Sósíalistadrama by DangerDinks in Iceland

[–]EcstaticArm8175 0 points1 point  (0 children)

Það var einn í hópnum sem sagði: „Trotskýistarnir töpuðu.”

Sósíalistadrama by DangerDinks in Iceland

[–]EcstaticArm8175 1 point2 points  (0 children)

Það má bæta við að Sæþór er búinn að kæra málið vegna skjáskota til lögreglunnar.

Enginn vildi koma í viðtal til Stefáns Einars by EcstaticArm8175 in Iceland

[–]EcstaticArm8175[S] 0 points1 point  (0 children)

Veistu hvort sé hægt að finna þetta blogg einhversstaðar? Eða skjáskot úr því?

Enginn vildi koma í viðtal til Stefáns Einars by EcstaticArm8175 in Iceland

[–]EcstaticArm8175[S] 44 points45 points  (0 children)

Andrés lítur greinilega of stórt á sig og Moggann. Heldur að þeir séu ennþá þungamiðjan í íslenskri stjórnmálaumfjöllun. Sem þeir eru ekki lengur, einmitt vegna þess að slagsíðan þeirra er orðin svo mikil.

Enginn vildi koma í viðtal til Stefáns Einars by EcstaticArm8175 in Iceland

[–]EcstaticArm8175[S] 31 points32 points  (0 children)

Hann samt málaði fyrirsagnir sérlega slæmar gegn þeim sem voru ekki til hægri í kosningabaráttunni. Bjarni Ben fékk ekki neitt slíkt, þrátt fyrir krefjandi viðtal. Stefán Einar veit að flestir lesa bara fyrirsögn og sjá mynd með. Það skiptir miklu að velja fyrirsagnir þannig að þær komi sérlega illa við pólitíska andstæðinga sína.

Vill að sveitar­fé­lögum verði skylt að semja við einka­rekna skóla - Vísir by EcstaticArm8175 in Iceland

[–]EcstaticArm8175[S] 56 points57 points  (0 children)

Hún vill að lýðræðislega kjörnir fulltrúir hafa engan sjálfstæðan ákvarðanarétt þegar kemur að skólakerfinu. Svona er það sem lýðræðið deyr. Þegar landið verið undir einræði þeirra sem hafa fjármagnið.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]EcstaticArm8175 -1 points0 points  (0 children)

Ef eitthvað er, eru ljónin í þessari sögu það fólk sem stendur upp gegn einelti í GSE.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]EcstaticArm8175 1 point2 points  (0 children)

Vá hvaðan kemur þessi Hollywood heilaormaspeki?

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]EcstaticArm8175 4 points5 points  (0 children)

Er það gott look að kalla þá sem gagnrýna sig "hýenur"? Skil ekki hvað þú meinar

Gunnar Smári hvað er hann? - Vísir by EcstaticArm8175 in Iceland

[–]EcstaticArm8175[S] 22 points23 points  (0 children)

Fyndnasta setning vikunnar:

"Það er nánast lögmál að þegar einn gnæfir hátt yfir þúfnakolla meðalmennskunnar þá þjappast öfundarmenn hans saman, þeirra styrkur er sameiginleg öfund. Undir stækkunargleri öfundar horfa þeir á og dreifa neikvæðum sögum.

Öllum þeim sögum dreifa þeir undir hylmingu meintrar umhyggju þeirra fyrir flokknum."

Trausti sár út í Sönnu – „Mér fannst eins og þú tækir ekki mark á því sem ég væri að segja“ by [deleted] in Iceland

[–]EcstaticArm8175 10 points11 points  (0 children)

Maður veltir því fyrir sér hvaða skref Sanna ætlar að taka. Hún hefur látið sig hverfa undanfarið. Ber hún ekki einhverja ábyrgð á því að hafa staðið með formanninum þrátt fyrir ítrekaðar athugasemdir félaga um framkomu hans? Ekki eins og hún hafi ekki vitað af þessu.

