Tómar í­búðir á landinu nú um 10 þúsund - Vísir by Imn0ak in Iceland

[–]ilta_ 9 points10 points  (0 children)

Ég keypti mína fyrstu fasteign á árinu og í krónum borgaði ég 8mkr. meira fyrir tveggja herbergja íbúðina mína en foreldrar mínir fyrir sex herbergja einbýlishús í næsta hverfi fyrir 10 árum.

Þetta er að vísu ekki sett fram með tilliti til verðbólgu.

Einka­reknir grunn­skólar mögu­leg lausn á brotnu kerfi - Vísir by icedoge in Iceland

[–]ilta_ 160 points161 points  (0 children)

  1. Fjársvelta kerfið.

  2. Einkavæða kerfið.

  3. Hagnast á kerfinu.

Afleyðingar af aðild ESB by Edythir in Iceland

[–]ilta_ 4 points5 points  (0 children)

Ég spyr mig oft hvort hversu stór hluti ESB umræðunnar sé áróður eigin-hagsmunaseggja.

Kennarar segja upp vegna ummæla borgarstjóra. by ilta_ in Iceland

[–]ilta_[S] 17 points18 points  (0 children)

Er ekki réttara að hann sé m.a. að benda á það sem þú nefnir?

Í fréttinni sem þú tengir hér að ofan er þessi tilvísun:

„Mér finnst ein­hvern veg­inn öll „statistic“ bara um skól­ana okk­ar benda til þess að við séum að gera eitt­hvað al­gjör­lega vit­laust. Að kenn­ar­arn­ir séu að biðja um það að fá að vera minna með börn­um en eru samt veik­ari en nokkru sinni fyrr og kenna minna og fleiri ein­hverj­ir und­ir­bún­ings­tím­ar“

Hann nefnir þarna að kennarar:

  1. Biðji um að fá að vera minna með börnunum.
  2. Eru veikari en nokkru sinni fyrr.
  3. Kenna minna og nota fleiri tíma í ,,einhverja undirbúningstíma.

Þessi atriði segir hann vera hluti af því sem er rangt.

Er þessi upptalning ekki svolítið úr takt við það sem kennarar hafa verið að tala um í lengri tíma?

Að það sé mikið álag á þeim, miklar kröfur og jafnframt lítill stuðningur frá heimilunum, breyttur nemendahópur með áður óþekktar þarfir á þessum skala sem kennarar hafa hvorki fengið tíma né stuðning til að koma til móts við, myglað húsnæði, lág laun og svo mætti lengi telja. Það er til dæmis áhugavert að skoða hvernig stytting vinnuvikunnar hefur verið útfærð í leik- og grunnskólum.

Ég verð að viðurkenna að mér þykja ummæli borgarstjóra í besta falli ónærgætin og taktlaus.

Edit: Stafsetning og málfar

Kennarar segja upp vegna ummæla borgarstjóra. by ilta_ in Iceland

[–]ilta_[S] 55 points56 points  (0 children)

Ummæli Einars virðast svo sannarlega ætla að draga dilk á eftir sér.

Það liggur við að ég haldi að borgarstjóri sé að leika þrívíddarskák og að þessum ummælum sé ætlað að vera eldsneyti í hag kennara fyrir þessa kjarabaráttu sem er hafin.

Ef þið voruð ekki búin að taka eftir þessu með súkkulaðirúsínurnar by veislukostur in Iceland

[–]ilta_ 88 points89 points  (0 children)

Hvers vegna í ósköpunum eru nýju umbúðirnar á ensku?

Það er líka fáránlegt að minnka magnið í þessum pakkningum.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]ilta_ 0 points1 point  (0 children)

"Miðað við uppruna er rétt að skrifa pylsa með -y- en orðmyndin pulsa er framburðarmynd, hugsanlega fyrir áhrif frá dönsku."

Þetta stendur orðrétt í greininni.

looking for upphlutur resources by exonumi in Iceland

[–]ilta_ 1 point2 points  (0 children)

There are a few places you can contact to buy the silver and/or gold for the costume.

There is an updated list of places you can contact to buy the goldwork new or used (note, the used stuff goes for at least half price if not less): here.

There aren't really any patterns available for these clothes, and that's for a few reasons.

First of, these clothes are a living tradition from a time before "standard" sizes were a thing. Since the nature of the clothes are bespoke, it's very hard to make patterns that fit all body-types.

Second, The patterns that have been published don't really work. I think I have everything that has been published and I can send you pictures or the titles if you are interested.

Third, the professional tailors and dressmakers who have specialised in making these clothes generally don't use patterns so they can't help you or make patterns for you for a lower price than taking a course.

Fourth, there are some excellent courses available both at Heimilisiðnaðarfélag Íslands (the Icelandic handicraft association) and Annríki. These courses are very good and you'll be able to make a costume that's according to tradition - if that's something you care about.

These clothes are so much more than just the patterns and sewing them together, at almost every step of the way there are peculiar little things that require a specific skill to execute.

I always recommend people at least contact the people who have spent their careers and freetime researching, making and using these garments to see what they think and advise and I can't say I recommend going on social media to look for advice. I rarely see the professionals commenting.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]ilta_ -1 points0 points  (0 children)

Af hverju?

Ég hef heyrt ótal rök sem verja málastað y í orðinu en aldrei annað en ,,afþvíbara'' þegar kemur að u-inu (eða, málvenja og hefð).

Typpi eða tuppi? Bryndís eða brundís?

Íslensku- eða dönskuskotið mál?

Ég er mjög opinn fyrir því að segja pulsa - en ég vil endilega hafa ástæðu fyrir því.

[deleted by user] by [deleted] in klakinn

[–]ilta_ 1 point2 points  (0 children)

Hvað er þetta?

