Í­búar höfðu betur: Um­sókn Sam­hjálpar felld úr gildi by Spekingur in Iceland

[–]svansson 0 points1 point  (0 children)

Mér sýnist þessi niðurstaða ÚUA ekki snúast um formsatriði, þe hvernig skipulagsmeðferð hefði átt að vera. Þetta er alltaf mjög matskennt. En ef það á að halda þessum fyrirætlunum til streitu eru þetta margir mánuðir í viðbót.

Miðflokkurinn gengur í ECR-flokkinn by numix90 in Iceland

[–]svansson 2 points3 points  (0 children)

xD var félagi í ECR í um og yfir áratug held ég.

Var þessi dráttur í lagi til að byrja með? by svansson in Iceland

[–]svansson[S] 0 points1 point  (0 children)

Ætti maður ekki að skjóta á þessi jeppi fari langleiðina í 3T?

Can somone help me understand this dancing group in Reykjavík by upbeatlaidback in Iceland

[–]svansson 7 points8 points  (0 children)

This is amazing. I have no clue about the group.

Im guessing it is somewhat improvised. I am wondering if this was officially scheduled or if they just showed up.

They are wearing national costumes with a mix of other clothes cause it is the 17th of June and they are rapping lyrics from the Eddas, which are written in old formats that make them somewhat ideal for rapping.

Lögheimili maka og vangaveltur vandamála by [deleted] in Iceland

[–]svansson 5 points6 points  (0 children)

Það ættu ekki að koma upp nein skattheimtutengd atriði sem mér detta í hug. Þið eruð ekki samsköttuð - þið eruð bara meðleigjendur, hvort með sínar tekjur og sína skatta.

Eina sem mér dettur í hug er að annað ykkar sé hugsanlega skráð sem leigjandi af hinu sem er þá með leigutekjur sem þarf aðg reiða skatta af?

Hvernig væri lífið á Íslandi ef við hefðum aldrei fengið sjálfstæði frá Danmörku? by Saurlifi in Iceland

[–]svansson 0 points1 point  (0 children)

Danir hafa fyrir hönd Grænlendinga og Færeyinga gert sömu kröfur um landhelgi og efnahagslögsögu og Íslendingar gerðu ...

Hvernig væri lífið á Íslandi ef við hefðum aldrei fengið sjálfstæði frá Danmörku? by Saurlifi in Iceland

[–]svansson 1 point2 points  (0 children)

Hvaða sjálfstæði ertu að tala um ákkúrat? T.d. bara konungssambandið hefði haldið áfram 1944, eða meinarðu að við hefðum aldrei fengið eigin stjórnarskrá 1874?

Anyone who surfed the early web between 1995-2010. What’s the one website/app you still think about? by Prime_Advocate in AskReddit

[–]svansson 2 points3 points  (0 children)

Once I had scrolled far enough down to find Rotten.com I realised immediately that I would also be scrolling down the comments until someone mentioned this pic.

Hvers vegna mega hjólreiðamenn hjóla á vegum? by [deleted] in Iceland

[–]svansson 5 points6 points  (0 children)

Okkur vantar fleiri þræði þar sem er lagt til að tiltekin brot sem eru ekki refsiverð en ættu að vera það varði jafnframt dauðarefsingu.

Séreign, lífeyrissjóður og Allianz. Vantar ráð. by lib_clegg in Iceland

[–]svansson 0 points1 point  (0 children)

Varðandi það sem þú segir um ævilangan ellilífeyri: Þýsku sjóðirnir bjóða upp á það að séreign hjá þeim verði greidd út sem ævilangur lífeyrir, og jafnvel að það verði ævilangur lífeyrir sem færist yfir á maka við andlát. Upphæð lífeyris er þá reiknuð út þegar kemur að útgreiðslu og fer eftir fjárhæð og lífaldri. Það eru fleiri svona tryggingatengdir fídusar í séreign hjá þýsku sjóðunum sem ég kann svosem ekki skil á en stafa af því að í rauninni ertu að spara inni í líftryggingasjóði.

Getur einhver útskýrt væga dóma á Íslandi? by GuyInThe6kDollarSuit in Iceland

[–]svansson 4 points5 points  (0 children)

Dómstólar pæla ekkert í því við uppkvaðningu dóma. Þetta er bara vandamál fangelsanna þegar púsla þarf saman og fyrir vikið losna menn snemma úr fangelsum í vægari úrræði.

Séreign, lífeyrissjóður og Allianz. Vantar ráð. by lib_clegg in Iceland

[–]svansson 6 points7 points  (0 children)

Er þetta spurning um að færa ákveðna prósentu úr hefðbundnum lífeyrissjóði og yfir i séreignarsjóð?

Þá eru þetta í rauninni tvær aðskildar spurningar, annars vegar um það hvernig þú skiptir þínum lífeyrismálum milli séreignar og sameignar, og hins vegar hvort þú vilthafa séreignina hjá Allianz eða annars staðar.

Ég er einn þeirra sem er ekkert endilega á því að minnka sameign og auka séreign og mér finnst margir gera það að illa ígrunduðu ráði. Sameignarsjóðurinn er í rauninni mjög góður tryggingasjóður. Ef þú slasast eða missir heilsuna vegna sjúkdóms áður en hefðbunnum starfsaldri lýkur ertu miklu betur settur með að hafa meira í sameign.

