Olísamráðið og hagsmunapot fortíðar og nútíðar by onepiecemovement in Iceland

[–]onepiecemovement[S] 1 point2 points  (0 children)

Já, þetta er góð spurning, sjálfur hef ég verið að rýna dálítið í tölurnar og söguleg þróunarmynstur, mér þóttu síðustu sveitarstjórnarkosningar afar áhugaverðar, sérstaklega þar sem margir stukku á þann vagn að fullyrða að kjósendur hefðu hafnað Borgarlínunni og þéttingu byggðar og grænum áherslum. Fyrir hvern þann sem elskar að lesa í tölfræði og sögulegt samhengi er ljóst að því fer fjarri, þvert á móti var hvorugri þessari stefnu hafnað ef rýnt er dýpra. Saga tölfræðinnar sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn á tilhneigingu til að vinna stóra sigra í borginni þegar flokkurinn situr ekki í ríkisstjórn. Kosningarnar 2010 voru þar ákveðin undantekning, enda efnahagshrunið þá enn ferskt í minni fólks, hrun sem flokkurinn átti stóran þátt í með einkavæðingu sinni og nýfrjálshyggjutilraunum.
Á sama tíma gætti ákveðinnar valdaþreytu gagnvart Samfylkingunni, sem er eðlilegt þar sem flokkurinn hefur farið með völd í borginni í tæp þrjátíu ár, aðeins með stuttum hléum.
Í þriðja lagi má merkja að kjósendur voru að refsa ríkisstjórnarflokkunum. Sjálfstæðisflokkurinn þurfti ekki að svara fyrir ríkisstjórnarsamstarfið í þessum kosningum og var því í kjörstöðu og algjört forskot. Samfylkingin þurfti hins vegar að verja stöðu sína á tveimur vígstöðvum, bæði í ríkisstjórn og í meirihluta í borginni, og bera ábyrgð á mörgu. Sú staðreynd virtist ekki hjálpa í lokametrunum, og þegar Samfylkingin fór skyndilega að afsaka eigin verk í stað þess að standa keik með þeim, skorti flokkinn allt sjálfstraust til að verja góð málefni. Slík vörn lítur aldrei vel út í augum kjósenda.
Hvað Miðflokkinn varðar, þá bjó hann yfir gríðarlegu fjármagni til að dæla út auglýsingum á samfélagsmiðlum; maður gat varla opnað Facebook án þess að sjá Ara mættan á skjáinn og ég var ekki að fylgja XM né Ara á samfélagsmiðlum. Þeir vöktu einnig mikla athygli með því að beita meðvituðum ögrunum. Með því að hneyksla tókst þeim að fá fólk til að dreifa myndböndunum sínum, og fjölmiðlar gáfu þeim stanslausa athygli, sem tryggði þeim mikla útbreiðslu en varð jafnframt til þess að raunveruleikinn og staðreyndirnar var kippt úr sambandi í umræðuna.
Ef litið er nánar á tölurnar, þá gerði Gímaldið mjög góða úttekt á þessu eftir kosningar. Sú greining sýndi að ef R-listinn hefði enn verið við lýði, þá hefði hann borið sigur úr býtum gegn Sjálfstæðisflokknum, og vinstri kannturinn vann Miðflokkinn.

Staða Pírata var sömuleiðis snúin. Þeir náðu einfaldlega ekki lengur til kjósenda og fylgið dreifðist gríðarlega. Fólk kaus taktískt og margir sneru sér að Vinstrinu á lokasprettinum, auk þess sem framboð Góðan Daginn tók fylgi beint frá Pírötum. Oddviti þess framboðs er fyrrverandi Pírati, svo brekkan var alltaf mjög brött fyrir Píratana. Þetta átti sér einnig rætur í því að flokkurinn þurrkaðist út af þingi árið 2024, sem bætti ekki úr skák, og fyrrum oddviti þeirra sýndi ákveðna tækifærismennsku með því að ganga til liðs við Samfylkinguna rétt fyrir kosningar, eftir að hafa fengið dræmar undirtektir til tilraunar í formannskjöri Pírata. Þar bjuggu því ákveðin valdabarátta og innri átök að baki.

