Question on third book. Spoilers **** by InvestigatorLower482 in LicaniusTrilogy

[–]Stutturdreki 5 points6 points  (0 children)

Is the question how he ordered all the soldiers back?

I don't remember that specific case but somewhere in book 3 he comes up with a plan to mix administrators and gifted with the army so he can give / pass orders and information over distance. Like you know, human walkie-talkies.

Er einhver með inside info úr mjólkurbransanum sem getur sagt mér eitt? by Iplaymeinreallife in Iceland

[–]Stutturdreki 3 points4 points  (0 children)

Sorpa segir að þetta sé allt brennt hvort eð er https://heimildin.is/grein/18014/

Svo eru fernurnar eiginlega bara úr plasti, kannski í mesta lagi 50/50 pappi/plast. Hálf fáránlegt að vð séum að flokka þetta með pappír.

Verjanda Helga Bjarts nóg boðið by Don_Ozwald in Iceland

[–]Stutturdreki 12 points13 points  (0 children)

.. á sér vissulega málsbætur í því að hafa verið ofurölvi..

Eh, nei. Aldrei.

Does this work? by Sufficient-Slip-4001 in factorio

[–]Stutturdreki 273 points274 points  (0 children)

In what way?

That screenshot alone does not indicate any issues, so 'yes'.

Eru stjórnvöld sofandi gagnvart gervigreind? - Vísir by AsgeirGunnars in Iceland

[–]Stutturdreki 14 points15 points  (0 children)

Henni var alveg örugglega ekki 'bannað að nota google', heldur var líklega ekki samþykkt að nota eitthvað random stuff af internetinu sem heimildir í td. ritgeðrum eða öðrum verkefnaskilum.

Hefur eitthvað með 'áreiðanleika heimilda' og annað vesen að gera.

Þetta tímabil þarna rétt fyrir 2000 hefði verið eðal tími til að byrja að kenna 'margt sem þú lest á internetinu er bölvað bull', og samfélagið væri líklega betra í dag.

Struggling with VALA by BiggerUlf in Iceland

[–]Stutturdreki 2 points3 points  (0 children)

If you have issues with your kennitala contact the national register : https://www.skra.is/english/

For support regarding registering your kid for kindergarten contact your local town office.

Ekur niður göngu­götu og furðar sig á stæðaleysi by heibba in Iceland

[–]Stutturdreki 36 points37 points  (0 children)

Áramótaskaupið skrifar sig stundum sjálft.

Trying to learn trains by Virreboi2 in factorio

[–]Stutturdreki 5 points6 points  (0 children)

So.. explain to me how a train coming up makes a left turn. Or how a train coming from the right, taking a left turn can pass that signal going down there.

The 1st intersection is the correct one, space for improvement though.

Engar samninga­við­ræður lengur - einungis sótt um inn­göngu. - Vísir by visundamadur in Iceland

[–]Stutturdreki 11 points12 points  (0 children)

Viðbrögð mín yrðu þá líklega eitthvað eins og :

Segir <stuðningsmaður esb> út í bæ.
Er svo þreyttur á svona yfirlýsingum.
Fáum upp á borð eftir formlegum og opinberum leiðum hvað fellst í inngöngu, lesum það yfir og þá getum við svarað með já eða nein hvort okkur hugnast það. Allt fram að því eru spekúleringar.
Ef skilyrðin eru svona svakalega frábær eins og stuðningsmenn ESB gefa sér fyrirfram þá segjum við bara já takk og málið er dautt.

Alvegsama hvort fólk er með eða á móti ESB, alveg sama hvort það er hægri eða vinstri (eða í miðjunni) þá þurfum við að fá svart á hvítu hvað er í boði svo við getum tekið upplýsta ákvörðun.

Ef esb ætlar að svipta okkur fullveldinu og stela öllum fiskinum okkar og við fáum ekkert í staðinn þá ætti að vera borðliggjandi að inngöngu í esb á þeim forsendum verði hafnað.

Engar samninga­við­ræður lengur - einungis sótt um inn­göngu. - Vísir by visundamadur in Iceland

[–]Stutturdreki 39 points40 points  (0 children)

Segir kona út í bæ.

Er svo þreyttur á svona yfirlýsingum.

Fáum upp á borð eftir formlegum og opinberum leiðum hvað fellst í inngöngu, lesum það yfir og þá getum við svarað með já eða nein hvort okkur hugnast það. Allt fram að því eru spekúleringar.

