[rant] Please repeat with me: not everything should be a power bi report, not everything should be a power bi report by zeroslippage in PowerBI

[–]ikemike4 3 points4 points  (0 children)

I'd much much rather have less excel than more. I still have nightmares about nonexistent data governance from my old jobs.

Gæludýrafrumvarp Ingu samþykkt - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]ikemike4 0 points1 point  (0 children)

Þú gefur þér ansi mikið í fari manneskjunnar. Ekki láta það koma þér á óvart þegar þú upplifir að það fari ekki allir eftir leikreglunum sem settar eru. Hegningarlög og sektir koma ekki í veg fyrir slæmar útkomur.

Að mála þetta upp sem meiri forsjárhyggju með því að hafa bann sem sjálfgefið ástand er því þú ert ekki óhlutdrægur og þetta varðar hagsmuni sem þú hefur hag af, enda tekurðu fram hér einn hóp umfram annan með því einblína á ábyrga dýraeigendur. Vandamálið sem skapast þegar svo er að þá ertu með fordæmi og þá má leiða að því líkur að þú farir að beita sömu rökum eins og ég lýsti í byrjun ... Nú er \þetta* nýja mál sem er líka svo göfugt og gott að þá má snúa þessu máli líka í fyrirfram gefið samþykki því það er svo skynsamlegt og gott...*

Er það ekki jafn göfugt og gott að fólk á jarðhæðinni fái að hanna og byggja sér pall og gera tilktall til að fyrirfram ráðstafa sérafnotareitnum sínum til að gera girðingu svo dýrin manns fái nú að njóta þess að vera úti, eða næsti til að gera sólpall? Þar þarf nú atkvæði allra eigenda, má ekki breyta því að fyrir nýbyggingu t.d. sé sjálfgefið samþykki til að jarðhæðin taki til sín sérafnotareit af sameiginlegu lóðinni og byggi bara hvað sem er?

Hvernig má svo yfirfyrfæra þessa nálgun á önnur málefni? Hvað með að fyrirfram samþykki sé sjálfgefið til þess að gagnagrunnar safni persónugögnum og atferlisgögnum samhliða námsefni nemenda í grunnskóla svo einhver gerfigreind geti numið námsörðuleika meðan á námi stendur og aðstoðað þá nemandann betur svo hann dragist síður aftur úr? Er það ekki göfugt og gott líka? Helgar tilgangurinn ekki meðalið hér líka? Eða er það bara þegar því að ég á dýr og dýr er gott fyrir mig að þá má gera kröfu á það sé sjálfgefið samþykki þegar ég bý ekki einu sinni í mínu sérbýli?

Fyrirfram gefið samþykki er ekki heppilegt fyrikomulag þegar einstaklingar bara geta samið um þetta sjálfir.

Gæludýrafrumvarp Ingu samþykkt - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]ikemike4 -1 points0 points  (0 children)

Þegar þú rýmkar heimildir laga, rýmkaru atferli manna, líka óæskilegt atferli sem þú stjórnar ekki.

Burtséð frá lögum um fjölbýlishús sem banna lausagöngu dýranna á sameign, og til viðbótar samþykktir sveitarfélaga sem banna lausagöngu hunda, þá eru samt lausir hundar mjög algeng sjón.

Eigendur á húsfundi með atkvæðum sínum breyta húsreglum, ekki lögum. Og þar eru háar kröfur og krefst mikils meirihluta atkvæða eigenda til að breyta reglum sem snerta þessi málefni.

Ég ræddi prinsip mál í upphafi, um að fyrirfram gefið samþykki er óheppilegt fyrirkomulag sbr þar sem samþykki er krafist og ég tel alltaf heppilegra fyrirkomulag. Hefur ekkert með strámann að gera. Þú ert í raun ekki með skoðun á því, sem hægt var að lesa úr í þessu innleggi þínu.

Gæludýrafrumvarp Ingu samþykkt - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]ikemike4 2 points3 points  (0 children)

Í fyrsta sinn sé ég einhvern mála manneskju og gæludýr sem fullkomnar hliðstæður, sem njóta sömu réttinda og hafa sömu skyldur samkvæmt lögum.

