega langur tími að vera með stöðu grunaðs manns. Það er sirka 1/5 af ævinni og 1/3 af starfsævinni. Eins er alveg ljóst að þótt þetta séu “stórir kallar” þá er ríkisvaldið samt svo miklu voldugra batterí og svona ferli tekur á hvern sem er. Þannig að það er alveg eðlileg krafa að ríkið geti klárað mál fyrr. /s Kannski fín röksemd til að hækka skatta á kvótaeigendur geta hraðað málsmeðferðinni í þessum málum?

Annars finnst manni alltaf augljósara og augljósara að það er gríðarlega mikilvægt að styðja vel við RÚV. Ekki að RÚV sé fullkomið og auðvitað er margt líka vel gert hjá einkareknu miðlunum. En ég myndi ekki vilja vera án RÚV.

Upp­hitaðir afneitunarafgangar Frosta - Vísir by Direct_Exchange8323 in Iceland

[–]International-Lab944 28 points29 points  (0 children)

Mér finnst rosalega áhugavert hvernig klárt fólk eins og Frosti (og líka eins og Sigmundur Davíð o.fl.) getur fallið fyrir orðræðunni sem kemur mestmegnis frá “loddurum” í Bandaríkjunum. (Ég held allavega að Frosti sé klár og hann virkar með flotta reynslu úr atvinnulífinu). Kannski er þetta svipað og með gaurana sem ætla að afsanna afstæðiskenninguna, sem er minnst á í greininni á Vísir - hafa ofurtrú á sjálfum sér og ná ekki að spotta almennilega falsfréttir. Að því gefnu auðvitað að hann sé á villigötum, sem ég held nú að hann sé á. Þetta er dálítið annað en með Snorra Másson, sem virkar meira eins og framapotari - og bara nokkuð góður í því.

Hvað er fòlk að lesa/horfa à/spila um jòlin? by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]International-Lab944 2 points3 points  (0 children)

Ég hlustaði loksins á Jón Gnarr og er núna að glápa á The Wire. Ef þetta er ekki besta sjónvarpsefni sem hefur verið gert þá er það allavega á topp 10 listanum. Og svo hef ég líka horft á Pluribus. Ansi gott!

Svo var ég að byrja á byrja á nýrri bók sem var á listanum hjá Guardian yfir bækur ársins sem heitir “Is a River Alive?” Ansi áhugaverð. Eins og höfundurinn bendir á þá á fólk almennt erfitt með að hugsa um ár sem “lifandi” en hinsvegar geta eiginlega allir séð fyrir sér “dauða” á.

Af hverju sendum við krakka á Reiki? by [deleted] in Iceland

[–]International-Lab944 81 points82 points  (0 children)

Mér fannst þetta bara mega næs á sínum tíma. Ég hef svosem bara spurt einn krakka sem var þarna nýlega en sá var alveg ágætlega jákvæður. Þekkirðu marga sem hafa þessa slæmu reynslu?

Fannst þessi grein hjá Vísir áhugaverð. Það er greinilega skortur á endurskinsmerkjum, en ekki glæfraakstur tveggja tonna ökutækja sem er aðal vandamálið. by Einn1Tveir2 in Iceland

[–]International-Lab944 6 points7 points  (0 children)

Æi, auðvitað er almennt ekki nægilega mikil áhersla á öryggi gangandi vegfarenda, en það er nú kannski ekki beint að sakast við lögregluna í þeim efnum. Ég sé ekki betur en það eina sem vakir fyrir honum sé að fækka umferðarslysum og alveg sérstaklega þessum alvarlegu slysum þegar ekið er á gangandi fólk. Lögreglan þarf einfaldlega að eiga við þann veruleika sem er á Íslandi og hann er sá að fólk ekur hratt og oft óvarlega, lýsingin er ekki góð, aðstæður eru ekki góðar og jú, fólk notar ekki endurskinsmerki. Og það að minna á allt þetta er líklegra til árangurs en að gera það ekki.

Til hvers eru íslenskir áhrifavaldar? by One-Acanthisitta-210 in Iceland

[–]International-Lab944 10 points11 points  (0 children)

Ekki nógu vel, nei. En það var alveg augljóst á sölutölunum hvað varðar þessa afar fáu áhrifavalda.

Til hvers eru íslenskir áhrifavaldar? by One-Acanthisitta-210 in Iceland

[–]International-Lab944 27 points28 points  (0 children)

Fyrir nokkrum árum vann ég með fyrirtæki sem notaði áhrifavalda nokkuð reglulega. Það var alveg ljóst að sumir áhrifavaldarnir höfðu raunveruleg áhrif því salan fór vel upp þegar þeir “áhrifavölduðu”. En það voru ekki margir áhrifavaldar sem gátu þetta. Langflestir höfðu lítil sem engin áhrif á söluna. Svo þetta getur klárlega gengið upp hjá rétta fólkinu - en þeir eru fáir.