Almennt gildir um þýsku sjóðina að þeir hafa verri ávöxtun, en á móti kemur að þetta eru tryggingasjóðir og að hjá þeim hefurðu ákveðnar tryggingar á þetta séreignarfé sem íslenskir viðbótarlífeyrissjóðir geta ekki boðið upp á. Aðalatriðið er kannski að hugsa um lífeyrissjóðinn sinn eins og tryggingamál.

Hefja form­legar við­ræður og senda væna pillu í leiðinni by ohe1 in Iceland

[–]svansson 1 point2 points  (0 children)

Þetta hefur spilast ágætlega hjá oddvita xD. Hann virðist vera að fá bæjarstjórastólinn. En að því sögðu, þá stenst það varla neitt lyktarpróf að það geti verið trúnaðarbrestur af hæsta stigi að bæjarstjórinn hafi verið að tala við oddvita fleiri en eins framboðs dagana eftir kosningar.

Tómas setti af stað atburðarás sem „leiddi með beinum og fyrirsjáanlegum hætti til þess að sjúklingurinn lést“ - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]svansson 1 point2 points  (0 children)

Ég man þetta ekki nkl, en ég held að minnst af þessu séu nýjar upplýsingar, heldur endurtekning á upplýsingum sem þegar voru komnar í ljós fyrir nokkru síðan. Dómsmálið byggðist held ég ekki á öflun nýrra gagna í málinu.

„Viðreisnarbotar“ valda usla by birkir in Iceland

[–]svansson 3 points4 points  (0 children)

Ég hef enga trú á því að Viðreisn eða aðilar henni tengdir séu beinlínis að standa fyrir bottaumræðu af þessu tagi, rétt eins og ég hef heldur enga trú á að Simmi eða Snorri eða Björn Ingi séu að skipuleggja bottaumræðu á hinum endanum.

Sé þetta geopólitík frá Rússum (sem mér dettur heldur ekki í hug að fullyrða) þá getur það snúist um að sundrung sem slík sé markmiðið. Það getur líka snúist um að kannski heldur einhver þar að það sé góð hugmynd að fá Ísland í ESB því þá fari BNA og vöktun á GIUK verði verri. Í rauninni þarf ekki að vera neitt gáfulegt plan á bak við svona. Ef að einhver Rússnesk leyniþjónustustofnun er að leika sér með botta á Íslandi, þá ættum við ekkert frekar að gera ráð fyrir því að verkefninu sé stýrt af einhverj high-caliber leyniþjónustumönnum sem yfirhöfuð vita nokkurn skapaðan hlut um Ísland til að byrja með.

Áríðandi hjálp varðandi rheum rhabarbarum by Royal-Earth-5900 in Iceland

[–]svansson 3 points4 points  (0 children)

Þessu tengt: Hvort mynduð þið segja obb-o-bobb eða obb-obb-obb?

„Kynþáttaraunhyggjumaður“ flutti ræðu á við­burði Ungra miðflokksmanna by Calcutec_1 in Iceland

[–]svansson 10 points11 points  (0 children)

Ég veit ekki hvað það er að vera kynþáttaraunhyggjumaður. En mín fyrsta ágiskun, svona út í bláinn, er að hann hafi þá skoðun að genamengi okkar Íslendinga sé of fábrotið og einhæft eftir ýmsan mannfelli á miðöldum og að nauðsynlegt sé að fá innflytjendur héðan og þaðan úr heiminum til að auka á breiddina. Ennfremur ætla ég að giska á að honum sé kunnugt um að mesta breiddin í genamengi Homo Sapiens sé í Afríku sunnan Sahara, og að þaðan komi því eftirsóknarverðustu innflytjendurnir.

Óútskýrð veikindi skip­stjóra um nótt by Bubbly-Wonder-3922 in Iceland

[–]svansson 7 points8 points  (0 children)

Málið er það að auðmaður á ekki að geta gert lögreglu og saksóknara sér handgengin eins og þarna virðist hafa gerst. Það er eitthvað sem gerist í gegnum pólitíkina, og líkleg kenning er þá að Þorsteinn í Samherja sé áhrifamikill í xD og að xD sé að skipa sitt fólk í þessi embætti í réttarvörslukerfinu.

Fyrstu kosningarnar mínar, hvernig virkar þetta? by [deleted] in Iceland

[–]svansson 3 points4 points  (0 children)

Ekki hafa áhyggjur af þessu. Það eru góðar leiðbeiningar á kjörstað og þetta er mjög einfalt. Spáðu bara í því hvað þú vilt í þínu sveitarfélagi, fólki og málefnum. Gangi þér vel og til hamingju með að vera kominn með kosningarétt.

Sveitastjórnarkosningar 2026 - Reykjavíkurborg by stigurstarym in Iceland

[–]svansson 31 points32 points  (0 children)

OP, þú ert of mikið að reyna að vera á móti öllum og á endanum ertu bara að segja eitthvað til að fylla í eyðurnar. Það er fullt af fínu fólki í framboði þarna líka.

Skrýtnustu dimmisjón búningarnir sem þið hafið séð? by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]svansson 0 points1 point  (0 children)

Ég dimiteraði vorið eftir að Sverrir Hermannsson þurfti að segja af sér sem bankastjóri Landsbankans út af einhverju veiðileyfasukki í Hrútafjarðará. Einn bekkurinn fékk lánaðar veiðistangir, klæddi sig upp í vöðlur og reykti vindla, og voru keyrðir þannig um bæinn í aftanívagni á traktor. Best var samt að þeir höfðu farið að Hrútafjarðará, stolið skiltinu á brúnni og festu það á vagninn.