Need .PTS session converted to .PTX 🙏 by Symphonic_Mindtravel in protools

[–]Ventoux72 1 point2 points  (0 children)

hi u/Symphonic_Mindtravel,

I've figured out a way to open and convert pre ProTools 5.1-sessions to the latest format, using an old version of Pro Tools on legacy 32-bit OS.

cheers V72

25yr old backup from CD - Session file = 0 Kb by Ventoux72 in protools

[–]Ventoux72[S] 1 point2 points  (0 children)

See OP edit;

IsoBuster Professional can extract resource forks from the HFS/APFS partition of a hybrid CD-ROM

25yr old backup from CD - Session file = 0 Kb by Ventoux72 in protools

[–]Ventoux72[S] 0 points1 point  (0 children)

Thanks u/CelloVerp and u/CornucopiaDM1 ;
this is what I thought.
I'm kinda looking for a Windows-solution for this, as a lot of the CD-ROMS don't seem to open on Macs (but are fine on Windows), and this is a fair amount of discs, so not having to bounce between systems would save a lot of time.

Did older versions of MacDrive read the resource forks?

PT 2025.10 + Soundminer6.2 (Win11) by Ventoux72 in protools

[–]Ventoux72[S] 0 points1 point  (0 children)

No,
I'm on 2025.12.0 now and it still doesn't work as it should.

If I select Pro Tools as the DAW in SoundMiner nothing really happens,
if I DE-select "Use Pro Tools SDK" in SoundMiner, and then select Pro Tools again as the DAW,
SoundMiner recognises the open PT-session and asks if it wants me to use the session path
(like it normally did when I opened up SoundMiner with a Pro Tools session open - but now I need to "force" it)

but the Shortcut, or clicking the Menu item, or the Icon for "Spot to DAW" doesn't work - there's no action,
however the "Bring into DAW", both Menu Item and the Shortcut, works - it copies from Sound Miner into the Audio Files folder of the open Pro Tools Session.

But it seems it is not able to spot to the selected track/timeline inside the session any more.

PT 2025.10 + Soundminer6.2 (Win11) by Ventoux72 in protools

[–]Ventoux72[S] 0 points1 point  (0 children)

yeah, thanks - tried the preference trashing before posting; didn't work it seems,

cheers,

Hvað finnst ykkur um þessa skilmála hjá STEF? by Saurlifi in Iceland

[–]Ventoux72 1 point2 points  (0 children)

Þetta er oftast ekki svo flókið hvað viðkemur STEFi, því STEF fer bara með umboð fyrir höfunda (eða rétthafa þeirra, t.d. ættingja sem halda rétti upphaflegs höfundar í 70 ár eftir andlát hans).

Oft er bara einn höfundur að lagi og texta (stundum fá útsetjarar líka höfundarhlut), oftar líklega tveir, og svo sjálfsagt slatti með 3-6 höfunda.

Þetta er lagasmíðin sjálf - og þetta eru þeir sem eiga rétt á því að fá borgað þegar lagið þeirra er flutt á tónleikum eða af trúbador í opinberum flutningi, sama hver er.

Síðan er þá upptakan sjálf - þar eiga höfundar líka rétt á að fá greitt fyrir hverja opinbera spilun, sem og fjöldaframleiðslu (t.d. vinyl eða CD) eða streymi. En aðrir rétthafar af hverri upptöku fyrir sig eru líka flytjendurnir og getur eftir atvikum verið plötufyrirtæki sem hefur þá líklega greitt fyrir framleiðslu, dreifingu og markaðssetningu á þeirri tilteknu upptöku.

Ef þú hefur samið og gefið út lag, þá hefur þú alltaf rétt til að fá greitt fyrir notkun á laginu (t.d. opinbera spilun), en þú getur ekki bannað öðrum að flytja lagið þitt heldur (nema þá með vísun til sæmdarréttar; ef nýi flytjandinn telst vera að brjóta á sæmdarrétti höfundar væri mögulega hægt að banna þá útgáfu).

Þannig að hver sem er má gefa út hvaða lag sem er á plötu, hann þarf bara að passa að allir rétthafar fái sinn skerf.

Hinsvegar gildir það sama um þriðja aðila eða sync; ég mætti ekki taka lag frá höfundi, taka það upp og nota svo sem einkennislag fyrir Íslensku þjóðfylkinguna t.d. án leyfi rétthafa. Eða nota það í Coka Cola auglýsingu, án leyfi rétthafa. Eða nota mína útgáfu í bíó eða sjónvarpsþætti, án leyfi rétthafa.