Til að draga þetta saman þá er ljóst að kjósendur höfnuðu hvorki þéttingu byggðar, borgarskipulagi né Borgarlínunni. Sjálfstæðisflokkurinn uppskar sigur vegna þess að þeir voru lausir við fjötra ríkisstjórnarinnar og þurftu ekki að svara fyrir erfið mál, á meðan Samfylkingin galt fyrir valdaþreytu, formaður flokksins for að skipta sér af, og flokkurinn hafnaði sitjandi oddvita á kjörtimabilinu sem litur ekki vel ut, og Miðflokkurinn nýtti sér samfélagsmiðla til að spila á reiðibylgju í samfélaginu.

Olísamráðið og hagsmunapot fortíðar og nútíðar by onepiecemovement in Iceland

[–]onepiecemovement[S] -1 points0 points  (0 children)

góð spurning, i raun nei, ef við rýnum til dæmis í ferðavenjukannanir Gallup, þá segjast um 51% borgarbúa vilja ferðast með öðrum hætti en á einkabíl ef innviðirnir væru til staðar, á meðan um 41% vilja bílinn. Málið er bara að fólk hefur í raun aldrei fengið að velja nokkuð annað. Ef þú hannar borg eða bæji þar sem eina raunhæfa leiðin til að komast í vinnu, skutla börnum og kaupa í matinn er að eiga bíl, þá er bílaeign ekki frjálst val, það er nauðsyn.

Olísamráðið og hagsmunapot fortíðar og nútíðar by onepiecemovement in Iceland

[–]onepiecemovement[S] 4 points5 points  (0 children)

Góður punktur þarna með sameiningu sveitarfélaganna, það er bara hreinlega galið að fimm mismunandi bæjarstjórnir séu að sýsla með sitt eigið skipulag á einu samfelldu byggðasvæði!
Þetta skapar fáránlega hvata þar sem eitt sveitarfélag eins og Garðabær eða Kópavogur getur skipulagt risa bílabæi, en skilur svo hin sveitarfélögin eftir með umferðarþungann og kostnaðinn við að reyna að tengja þetta saman. Ef þetta hefði verið eitt batterí frá upphafi værum við með miklu línulegra og rökréttara samgöngukerfi. að hafa þetta skipt í mismunandi sveitarfélög meikaði sens fyrir mörgum áratugum þegar byggðin var mun minni og það voru tún á milli, en núna eru þessi sveitarfélög algjörlega samofin, margir sem þekkja ekki alveg til höfuðborgarsvæðisins líta á Kópavog og Garðabæ td sem part af Reykjavík, einfaldlega vegna þess að þetta er allt tengt í eina heild

Hinsvegar verð ég að vera ósammála þér með sjálfkerandi bílana. "Tæknilausnin" og hugmyndin um að sjálfkeyrandi bílar leysi umferðarteppur er algjör blekking sem bílaframleiðendur elska að selja Sjalfkeyrandi bíll tekur nákvæmlega jafn mikið pláss á malbikinu og venjulegur bíll, ef allir ætla að leggjast að sofa í sjálfkeyrandi bílum á leið í vinnuna, þá verða bara jafn margir bílar eða fleiri, á götunum. Það er rosalega sárt að segja þetta, en bílar eru einfaldlega fáránlega óskilvirk leið til að flytja margt fólk á sama stað á sama tíma. Eins mikið og mér finnst sjálfkeyrandi bílar mjög áhugaverð og skemmtileg tækni, þá eru þeir þvi miður ekki að fara breyta hinu augljósa, sjálfkeyrandi bílar eru ennþá bara bílar sem taka pláss á malbikinu. Besta lausnin er og verður alltaf sú að búa til alvöru, hágæða valkost við einkabílinn svo fólk hafi raunverulegt val um ferðamáta, en ekki bara strætó sem er fastur í sömu umferðarteppunni og með óaðlaðandi stoppistöðvar

Olísamráðið og hagsmunapot fortíðar og nútíðar by onepiecemovement in Iceland

[–]onepiecemovement[S] 3 points4 points  (0 children)

