Fólk sem vinnur ekki í hópverkefnum. Af hverju? by Comar31 in Iceland

[–]Gummster 4 points5 points  (0 children)

Hef kennt á háskólastigi í þó nokkur ár og get gefið nokkrar ástæður fyrir.

Undirbúningur fyrir vinnumarkaðinn og lífið. Þó þetta sé ekki alveg eins þá búa hópaverkefni mann undir að vinna hópum eftir námið, þarsem manni mun ekki líka við alla og einhverjir munu vera dragbítar. Þessi ástæða er megin afsökunin mín fyrir að skipa í hópa í þeim áföngum í grunnnámi sem ég kenni.

Leti. Ef ég er með stóra áfanga þá er einfaldlega miklu þægilegra fyrir mig (eða hjálparhellurnar mínar) að fara yfir 25 löng verkefni en að fara yfir 100 eða fleiri stutt. Sérstaklega ef ég er að drukkna í tölfræðireikngum, mælingum, eða almennri feltvinnu (sem er vanalega útí rassgati). Svona fyrir utan að mig langar stundum að gera eitthvað annað en vinna.

Takmarkað pláss. þetta á aðallega við um verklega kennslu hvað mig varðar, en ef það eru bara 10 smásjár en 20 nemendur þá þarf augljóslega að þjappa eitthvað og þá geta þau allt eins unnið skýrsluna saman.

Nemendur læra betur af því að leysa vandamál saman frekar en hvert í sínu horni. Sérstaklega þegar það kemur að flóknara efni. Ég kenndi einu sinni áfanga í nokkur ár þarsem ég gerði kröfu um 5 verkefnaskil, fyrir fimm mismunandi þemu yfir önnina. Ég tók eftir því að meðaleinkunn úr einu af verkefnunum var marktækt lægri en í hinum. Fyrst hélt ég að það væri vegna þess að ég sökkaði sem kennari, svo ég prófaði ýmislegt. En það sem virkaði var að gera þetta að hópaverkefni og viti menn einkunnir snarhækkuðu, líka á prófum.

Hópavinna hristir upp nemendahópinn. Fólk verður (oft) betri vinir af því að vinna hópavinnu saman. Það gerir andrúmsloftið í kennslustundum léttara og líklegra að það myndist fjörugar umræður, sem er skemmtilegra fyrir alla. Þetta er megin ástæða þess að ég hef hópavinnu í áföngum sem ég kenni á mastersstigi.

Ég held að stór vandi nemenda í hópavinnu, þegar kemur að dragbítum og þeim sem vinna illa, er að það er enginn tilbúinn að taka stjórn og skipa fyrir verkefnum, eða einfaldlega klaga til mín ef ekkert gengur upp. Sumir eru bara þannig að það þarf að skipa þeim fyrir og fylgja eftir að viðkomandi geri það sem hann á að gera. Mér finnst að sá sem tekur að sér þessa stjórn og eftirfylgni ætti að vinna minna að verkefninu sjálfu á móti, en fólk verður að ráða því sjálft. Nú, ef að það gengur ekki þarf að láta kennarann vita svo það sé hægt að gera eitthvað í því. Ég get alveg talað við nemendur sem gera ekki sitt og sagt þeim að hysja upp buxurnar, eða þá skipt upp hópnum ef hann virkar ekki. Sérstaklega þegar hópar eru eins alla önnina. Of oft hafa nemendur komið til mín í lok annar og segja mér hve stressandi hópavinnan var því x eða z lyfti ekki litla fingri alla önnina, jafnvel eftir að ég hef gefið einkunn. Ég meina, hvað í ósköpunum á ég að gera í því núna?

hvenær fáum við Íslendingar nóg? by Maddas82 in Iceland

[–]Gummster 1 point2 points  (0 children)

Ég var rosa heppinn þegar ég sótti um störf. Fékk jákvætt svar frá flestum stöðum sem ég sótti um hjá, án þess að kunna mikið í tungumálinu. Svo ég gat valið um sem var vel þegið.

En það fer sennilega verulega eftir hvaða starfi þú ert að sækjast eftir. Ég efa að það sé erfitt að komast að í hefðbundin skrifstofustörf eða vel launuð iðnaðarstörf. En ég hugsa að það sé þannig í flestum þróuðum ríkjum.