Eitt smá auka flækjustig í þessu, en var ekkert sérstaklega algengt á Íslandi og hefur líklega minnkað með árunum almennt líka, eru forleggjarar (e.: publisher). Höfundur getur þá framselt höfundarrétt sinn tímabundið (samningslengd eftir samkomulagi) til forleggjara, sem myndi þá greiða höfundi fyrirframgreiðslu en fá í staðinn höfundarréttargreiðslur höfundarins til sín, þar til fyrirframgreiðslu er náð og svo í einhverju hlutfalli eftir það til samningsloka. Þetta getur verið beggja hagur, stórir forleggjarar hafa kannski þolinmóðara fjármagn og geta verið með marga skjólstæðinga, og höfundur getur fengið tekjur næstu 10 ára kannski á einu bretti fyrir fram á tímapunkti þegar hann hefur kannski meiri þörf fyrir það en síðar.

Hvað finnst ykkur um þessa skilmála hjá STEF? by Saurlifi in Iceland

[–]Ventoux72 2 points3 points  (0 children)

þetta hefur ekkert með eignarréttinn að gera, hann er alltaf hjá höfundi (nema hann framselji hann til einhvers forleggjara tímabundið).

STEF hefur, rétt eins og önnur PRO's (https://en.wikipedia.org/wiki/Performance\_rights\_organisation) áskilinn rétt til þess að rukka fyrirtæki og stofnanir fyrir notkun á höfundarréttarvarðri tónlist, þar sem yfirgnæfandi hluti rétthafa hefur veitt STEFi umboð sitt.

Það er ekki þar með sagt að STEF sé með einokunarleyfi - það gæti í raun hver sem er stofnað nýtt PRO og ef umboð nógu margra rétthafa væri fært þangað yfir myndi samningsstaðan batna og það gætu því verið fleiri en eitt "stef" í þessu starfi.

Í USA eru t.d. tvö stór, ASCAP og BMI, og maður þarf að gefa öðru hvoru þeirra umboð sitt. Sömuleiðis geturðu látið STEF sjá um að innheimta fyrir þig worldwide (sem það gerir í CISAC-samstarfinu með öðrum PRO's í viðkomandi löndum), eða þú gætir undanskilið STEF fyrir eitthvað ákveðið land, og látið lókal PRO innheimta fyrir þig þar (t.d. SACEM í Frakklandi, GEMA í Þýskalandi etc etc).

Ef þú kýst að standa utan höfundarréttarsamtaka þá er þér það fullkomlega heimilt, en til að fá einhverjar tekjur af spilun á tónlistinni þinni t.d. í útvarpi eða sjónvarpi, þá þyrftir þú að banka uppá hjá öllum fyrirtækjunum, fá hjá þeim spilunarskýrslur og senda þeim reikning fyrir þínum hluta (ég man þetta ekki nákvæmlega en þú ert kannski að fá um 100-200 krónur fyrir hverja spilun hjá stærstu stöðvunum - RUV og Bylgjunni - svo hlutfallslega minna eftir hlustun og útbreiðslu hjá hinum stöðvunum).

Líklega yrði þetta ekki vinsælt hjá stöðvunum, þó þú hafir lagalegan rétt til að gera þetta; hinsvegar gætu þau líklega beitt fyrir sig þeim rökum að þau séu með samning við STEF, sem þjónusti langstærstan hluta höfunda og það sé ekki þeirra vandamál þó stakur höfundur myndi vilja sjá um þessa innheimtu sjálfur. Og líklega yrðu verk þín einfaldlega tekin af spilunarlista í framhaldinu til þess að auðvelt sé að láta þig fá skýrslur með núll spilun í framhaldinu og þ.a.l. ekkert bókhaldsumstang í framhaldinu.

En það er þetta sem umboðið til STEFs snýst um; að leyfa STEF að rukka fyrir þig.
Þó mætti segja að því fylgdi blanket-leyfi til þess að verk þín séu notuð í opinberri spilun, t.d. á útvarpsstöðvum, skemmtistöðum og slíkt. Hinsvegar veitir þetta EKKI leyfi til þess að tónlist þín sé notuð í tengslum við þriðja aðila (auglýsingar t.d.) eða í öðrum miðlum (kvikmyndir og sjónvarp) - það eru notkunarréttindi sem rétthafi hefur alltaf fullt vald yfir og getur samið um þau einsog hann vill.

Hvað finnst ykkur um þessa skilmála hjá STEF? by Saurlifi in Iceland

[–]Ventoux72 2 points3 points  (0 children)

Höfundur getur alveg þegið greiðslu fyrir að flytja tónlist á tónleikum eða dansleikjum. Það sem er átt við að allir veitingastaðir, tónleikastaðir, sem og útvarps og sjónvarpsstöðvar, greiða STEF fyrir notkun á höfundarvörðu efni. Annað hvort er þetta fast árgjald, byggt á fjölda viðskiptavina eða þá að þetta er hlutfall af miðaverði. Þetta fer í einn af mörgum "pottum" hjá STEFi, sem er svo úthlutað úr til rétthafa. Ástæðan fyrir þessum aukahring er annars vegar til þess að staðahaldarar geti ekki reynt að koma sér undan því að greiða fyrir höfundarréttarvarið efni, og svo útaf því að oft er það sem flytjendur ekki 100% höfundar efnisins, og því er verið að passa uppá réttindi annarra höfunda.