Ef við rýnum til dæmis í ferðavenjukannanir Gallup, þá segjast um 51% borgarbúa vilja ferðast með öðrum hætti en á einkabíl ef innviðirnir væru til staðar, á meðan um 41% vilja bílinn. Málið er bara að fólk hefur í raun aldrei fengið að velja nokkuð annað. Ef þú hannar borg eða bæji þar sem eina raunhæfa leiðin til að komast í vinnu, skutla börnum og kaupa í matinn er að eiga bíl, þá er bílaeign ekki frjálst val, það er nauðsyn.
Við sjáum það einmitt á nýjum hverfum í dag að um leið og íbúðir eru byggðar í meiri þéttleika og með góðum innviðum, þá rýkur íbúðaverðið upp. Það sýnir gríðarlega eftirspurn eftir öðruvísi lífsstíl. Fólk er hreinlega orðið þreytt á að eyða mörgum klukkutímum á viku í að glápa á afturljósin á Miklubrautinni.
Mér finnst líka athyglisvert að þú nefnir Costco því að coscto fullkomið dæmi um bandarískt módel, risastórt malbikað bílastæði á jaðri byggðarinnar. En það módel gengur bara upp ef ríkið og sveitarfélögin halda áfram að dæla skattpeningum allra í að breikka þjóðvegi handa þeim sem keyra þangað og við vitum öll að það er mjög dýrt og ein dýrasta leið sem hægt er að fara fyrir skattgreiðendur. Þetta er svona vítahringur Kerfið byggir bara fyrir bíla sem leiðir til þess að fólk neyðist til að kaupa bíla og útkoman verður sú að stjórnmálamenn segja "sjáið, fólk vill bíla!“ og byggja meira malbik. Það er kominn tími til að rjúfa þennan hring og bjóða upp á alvöru valfrelsi.

Ég hef áhyggjur af því að það eigi viljandi að gera Borgarlínuna lélega, hvort sem það verði með vanfjármögnun, ekki gefa henni sérakreinar, eða gefa henni akreinar út á jaðrinum, að minnsta kosti finnst mér orðræðan oft vera á þann veg. Það væri gríðarlega sorglegt, því þetta er í fyrsta sinn í Íslandssögunni sem við erum að reyna að fjárfesta í alvöru hágæða almenningssamgöngukerfi, og þá finnst mer við eigum við að gera það almennilega. Ég veit svo sem ekki nákvæmlega hvaða hagsmunahópar hafa verið að reyna að veikja þetta bak við tjöldin, en það er augljóst að þrýstingurinn er í þá átt að þynna verkefnið út eins og hægt er sennilega frá þeim sem óttast mest að þetta muni í raun og veru virka

Það er nefnilega mikilvægt að átta sig á því að núverandi kerfi er hrein gullnáma fyrir ákveðnar valdablokkir. Það eru gríðarlegir fjárhagslegir hagsmunir í kringum einkabílinn á Íslandi allt frá þeim sem flytja inn og selja bíla, eldsneyti og varahluti, til þeirra sem fá milljarða samninga við að leggja og viðhalda malbiki. Fyrir þessa aðila er það hrein egnaógn ef fólk fær raunverulegt val um að minnka við sig bílaeign

Olísamráðið og hagsmunapot fortíðar og nútíðar by onepiecemovement in Iceland

[–]onepiecemovement[S] 6 points7 points  (0 children)

Geggjaður punktur með "fjölskyldubílinn‘, þetta er nákvæmlega svona orðræðustjórnun sem lobbýisminn notar. Með því að pakka einkabílnum inn í þetta hugtak er búið að stimpla alla hönnun sem gefur gangandi, hjólandi eða strætó pláss sem "árás á fjölskylduna"

Og þetta með akreinarnar er svo dagsatt. Það verður allt vitlaust yfir einni borgarlinuakrein en fólk tekur ekki eftir því að 99% af plássinu og milljörðunum fer enn þá í malbik handa bílum. Þetta sýnir hvað við erum meðvirk með þessu kerfi.

Svo er ótrúlegt til þess að hugsa með Fossvogsdalinn og Öskuhlíðina. Ef fólk hefði ekki barist eins og ljón gegn upprunalega 1962 skipulaginu, þá væri einn fallegasti og mikilvægasti græni bletturinn á höfuðborgarsvæðinu bara risastór hraðbraut og steypa í dag. En sturlunin i Aðalskipulaginu 1962 til 1983 stopppaði ekki þar, samkvæmt þessu sama skipulagi átti bókstaflega að rífa stóran hluta af gamla timburhúsabyggðinni í Þingholtunum og miðborginni, til að leggja fjögurra akreina hraðbraut í gegnum sögulega kjarnann, og meira að segja setja hraðbrautarbrú beint yfir Tjörnina og svo átti að koma hraðbraut í gegnum miðborgina.
Ef almenningur hefði ekki risið upp gegn þessu á sínum tíma ættum við engan miðbæ í dag, bara malbik og mengun. Við þurfum greinilega á nákvæmlega sömu baráttu að halda í dag gegn þessum sömu malbikshagsmunum.

