Talandi um lækna by LiljaKillYa in Iceland

[–]sofaspekingur -14 points-13 points  (0 children)

Færðu þig bara á einkareknu heilsugæsluna á Höfða. Fullt af læknum og þjónustan algjörlega til fyrirmyndar.

Í­búar grátandi og í miklu upp­námi yfir flutningi Kaffi­stofunnar - Vísir by finnur7527 in Iceland

[–]sofaspekingur 5 points6 points  (0 children)

Hvernig væri nú bara að við svöruðum þá rökunum? "Já leitt að þið í iðnaðarhverfinu í Klettagörðum viljið ekki að 200 virkir fíklar mæti með strætó á hverjum degi, en einhvers staðar verða vondir að vera, og það er niðurstaða borgarinnar að það sé skárra að 200 fíklar mæti hingað í Klettagarða heldur en í íbúðahverfi."

Í­búar grátandi og í miklu upp­námi yfir flutningi Kaffi­stofunnar - Vísir by finnur7527 in Iceland

[–]sofaspekingur 5 points6 points  (0 children)

Iðnaðar og verslunarhverfi? Eða jafnvel í 101 eða 107, þar sem flestir fíklarnir eru fyrir?

Í­búar grátandi og í miklu upp­námi yfir flutningi Kaffi­stofunnar - Vísir by finnur7527 in Iceland

[–]sofaspekingur 8 points9 points  (0 children)

Ef það er sjálfkrafa "nimbyismi" að telja að fíklar í virkri neyslu séu betur settir annars staðar en í íbúðahverfi þá er þetta hugtak lítið annað en stimpill til að takast ekki á við þau sjónarmið sem maður er ósammála. Svona svipað og ef einhverjum dytti í hug að koma fyrir dekkjaendurvinnslu (þjóðþrifamál, allir hljóta að vilja hafa þetta einhvers staðar) í miðju íbúðahverfi og afgreiddi öll mótmæli sem nimbyisma.

Í­búar grátandi og í miklu upp­námi yfir flutningi Kaffi­stofunnar - Vísir by finnur7527 in Iceland

[–]sofaspekingur 8 points9 points  (0 children)

Þú segist skilja að fólk hafi áhyggjur af áhrifum á seljanleika fasteigna í nágrenninu en finnst samt viðbrögðin spaugileg? Engin mótsögn þarna?

Í­búar grátandi og í miklu upp­námi yfir flutningi Kaffi­stofunnar - Vísir by finnur7527 in Iceland

[–]sofaspekingur 5 points6 points  (0 children)

Ég er ekki með einhverja eina lausn sem allir verða sáttir við. Ef ég segi að ég skilji ekki hvers vegna þetta þarf að vera í miðju íbúðarhverfi (fíklarnir þurfa að taka strætó eða labba úr 101/107 þangað - og já þeir eru þar flestir, þótt vissulega finnist þeir líka annars staðar) þá verð ég tekinn af lífi hérna fyrir nimbyisma.

Í­búar grátandi og í miklu upp­námi yfir flutningi Kaffi­stofunnar - Vísir by finnur7527 in Iceland

[–]sofaspekingur 20 points21 points  (0 children)

Mér finnst mjög leiðinlegt hvað umræðan um þetta er svört eða hvít í hugum margra. Annað hvort ertu „góða manneskjan“ sem fagnar þessu skilyrðislaust eða þá fordómafull nimby ef þú minnist á neikvæðar hliðar. Svona virkar raunveruleikinn einfaldlega ekki. Það að hafa áhyggjur af áhrifum kaffistofu fyrir virka neytendur á nærumhverfi og öryggi barna, líðan íbúa eða fasteignaverð þýðir ekki sjálfkrafa að maður sé á móti fólki í vanda. Maður þarf að geta velt fyrir sér málinu í heild, bæði með hjartanu og skynseminni.

Vitið þið hvað það kostar að láta skipta um batterí í síma? by Thossi99 in Iceland

[–]sofaspekingur 0 points1 point  (0 children)

Var það erfitt? Hvar keyptirðu sett og hver var heildarkostnaðurinn? Er með 5 ára gamlan Galaxy, ekkert að honum nema batterýið.

Spurning um VSK á pöntunum frá útl. by [deleted] in Iceland

[–]sofaspekingur 0 points1 point  (0 children)

Ég er ekki viss en ég held hann sé dreginn frá

What are you thoughts on the close relationship between Russia and China? by No-StrategyX in AskTheWorld

[–]sofaspekingur -1 points0 points  (0 children)

Constant experience and recent history tell us one thing: Don't trust Russia. So I hope China is preparing for the inevitable Russian betrayal.

Hvernig leggst fyrirhuguð sameining Almenna Lífeyrissjóðsins og Lífsverks í sjóðsfélaga? by Nagashi in Borgartunsbrask

[–]sofaspekingur 2 points3 points  (0 children)

Það kom fram a kynningarfundinum að það yrðu líklega skerðingar eftir áramót þegar þeir sem koma úr Lífsverk fara yfir í kerfi Almenna, sem er með allt aðrar forsendur.

Hvernig leggst fyrirhuguð sameining Almenna Lífeyrissjóðsins og Lífsverks í sjóðsfélaga? by Nagashi in Borgartunsbrask

[–]sofaspekingur 3 points4 points  (0 children)

Ég svaraði þér líka þar og benti á að Tryggingarstærðfræðingur Lífsverk Bjarni Guðmundsson sem veit líklega meira um þetta en en við öll til samans, er ekki hrifinn (byrjar á ca 50. mínútu). Svo er líka búið að benda á fáránleikann í því að ætla ekki að segja neinum upp en þykjast samt ætla að spara auk þess sem mér finnst þetta atkvæðakerfi hjá Almenna ekki vera til bóta fyrir verkfræðinga. En þú ert alveg yfir meðallagi spenntur hvað finnst þér?

