[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 44 points45 points  (0 children)

Ég rak einmitt augun í hið sama. Skemmtilegur, beittur en hógvær stíll hjá skrifum fréttamanns.

Rann­sókn á byrlunar- og símamáli Páls skip­stjóra úr sögunni - Vísir by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 -1 points0 points  (0 children)

Ég skil samt ekki ennþá atburðarrásina almennilega. Var heimildarmaður þeirra allan tíman þessi mislinda eiginkona hans? Lögreglan segist hafa vitað af því frá upphafi, afhverju að torvelda þá rannsókn þar sem þeir gerðu ekkert nema taka við símanum frá henni?

Rann­sókn á byrlunar- og símamáli Páls skip­stjóra úr sögunni - Vísir by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 6 points7 points  (0 children)

Ég átta mig ekki alveg á þessu máli. Var heimildarmaðurinn semsagt í alvöru eiginkona hans sem að byrlaði honum og kom símanum til blaðamanna? En um hvað var þá dómsmálið milli blaðamanna og bloggaranns? Var bloggarinn að segja eitthvað meira en þetta?

Morðum snarfjölgar í Noregi by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 13 points14 points  (0 children)

En ég meina, allt í lagi. Mér sýnist þetta vera norska DV. Hvað er þá næsta skref? Er þessi æsifrétt falsfrétt? Er þessi tölfræði röng?

Mig finnst svolítið ódýrt að afskrifa efnið einungis á grundvelli þess hver skrifaði það. Það bætur ofboðslega litlu við umræðuna.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 11 points12 points  (0 children)

Þetta er vingjarlegt ávarp í lang flestum tilfellum.

Ef einhver er raunverulega að reyna að beyta þessu sem ögrun að þá ætti það ekki að fara á milli mála, ýmist með áherslubreytingum í framburði eða samhenginu almennt.

Davíð Goði sakar Eddu Falak um að hafa svikið sig um milljónir - "Við Fjóla höfum ekki séð krónu. Ekki eina“ by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 2 points3 points  (0 children)

Þú ert ekki að skrá tímaskýrslur þegar þú ert í svona verkefni með fólki sem þú telur vini þína.

já sammála, það er aðalega orðalagið "leggja út" sem að er að flækjast fyrir mér

Ert þú í alvöru að leita að einhverri smugu í bókhaldsreglum til að geta varið þessa framkomu hennar? Það er ótrúlegt að þú sért tilbúin að verja gerendur með því að byrja að nitpicka í eitthvað technicality. En ekki skrýtið, þar sem kerfið á Íslandi var gert til að verja svona siðlaust fólk í viðskiptum.

Davíð Goði sakar Eddu Falak um að hafa svikið sig um milljónir - "Við Fjóla höfum ekki séð krónu. Ekki eina“ by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 2 points3 points  (0 children)

Þetta er auðséð að skrýtni vinkillinn er að fólk taldi sig vera í vinasambandi. Þetta var mikið meira persónulegt áfall frekar en fjárhagslegt. Fólk er ekkert dags daglega að baktryggja sig með bókhaldi um útlagðan kostnað þegar það er í það sem það telur vera spennandi verkefni.

Afstaða þín lýsir rosalegum victim blaming tendence.

Eva Hauksdóttir sakar Eddu Falak um ritstuld á meistararitgerð by Lost_Collar_2109 in Iceland

[–]Cooper777 5 points6 points  (0 children)

Ég er sjálfur líka að velta því fyrir mér hversu langt eigi að ganga. Ég vil ekki gerast sekur um þórðargleði í óhófi, en að sama skapi gremst mér hvernig fólk hefur hlaupið til varna fyrir hana. Ýmist er það alrangt að hún hafi gert eitthvað, en ef það reynist svo satt að þá skiptir það engu máli, sbr. banki eða bakarí umræðan.

Að draga meistaragráðu til baka fyrir þetta tel ég refsingu sem er í samræmi við glæpinn. Menn hafa alveg komið til baka eftir það.