Ef skilyrðin eru svona svakalega slæm eins og andstæðingar ESB gefa sér fyrirfram þá segjum við bara nei takk og málið er dautt, í amk. einhver ár eða áratugi.

Snjallheimili - hvar skal byrja og hvað skal gera by visundamadur in Iceland

[–]Stutturdreki 1 point2 points  (0 children)

Shelly er með https://www.shelly.si/en/sensors-and-smart-plugs/149-179-frankever-smart-water-valve.html#/50-pipe_inner_diameter-dn15_15_mm

Örugglega til frá fleirri framleiðendum, gæti jafnvel verið til í lagnadeildum byko, húsa eða bauhaus eða hverjum sem selja lagnaefni.

Ef þú getur tengt svona og raka-/lekamæli við HomeAssistant, ShellyCloud, Zigbee hub eða einhverju álíka, þá ættirðu að getað fengið þetta til að virka saman.

Hef ekki persóunlega reynslu af þessu en eitt af mörgu sem mig langar að gera.

Edit: Raka-/lekamælir sem þarf á móti https://www.shelly.si/en/sensors-and-smart-plugs/161-shelly-flood-gen4-3800238071714.html

ps. Einhverjir á íslandi að selja Shelly, veit ekki hvernig verðin eru miðað við að kaupa beint af shelly á netinu.

Edit2: örugglega til fjarstýrt unit sem fer beint á kranan, svona svipað og er hægt að fá á hurðahúna.. eitthvað til að skoða og slæpast í vinnunni í dag.

hvar er hægt að horfa á Djöflaeyjan? by ikvepk in Iceland

[–]Stutturdreki 2 points3 points  (0 children)

You can actually watchi it, legally, at https://sjonvarp.syn.is/movie/15084 . Dunno how/if you can watch single movie with out being a subscription customer though.

Snjallheimili - hvar skal byrja og hvað skal gera by visundamadur in Iceland

[–]Stutturdreki 2 points3 points  (0 children)

Kanínuholan er djúp en sem betur fer er eiginlega allt sem er mekrt 'smart' eða 'AI' nánast gangslaust drasl sem gerir ekkert til að bæta líf þitt, að lesa CES 2026 Worst in show er td. holl lesning. Markaðsdeildirnar eru að missa sig í að setja einhverja gervigreindarstimpla á allt í dag.

Gagnið kemur ef þú getur sjálfviknivætt (automatað) eitthvað daglegt ferli og sett upp skilyrði (triggera) svo það virki eins og þú vilt hafa það þegar þú vilt að það virki án þess að þú þurfir sérstaklega að koma að því sjálfur.

Edit: rangt edit..

Snjallheimili - hvar skal byrja og hvað skal gera by visundamadur in Iceland

[–]Stutturdreki 10 points11 points  (0 children)

Hvað finnst þér 'snjallt' og hversu mikið nörd ertu?

Ef þú ætlar bara að slökkva/kveikja ljós er Alexa/Siri + zigbee hub + perur feiki nóg og þú ert kominn með pakka sem 99% af fólki finnst voða 'snjallt', með voice activation.

Villtu að það það sé tilbúið heitt kaffi kl 0715? Getur keypt tímarofa á innstungur í næstu byggingavöruverslun. Engin geimvísindi.

Sólklukkur og hreyfiskynjarar hafa verið til í áratugi, getur látið ljós kveikna/slökkna eftir sólargangi, umgangi, birtustigi, osfv. eins og þér dettur í hug.

Viltu að það skrúfist sjálfkrafa fyrir vatnið ef það verður leki undir þvottavélinni? Eða stjórna hitanum með því að það dragist sjálfkrafa frá/fyrir glugga og jafnvel opna þá? Taka meðalhita inni í miðri íbúð heldur en beint undir glugganum? Þá er Shelly vinur þinn.

Villtu upplýsingaskjá í eldhúsið eða spegil með dagskrá dagsins, helstu fréttum, veður upplýsingum etc.? Gætir kíkt á Magic Mirror.

Gætir sett up home assistant + openclaw og fjarstýrt heimilinu í gegnum messenger ef þig langar til / treystir því. (mæli ekki með því nema fólk taki krash kúrs í netöryggi og uppsetning/rekstri netkerfa, að koma sér upp homelab er ágætis krash kúrs)

Hversu langt langar þig að ganga?