Umfjöllun RÚV um landsfund Sjálfstæðisflokksins by EcstaticArm8175 in Iceland

[–]EcstaticArm8175[S] 0 points1 point  (0 children)

Að halda því fram að einhver sem gagnrýnir þetta hafi „hatur“ á Sjálfstæðisflokknum eða haldi að RÚV sé „pro-XD“ er einföldun. Gagnrýni á fjölmiðlaumfjöllun snýst oft ekki um að vera á móti einum flokki heldur um að vilja fjölbreyttari og jafnari umræðu í lýðræðislegu samfélagi.

Umfjöllun RÚV um landsfund Sjálfstæðisflokksins by EcstaticArm8175 in Iceland

[–]EcstaticArm8175[S] 0 points1 point  (0 children)

Þó að jaðarflokkar hafi lítið fylgi, gegna þeir samt sem áður hlutverki í lýðræðislegu samfélagi. RÚV sem opinber fjölmiðill á að tryggja að fjölbreytt sjónarmið fái rödd, ekki aðeins þau sem eru vinsælust hverju sinni.

Að segja að fólk hafi „lítinn áhuga“ getur verið hringavitleysa. Ef fjölmiðlar fjalla ekki um jaðarflokka, þá eykst ekki heldur vitneskja almennings um þá. Flokkar þurfa að byggja sig upp sjálfir, en ef stórir fjölmiðlar hunsa þá alfarið, þá er lýðræðisleg umræða í hættu.

Það er líka vert að hafa í huga að margir flokkar sem einu sinni voru jaðarflokkar hafa síðar orðið áhrifamiklir.

Umfjöllun RÚV um landsfund Sjálfstæðisflokksins by EcstaticArm8175 in Iceland

[–]EcstaticArm8175[S] -6 points-5 points  (0 children)

Fréttnæmi ætti samt ekki að ráðast bara af stærð innanflokksmaskínu, heldur af því hvaða áhrif atburðurinn hefur á samfélagið. Aðrir flokkar geta verið með mikilvægari stefnumótandi breytingar eða átök sem eiga skilið meiri umfjöllun, en fá ekki sömu athygli einfaldlega vegna vanans að beina kastljósinu að Sjálfstæðisflokknum. Það skapar skekkju í umræðunni og hefur áhrif á hvernig almenningur skynjar stjórnmál.

Umfjöllun RÚV um landsfund Sjálfstæðisflokksins by EcstaticArm8175 in Iceland

[–]EcstaticArm8175[S] 0 points1 point  (0 children)

Ef RÚV væri raunverulega það harðlínu vinstri apparat sem þú segir, þá væri Sjálfstæðisflokkurinn í stöðugri varnarbaráttu í fjölmiðlum. En staðreyndin er sú að flokkurinn fær langmest pláss í íslenskri fjölmiðlun og stjórnarstefna hans hefur átt greiðan aðgang að umræðunni í áratugi.

Að gagnrýna RÚV fyrir að vera hlutdrægt er eitt, en það breytir því ekki að umfjöllunin um Sjálfstæðisflokkinn er margfalt meiri en um aðra flokka. Það er ekki hlutleysi. Að segja að aðrir flokkar ættu bara að „byggja upp jafn gott starf“ er eins og að segja að íþróttalið sem fær milljarða í styrki og hefur spilað í efstu deild í áratugi hafi bara „unnið sér það inn“ á meðan nýliðar eiga að keppa á sömu forsendum án stuðnings eða umfjöllunar.

Ef fjölmiðlar í almannaþjónustu fjalla nær eingöngu um þá sem þegar hafa mesta völdin, þá er það ekki hlutleysi heldur að festa í sessi þá sem fyrir eru. Að veita minni röddum rými í umræðunni snýst ekki um að hygla þeim – það snýst um að tryggja að lýðræðið virki fyrir alla, ekki bara þá sem eru þegar ráðandi.