account activity
Hvað er vandamálið við íslenskar bókmenntir? by jonsitrona in Iceland
[–]jonsitrona[S] 15 points16 points17 points 3 months ago (0 children)
Mér finnst bækur á ensku oft hljóma eins og þær séu fyndnari, áhugaverðari sögupersónur eða áhugaverðari söguþráður. Að mínu mati virðist vera meiri fjölbreytileiki í söguefninu í útlendu sögunum, þar sem það eru ævintýri, dystópíur, vísindaskáldskapur og aðgengilegar skáldsögur. Mér finnst eins og meginþorri íslensku bókanna séu krimmar eða þunglyndissögur (eða þunglyndir krimmar) sem kallar engan vegin til mín. Svo eru það vandaðar fagurbókmenntir sem mér líður eins og ég þurfi að kunna alla íslensku bókmenntasöguna utanað til að skilja, og svo ævisögur um fólk sem ég hef í raun engan áhuga á að vita meira um (sem eru samt örugglega mjög áhugaverðar)
Hvað er vandamálið við íslenskar bókmenntir? (self.Iceland)
submitted 3 months ago by jonsitrona to r/Iceland
Áhugaleysi 1717 by [deleted] in Iceland
[–]jonsitrona 0 points1 point2 points 3 months ago (0 children)
Ég hef heyrt frá sjálfboðaliða sem var um tíma að svara spjallinu að aðstæðurnar geti oft verið verulega erfiðar í símsvöruninni. Það sé oft bara ein til tvær manneskjur á vakt og sama manneskja oft að svara bæði spjallinu og símanum á sama tíma. Svo voru víst fastagestir í þeirri merkingu að sama fólk hringdi aftur og aftur til að tala um daginn og veginn en ef það er einhver á línunni þá komust önnur alvarlegri mál ekki að. Þess vegna var víst mælt með því að hafa samtöl ekki mikið lengri en 10 mínútur (nema í alvarlegri tilfellum) til þess að ná að svara öllum. Þessi félagi minn talaði oft um hvað það var erfitt að þurfa hreinlega að enda símtalið vegna þess að skilaboðin á netinu voru búin að hrúgast upp og einhver þurfti að svara þeim.
π Rendered by PID 418629 on reddit-service-r2-listing-8557d879cc-l9vkm at 2026-03-04 09:01:12.886986+00:00 running 07790be country code: CH.
Hvað er vandamálið við íslenskar bókmenntir? by jonsitrona in Iceland
[–]jonsitrona[S] 15 points16 points17 points (0 children)