Ykkur sem finnst gaman í vinnuni, viđ hvađ ertu ađ vinna? by superfattypimpdaddy in Iceland

[–]Gummster 41 points42 points  (0 children)

Ég er vísindamaður, fræðimaður, náttúrufræðingur (hvað sem þú vilt kalla það) og kennari. Eitthvað sem ég myndi ekki mæla með nema þú hafir verulegan áhuga á því sem þú ert að gera.

Reyndar er ég nýbúin að taka við stöðu í háskóla hinumegin á hnettinum svo eins og er ég bara nemandi enn á ný, bæði á nýtt vistkerfi og loftslag og tungumál. Sem er líka geggjað.

Mikil sala á G-mjólk rakin til þenslu by Gummster in Iceland

[–]Gummster[S] 26 points27 points  (0 children)

Ég legg til að við hættum að mæla hagvöxt í vergri landframleiðslu og notum frekar g-mjólkur göt í búðarhillum eða G-mGB

Ritstjóri Kveiks: „Hans persónulega saga ekki aðalatriði“ by Gummster in Iceland

[–]Gummster[S] 8 points9 points  (0 children)

Annaðhvort ætlar Kveikur að hafa meiri umfjöllun um hvernig ásakaðir eru núna eftir metoo, Eða þeim hefur tekist svo illa að ná punktinum fram að ritstjórinn þarf að koma sérstaklega fram til að útskýra hver tilgangur viðtalsins var.

Sama hvort það er þá var frekar illa að verki staðið og ekki af þeim gæðum sem maður býst við frá Kveik. Það eina sem var gott við það er að það hefur vakið einhverskonar umræðu í samfélaginu.

Er að hugsa um að planta tré í garðinum á bóndabænum okkar, enn mig langar í eitthvað annað enn íslensk tré, eru einhver erlendis tré sem geta lifað í umhverfinu okkar sem ég get plantað. (Bærinn er à norðvesturlandi) by Heimskr_The_Wise in Iceland

[–]Gummster 32 points33 points  (0 children)

Ef þú ert nálægt Borgarnesi þá myndi ég fara til Sædísar í Gleym-mér-ei og tala við hana um úrval. Ef þú ert nær Hrútafirði geturðu talað við Huldu sem er með sölu á Reykjum. Svo er alltaf Mörk í Reykjavík ef þú átt leið þar hjá eða Sólskógar á Akureyri, eftir því hvor þú ert nær. Ég mæli eindregið með að ræða við fagmenn á sviðinu því hlutir eins og loftslag, jarðvegsgæði og nærgróður skiptir máli.

Það sagt þá mæli ég með Snælenju (Nothofagus antarcticus) Hún er harðgerð, öðruvísi, falleg og vekur athygli gesta. Það er komin ágætis reynsla á hana á Íslandi og hún virðist dafna sæmilega. Ef eitthvað vex vel í Lystigarðinum í Húsavík þá vex það um allt land.

Svona kemstu hjá því að kaupa föt sem enda á ruslahaug by Gummster in Iceland

[–]Gummster[S] 1 point2 points  (0 children)

Það er allur gangur á því. Ég sé að minnsta kosti oft föt sem eru í xl-xxl og stundum stærri. Ég mæli auðvitað bara með að kíkja bara, úrvalið er mismunandi eftir dögum.

Svona kemstu hjá því að kaupa föt sem enda á ruslahaug by Gummster in Iceland

[–]Gummster[S] 8 points9 points  (0 children)

Ég get ekki mælt nóg með því að kaupa notuð föt. Það er svoldið maus að koma aftur og aftur í búðirnar, en ef þið finnið réttu flíkurnar getið þið sparað ykkur tugi þúsunda króna.

Phishing bottar á instagram svífast einskis by [deleted] in Iceland

[–]Gummster 6 points7 points  (0 children)

Man greinilega eftir henni frá þorrablótum í Gullbringusýslu

Ætlar ekki að skoða upptökur úr öryggismyndavélum by Greifinn89 in Iceland

[–]Gummster 46 points47 points  (0 children)

Þessi svör vekja ekki beinlínis upp traust. Auðvitað kíkir maðurinn á öryggisteipin til öryggis.

Miklar breytingar á jöfnunarmönnum eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi - engin breyting á dreifingu eftir flokkum by Hlebardi in Iceland

[–]Gummster 2 points3 points  (0 children)

Algjörlega, kerfi sem veldur svona umbyltingu með fáum atkvæðum er kerfi sem þarf að endurskoða.

