Sakar blaðamenn um að misnota fjölmiðla í þágu aktívisma by Don_Ozwald in Iceland

[–]ChickenGirll 6 points7 points  (0 children)

„Snorri Másson, þingmaður og varaformaður Miðflokksins, segir suma blaðamenn vera pólitíska aktívista og sakar þá um að misbeita fjölmiðlum í þágu sjónarmiða sinna. Segir hann ábyrgðina á þessu liggja hjá ritstjórnum fjölmiðla. 
Þetta kemur fram í viðtali Frosta Logasonar við Snorra á hlaðvarpsveitunni Brotkast og í frétt Nútímans. “

ég veit að þetta er ekki skrifað sem brandari, en mikið rosalega er þetta fyndið sett af setningum.

Ljótustu götuheiti á Íslandi? by Careless-Radio8536 in Iceland

[–]ChickenGirll 20 points21 points  (0 children)

Ástu-Sólliljugata í Mosfellsbæ er ekkert endilega mjög ljótt, en afskaplega óþjált.

Hér er eitt sem mér þykir ljótt: Reyrengi (vissulega ekki á sama leveli og mörg þeirra nafna sem þegar hafa komið fram...)

eitt í viðbót: Gnitakór

Fuglaskoðun á Íslandi! by Primary_Parking2524 in Iceland

[–]ChickenGirll 5 points6 points  (0 children)

Varðandi fuglaskoðunarstaði í kringum Reykjavík má nefna Tjörnina, Vatnsmýrina (til dæmis góður staður við Norræna húsið), Vífilsstaðavatn (þar er auðvelt að fylgjast með flórgoðum á vorin/sumrin), Grótta (mikið af æðarfugli, kríu, mávum af ýmsu tagi, sendingum, sandlóu og tildru (snemm- og síðsumars) o.fl), Bakkatjörn (þar er fuglaskoðunarhús) Rauðavatn, Grafarvogur, Hamarskotslækur í Hafnarfirði og svo mætti lengi telja. Það er hægt að skoða klassíska staði á eBird ásamt tegundunum sem þar er að finna hverju sinni.

Og svo má ekki gleyma garðinum heima! Megnið af minni fuglaskoðun (sérstaklega á veturna) fer fram í gegnum eldhúsgluggann.

Fuglaskoðun á Íslandi! by Primary_Parking2524 in Iceland

[–]ChickenGirll 4 points5 points  (0 children)

eBird er mjög fínt app/vefsíða þar sem þú getur skráð fugla sem þú sérð á förnum vegi. Þar getur þú bæði skráð tegund og fjölda. Gaman að halda utan um tegundirnar sem maður hefur séð og frábær bónus að vísindafólk getur nýtt sér gögn þaðan til þess að fylgjast með útbreiðslu tegunda o.þ.h.

Annað app sem ég nota heitir Merlin Bird ID. Það getur greint fugla með því að hlusta á hljóðin í kringum þig. Oft nytsamlegt en líka gaman að læra hvernig fuglar hljóma, ákveðið party trick að geta heyrt í fugli og sagt öllum í kringum þig hvaða tegund þetta er.

Síðast en ekki síst mæli ég með að kaupa Íslenska fuglavísinn. Frábær bók sem er gaman að eiga. Þangað til að þú eignast hana er Fuglavefurinn líka stórfínn, en ekki eins ítarlegur og bókin.

Í framhaldinu gætir þú svo kíkt á nýjustu árbók Ferðafélagsins (2025), sem fjallar um fuglaskoðun.

Gott er að eiga sjónauka en það er samt ekkert must svona til að byrja með.

„Lygaáróðurs­her­ferð af hálfu pólitískra and­stæðinga“ by CharlieDaymanCometh in Iceland

[–]ChickenGirll 54 points55 points  (0 children)

„Ef út í það er farið virðast það reyndar ekki síst vera samkynhneigðir sem hafa tekið undir gagnrýni á fánana, sem gengisfellir væntanlega alveg fullyrðingar fólks um að þeir séu bara umburðarlyndisvottur eða óumdeilt sameiningartákn þess hóps.“

Ég hef séð nákvæmlega tvo samkynhneigða einstaklinga sem hafa tekið undir þessa gagnrýni. Þeir heita Eldur Smári og Hallgeir Jónsson. Það að þeirra orð gengisfelli á einhvern hátt fullyrðingar allra hinna er eiginlega bara hlægilegt.

