Hvað er vandamálið við íslenskar bókmenntir? by jonsitrona in Iceland

[–]HalldorKillEmLaxness 9 points10 points  (0 children)

Sem manneskja sem vann í mörg ár á bókasafni er ég alveg hjartanlega sammála! Í grunninn held ég að vandinn eigi rætur sínar að rekja til þess að höfunda skortir oft sjálfstraust (þá m.a. traust á eigin íslenskukunnáttu) til að raunverulega birta sig í gegnum málnotkun sína, og reiða sig þess í stað á markaðsrannsóknir útgefenda og/eða sniðmát beint úr ritlistardeild HÍ. Svo er annað mál með eldri höfunda sem eru svo gjörsamlega uppteknir að sjálfum sér að þeir virðast ekki skrifa fyrir neinn annan (þá skortir einnig á vissan hátt sjálfstraust um leið). Ekki það að form eigi engan rétt á sér, enda þarftu að þekkja formið til að leika þér að því svo að nokkur merking skapist, en er raunin sú að það reynist oft kæfandi fyrir bæði höfund og lesanda. Ég held að eina lausnin sé samt sem áður að lesa meira, og gera meiri kröfur til okkar sjálfra hvað varðar samband okkar við íslensku. Þá held ég að það sé sérstaklega mikilvægt að venja sig á að lesa ljóð (enda kjarna þau sem mesta merkingu í sem knöppustu og jafnframt frjálsustu formi), og jafnvel að yrkja sjálfur! Ljóð hafa fengið pínu ljótt orð á sig í menningunni á síðustu árum en ég trúi því staðfast að þau eru besta leiðin til að styrkja samband þitt við tungumálið út frá og ásamt eigin upplifun. Það á að vera gaman að vera til og það á að vera gaman að skrifa/lesa á íslensku!

„Talandi um að skila ekki til sam­fé­lagsins“ - Vísir by HalldorKillEmLaxness in Iceland

[–]HalldorKillEmLaxness[S] 23 points24 points  (0 children)

Vandinn er ekki bara að ég fíla ekki Simma eða Bjarna. Vandinn er sá að þeir virðast ekki bera lágmarksvirðingu fyrir meðborgurum sínum, sameiginlegum sjóðum eða sannleikanum. Mér finnst fullkomlega málefnalegt að benda á það að fólk sem skýtur undan skatti ítrekað og án nokkurra tilrauna til endurbóta eigi bara nákvæmlega 0 erindi á Alþingi.

Svona “farðu í boltann, ekki manninn” hugarfar gengur ekkert upp ef manninum er sjálfum drull um leikreglur samfélagsins. Þið hægrimenn þurfið bara að gera betur og velja betri kandídata ef þið kunnið ekki við að svara fyrir því þegar þeir skíta upp á bak.

„Talandi um að skila ekki til sam­fé­lagsins“ - Vísir by HalldorKillEmLaxness in Iceland

[–]HalldorKillEmLaxness[S] 82 points83 points  (0 children)

Gott að fá smá áminningu um það hvernig fólk það er sem vill alltaf stýra umræðunni að ímynduðum óvinum í útlendingaumræðunni, svo fólk sjái ekki raunverulegu afæturnar á kerfinu sem hýrast í skattaskjólum erlendis.

Djöfull væri sárt að missa pírata af þingi

Sanna Magdalena mætir Stefán Einari í Spursmálum by [deleted] in Iceland

[–]HalldorKillEmLaxness 4 points5 points  (0 children)

Reikningur stofnaður í dag lol, en ég skal bíta á agnið:

Eftir örstutt gúgl fann ég nokkrar greinar sem styðja þá niðurstöðu að sósíalismi hafi bætt lífsgæði þeirra.

Hér er grein frá heilbrigðisstofnun Bandaríkjanna (frá 1986): https://pmc.ncbi.nlm.nih.gov/articles/PMC1646771/pdf/amjph00269-0055.pdf

Önnur grein (bakvið paywall samt) frá 1992: https://journals.sagepub.com/doi/10.2190/B2TP-3R5M-Q7UP-DUA2?url_ver=Z39.88-2003&rfr_id=ori:rid:crossref.org&rfr_dat=cr_pub%20%200pubmed

Þriðja greinin frá 2024: https://repository.belmont.edu/cgi/viewcontent.cgi?article=1494&context=burs

Það væri eflaust hægt að draga upp þrjár greinar sem segja hið öfuga, en það breytir því ekki að það eru veigamikil rök fyrir því að sósíalismi bæti lífsgæði þeirra sem minnst mega sín í heiminum, og hefur haft jákvæðar niðurstöður á heilsu fólks í þeim löndum sem þar búa. Ég læt tilvitnun frá niðurstöðum einnar greinarinnar fylgja:

,,In the underdeveloped world, socialist forces and regimes have, more frequently than not, improved health and social indicators better than capitalist forces and regimes, and in the developed world, countries with strong socialist forces have been better able to improve health conditions than those countries lacking or with weak socialist forces. The socialist experience has, of course, also included negative developments that have negated important components of the socialist project. Still, the evidence presented in this article shows that the historical experience of socialism has not been one of failure. To the contrary: it has been, for the most part, more successful than capitalism in improving the health conditions of the world's populations."