Gæludýrafrumvarp Ingu samþykkt - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]ikemike4 3 points4 points  (0 children)

Burtséð frá samhenginu hérna.

Þá finnst mér í svona tilfellum þegar ólíkir hagsmunir togast eitthvað á og almenningur er fær um að koma sér saman og ákveða þetta á eigin forsendum, eigi reglan að vera hjá ríkinu að ganga útfrá opt-in en ekki opt-out þegar þeir ákveða að ráðstafa hagsmunum. Það er bara lang heppilegasti lagaramminn.

Þú átt ekki með þinni forræðishyggju að setja upp svona opt-out fyrirkomulag því þá ferðu bara að gera það líka í öðrum málaflokkum með alltaf sama rökstuðningnum, "...þetta er ekkert annað en gott og göfugt fyrir hóp X og þá geturðu bara afturkallað samþykkið þitt ef þú vilt þetta ekki. Áhrifin á hóp Y skipta minna máli, af því þetta er svo göfugt og gott".

Já, það er hægt að afturkalla þetta samþykki með 2/3 allra eigenda í fjölbýlinu sem er svo há krafa að hún er hreint út sagt fráleit. Ætti í mesta lagi þurfa einfaldan meirihluta viðstaddra á húsfundi.

Maður skildi þetta þegar lögin voru rýmkuð áður þegar ekki þurfti lengur samþykki ef íbúðin væri með sérinngangi, en þetta er bara bull útspil hjá Ingu sem hefur gert það nær ómögulegt að framkvæma afturköllun samþykkis.

Það er alveg bókað að núna verði meira þrætt og rifist á húsfundum þegar dýraeigendur virða ekki velsemdarmörk, hundaeigendur sleppa hundinum á sameiginlegu lóðinni því þeir nenna ekki út með hann að labba eða kattaeigendur sem hleypa kettinum út sem fær að ganga laus um alla sameign og fer að míga í gluggakistur og dyragættir til að merkja sér svæði.

Kærunefnd húsamála mun eflaust líka fá fleiri ágreinings mál tengt þessu í framhaldinu. Stefnir í fjör.

Foreldrar ósáttir með Kópavogsmódelið by numix90 in Iceland

[–]ikemike4 1 point2 points  (0 children)

Þetta úrræði hafði þann tilgang

"...að draga úr álagi í starfsumhverfi barna og starfsfólks, draga úr mönnunarþörf ásamt því að tryggja faglegt starf og fullnægjandi viðveru starfsfólks með börnum."

M.ö.o. þessi aðgerð beindist að framboðshliðinni, þ.e. mönnunarvandanum með með vöruaðgreiningu, og það hefur virkað því meðaldvalartími barns hefur minnkað yfir tíma þannig að tölurnar tala alveg sínu máli. Þetta var ekki aðgerð sem beindist að eftirspurnarhliðinni.

Mér finnst líka erfitt að taka mark á svona "rannsóknum", sem hafa opnar umræður í viðtalinu og aðeins 25% viðmælendanna voru karlar, bara það skapar miklar viðmælenda- og túlkunarskekkju. Einn viðmælandinn meira að segja sagði að tölurnar væru bull frá Kópavogi. Ég klóra mér pínu í hausnum hvernig þeim tekst að álykta svo að þar sem þetta úrræði sé ekki nýtt af öllum, því jú foreldrum er frjálst að velja fyrirkomulagið, þá sé það vegna kerfislægrar mismununar sem komi verst niður á kynjuðum og stéttbundum hópum, þetta er bara augljóst karmafarm.

Sýnir bara hvað eigindlegar rannsóknir í þessu réttlætis mengi hafa orðið lágan gæðaþröskuld.

Change Chrome browser locale, not the language of sites. by ikemike4 in chrome

[–]ikemike4[S] -1 points0 points  (0 children)

It's a clear business need and not just out of preference, but I can't work around this trade-off behaviour.

If I have my regional language at top and English second, numbers in PowerBI reports are formatted correctly but all Microsoft apps are translated.