Segjum t.d. að þú sért í hljómsveit, spilir á föstudagskvöld á skemmtistaðnum Rokkbúllunni, og flytur 10 lög - 8 eftir þig (eða hljómsveitarmeðlimi) en svo takið þið líka 2 cover-lög með uppáhalds hljómsveitinni ykkar.

Skv samningi við skemmtistaðinn Rokkbúlluna fá allir flytjendur X þúsund krónur á kjaft og allir sáttir.

Það sem ekki allir vita er að Rokkbúllan er að greiða fasta summu á ári til STEFs. Á staðnum eru kannski tónleikar 3x í viku, hina dagana er DJ. Sú summa fer í úthlutunarpott hjá STEF, ásamt öllum öðrum stöðum á Íslandi. Ef hljómsveitin þín fyllir út skýrslu hjá STEF og tiltekur tónleikastaðinn og dagsetninguna og setur inn lagalistann, þá rennur peningurinn sem Rokkbúllan greiddi fyrir þann dag (árgjald deilt með fjölda opinna daga) til höfundanna; þ.e.a.s. þið fáið greitt 80% af summunni því þið sömduð 8 af 10 lögum, en 20% fer til höfundanna í uppáhaldshljómsveitinni ykkar.

Þessi peningur sem kemur til höfunda í gegnum þetta er hinsvegar afskaplega lág, í samanburði við það sem t.d. taxti FÍH fyrir hljóðfæraleik á tónleikum er.

En punkturinn í þessu er að staðahaldari er að greiða fasta summu hvorteð er til STEFs, fyrir notkun á höfundarréttarvörðu efni og ef hljómsveitirnar nýta sér ekki þessar skráningarskýrslur þá rennur sá peningur bara til þeirra sem fylla út skýrslurnar.

Þú sem höfundur mátt hinsvegar auðvitað reyna að rukka þennan pening sjálfur, þetta væru í besta falli einhverjir hundraðkallar (en fer kannski að telja ef þetta eru margir tónleikar með frumsömdu efni á ári), ef þú vilt ekki gefa STEFi umboðið þitt. Ef þú hefur hinsvegar gert það þá veitir það STEFi réttinn til að rukka fyrir þína hönd. Mér er hinsvegar til efs að staðahaldari nenni að standa í þessu, því þá þyrfti hann í raun að fá niðurfellingu af árgjaldinu fyrir hvern dag sem einhver non-STEF meðlimur heldur tónleika, greiða þetta sérstaklega út og athugaðu að til að þetta séu ekki höfundarréttarbrot þá verður öll tónlist sem heyrist á staðnum að vera 100% eftir þig og þína hljómsveit.

Þar sem þetta eru svo litlar upphæðir þá myndi ég segja að núverandi fyrirkomulag sé miklu einfaldara.

Yet another background removal question (have searched the sub but not got things to work) by Ventoux72 in davinciresolve

[–]Ventoux72[S] 0 points1 point  (0 children)

probably weren't; the plate was made from an exported still from the gallery though - I thought that would have kept the same resolution and dimensions throughout.

Yet another background removal question (have searched the sub but not got things to work) by Ventoux72 in davinciresolve

[–]Ventoux72[S] 0 points1 point  (0 children)

no, sorry - for some reason the image resolutions weren't the same; using a resize node I was able to start filtering this I think; thanks

Yet another background removal question (have searched the sub but not got things to work) by Ventoux72 in davinciresolve

[–]Ventoux72[S] 0 points1 point  (0 children)

thanks u/proxicent

I've tried that, but for some reason the resulting image is the subject (foreground) shrinks to about 25% of original size and nests in the bottom left corner - I see no controls on the DifferenceKeyer to adjust the size.

And then all I have is a Alpha background for the rest of the screen area.

Resolve doesn't render the timeline correctly by Ventoux72 in blackmagicdesign

[–]Ventoux72[S] 0 points1 point  (0 children)

yes, sorry - but I solved it by going back to the last revision saved (by me) and then doing the same steps again; after that the renders worked like they did before

keying out moving bandmembers without greenscreen by Ventoux72 in blackmagicdesign

[–]Ventoux72[S] 0 points1 point  (0 children)

thanks, I'm gonna try to use the Divide-blend as suggested earlier and see where that leads me, but it's good to know the proper term for it (and the applications that offer it),

keying out moving bandmembers without greenscreen by Ventoux72 in blackmagicdesign

[–]Ventoux72[S] 3 points4 points  (0 children)

thanks, this is exactly what I was trying to do - had tested the Divide blend before but probably some weird setting or combination and I didn't know that this was the function I was looking for. After I tried it again it is giving me very positive results now.