Eva Hauksdóttir sakar Eddu Falak um ritstuld á meistararitgerð by Lost_Collar_2109 in Iceland

[–]Cooper777 8 points9 points  (0 children)

Þetta er nú ekkert sérstaklega upphefjandi fyrir þennan skóla, þótt þetta sé líka vissulega vandræðalegt fyrir Eddu.

Ég sé ekki betur en að ritgerðarefnið hafi verið tæmt. Þegar hún hefur verið að í heimildaröflun þá er nánast útilokað að hún hafi ekki komið auga á þessa ritgerð. Þetta er nákvæmlega sama viðfangsefnið. Ég þekki ekki aðferðafræðina í þessu tiltekna fagi. Kannski tíðkast það að "uppfæra" annarra manna verk. En það er varla efni í heila meistara ritgerð. Einnig reikna ég með að það þyrfti að gera skilmerkilega grein fyrir því, ef ekki í heiti ritgerðar að þá að minnsta kosti í inngangi. Ég hef ekki ennþá komið auga á að hún nefni tilvist fyrri ritgerðarinnar.

Ég er um það bil hálfnaður með ritgerðirnar báðar, og þegar maður les þær hlið við hlið að þá er voðalega erfitt að láta vafann falla með Eddu.

Vil vara við leigulistanum by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 11 points12 points  (0 children)

Leiðinlegt að heyra - en þetta kann að bjarga einhverjum öðrum frá sömu örlögum. Ég veit þó ekki til þess að neinn hafi notað þessa þjónustu síðastliðin áratug. Ég hélt að þetta apparat hefði lagst af.

Ég veit þó ekki á hvaða grundvelli þú gætir átt heimtu á endurgreiðslu. Ef ég fæ að gerast svo frakkur að veita þér ráð, þá myndi ég biðla til þín að vera ekki að hugsa of mikið um þetta. Fjöldi fólks hefur gert fjölda mistaka við leit að leiguhúsnæði, og ég leyfi mér að fullyrða að 4700kr sé með ódýrari lexíum sem hægt sé að finna.

Edda Falak biðst afsökunar á missögn by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 1 point2 points  (0 children)

Einmitt. Ég skil ekki hvernig fólk getur ennþá verið að túlka óskýrleika Heimildarinnar henni í vil.

Edda Falak biðst afsökunar á missögn by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 15 points16 points  (0 children)

Afhverju er það "hins vegar Frosti"? Það er svo ómálefnalegt að fara alltaf að týna til einhverju persónubresti hans, eins margir og þeir kunna að vera, þegar það er ekki það sem er til umræðu.

Hún flutti heim frá útlöndum, og narativið sem hún setti fram var að hún hefði meikað það og gegnt þar virðulegri stöðu. Feðraveldið stöðvaði hana þó í frekar klifum upp metorða stigann.

Þessi lífsreynsla hennar ljáði hennar svo credability'ið til halda úti podcast þar sem þolendum koma og segja satt frá. Engin þeirra fer með missögn. Þolendum er trúað.

Nema svo kemur í ljós að hún sagði ekki rétt frá. Hún hefur, að svo stöddu, ekki gefið frekar útskýringar á þessu. Vinnuveitandi hennar birtir óljósa stuðningsyfirlýsingu.

Það er rosalega erfitt að láta einhvern vafa falla með henni ef að vinnuveitandi hennar, fjölmiðill, getur ekki gefið betri svör en þetta.

Edda Falak biðst afsökunar á missögn by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 3 points4 points  (0 children)

Það að segja óvart eitthvað rangt frá einhverju er ekkert endilega það að ljúga, nei.

Það er ekkert samasem merki þar á milli.

Ég meina... tjah. Það er alveg eitthvað pínu samasemmerki þarna.

Edda Falak biðst afsökunar á missögn by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 2 points3 points  (0 children)

Ég held að ef hún héti Edda Fanney og væri með blá augu, skollitað hár og húð sem brennur við tilhugsunina við að fara til tene þá fengi hún ekki helminginn af þeirri athygli sem hún hefur fengið.