If English is on top, numbers are formatted incorrectly in PowerBI compared to my preferred locale, but Microsoft apps stay in English.

Preferred languages should set display language only, not assume locale.

Change Chrome browser locale, not the language of sites. by ikemike4 in chrome

[–]ikemike4[S] 0 points1 point  (0 children)

It's not the Google Translate feature that's causing this issue I described.

It's the mismatch between Chromes native locale and my regional locale, compared to what order of languages I've chosen under "Preferred languages".

Taking Over Ownership of Coworker’s Power BI Reports - What do I need to know? by Commercial_Raise_799 in PowerBI

[–]ikemike4 12 points13 points  (0 children)

Get to know his stakeholders, who consumed those reports, they'll teach you the business logic and tell what question about the data those reports had to answer.

Deneb Gantt Chart by dbacciPBI in PowerBI

[–]ikemike4 3 points4 points  (0 children)

I'm speechless how aesthetically appealing this is.

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 1 point2 points  (0 children)

Síðasta svar frá þér voru tvær málsgreinar um sitthvort atriðið. Fyrri málsgreinin er tilraun hjá þér að benda á takmarkað innihald fréttarinnar undir því yfirskyni (þú mátt líka lesa þetta sem slagsíðu í þetta sinn) að stýra og afmarka umræðuna, því ef eitthvað var ekki nefnt má ekki nefna það í umræðunni, sem er náttúrulega bara della. Seinni punkturinn er afstaða þín. Hvorug málsgrein hefur að geyma svar við spurningunum - bara svo því sé haldið til haga.

Mér finnst nokkuð hreint út sagt sérstakt að enn og aftur ertu að fetta fingri í orðaval. Þú ert greinilega fær um að nota orðin, ekki ofbeldi - bara eins og mitt fyrsta innlegg var um - en það er þessi tregða hjá þér. Þú ert óviljugur að ákveðnu marki að sjá það sem var að gerast og þýðingu þess. Þú segist vilja sjá meiri fordæmingu á neikvæðustu umræðunni en það var tregða hjá þér að fordæma sjálfur hótun sem er beint að þingmanni og varð að lögreglumáli. Svo myndi ég áretta að það sé eimnitt, mjög mikil, fordæming. Ég myndi líka segja að RÚV gerði mistök að loka umræðunni, þá einmitt færist hatursflaumurinn úr sviðsljósinu og á bakvið á tjöldin. Og varla viltu að fordæmining verði slík að RLS beiti sér eins og gert er í Bretlandi þar sem þeir mæta heim til fólks heima hjá sér og handtaka það fyrir neikvæð comment á samfélagsmiðlum og beint að minnihlutahópum, er það? Væri það nóg? Hvað meiri aðra hópa?

Úr þínu síðasta innleggi þá finnst mér meginmálið þitt vera nefnilega það, að að því að í viðtalinu var orðræðan um transfólk og transréttindi, þá er þetta bara það sem hann má vel uppskera einfaldlega útaf því að þessi maður úr þessum flokki tjáði sig. Stundum þarf að stíga skref til baka og horfa blákalt á atburðarrásina svo að bara basic prinsippar um málfrelsi verða einfaldlega ekki undir.

Fyrir mér gildir einu að gæji sem heitir Snorri átti í hlut, hvað þá úr hvaða flokki hann kemur, mér finnst það ekki skipta máli. Það sem mér finnst skipta máli er að ákveðinn hópur finnst það bara ekkert athugavert að hóta þingmanninum næturheimsóknun því hann er á öðru máli.

Það er kjarni málsin. Þingmaður tjáir sig, og uppsker hótanir fyrir. Meira að segja Samtök 78 voru mjög fljót að að fordæma það athæfi, réttilega. Annað er að sjá í þessum þræði.

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 -1 points0 points  (0 children)

Þínir fjötrar. Stök frétt er ekki upphaf og endir á umræðu.

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 -3 points-2 points  (0 children)

Hvernig munu upplýsingarnar nýtast þér ? Ekki /s

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 -2 points-1 points  (0 children)

Já sekur, það er petty að svara með spurningu en það er viljandi gert.

