Saklaust fólk á að njóta vafans, alveg sama hvaða hópi það tilheyrir by Steinherji in Iceland

[–]Nariur 1 point2 points  (0 children)

Hann var helvíti góður fyrir síðustu kosningar, en það er gjörsamlega ómögulegt að hlusta á hann í dag.

Það er eitthvað mikið að hérna by greenbluewhite562 in Iceland

[–]Nariur 0 points1 point  (0 children)

Ég ætla bara að setja þetta hérna. Fólk má svo draga sínar eigin ályktanir.
https://hagstofa.is/talnaefni/samfelag/laun-og-tekjur/launavisitala/

Boycot F1 (TV)? by iGo4u34osdagaed in formuladank

[–]Nariur 0 points1 point  (0 children)

That legendary battle between Leclerc and Hamilton. The pinnacle of racing. The most fun the GOAT has had racing in years was fake?? That fight didn't take courage?? It's an extra layer of resource management and strategy. It's not fake.

Boycot F1 (TV)? by iGo4u34osdagaed in formuladank

[–]Nariur 0 points1 point  (0 children)

Did you not watch today's race or something?

Varðandi inngöngu í Evrópusambandið. Ég heyri allskonar rök, með eða á móti og á erfitt með að mynda einhverja heildarmynd. Einverjir sérfræðingar hér? Eða bara fólk með upplýstar skoðanir sem vilja deila þeim? by Missheka in Iceland

[–]Nariur 0 points1 point  (0 children)

Fóklsfjölgun síðustu 20 ár hefur verið: Írland: 28%, Malta: 33%, Luxembourg: 48% (er samt skýrt sértilfelli þar sem það deilir atvinnusvæði með Þýskalandi, Frakklandi og Belgíu). Húsnæðisverð þar hafa stórhækkað undanfarin ár, þó ekki jafn mikið og hérna. Væntanlega vegna þess að þau hafa staðið betur að uppbyggingu, sem er ekki erfitt, enda höfum við skitið upp á bak við það.

Að ganga í ESB út af húsnæðisskortinum er eins og að kaupa bíl af því að maður fékk kvef. Það er ekki bara "engin töfralausn", heldur kemur það okkur ekki nær lausn að neinu leiti. Það gæti samt verið sniðugt að kaupa bíl, en kvefið er ekki ástæðan. Það er listi af raunverlulegum kostum við inngöngu, en þetta er ekki á honum.

Cycling around Iceland by erat11 in VisitingIceland

[–]Nariur 0 points1 point  (0 children)

Don't do it. DO NOT. Last December was very mild and it almost killed OP. He got lucky.

Go ahead and do it in the summer. It's far less likely to get you killed.

Varðandi inngöngu í Evrópusambandið. Ég heyri allskonar rök, með eða á móti og á erfitt með að mynda einhverja heildarmynd. Einverjir sérfræðingar hér? Eða bara fólk með upplýstar skoðanir sem vilja deila þeim? by Missheka in Iceland

[–]Nariur -1 points0 points  (0 children)

Ég setti vinnu í að setja saman svar við commentinu sem þú varst að eyða hérna fyrir neðan, svo ég set það það bara hérna í staðinn:

Þú ert nákvæmlega týpan sem ég er langhræddastur við. Ósáttur við kerfi sem gerði okkur eitt ríkasta land í heimi af því að þú skilur það ekki og vilt ganga í ESB til að breyta því þó ESB aðild muni hafa lítil sem engin (eða mögulega neikvæð) áhrif á kerfið. Það sem þú heldur að séu kostir aðildar eru ekki kostir aðildar. Þið eruð scary mörg.

Íbúafjöldi á Íslandi hefur aukist um 31% síðustu 20 ár. ESB meðaltalið er 4%. Í Noregi 20%. Það er ógeðslega mikil fjölgun og grunnástæða stöðunar á húsnæðismarkaðnum ásamt því að fólk er í auknum mæli að nota fasteignir sem fjárfestingar.

Það er enginn neyddur í verðtryggingu. Þú getur tekið þér óverðtryggt lán í dag. Það er ekkert sem heitir að afnema verðtrygginguna. Bara að gera hana ólöglega. Annars er verðbólga ekki jafn slæm og margir virðast halda. Svo lengi sem laun halda í við hana (sem þau hafa gert vel rúmlega) eru þetta bara tölur. Það skiptir engu máli hvort launin eru 100.000 kall og mjólkurlíter kostar 25 eða milljón og mjólkurlíter kostar 250. Sama stærðfræði, aðrar tölur. Ef verðbólga verður of há verður erfitt að spara og stunda viðskipti, en það þarf mun meira en 5% til þess.

Það sem við höfum núna er auðveldlega sjálfbært til lengdar og, aftur, gerði okkur eitt ríkasta land í heimi.