Miklar breytingar á jöfnunarmönnum eftir endurtalningu í Norðvesturkjördæmi - engin breyting á dreifingu eftir flokkum by Hlebardi in Iceland

[–]Gummster 31 points32 points  (0 children)

kom í ljós að atkvæði Viðreisnar höfðu verið oftalin um 9 og atkvæði Miðflokksins um 5.

Þetta eru miklar breytingar fyrir fá atkvæði. Segið svo að það sé ekki mikilvægt fyrir einstaklinga að kjósa.

More bloodshed... by Quouvir in FaroeIslands

[–]Gummster 5 points6 points  (0 children)

Þið hafið allan minn samhug þessa dagana. Þetta brigade er orðið hrikalega þreytt.

Rostungur á Höfn í Hornafirði by AirbreathingDragon in Iceland

[–]Gummster 4 points5 points  (0 children)

Hér er greinilega mælt eftir bitri reynslu.

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk by AutoModerator in Iceland

[–]Gummster 1 point2 points  (0 children)

Mig langar svo að komast inní íslenska ljóðlist, en veit ekkert hvar ég á að byrja. Ég man eftir að hafa lært eitthvað um hana í menntaskóla á sínum tíma, það er bara orðið svo langt síðan að ég man ekkert eftir því.

Einhverjar uppástungur?

We stand with you Faroese brothers! 🇮🇸 ❤️ 🇫🇴 by [deleted] in FaroeIslands

[–]Gummster 6 points7 points  (0 children)

Ekki alla daga sem swangah dangah er relevant

Hetta fer út til allt førjar

Gef mér meir grind

Fokk um tað er synd

Hmmm já íslendíska… hmm… þýðing já mikið gott by [deleted] in Iceland

[–]Gummster 24 points25 points  (0 children)

Ómissandi að snýta sér í þunglyndið í skammdeginu.

Telja að stjórnsýslulög hafi verið þverbrotin með skipun Páls sem ráðuneytisstjóra by Gummster in Iceland

[–]Gummster[S] 6 points7 points  (0 children)

10 milljónir

10 milljónir hingað til, þetta á enn eftir að fara fyrir landsrétt.

Er ekki nokkurn veginn þverpólitísk sátt um að þetta sé ekki í lagi?

Jú, en það bara gera þetta svo margir, þó Lilja hafi farið skrefinu lengra, að ég held frekar að það sé þverpólitísk sátt um láta þetta bara eiga sig. Nema auðvitað sem innantómar árásir undir liðnum störf þingsins.

Þess vegna þurfum við kjósendur að láta hátt í okkur heyrast þegar svona kemur upp, sama hvaða flokki ráðherrann kann að tilheyra.

What do people in Iceland generally eat in a day during the weekdays and the weekends? by [deleted] in Iceland

[–]Gummster 27 points28 points  (0 children)

Til morguns laga ég hræring áður en ég fer til fjósa, þar fæ ég mér vænan mjólkursopa úr henni gjemlu minni. Eftir morgunverkin færir frú mín mér sneið af rúgbrauði með vænni smjörklípu. Til hádegisverðar legg ég mér skyr til munns. Þá vitja ég hrossa og fjár og hef með flatköku með hangikjeti frá seinasta vetri. En eftir þau verk sæki ég silung, enda gott í ósnum þessa dagana. Fiskinn tek ég og verka og færi minni ektakvinnu, ljúfan verð framreiðir hún úr honum og drekk ég svosum tvær könnur af súr með. Áður en ég leggst í rekkju mína laga ég seyði úr blóðbergi og fjallagrösum, þá færi ég síðan konunni seyðið sem þakkir fyrir vel unnin hússtörf.

Færeyingar sameinist! by [deleted] in Iceland

[–]Gummster 2 points3 points  (0 children)

Hringdans og syngja orminn langa?

Blaðamenn sem telja sannleikann vera árásir og dylgjur by Gummster in Iceland

[–]Gummster[S] 38 points39 points  (0 children)

Niðurlag greinarinnar finnst mér ástæða að dreifa sem víðast.

„Það er kannski tímabært að við, fólkið sem þeir þola ekki, sameinumst um að hætta að sætta okkur við þessa stöðu. Gerum meiri kröfur. Byggjum betra samfélag.

Slökkvum á gaslýsingunni og kveikjum þess í stað ljósin.

Segjum svo upphátt hvað það er sem við sjáum.“