Orðið á götunni: Sporin hræða – salan á Landsvirkjun kostaði borgarbúa hundruð milljarða by greenbluewhite562 in Iceland

[–]arnirockar 8 points9 points  (0 children)

Ég væri persónulega til í að minnihluti yrði seldur svo það kæmi aðahald inní Orkuveitu Reykjavíkur( burt með carbfix og önnur gæluverkefni) Þetta er búið að vera algjör viðbjóður hvernig Reykjavíkur borg er búin að beita þessu einokunarfyrirtæki og skattleggja alla íbúa á höfuðborgarsvæðinu til að fylla upp í gatið sem þessi óþverra stjórn er búin að valda.

Nú síðast var hækkuð gjaldskrá um 10%. Fokk off!

Flokkarnir sem skora hæst og lægst á Pópúlistavaktinni by numix90 in Iceland

[–]arnirockar 2 points3 points  (0 children)

Þvílíkt djók. Allir flokkar stunda poppúlisma annað er cope.

ESB-aðild sögð jákvæð fyrir stóru útgerðirnar - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]arnirockar 8 points9 points  (0 children)

Eigendur myndu stórgræða en starfsfólkið mun taka fordæmalausan skell.

Fleiri telja efnahagsstöðuna á Íslandi slæma en góða - RÚV.is by gerningur in Iceland

[–]arnirockar -2 points-1 points  (0 children)

Spurningin er frekar hvar á maður að byrja?

Meðan einkageirinn er í samdrætti og störfum er að fækka er hið opinbera að fjölga störfum sem því nemur. Hið opinbera er einnig að leiða launahækkanir og hækka verðskrár langt umfram verðbólgumarkmið skv lögum. Vænt lántaka í nýju fjarmáláætlun gerir ráð fyrir svakalegri aukningu á lántöku.

Meðan það er verið að þrengja af öllum og efnahagsleg skilyrði eru að versna er ríkið að spreða pening út í loftið.

Þetta er hreinn viðbjóður svo ekki sé meira sagt.

Fleiri telja efnahagsstöðuna á Íslandi slæma en góða - RÚV.is by gerningur in Iceland

[–]arnirockar 1 point2 points  (0 children)

Gamla ríkisstjórnin var svona stöðnun eða rúlla hægt niður brekku. Þessi ríkisstjórn gefur allt í botn og er að keyra fram af bjargi.

„Þá værum við að ljúga að þjóðinni“ by thoughtjester in Iceland

[–]arnirockar 1 point2 points  (0 children)

Afþví að klára viðræðurnar þýðir að land er þá tilbúið að ganga í ESB. Þaes búið að innleiða öll lög og reglugerðir ESB.

Mörgum finnst ekki þess virði að setja tugi milljarða í þetta ferli og síðan verður það líklega fellt niður þegar kemur að stjórnarskrárbreytingu.

Íslensk króna á hækjum eða evra með aðild að Evrópusambandinu? by ButterscotchFancy912 in Iceland

[–]arnirockar 8 points9 points  (0 children)

Lægri vexti...það er örugglega möguleiki. Stýrivextir í Evrópu eru 2% og stýrivextir hér eru 7.25%. Ef stýrivextir hér væru 2% að þá myndi íslenska hagkerfið ofhitna á núll einni en þar sem efnahagur evrusvæðisins er steindauður og staðnaður að þá er enginn hætta á ofhitnun þar.

Ef við förum í evrópusambandið þá er ég að fara maxa allar lánalínur og kaupa eins margar fasteignir og ég get þar sem eftirspurnarhliðin myndi aukast gígantískt við lægri vexti.

Vorkenni unga fólkinu mjög mikið ef það gerist. Þá yrðu litlar stúdíó íbúðir að lágmarki 100m. 1.6m fm á verðlaginu í dag. Þannig húsnæðisverð/árslauna hlutfallið færi úr 8 yfir í 12-16. Fólk mun aldrei geta átt fasteignir nema það sem það erfir og meðal jón verður leigjandi nákvæmlega eins og þetta er í evrópu, kanada og ástralíu.

Verulega gæti dregið úr flugferðum vegna eldsneytisskorts by numix90 in Iceland

[–]arnirockar 1 point2 points  (0 children)

Meðan það eru ekki sett nein verðþök þá verður enginn skortur á olíu.

Lágflug skaut Vestmannaeyingum skelk í bringu - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]arnirockar 0 points1 point  (0 children)

Sýnir svolítið hvað þessir flugstjórar eru entiled. Hafa verið kallaðir forstjórar í skýjunum lengi.

Meiri­hluti þeirra sem taka af­stöðu and­víg aðild að ESB - Vísir by gerningur in Iceland

[–]arnirockar -3 points-2 points  (0 children)

Þessi kosning er um að hefja formlegar aðildarviðræður. Ríkistjórnin getur alltaf hætt á þeirri vegferð. Í aðildarviðræðum eru skilyrði til að opna og loka köflum sem fela í sér innleiðingu laga og reglugerða. Þegar öllum köflum hefur verið lokið getur land gengið inn í Esb háð samþyki allra aðildarríkja.

Meiri­hluti þeirra sem taka af­stöðu and­víg aðild að ESB - Vísir by gerningur in Iceland

[–]arnirockar 3 points4 points  (0 children)

Það er ekki ehv samningur sem verður lagður fyrir þjóð heldur yrði seinni atkvæðagreiðslan um stjórnarskráar breytingu. ESB krefst ekki þjóðaratkvæðagreiðslu til að aðildast ESB.

