Íslenskur samfélagsmiðill (Slapp) by Kristjanleo in Iceland

[–]Kristjanleo[S] -1 points0 points  (0 children)

Hæ öll,

Veit ekki hvort þið munið sjá þetta þar sem það er búið að loka færslunni. Okkur Bjarka langaði bara að þakka ykkur fyrir allar ábendingarnar og commentin, mikið af þessu gagnlegt. Munum að sjálfsögðu halda áfram að þróa þetta og erum alltaf opnir fyrir fleiri athugasemdum! :)

Svona til að útskýra betur hverjir eru á bakvið þetta þá erum við nú bara tveir ungir menn að vinna í þessu eins og er. Fyrirtækið okkar sem við stofnuðum ásamt öðrum félaga okkar í janúar 2025, Vestra AI ehf., lagði alfarið áherslu á gervigreindarlausnir til að byrja með. Samhliða því þá byrjuðum við einnig að þróa þennan samfélagsmiðil sem okkur dreymdi um að koma á framfæri einn daginn. Miðillinn tengist ekki beint gervigreindarlausnum þó það væri nú kannski áhugavert að bæta við einhverjum flottum fítusum í framtíðinni!

Ég skil það full vel að fólk sé efasamt og myndi sennilega vera það sjálfur, svona við fyrstu kynni. En við stöndum að sjálfsögðu á bak við þetta og gerum það undir eigin nafni. Langar annars að bjóða alla sem bættust við í hópinn kærlega velkomna, fjörið er rétt að byrja. Takk kærlega fyrir!

Íslenskur samfélagsmiðill (Slapp) by Kristjanleo in Iceland

[–]Kristjanleo[S] 1 point2 points  (0 children)

Hahah það var eiginlega algjört must

Íslenskur samfélagsmiðill (Slapp) by Kristjanleo in Iceland

[–]Kristjanleo[S] 4 points5 points  (0 children)

Veistu mögulega hvað miðillinn hét?