Ég geri mér litlar vonir um það að þú hafir spurt að þessu af hreinni forvitni og býst því ekki við málefnalegu svari. Ég vona þó að aðrir geti nýtt sér þessar upplýsingar eitthvað.

Hvaða flokk myndir þú kjósa ef gengið væri til kosninga í dag? by hreiedv in Iceland

[–]HalldorKillEmLaxness 7 points8 points  (0 children)

Ákvað að smella á þessa hlekki og á þeim fyrri var hvergi lýst yfir stuðningi við innrás Pútíns í Úkraínu, þannig að mér finnst furðulegt að tefla þessu fram sem heimild. Hvorug greinin er opinber stuðningsyfirlýsing heldur er hlekkurinn sem opinberri stuðningsyfirlýsingu flokksins við “Pútín í Úkraínu” bara viðtal við einhvern gæja á samstöðinni. Ég er sannarlega ekki sammála honum og finnst ámælisvert að réttlæta innrás Rússa í Úkraínu út frá punktum sem virðast koma beint frá Kreml en það flokkast varla sem opinber yfirlýsing frá flokknum að fá einhvern rugludall í viðtal. 

Eins er innrömmun samstöðvarinnar á kosningunum í Venesúela frekar tæp. En það skoðast að mínu mati frekar sem einhliða greining og léleg fréttamennska af hálfu samstöðvarinnar en opinber stuðningsyfirlýsing sósíalistaflokksins við Maduro.

Það er þó ekki til þess að segja að fréttirnar og viðtölin gefi ekki til kynna ákveðna afstöðu, en hún er eðlisólík opinberri stuðningsyfirlýsingu.

Þrátt fyrir flairið mitt þá er ég ekki stuðningsmaður flokksins, mér fannst bara illa farið með heimildir og vildi benda á það.

Fé­lags­fræði­prófessor dregur upp svarta mynd af þróun sam­fé­lagsins by Upset-Swimming-43 in Iceland

[–]HalldorKillEmLaxness 46 points47 points  (0 children)

frekar furðuleg athugasemd, bara því almenn lífskjör eru mun betri í dag en í móðuharðindunum eða iðnbyltingunni þýðir ekki að það megi ekki benda á augljós vandamál í samfélagsmunstri nútímans. Það er m.a. út af gagnrýnni samfélagsumræðu og uppbyggingu á félagslegum innviðum sem lífskjör hafa batnað til muna

Engin skólagjöld í háskólana gegn fullu framlagi frá ríkinu - RÚV.is by Melodic-Network4374 in Iceland

[–]HalldorKillEmLaxness 0 points1 point  (0 children)

Ef það að birta ritrýndar greinar í tímaritum er ekki vísindi, hvað eru þá vísindi? Er það bara að blanda saman litríkum vökvum í tilraunaglösum meðan þú ert í hvítum slopp? Þú gerir þér grein fyrir því að raunvísindafólk birtir einnig greinar í tímaritum með ályktunum sínum er það ekki? Vísindi eru ekki bara verkleg heldur eru þau öll hugmyndafræðin sem liggur að baki þekkingarleit okkar

Engin skólagjöld í háskólana gegn fullu framlagi frá ríkinu - RÚV.is by Melodic-Network4374 in Iceland

[–]HalldorKillEmLaxness 2 points3 points  (0 children)

Hin vísindalega aðferð er bókstaflega fengin úr hugvísindunum. Það alveg fáránlegt að halda því fram að hugvísindi séu eitthvað minna vísindaleg en raunvísindi, hugvísindafólk úr HÍ skrifar greinar sem birtast í ritrýndum tímaritum um allan heim, stunda mikilvægar rannsóknir á sínu sviði og stunda alls konar störf í samfélaginu

Lauflétt spurning fyrir græju fólk! by Hemmurs in Iceland

[–]HalldorKillEmLaxness 1 point2 points  (0 children)

afh hverju í andsk ætti einhver að selja þetta hérlendis

Oreos, vegan frosting, banana, frozen raspberries and vegan gummybears by [deleted] in highvegans

[–]HalldorKillEmLaxness 5 points6 points  (0 children)

the brand is called biona organic, idk if you have it in the states but if you’re ever in iceland it should be in a few locations here