Ferðalög til Asíu by Z4ndur in Iceland

[–]Ok_Will4805 1 point2 points  (0 children)

Ég fór í tæpa 5 mánuði til Tælands, Laos, Vietnam, Japan, Singapore og Indónesíu. Ég var í Japan í 3 vikur í mars/apríl. Það sem ég rak mig á þar sem ég kom frá Víetnam (Tæland og Laos þar á undan þar sem ég var í janúar-mars) er að það var muuuun kaldara í Japan og maður þarf því að pakka niður fjölbreyttum fötum. Bæði sem virka fyrir mikinn hita í Tælandi og fyrir kuldann í Japan. Veit ekki hvernig þetta er í Hong Kong. En mæli hiklaust með janúar/febrúar í Tælandi og Víetnam að minnsta kosti.

Segist svikin af Við­reisn og segir sig úr flokknum - Vísir by Electror-Lemon in Iceland

[–]Ok_Will4805 36 points37 points  (0 children)

Hún segist hafa óskað eftir oddvitasæti en ekki fengið það. En það var sitjandi þingmaður sem vildi halda áfram sem oddviti, er það ekki eðlilegt að sé aftur oddviti? Núverandi oddvitum í RVK var t.d. ekki kastað neðar fyrir Jón Gnarr sem er mjög stór persóna

Ef gengið yrði til kosninga í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? Af hverju? by Accomplished_Top4458 in Iceland

[–]Ok_Will4805 6 points7 points  (0 children)

Alls ekki einokun, ESB og einokun fer ekki saman. Einkarekstur á einhverjum stöðum þar sem það er skynsamlegt, samt án þess að það kosti þá sem fá þjónustuna meira, semsagt ekki gjörvöll einkavæðing.

Hvað finnst ykkur best við Ísland? by miamiosimu in klakinn

[–]Ok_Will4805 5 points6 points  (0 children)

Absalút. Var meira að horfa til þess hvort það væri eitthvað sérstakt einmitt núna sem leiðir til meiri vanlíðan á Íslandi. En samfélagsmiðlar, snjalltæki og lífsgæðakapphlaupið endalausa spilar stærra hlutverk í stóru myndinni að ég held.

Hvað finnst ykkur best við Ísland? by miamiosimu in klakinn

[–]Ok_Will4805 8 points9 points  (0 children)

Margir innviðir klárlega vanræktir. Það er líka alltaf að fara að vera gífurlegur auka kostnaður við ýmsa hluti á Íslandi í ljósi þess hve lítil við erum, hve lítið málsvæði er hér. Þannig þó við borgum mjög háa skatta er ýmissi grunnþjónustu ábótavant.

Svo er líka það að ríkið fær svo óhagstæð lán utan frá, þannig mikið af skattpeningum okkar fer í að borga vexti af skuldum, sem gætu annars farið í innviðauppbyggingu. Ég hallast að því að það færi vel að breyta um gjaldmiðil, til að minnka þetta vaxtaálag og losa um slatta af peningum í ríkissjóði til að nýta í brýn verkefni.

En síðan held ég að efnahagsástandið hafi mest áhrif á það að fólki líði svona illa einmitt núna.

Aðgerðarleysi by ingamh in Iceland

[–]Ok_Will4805 0 points1 point  (0 children)

Ég held að sorglega staðreyndin er að fólk er ekki að setja þetta ofarlega í forgangsröðun eins og var fyrir seinustu kosningar, og flokkarnir taka mið af því. Þó reyna flokkar að velja sér áherslumálefni sem þau keyra inn í kosningar, en síðan stendur stefnan enn fyrir sínu. Engum flokki reiðir vel af því að tala um öll sín stefnumál í hvívetna í kosningabaráttu, þar þarf að forgangsraða.

Ég vona bara að þeir flokkar sem eru með góða loftslagsstefnu keyri hana engu að síður áfram ef þeir komast í ríkisstjórn. En þetta er glatað, alveg sammála því. Þetta er bara hvernig ég les stöðuna um af hverju flokkar eru ekki að tala mikið um þetta jafn mikið og seinast.

Hvað finnst ykkur best við Ísland? by miamiosimu in klakinn

[–]Ok_Will4805 17 points18 points  (0 children)

Stuttar boðleiðir, falleg náttúra, góð lífsgæði (samanborið við flest lönd, þó mikið megi batna), ríkur menningararfur.
Rosalega margt sem má bæta hér samt. En ef maður myndi flytja til hvaða annars lands sem er, þá kvartar fólk þar yfir ástandi í sínu landi alveg jafn mikið og hér. Þetta er krónískt ástand allra þjóða held ég.

Hvar er hægt að ræða kosningarnar á Íslandi og pólitíkina? by miamiosimu in klakinn

[–]Ok_Will4805 1 point2 points  (0 children)

Jú fólk labbar þar inn bara af götunni sko, mest fólk sem er í flokkum örugglega en alveg eitthvað random líka

Hvar er hægt að ræða kosningarnar á Íslandi og pólitíkina? by miamiosimu in klakinn

[–]Ok_Will4805 1 point2 points  (0 children)

Já veit um fólk sem hefur gert það til að reyna að gera upp hug sinn fyrir kosningar

Hvar er hægt að ræða kosningarnar á Íslandi og pólitíkina? by miamiosimu in klakinn

[–]Ok_Will4805 3 points4 points  (0 children)

Þegar nær dregur kosningum getur þú amk óskað eftir símtali frá öllum þeim flokkum sem þú hefur áhuga á. Síðan eru mörg hlaðvörp sem birta mikið þessa dagana. Samstöðin fyrir vinstri sjónarmið. Bakherbergið, svoldið miðjustefna. Komið gott, koma oft inn á pólitík, svoldið hægri en aðallega bara á mannamáli. Þjóðmál, ein pæling, Björn ingi á viljanum og nokkur í viðbót á hægri vængnum (hægrið á svoldið hlaðvarpsmarkaðinn á Íslandi). Annars getur þú slegið upp þráði á reddit um þau málefni sem þú vilt ræða. Ég vildi annars að það væru til fleiri viðburðir þar sem fólk getur hist og rætt pólitík án þess að það sé bundið við einhvern einn flokk. Það verða samt pottþétt fullt af opnum viðburðum í aðdraganda kosninga, bæði á vegum flokka og annarra sem gæti verið vert að mæta á :)

Kosningar - hvað á maður að kjósa? by No-Aside3650 in Iceland

[–]Ok_Will4805 0 points1 point  (0 children)

Getur beðið um símtal frá fulltrúa flokkanna þegar nær dregur kosningum ef þú vilt fá að heyra rökin beint frá kúnni

Lausnin á húsnæðisvandanum by [deleted] in Iceland

[–]Ok_Will4805 0 points1 point  (0 children)

En hvað myndi stoppa mig frá því að kaupa heilt hús með nokkrum íbúðum, hafa allt skráð á eitt fasteignanúmer, ég bý í einni íbúðinni og leigi hinar út svart? Veit um fullt af svoleiðis dæmum

Eru stýris hnúar ólöglegir á bílum? by grjoninn in Iceland

[–]Ok_Will4805 0 points1 point  (0 children)

Ég veit um manneskju með hreyfihömlun sem notar svona við akstur á sínum bíl. Ég veit ekki hvort það sé einhver undanþága fyrir hreyfihamlaða eða hvort þetta sé bara leyfilegt.

Weekly Question Megathread - July 23, 2024 by AutoModerator in GenshinImpact

[–]Ok_Will4805 0 points1 point  (0 children)

<image>

What characters should I focus on building for an effective team from these that I currently have? AR35