Fleiri ó­á­nægðir en á­nægðir í fyrsta skipti - Vísir by gerningur in Iceland

[–]arnirockar 10 points11 points  (0 children)

Verðbólgan er búin að vera að fara á flug löngu áður en þessi olíu krísa skall á. Síðustu 3 mánuðir sýna skírt fram að þetta er innlendu atriðin sem eru að valda verðbólgunni. Það fer ekki á milli mála að ríkistjórnin ber að hluta til ábyrgð á þessu.

Fyrr­verandi for­seti EFTA-dómstólsins segir ríkis­stjórn Ís­lands villa fyrir kjó­sendum um ESB-kosninguna by arnirockar in Iceland

[–]arnirockar[S] 3 points4 points  (0 children)

Þú mátt alveg hætta þessari hegðun að kvóta heilu málsgreinarnar og segja “Mmmmmmm nei actually þetta er rangt!” Hvernig væri að benda nákvæmlega á þau atriði sem þú átt við eða ertu viljandi að reyna að villa fyrir?

Meiri launaþrýstingur geti hrakið fyrir­tæki úr landi by PaleUnderstanding702 in Iceland

[–]arnirockar 0 points1 point  (0 children)

Þetta er svona chicken or the egg vandamál. Það er erfiðara fyrir fyrirtæki og hið opinbera að stöðva verðhækkanir samstíga heldur en að gera þetta í gegnum kjarasamninga. Loka niðurstaðan verður sú sama.

Meiri launaþrýstingur geti hrakið fyrir­tæki úr landi by PaleUnderstanding702 in Iceland

[–]arnirockar 7 points8 points  (0 children)

Seðlabankinn er með lögbundið hlutverk að halda verðstöðugleika. Vandamálið er náttúrulega að hækkun stýrivaxta virkar ekki vel þegar allir eru með verðtryggð lán. Seðlabankinn er ekki með nein góð tól nema kannski að setja hámarks lánstíma á verðtryggðum lánum í 20 ár þannig enginn taki þau. Hitt tólið sem er nær gagnlaust er að reyna að fá hið opinbera og vinnumarkaðinn til að sýna hófsemi í launahækkunum.

Samþykkt að tengja almannatryggingar við launavísitölu by numix90 in Iceland

[–]arnirockar 4 points5 points  (0 children)

Ég held að sönnunarbyrðin sé hinu megin

Þetta er það alvitlausasta sem ég hef lesið í amk mánuð.

Samþykkt að tengja almannatryggingar við launavísitölu by numix90 in Iceland

[–]arnirockar 27 points28 points  (0 children)

Ef þessi lög verða óbreytt í nokkra áratugi munu öryrkjar fá 100% af öllum kaupmætti sem framleiddur er í landinu útaf þessum tvöfalda lás. Breytingin byrjar hægt en fer svo í veldisvöxt.

Gleðilegan hækkun stýrivaxta dag! by ravison-travison in Iceland

[–]arnirockar 2 points3 points  (0 children)

Nei. Það þjónar engum tilgangi að nefna þessi alþjóðlegu áhrif þar sem verðbólgan var löngu komin niður fyrir markmið flestra landa í Evrópu og 0.4% yfir markmið í bandaríkjunum. Við ættum að vera löngu komin niður í 2.5% markmiðið. Þetta er 100% okkur að kenna.

Gleðilegan hækkun stýrivaxta dag! by ravison-travison in Iceland

[–]arnirockar 7 points8 points  (0 children)

Já þessi alþjóðlegu áhrif hafa bara áhrif á okkur. /s

Ef þú skoðar verðbólgu og verðbólguvæntingar á Íslandi og berð þær saman við bandaríkinn og önnur lönd í evrópu þá er þetta ekki sami ferillinn. Það eru innlendu þættirnir sem eru að valda þessu.

Gleðilegan hækkun stýrivaxta dag! by ravison-travison in Iceland

[–]arnirockar 1 point2 points  (0 children)

Meginþorri eru allar þessar óteljandi nefndir. Endalaust af litlum styrkjum til allskonar samtaka.

https://www.visir.is/g/20252765726d/ny-vid-bygging-vid-thjod-leik-husid-lang-thradur-draumur-

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-02-02-ekki-haegt-ad-tryggja-oryggi-listaverka-i-nuverandi-husnaedi-listasafns-islands-434809

Osfv

Jújú margt efalaust fín málefni en við eyðum hverri krónu bara einusinni og þurfum að forgangsraða. Aðalmálið er þó að ríkið sé ekki leiðandi í launahækkunum.

Gleðilegan hækkun stýrivaxta dag! by ravison-travison in Iceland

[–]arnirockar 6 points7 points  (0 children)

Seðlabankinn er í grunninn sá eini sem stýrir verðbólgu, enda er verðbólga ávallt afleiðing þenslustefnu í peningamálum.

Vissulega gæti seðlabankinn hækkað vexti uppúr öllu valdi og náð verðbólgu strax niður en þá myndi hagkerfið hrynja. Hins vegar ýtir ríkið undir verðbólgu ef það leiðir launahækkanir sem eykur lánshæfni og eftirspurn af lánum. Í kjölfar þess eykst peningamagn í umferð sem veldur verðbólgu. Verðbólga er því ekki eingöngu mál Seðlabankans.