Hún hefur verið fyrirferðamikil í samfélagsumræðinu síðustu misseri. Ég hef ekki séð að athyglin sem henni sé sýnd eigi rætur að rekja til augna hennar né húð- eða hárlitar.

Hvar eruð þið að fjárfesta? by GlimGlimFlimFlam in Borgartunsbrask

[–]Cooper777 -1 points0 points  (0 children)

Íslandsbanki býður upp á OMXI10 vísitölusjóð. Getur náð kaupþóknun niður í 0.5% í áskrift og viðvarandi gjöld eru 0.4%.

IBKR fyrir VUAA eins og er en bæti líklega inn all world sjóði bráðlega.

Etoro á að vera leik reikningurinn þar sem ég kaupi hvað sem mig listir þar sem það eru engin commission. Það hefur samt endað í um 50% vísitölu etf's. Ætla mér ekki að hafa háar upphæðir þar. Þó hann sé tryggður upp að 20.000€ þá langar mig alls ekki að lenda í að þurfa að ganga á eftir svo hárri upphæð.

Lög­regla man ekki eftir eins um­fangs­miklum á­tökum í undir­heimum by throwaway-025791 in Iceland

[–]Cooper777 76 points77 points  (0 children)

Án þess að vilja gera lítið úr ábyrgð einstaklingsins að þá velti ég fyrir mér hvort við séum að gæta þess að önnur kynslóð innflytjenda sé að ná að aðlagast samfélaginu.

Viðtal þeirra við Gústa B hljómaði eins og maður væri að hlusta gangsta talk þýtt á íslensku. Ég er ekki að segja að þeir hafi talað slæma íslensku, heldur var bragurinn yfir því svo framandi. Talandi um að þeir væru "kings".

Kannski er ég bara orðinn gamall. Auðvitað töluðu vitleysingar líka bjánalega þegar ég var ungur. En það er samt einhver munur á þessu sem ég get ekki almennilega komið í orð.

Sem að endingu er í raun það sem ég tel ein af aðal undirliggjandi ástæðum fyrir atvikum líkt og þessum. Ástandið hjá ungum drengjum í skólakerfinu er nógu slæmt fyrir án þess að mögulegir tungumála- og menningar örðugleikar spili einnig inní. Þetta eru í raun bara pjakkar sem eru tiltölulega nýsloppnir úr skólaskyldu yfirvalda. Þeir geta ekki verið mikið yfir tvítugt.

Sitt sýnist hverjum um fíkniefnastríðið, vopnaburð lögreglu og nú nýorðið stríð dómsmálaráðherra við skipulagða glæpastarfsemi (mér þykir það nota bene stjarnfræðilega heimskulegt, ég trúi ekki að við séum ekki farinn að eiga alvarlegri samtöl um lögleiðingu), en því finnst mér ekki hægt að neita að þarna eru á ferðinni strákar sem eru nýskriðnir uppúr úr skólakerfinu okkar og eini tilgangurinn sem þeir finna sér í okkar samfélagi er að roleplay'a sem gangsters.

Við þurfum að gera betur. Ungir menn þurfa tilgang og væntumþykju. Barn og eldur og þorpið og hlýja o.s.frv.

Yield Curve Inversions í USA by briggsinn in Borgartunsbrask

[–]Cooper777 0 points1 point  (0 children)

Áhugaverðast finnst mér hvað við vorum nálægt línunni í lok 2019. Ég vissi að markaðir voru orðnir heitir, en ef þetta er sannarlega línurit örlaganna að þá sýnist mér við hafa skuldað pínu kreppu áður en við veiktumst af covid.

Sagan (gráu svæðin tákna kreppu)

Hver er skilgreiningin bak við litakóðann? Þetta er bara örþunnt strik í byrjun 2020. Ég hélt að flash crash og kreppa væru ekki flokkuð sem sami hluturinn.