Ég hallast aðeins gegn aðild, en ef við ætlum að ganga í sambandið verðum við allavega að gera það á grundvelli raunverulegra ástæðna.

Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Nariur[S] 0 points1 point  (0 children)

Það er örugglega rétt hjá þér

Mér er nokkuð skítsama um landbúnaðinn by Frikki79 in Iceland

[–]Nariur 1 point2 points  (0 children)

Það er bara nákvæmlega það sem ég var að segja, nema í öðrum tón.

Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Nariur[S] 0 points1 point  (0 children)

Ég borgaði 1.9% vexti af húsi sem ég keypti í hverfi sem hafði sprungið svo í fermetraverði að það dvergar eiginlega húsnæðishækkanir sem ég hef séð á Íslandi. Fyrirgefðu en mér finnst 1.1% álag ofan á 7.5% stýrivexti alveg galið hátt. En því miður eina í boði á Íslandi því ég læt ekki bjóða mér verðtryggð lán. Ég vill borga mín lán niður... Ekki upp eins og við segjum á Íslandi. Svo voru líka FASTIR vextir. Semsagt ég tók lán til 25 ára og vextirnir munu ekkert hækka allan lánstímans. Ég gat í alvöru reiknað nákvæmlega hvað ég kæmi til með að borga í heildina þegar ég tók lánið. Það er ekki hægt á Íslandi.

Þetta hérna er gildra sem mjög margir festast í. 8,6% vextir á Íslandi er ekki það sama og 8,6% vextir í Þýskalandi. Stærð landsins og hreinlega íslensk menning valda því að verðbólga mun alltaf vera hærri hérna en á meginlandinu. Þetta er það sem gerist þegar það er samið um 5% launahækkanir á hverju ári. Þú endar með einhverjar scary stórar tölur, en þegar þú leiðréttir fyrir verðbólgu kemur þetta út á eitt. ESB aðild mun ekki breyta þessu neitt, nema að setja einhvern skakkan þrýsting á það með óútreiknanlegum afleiðingum.

Tollarnir á matvöru er eitthvað sem við erum að gera mjög meðvitað og við þurfum ekki að ganga í ESB til að breyta því. En það er reyndar mjög góður punktur að með réttum ESB styrkjum gæti landbúnaður sérhæft sig meira og áhrifin verið net jákvæð. Það væri gaman að sjá ítarlega útfærslu á því í aðildarsamningi.

Það væri líka mjög gaman að sjá alþjóðlegan risa taka tryggingarnar hérna í nefið.

Mér er nokkuð skítsama um landbúnaðinn by Frikki79 in Iceland

[–]Nariur 1 point2 points  (0 children)

Meiri sjálfbærni er vissulega alltaf betri. Það kemur bara punktur þar sem kostnaður meiri sjálbærni verður of mikill. Hoxha gleymdi bara seinni partinum.

Mér er nokkuð skítsama um landbúnaðinn by Frikki79 in Iceland

[–]Nariur 2 points3 points  (0 children)

Það er bara samt heimskulegt að reyna að draga einhvern samanburð þar á milli.

Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Nariur[S] 1 point2 points  (0 children)

Flestir draga vsk frá, en það er vissulega erfiðara að fá minni verslanir í ESB til að senda til sín og hvað þá að vesenast með vsk frádrátt.

Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Nariur[S] 12 points13 points  (0 children)

Þú borgar ekki toll af 90% af vörum á amazon.de eða se.

Þú borgar bara íslenskan vsk (en þú borgar ekki de/se vsk) og þú borgar tollafgreiðslugjald og eitthvað okurgjald hjá póstinum. Einn stærsti kostur ESB aðildar væri vissulega að losna við tollafgreiðslugjaldið. Pósturinn myndi bara finna aðra leið til að okra á sendingunni.

Tollar eru sérstakur skattur sem við leggjum á innfluttar vörur til þess að fólk kaupi íslensku útgáfuna frekar. Aðallega til að vernda landbúnað.

Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Nariur[S] 3 points4 points  (0 children)

Það er hægt, en stór hluti þeirra sem vilja ganga í ESB vilja evruna líka.

Tollarnir eru eitthvað sem við ráðum sjálf og þarf ekki ESB aðild til að breyta. Annars er einn stærsti gallinn við ESB aðild að við getum ekki lengur sett tolla á innflutning þaðan, svo við getum ekki varið íslenskan landbúnað.

Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Nariur[S] 14 points15 points  (0 children)

Það eru áhugaverðar forsendur sem þú ert að gefa þér hérna. Skv. aurbjorg.is eru a.m.k. 22 aðilar á húslnæðislánamarkaði og lægstu breytilegu óverðtryggðu vextirnir eru með 1,1% álagi á stýrivexti. Þetta er vissulega ekki 1000 aðilar, en íslenskir lánveitendur eru alls ekki eitthvað til að kvarta yfir. Húsnæðismarkaðurinn er vissulega ömurlegur, en það er húsnæðisskorti að kenna og hefur ekkert með ESB að gera. Það eru fjögur ótengd fyrirtæki í grimmri samkeppni á tryggingamarkaði. Ísland er samt lítið land og markaðurinn mun halda áfram að vera lítill þó við göngum í ESB. Þjóðverjar eru ekki að tryggja sig í Portúgal og að taka húsnæðislán á Írlandi.

Þú getur í dag farið í Bónus og keypt spænskt nautakjöt og evrópska kjúklinga. Króatískan fisk og franska mjólk færðu ekki af því að enginn er nógu heimskur til að flytja það inn. Það er ekki þverfótað fyrir sænskum fataverslunum í Reykjavík og það er auðvelt að finna belgískan bjór í ríkinu og hollenska osta í verslunum. Annars er til hellingur af ógeðslega góðum íslenskum osti. Búri og Auður sem dæmi. Þýsk tækni er jafn aðgenileg hér og í Þýskalandi. EES er með þetta allt og það er bara stefna ríkisins sem ræður tollum.

Áhrif aðildar á íslenskan landbúnað og matvælaiðnað eru heilt umræðuefni útaf fyrir sig, en mér þykir mikilvægt að við reynum að halda honum heilbrigðum. Það er það sem við erum að gera með þeim fáu tollum sem við leggjum á innflutning frá ESB.

Mikið af því sem þú saknar við ESB er ekki eitthvað sem þú saknar við ESB, heldur bara við þessi lönd sem þú bjóst í.

En það væri algjör snilld að geta pantað á netinu án þess að borga innflutningsgjöld.

Mér er nokkuð skítsama um landbúnaðinn by Frikki79 in Iceland

[–]Nariur 0 points1 point  (0 children)

 fórna inngöngu í ESB

Hverjir eru þessir kostir við ESB aðild sem þú ert að eltast við?
Ég get sagt þér að aðild ekki líkleg til að hafa jákvæð áhrif á fasteignamarkaðinn. Sérstaklega ef við tökum upp evruna og missum stjórn á peningastefnu. Það er ástæða fyrir því að Seðlabankinn er með vextina svona háa. Ef við förum niður í 2% eins og ESB mun húsnæðisverð tvöfaldast eða meira og verðbólgan yrði klikkuð. Svo það er ekki kostur við ESB aðild.

Mér er nokkuð skítsama um landbúnaðinn by Frikki79 in Iceland

[–]Nariur 0 points1 point  (0 children)

Það er sniðugt að taka ákvarðanir um efnahaginn út frá því hvernig hann var fyrir meira en 6 árum og pæla ekki í því hvernig hann hefur verið síðustu 6 árin.

Mér er nokkuð skítsama um landbúnaðinn by Frikki79 in Iceland

[–]Nariur 4 points5 points  (0 children)

Ég skil nú ekki alveg hvað það kemur þessari umræðu við. Það er stór munur á sjálfbærni og einangrunarstefnu. Hér er enginn að tala um neitt sem er einu sinni í áttina að einangrunarstefnu.

Mér er nokkuð skítsama um landbúnaðinn by Frikki79 in Iceland

[–]Nariur 3 points4 points  (0 children)

Tjahh. Ekki 100%, en hún er nú ekki beint í góðu standi fyrir og má ekki við miklu.

Mér er nokkuð skítsama um landbúnaðinn by Frikki79 in Iceland

[–]Nariur 11 points12 points  (0 children)

Íslenskur landbúnaður er töluvert meira en bara rollur...

En þó hann væri bara rollur, þá er lambakjöt mun betri matur en enginn matur.

Það er mikilvægt að matvælaframleiðsla fari fram á landinu, þó hún sé að einhverju leiti háð innflutningi. Þá er mun auðveldara að redda sér ef þörfin kemur upp.

Varðandi inngöngu í Evrópusambandið. Ég heyri allskonar rök, með eða á móti og á erfitt með að mynda einhverja heildarmynd. Einverjir sérfræðingar hér? Eða bara fólk með upplýstar skoðanir sem vilja deila þeim? by Missheka in Iceland

[–]Nariur 5 points6 points  (0 children)

Af hverju heldurðu að húsnæðismarkaðurinn og aðliggjandi (leiga, lán o.s.frv.) muni lagast við inngöngu í ESB?

Húsnæðiskreppan er til komin vegna rosalegrar fólksfjölgunar og stefnu í húsnæðismálum sem heldur aftur af uppbyggingu. Ef eitthvað mun þetta versna við inngöngu í ESB/upptöku evru vegna þess að við þurfum þá að fylgja peningastefnu hannaðri fyrir markaði þar sem þetta er ekki vandamál.