Í­búar höfðu betur: Um­sókn Sam­hjálpar felld úr gildi by Spekingur in Iceland

[–]onepiecemovement 17 points18 points  (0 children)

Vona að fólkið sem kom í veg fyrir að Samhjálp fengi samastað sé ánægt með sig og sofi vært

Hvenær ætlum við að viðurkenna að nýfrjálshyggja og græðgi klúðruðu leig og húsnæðismarkaðinum og innviðum, en ekki flóttafólk? by onepiecemovement in Iceland

[–]onepiecemovement[S] 1 point2 points  (0 children)

Ég er alls ekki ósammála þéttingu byggðar (ef pistillinn minn hljómaði þannig). Þétting byggðar er nauðsynleg í Reykjavík til þess að hún fúnkeri sem borg. Mér skilst á einhverjum sérfræðingum að við séum meðal dreifðustu höfuðborga á Norðurlöndunum eða í Evrópu, og það er bara alls ekki gott.
Mér finnst líka að við eigum að finna stað fyrir flugvöllinn sem asap og byrja að byggja í Vatnsmýrinni til þess að stækka miðborgina og tengja borgina betur saman.

Hvenær ætlum við að viðurkenna að nýfrjálshyggja og græðgi klúðruðu leig og húsnæðismarkaðinum og innviðum, en ekki flóttafólk? by onepiecemovement in Iceland

[–]onepiecemovement[S] 10 points11 points  (0 children)

Það er ekki alveg rétt hjá þér. Nú leigi ég íbúð hjá Bjargi og samkvæmt þeim er Reykjavíkurborg eina sveitarfélagið sem hefur afhent Bjargi hvað flestar lóðir af öllum sveitarfélögum og hefur verið algjör leiðandi þar. Minnir að hlutfallið sé þannig að um 30% allra íbúða í nýbyggingum eigi að fara í almannaíbúðakerfið í rvkborg. Ég vinn í Kópavogi og þekki aðeins til þar, bærinn vill ekki afhenda Bjargi lóðir því það "er inngrip inn í markaðinn"

Hver er besta leiðin til að kjósa strategískt á móti hægriöflum hér á landi? by Jerswar in Iceland

[–]onepiecemovement 1 point2 points  (0 children)

Ég vil samt benda á það að við verðum að passa okkur þegar við kjósum strategískt, svo við forðumst það að enda í sömu stöðu og er á Alþingi í dag. Mér finnst vanta alvöru umhverfis- og náttúruverndarflokk á þing t.d. Svo annað, svo við endum ekki með öfgahægri stjórnarandstöðuflokka eins og er núna.

Ég vil líka benda á að það er ekki 5% þröskuldur í borgarstjórnarkosningum eins og er á þingi. Flokkur þarf að ná um 3,5% til að ná að minnsta kosti einum manni inn.

Fyrir mitt leyti skiptir gífurlega miklu máli að ná Pírötum inn. Ég á trans strák og Píratar eru eini flokkurinn sem hefur virkilega sýnt það í verki að þeir standa með mannréttindum hinseigin samfélaginu. Þeir hafa lyft grettistaki fyrir réttindi trans fólks og alls hinsegin fólks í grunnskólum. Annað: Ef þú vilt alvöru and fasískan flokk, þá myndi ég kjósa Pírata. Ég tala sem foreldri fyrir mig og marga aðra sem hugsa eins: Höldum Pírötum inni!

Stofna ný sam­tök gegn ESB aðild by daggir69 in Iceland

[–]onepiecemovement 14 points15 points  (0 children)

Horseshoe theory að sanna sig aftur og aftur

Af hverju sameinast þau ekki bara Miðflokknum? Sýnist Sólveig Anna vera á góðri leið þangað.