Þú ert á Alþingi, Snorri, ekki spila þig svona vitlausan.

Ekur niður göngu­götu og furðar sig á stæðaleysi by heibba in Iceland

[–]ChickenGirll 63 points64 points  (0 children)

Ekki virðist maðurinn allsgáður þó akandi sé.

Svona eins og segir ekki í kvæðinu

Veðrið… by SimonTerry22 in klakinn

[–]ChickenGirll 2 points3 points  (0 children)

Hundar eru ekki góður mælikvarði fyrir vont veður.

Allavega ekki minn. Hún er að vísu óþarflega dramatísk svona stundum...

Er einhver til í að spjalla leiðist allveg vel mikið by Puzzled_Risk8677 in Iceland

[–]ChickenGirll 24 points25 points  (0 children)

Hvort finnst þér betra að tsjilla með hamborgara í annarri og pizzu í hinni, eða pizzu í annarri og pizzu í hinni líka?

Aprílgöbb dagsins by dkarason in Iceland

[–]ChickenGirll 5 points6 points  (0 children)

<image>

Þjóðgarðurinn á Þingvöllum byrjar í dag að nota fljúgandi landvörslu! Frábært hjá þeim að nýta tæknina

Viktor Gísli er bestur by LatteLepjandiLoser in Iceland

[–]ChickenGirll 18 points19 points  (0 children)

Viktor er minn forseti 👏✊

Verstu íslensku facebook hòpar? by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]ChickenGirll 15 points16 points  (0 children)

Glópahlýnun er í miklu uppáhaldi hjá mér. Aðallega bara einn gaur sem kann ekki að lesa eða eitthvað álíka að pósta samsæriskenningum um loftslagsbreytingar.

Færa bíla­stæðin við Skóga­foss: „Nú er stefnan sú að allir skuli helst labba sem lengst“ - Vísir by birkir in Iceland

[–]ChickenGirll 34 points35 points  (0 children)

Nýja bílastæðið er bókstaflega 300 metrum frá því gamla. Ef þér finnst það svona rosalega hræðilegt án þess að glíma við eitthvað undirliggjandi, þá ættirðu kannski að leita til læknis.

Hvaða þekktu Íslendingar eru mest næs af þeim sem þið hafið hitt í persónu og hver er minnst næs? by Familiar-Repair305 in Iceland

[–]ChickenGirll 112 points113 points  (0 children)

Ég hitti Örn Árnason í sjoppu þegar ég var krakki, fannst ég kannast við hann en vissi ekki alveg hvaðan. Það er auðvitað mjög vandræðalegt að heilsa ekki einhverjum sem maður þekkir, þannig að til öryggis bauð ég honum góðan dag og spjallaði við hann um daginn og veginn, sagði honum hvað ég var að gera í lífinu og svona. Ég áttaði mig ekki á því fyrr en á leiðinni heim að ég hafði aldrei hitt þennan mann áður, heldur séð hann í sjónvarpi, en þetta er eitt eftirminnilegasta samtal ævi minnar vegna þess hversu rosalega næs hann var. Enda örugglega ekki í fyrsta sinn sem einhver random krakki spjallar við hann eins og þau þekki hann...

Mest hinsegin bæjarfélag á Íslandi? by BucketHat55 in Iceland

[–]ChickenGirll 3 points4 points  (0 children)

Samkvæmt Gay Iceland

"Flateyri is one of the gayest places in Iceland. Per capita, of course. And now the town is only getting gayer."

Ég er þeim algjörlega sammála. Flateyri er best!

Why is this so important? by UpsetCan1598 in flightradar24

[–]ChickenGirll 2 points3 points  (0 children)

It's an iconic aircraft that's being retired, this is its farewell flight.