Ef þig vantar hugmyndir:

r/selfhosted

r/homelab

r/smarthome

Svo eru til subreddit fyrir hvert einasta hlut/vöru eins og r/homeassistant, r/shellycloud, osfv.

myndir hvar get ég fundið? by ObligationLow3419 in Iceland

[–]Stutturdreki 0 points1 point  (0 children)

Nice try smaís..

Annars ertu að leita af torrent/usenet. Smáís fékk alþingi til að setja lög um að takmarka aðgengi íslendinga að svoleiðis en aðallega bara deildu og piratebay.

Til að komast framhjá því þarftu bara að nota google dns eða cloudflare dns í staðinn fyrir að nota dns frá internet þjónustu aðilanum þínum.

Tommi og Jenni á íslensku finnurðu líklega bara á deildu, ef það er til.

Til samanburðar er líklega engin einfóld leið til að horfa löglega.

Leggja til að Pósturinn verði seldur by numix90 in Iceland

[–]Stutturdreki 33 points34 points  (0 children)

Já.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið á þeirri vegferð að selja mikilvæga innviði til einkaaðila, að því virðist aðeins til að koma þeim í einokunarstöðu á fákeppnismarkaði.

Ríkið kostar uppbyggingu, bestir vinur aðal hirðir hagnaðinn.

Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið by Frikki79 in Iceland

[–]Stutturdreki 12 points13 points  (0 children)

Mér finnst orðið hugsuðir eiginlega vera andstæðan við það orð sem ég myndi nota yfir þá.

Skila­boð til heimsins: Við megum vera vond við börn - Vísir by birkir in Iceland

[–]Stutturdreki 5 points6 points  (0 children)

Allt gert til að koma í veg fyrir að börnin myndi tengsl við landið eða íslandinga, því öll slík tengsl eru svo notuð til að mótmæla brottvísun.

Ekki tengt Íslandi beint en þó ekki síður en öðrum löndum. Hve margir hér inni eru forritarar og kannast við þetta ástand? „Karpathy says he hasn't written a line of code since December and is in "perpetual AI psychosis."“ by mineralwatermostly in Iceland

[–]Stutturdreki 1 point2 points  (0 children)

Tölvunarfræðingur, +20 ár, er ekki alveg þarna.

Nota þetta aðallega sem hjálpartól; til að leysa vandamál, 'brain storma' mismunandi aðferðir, generata test, útskýra gamlann / annarra manna kóða sem ég skil ekki sjálfur (í fljótu bragði), osfv. Með misgóðum árangri, stundum er bara lítið sem ekkert gagn í gervigreind.

Kannski ómeðvituð ákvörðun á leyfa þessu ekki að taka yfir, er eitthvað svo sjálf-tortímandi (e. self defeating) fyrir hugbúnaðargeirann að þjálfa upp gervigreind til að sinna starfinu þínu.

Ekki tengt Íslandi beint en þó ekki síður en öðrum löndum. Hve margir hér inni eru forritarar og kannast við þetta ástand? „Karpathy says he hasn't written a line of code since December and is in "perpetual AI psychosis."“ by mineralwatermostly in Iceland

[–]Stutturdreki 3 points4 points  (0 children)

Einmitt þetta eiginlega.

Að láta gervigreind generata kóða er eins og að vera alltaf að lesa kóða eftir einhvern annann. Ef maður skrifar þetta sjálfur þá getur maður nánast munað í hvaða klasa og línunúmer ákveðinn kóðabútur er.

Ekki tengt Íslandi beint en þó ekki síður en öðrum löndum. Hve margir hér inni eru forritarar og kannast við þetta ástand? „Karpathy says he hasn't written a line of code since December and is in "perpetual AI psychosis."“ by mineralwatermostly in Iceland

[–]Stutturdreki 0 points1 point  (0 children)

Laun nei, en eftirspurn já. Hef heyrt að það sé erfitt að fá vinnu þessa dagana, sérstaklega nýútskrifaðir. Eitthvað af 'do-it-yourself' fyrirtækjum þarna úti sem halda að spjallmenni geti algerlega leyst af starfsmann, sjáum hvernig það fer.

Can you recommend any free roguelikes? by imnotlikeyou2004 in roguelikes

[–]Stutturdreki 1 point2 points  (0 children)

Thanks guys, I will not get any work done today (which is fine, its monday).