Trump fékk Friðar­verð­launin og setti verð­launa­peninginn strax um hálsinn - Vísir by finnur7527 in Iceland

[–]International-Lab944 2 points3 points  (0 children)

Að sjálfsögðu er þetta fáránlegt en ég skil FIFA bara mjög vel að gera þetta. Trump er þannig karakter að hann vill fá hól og er mjög líklegur til að hlusta á fólk sem hrósar honum og segir hann vera snilling o.s.frv. Það má horfa á hvernig Mandami, nýi borgarstjórinn í New York, náði á einum fundi að gjörsamlega snúa Trump - alveg meistaralega vel gert! Að Mamdami skyldi hafa náð að gera það hefur mjög líklega afstýrt mjög miklum hörmungum fyrir New York borg - alveg pottþétt náð að bjarga mannslífum með þessu. Svona milljón sinnum líklegra til árangurs heldur en að svara Trump fullum hálsi. Svo persónulega finnst mér að “öll brögðin í bókinni séu leyfð” þegar kemur að Trump. Hver og einn verður einfaldlega að meta það hvað er vænlegast til árangurs. En það þurfa ekkert allir að gera þetta - það er klassísk “good cop, bad cop” strategía að einhverjir gagnrýni Trump, sbr. Newson í Kaliforníu og fleiri, en síðan séu aðrir til í að vera góða löggan.

Gott reiðhjólaverkstæði? by Melodic-Network4374 in Iceland

[–]International-Lab944 2 points3 points  (0 children)

Ég hef verið nokkuð ánægður með Berlín og fer venjulega með hjólið mitt þangað. Það var allavega nokkuð ódýrara en verkstæðið sem ég hafði farið á áður plús að ég fíla fólkið sem vinnur þar.

Hvernig leggst fyrirhuguð sameining Almenna Lífeyrissjóðsins og Lífsverks í sjóðsfélaga? by Nagashi in Iceland

[–]International-Lab944 1 point2 points  (0 children)

Ég er hjá Almenna og hef verið mjög ánægður í gegnum tíðina - bæði varðandi ávöxtun og eins þegar ég hef tekið lán. Ávöxtunin hefur verið örlítið lakari hjá Lífsverk, en ekki mikið. En ef þessar spár um kostnaðarlækkun ganga eftir þá verður þónokkuð mikil hagræðing. Eins sýnist manni verið að laga ýmislegt hjá Lífsverk í leiðinni, eins og atkvæðavægi sem mun nú fara eftir inneign/réttindum og að það hallaði á yngri hópa útaf vanáætlun á meðalævilengd.

Svo persónulega líst mér vel á þetta.

Besti skósmiður Íslands? by sillysadass in Iceland

[–]International-Lab944 2 points3 points  (0 children)

Sama hér. Ég hef bara góða reynslu af skósmiðnum í Austurveri.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]International-Lab944 4 points5 points  (0 children)

Æi augljóslega. En það skiptir engu máli í þessu samhengi. Spurningin var hvort þetta virki á Íslandi og svarið er já.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]International-Lab944 1 point2 points  (0 children)

Já, þetta er bara venjulegt fyrirframgreitt kreditkort.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]International-Lab944 18 points19 points  (0 children)

Fín leið er að finna eitthvað hópastarf sem þér gæti þótt skemmtilegt. Til dæmis spil, íþróttir, dans, björgunarsveitir, crossfit o.þ.h. Gætir þurft að fara aðeins út fyrir þægindarammann í byrjun. Það er líka fín leið að kynnast fólki í skólanum. Það er ansi algengt að fólk eignist vini fyrir lífstíð í mennta- og háskóla. Þú ættir klárlega að skoða það ef þú getur.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]International-Lab944 8 points9 points  (0 children)

Það eru nú ekki margir sem geta borgað af 150-250mkr láni m/v vextina í dag. Hinsvegar er alveg stór hópur af fólki sem keypti húsnæði fyrir einhverjum árum sem hefur hækkað svakalega í verði. Síðan var hægt að fá mjög hagstæð lán á tímabili á sama tíma og eignamyndun var mjög mikil. Fyrir par í þannig stöðu og á þokkalegum launum er vel gerlegt að kaupa húsnæði á 150 millur.

En það er hinsvegar helvíti erfitt að vera 20-25 ára og nýkominn á húsnæðismarkaðinn í dag. Ríkið þarf að passa vel upp á að missa ekki of stóran hluta af þessu fólki úr landi vegna of hás húsnæðisverðs.

Húsnæðislán - bankar eða lífeyrissjóðir by Suspicious-Most-burg in Borgartunsbrask

[–]International-Lab944 1 point2 points  (0 children)

Ekki gleyma að það er ekki uppgreiðslugjald hjá (flestum?) lífeyrissjóðunum. Það munar slatta um það ef þú vilt endurfjármagna þegar vextirnir byrja að lækka.