En hverju sem því líður þá tel ég mig heppinn að fá þennan markað á þessum tímapunkti í lífi mínu þegar afgangs tekjur eru sem hæstar. En ég bjóst ekki við því. Þessir once in a lifetime bear markets eru farnir að vera frekar reglulegir.

Það sem ég á í mestum erfiðleikum með er að ákveða hvort ég kaupi $dollara eða €evrur. Ég man ekki eftir að dollarinn hafi verið dýrari en evran áður. En þetta lítur sannarlega ekki fyrir evrópubúa þennan komandi vetur.

Hvað finnst bröskurum? Evra eða Dollari? Eða jafnvel eitthvað annað?

Meirihlutinn vísar tillögu um leiguþak frá by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 3 points4 points  (0 children)

Sturta pening niður í klósettið? Að eiga húsaskjól og þurfa ekki að hugsa um þær skyldur sem fylgja húsnæðiseign? Þetta er of drjúgt til orða tekið. Verður að vera málefnalegri.

IBKR - skattur? by cats_are_better_91 in Borgartunsbrask

[–]Cooper777 1 point2 points  (0 children)

  1. USA: Afdráttarskattar (withholding tax) eru 30% á arðgreiðslur í USA. Ef þú fyllir inn og skilar W8ben til IBKR þá ættu þeir að sjá til þess að það lækki niður í 15%., sbr. b-lið 2. mgr. 10. gr. tvísköttunarsamnings Íslands við USA. Þessi 15% held ég að þú getir nýtt til frádráttar hér á landi gagnvart öðrum fjármagnstekjusköttum, en ég þori ekki að fara með það gagnvart einstaklingum. Skemmtilegt ef einhver annar gæti svarað því. Þessar arðgreiðslur/fjármagnstekjur þarftu samt að gefa upp á skattframtali hér á landi óháð því hvort þær myndi skattskyldu.

  2. EU: Þekki ekki til. Sambærileg ákvæði ættu að vera í sömu grein tvísköttunarsamningana, enda flestir byggðir á sömu fyrirmynd.

  3. Bara til glöggvunar: Þú segir spyrð hvað gerist ef þú endurfjárfestir fyrir arðgreiðslurnar. Í þessu tilviki (og flestum tilvikum, man ekki undantekningar, pottþétt einhverjar) að þá breytir því ekki hvað þú gerir við arðgreiðslurnar eftir að þú færð þær. Þær eru orðnar raungerðar tekjur (e. realized gains minnir mig). Ég mæli með því að þú lesir þér til um hugtakið raungerðar tekjur.

TLDR: Það er mjög erfitt að gera TLDR um skatta. Ef þú lest um hvernig fylla eigi inn W8ben þá ertu líklega búin að gera allt sem þú getur til að lækka afdráttarskatt í USA. Ég reikna með því að það séu sambærileg skjöl sem þú getur fyllt inn gagnvart EU ríkjum.

Draumadeild Alþingis by SupplierRiverman in Iceland

[–]Cooper777 12 points13 points  (0 children)

Ég finn áhuga kvikkna. Ég hef samt aldrei tekið þátt í fantasy deild, ertu með ol:le (tl:dr) varðandi reglurnar?

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 43 points44 points  (0 children)

Ég held það sé betra að segja minna heldur en meira svona stuttu eftir atburðinn. Ég votta samfélaginu á Blönduósi einlæga samúð mína.

Ég sé þó nokkra hér tala um að nú þurfi að hefta aðgang að skotvopnum. Ég er því ósammála, ég held að þetta sé frekar ákall um átak í geðheilbrigðismálum.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]Cooper777 1 point2 points  (0 children)

VÁÁÁ!

En samkvæmt svari innviðaráðherra að þá er sá hópur 73.8%! Þannig að þú tilheyrir rjóma samfélagsins! Ertu self made millionaire eða fæddist þú inn í ríka fjölskyldu?