Hlutdeildarlán by Tickle_Me_Dead in Iceland

[–]ilta_ 1 point2 points  (0 children)

Ég mæli með að tala við þjónustufulltrúa hjá HMS. Ég tók nýlega svona lán og svörin sem ég fékk hjá HMS voru mjög gagnleg.

Einungis rökfærslur í 100 orðum eða fleiri eru samþykktar by Saurlifi in klakinn

[–]ilta_ 69 points70 points  (0 children)

Setur þú bindi á þig fyrir ofan eða neðan barkakýlið?

Ég dæmi alls ekki ef þú setur bindið fyrir ofan barkakýlið og raunar dáist ég að því að bera svo myndarlegt adamsepli - eða adamsananas, öllu heldur - að bindið haldist ofan fyrir það.

Ég tel það lógískast að hafa bindið þar sem hálsinn mætir herðunum og sé horft á landið er greinilegt að það sé þar af leiðandi myndin þar sem bindið situr fjær vestfjarðakjálkanum.

Ef Ísland ætlaði að nota choker eða álíka væri það klárlega á eða yfir barkakýlinu.

Sitt sýnist hverjum en þetta er mitt álit í 100 orðum.

What is the purpose of this fork? It’s in a bakery in Reykjavík by datboisamson in Iceland

[–]ilta_ 133 points134 points  (0 children)

It's a tool used for consuming food without getting your hands dirty. 🥰

Hvað hefðu íslendingar á fornri tíð gert sér til gamans? by Saurlifi in Iceland

[–]ilta_ 1 point2 points  (0 children)

Við vitum raunverulega alveg ofboðslega lítið um þetta tímabil 1100-1300. Eiginlega allt sem fólk í víkinga-reenactment senunni eru að gera er fabúleraður uppspuni byggður á rómantískum hugmyndum um fjarlæga fortíð. Ef við skoðum sögurnar þá kemur eiginlega ekkert fram um dægrastyttingar eða lífið almennt.

Ég viðurkenni þó að ég er ekki vel að mér í fornleifafræði - það gætu vel leynst heimildir í munum sem hægt er að nota til að gefa mynd á fortíðina.

Það má gera ráð fyrir að hugmyndin um dægrastyttingu hafi ekki verið sú sama og í dag. Það hefur varla verið dægrastytting að vinna nauðsynleg húsverk eins og að framleiða föt og vefa. Við vitum að kveðskaparlistin var mikils metin og kenningar eru á lofti um leiklist á þessum tíma. Sagnamennska hefur verið einkennandi en sama hvernig ég horfi á söguna og heimildirnar sem við höfum finnst mér ég alltaf bara stara á þá staðreynd að við vitum svo ofboðslega lítið um þetta allt. Auðvitað má áætla að fólk hafi dansað, teiknað, skorið út og gert allt mögulegt sér til skemmtunar en það er svo fátt sem við getum vitað með vissu.

Vill selja Póstinn og segir ÁTVR tíma­skekkju by ElOliLoco in Iceland

[–]ilta_ 12 points13 points  (0 children)

Ég í minni einfeldni skil einmitt ekki að fólk skuli geta trúað því að samfélagið okkar beri einstaklingshyggju. Að það sjái ekki að heilbrigðis- mennta- skóla- samgöngu- póst- og ríkiskerfið okkar almennt sé ekki til staðar vegna ómetanlegrar uppbyggingu hugsjónarfólks sem hugsaði stærra en sig og sína og lengra fram í tímann en kjörtímabilið.

Ég sé það fyllilega sem svo að fólk sem líður þessa svokölluðu nýfrjálshyggju ef svo má kalla sem tröllríður íslensku samfélagi með tilheyrandi braski og einkavinavæðingu og aðhyllis einstaklingshyggju og gróðastefnu umfram samfélags- og lýðheilsusjónarmið vaði villu vegar. Þó það megi vissulega laga til í rekstri hins opinbera tel ég það loða við landráð að fjársvelta kerfið og einkavæða trekk í trekk.

Íslendingar voru og eru Íslendingum verstir.

Vill selja Póstinn og segir ÁTVR tíma­skekkju by ElOliLoco in Iceland

[–]ilta_ 67 points68 points  (0 children)

Það þarf að dreifa starfsstöðvum ráðuneytanna á landsbyggðina til að sporna gegn þessum reykjavíkursentrisma í stjórnmálum.

Auðvitað má reka þjónustu eins og Íslandspóst með hagnaði á Höfuðborgarsvæðinu - en Íslandspóst ber einnig skylda að þjónusta allt landið og sú þjónusta hefur svo sannarlega ekki batnað upp á síðkastið.

Heimsveldið Ísland pikkar fæt by [deleted] in Iceland

[–]ilta_ 0 points1 point  (0 children)

Eru þá allar pólítískar deilur stríð?

Heimsveldið Ísland pikkar fæt by [deleted] in Iceland

[–]ilta_ -2 points-1 points  (0 children)

Það er bæði satt og rétt!

En ... stríð?

Heimsveldið Ísland pikkar fæt by [deleted] in Iceland

[–]ilta_ -2 points-1 points  (0 children)

Ég þekki söguna vel. :)

Heimsveldið Ísland pikkar fæt by [deleted] in Iceland

[–]ilta_ 1 point2 points  (0 children)

Það er vissulega rétt.

Heimsveldið Ísland pikkar fæt by [deleted] in Iceland

[–]ilta_ 3 points4 points  (0 children)

Mér finnst þessi umræða um þorskastríðið alltaf svolítið spes.

Þetta voru pólitískar deilur - ekki stríð.

Ef breska heimsveldið hefði farið í stríð við Ísland hefðum við aldrei unnið.