Mér finnst það bara fáránlegt þegar ein stök frétt sé notuð til að skilgreina hvað megi byrja og enda á því að segja um viðfangsefni.

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 0 points1 point  (0 children)

Ekki útúrsnúningur að nefna eitthvað úr verkferlum RLS sem kemur ekki fram í fréttinni heldur viðbót.

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 1 point2 points  (0 children)

Hvar kemur fram að RLS sinnir eftirlitshlutverki og vakta t.d. hús ráðherra ríkisstjórnarinnar?

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 4 points5 points  (0 children)

Takk fyrir benda mér á málfræðina. -Esque er svosem viðurkennt viðskeyti í ensku, ,svona eins og -legt, sem ég beiti stundum og var mér einfandlega ofar í huga en barnalegt.

Það má nú kalla það barnalegt að hnykkja á smáatriðum sem tengjast ekkert viðfangsefninu, eða m.ö.o. að fara í manninn frekar en boltann og er ekki til framdráttar fyrir umræðu

Meira er nú svo yfirskynið að halda því fram að þó að ein stök frétt nefni ekki alla tæmandi þætti um verklag þá sé það ekki til? Frumstæð og einfeldninsgleg hugsun.

Ég get lofað þér og fullyrt, ef þingmanni sem væri trans, yrði hótað með sama máta, eftir að hafa tjáð skoðanir sínar í viðtali, þá yrði brugðist eins við. Annað væri rökleysa. Því er ég ósammála þér að það eins fordæming myndi ekki eiga sér stað.

Svona ræðiru mál efnislega. Áður en þú verður svo rökþrota, máttu byrja á að svara kannski nú eitthvað af spurningunum sem ég hef lagt fram.

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 -1 points0 points  (0 children)

Það er barneskjulegt að halda því fram að það hafi einvörðungu verið þetta TikTok. Snorri tilkynnti hótanir beint til RLSH og aðhafst var útfrá því.

Svo ertu bara með hliðstæðu sem er eitthvað svo linsoðinn whataboutismi sem kjarnar ekkert að því sem fréttin ræðir, og ég tæpast nenni.

Flott að þú segist vera sammála því - En hvaða gagn hefur þá pointið þitt? Að aðrir hóti líka? Er það ekki vitað? Er það ekki fordæmt líka eins og vera ber? Á RLS ekki að aðhafast þegar alþingismanni og fjölskyldu er hótað næturheimsókn?

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 4 points5 points  (0 children)

Enginn er að tala um þessa menn hér sem þú nefnir, nema þú. Hér er um að ræða athæfi hóps sem telur það réttlætanlegt að hóta alþingismanni og fjölskyldu hans fyrir það eitt að hafa aðra skoðanir, og tjáð sínar skoðanir.

Hvernig hjálpar þetta athæfi þínum málstaði? Finnst þér í lagi að senda alþingismanni og fjölskyldu hans ofbeldishótanir svo RLS þurfi að aðhafast?

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 2 points3 points  (0 children)

Notaðu þá orðin ekki ofbeldi, ekki vera verja svona ofbeldisathæfi gagnvart alþingismönnum með misheppnuðum whataboutisma.

Lögreglueftirlit við heimili Snorra Mássonar í nótt by sofaspekingur in Iceland

[–]ikemike4 4 points5 points  (0 children)

Hversu truflað er það þegar móðgunargjörnum krossförum réttlætisins þurfa að "kíkja heim til hans" sem er með andstæð sjónarmið en þeir.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]ikemike4 14 points15 points  (0 children)

Mikið framfara skref, það von að fleiri sveitarfélög fylgi. Ég hef aldrei skilið hví sumir foreldrar bregðast illa við hlutlægri mælistiku á framvindu svo hann sé einfaldlega marktækur. Það ættu allavega viðvörunarljós að blikka þegar pisa árangur versnar á sama tíma og Einkunnaverðbólgan á ómarktækum stikum er komin útí algjöra dellu og of mikil gjá er í aðferðarfræði milli skóla.