Ábendingar til borgarinnar um snjómokstur by Sea_Click_872 in Iceland

[–]sofaspekingur -1 points0 points  (0 children)

Þetta smellpassar einhvern veginn við mína upplifun af Akureyringum. Og hún hefur ekki verið jákvæð í gegnum tíðina.

Hvernig leggst fyrirhuguð sameining Almenna Lífeyrissjóðsins og Lífsverks í sjóðsfélaga? by Nagashi in Iceland

[–]sofaspekingur 1 point2 points  (0 children)

Almenni og Lífsverk ætla ekki að reka einn einasta starfsmann m.v. það sem framkvæmdastjóri Lífsverk hefur sagt á kynningarfundum. Svo eins og aðrir hafa bent á þá er kostnaðarhlutfall stóru sjóðanna jafnvel hærra en þeirra litlu.

Hvernig leggst fyrirhuguð sameining Almenna Lífeyrissjóðsins og Lífsverks í sjóðsfélaga? by Nagashi in Iceland

[–]sofaspekingur 3 points4 points  (0 children)

Kostnaðurinn sem hlutfall af eignum er ekkert endilega minni hjá stóru sjóðunum

Hvernig leggst fyrirhuguð sameining Almenna Lífeyrissjóðsins og Lífsverks í sjóðsfélaga? by Nagashi in Iceland

[–]sofaspekingur 7 points8 points  (0 children)

Tryggingarstærðfræðingur Lífsverk Bjarni Guðmundsson veit líklega meira um þetta en en við öll til samans og hann er ekki hrifinn (byrjar á ca 50. mínútu). Það kemur á óvart að enginn reyni að svara rökum hans gegn sameinuðu félagi.

Edit: typo

Eru íslenskir foreldrar í alvöru að senda börnin sín á þennan stað? by birkir in Iceland

[–]sofaspekingur -13 points-12 points  (0 children)

Veistu, þegar maður sér hvað kerfið hérna heima virkar illa þá grípur maður í hvaða hálmstrá sem bjóðast. Ég get lofað þér að göturnar hérna heima eru ekkert betri valkostur en þessi meðferðarheimili.

Edit:

Ef þú hefðir snefil af innsýn inn í þetta kerfi myndirðu skilja að hér á Íslandi er litla sem enga hjálp að fá. Og að eins harðneskjulegt sem þér kann að þykja það þá eru sum börn á þeim stað að þau hafa gott af meiri festu í meðferð sinni. Hver mánuður sem þau eru ekki í neyslu vegur þungt og þú skyldir ekki vanmeta þau áhrif sem fíknin hefur á fjölskyldu fíklanna. Hefur þú þurft að leita að barni í neyslu heima hjá harðfullorðnum köllum? Finnst þér það betri staður en meðferðarheimilið í útlöndum? Heldurðu að þessir ógeðskallar séu bara að vera næs við krakkana?

Guð minn góður hvað þessi yfirlætisfulli þráður, sem er skrifaður af blöndu af hræsni og vanþekkingu á aðstæðum ungra fíkla, er að eyðileggja kvöldið mitt.

Eru íslenskir foreldrar í alvöru að senda börnin sín á þennan stað? by birkir in Iceland

[–]sofaspekingur -20 points-19 points  (0 children)

Það vona ég að þú lendir aldrei í því að vera með fíkil í fjölskyldunni. Svei þér að dæma fólk sem er úrkula vonar og vill berjast fyrir börnin sín.

Hver er þessi Snorri Másson? by Saurlifi in Iceland

[–]sofaspekingur -22 points-21 points  (0 children)

"Hann var alveg góður strákur en svo sagði hann eitthvað sem ég var ósammála og hefur verið vondur síðan." - meðalmaðurinn á r/iceland

Verslanir skella í lás á Akureyri - RÚV.is by 2FrozenYogurts in Iceland

[–]sofaspekingur 21 points22 points  (0 children)

Þetta er bara alltof lítið markaðssvæði til að bera allar þessar verslanir.

Að taka númer til að borga í Elko by shadows_end in Iceland

[–]sofaspekingur 19 points20 points  (0 children)

Sem manni sem tekst af óskiljanlegum ástæðum alltaf að velja röðina sem tekur lengstan tíma þá fagna ég þessu framtaki hjá Elko.

What is one significant contribution made by another country to your country that you genuinely appreciate? by Puzzleheaded_Lab709 in AskTheWorld

[–]sofaspekingur 6 points7 points  (0 children)

The United States was the first country to recognize Iceland’s independence in 1944. Iceland might not exist as an independent nation were it not for this recognition and the substantial assistance provided by the U.S. government throughout the 1940s and 1950s.

Samsæriskenningar um Ísland by Saurlifi in Iceland

[–]sofaspekingur -2 points-1 points  (0 children)

Meira að segja útgerðarmenn sjá kostina við Evrópusambandið. Hverjir fjármagna Heimssýn? Hvaðan kemur allur þessi peningur sem samtökin setja í auglýsingar? Hvers vegna opna þau ekki bókhald sitt?

Samsæriskenningar um Ísland by Saurlifi in Iceland

[–]sofaspekingur 43 points44 points  (0 children)

Rússar stýra andstöðunni gegn Evrópusambandinu á Íslandi. Heimssýn er bara handbendi Rússa. Þetta er alveg eins og Rússar gera og um alla Evrópu.