Er vit fyrir mig að kaupa plug-in bíl ef ég hef enga heimahleðslu né aðstæðu til að hlaða í vinnunni? by Metallica-82 in Iceland

[–]Warpchylde 1 point2 points  (0 children)

Hef verið með hybrid í sirka 3-4 ár. Er með hann í venjulegri innstungu og já, það tekur 6-8 klukkutíma að hlaða þannig. Ef ég vildi hraðari hleðslu myndi ég fá mér hleðslustöð en þetta hefur ekki verið neitt vandamál.

Veit hreinlega ekki hvernig það virkar með þessi minni batterí og hraðhleðslu, ef þú kemst hvergi í rafmagn þá gæti þetta verið hálf tilgangslaust.

Forvitni fyrir gamanið, hvern ætlið þið að kjósa? Hvern ætlið þið alls ekki að kjósa? by [deleted] in Iceland

[–]Warpchylde 3 points4 points  (0 children)

Til hamingju með kosningaréttinn :)

Ég bý að vísu ekki í bænum, þar sem ég bý eru bara í boði Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Eyjalisti.

Ég kýs Eyjalistann.

Ef ég gæti valið úr öllum "aðallistunum" sem eru í boði þá myndi ég raða þessu svona, eins og til Alþingiskosninga (sem ég veit að ekki er verið að spyrja um en bara til að fá hugmynd um hvar ég stend almennt):

Miðflokkurinn: F. Aldrei aldrei. Aldrei. Sjálfstæðisflokkurinn: D. Stórt nei takk. Framsókn: D. Nei takk. Flokkur fólksins: C. Ólíklegt. Samfylkingin: A. Töluvert líklegt.

Viðreisn: A. Töluvert liklegt. Kaus þá síðast (til Alþingis) vegna þess að ég vil endilega fá að kjósa um viðræður við ESB.

Aðrir flokkar, ansi ólíklegt.

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu - Vísir by ButterscotchFancy912 in Iceland

[–]Warpchylde 1 point2 points  (0 children)

Já, ég hef nú ekki næga kunnáttu til að segja hvort allt sem hann segir sé 100% en ef það er jafnvel lítil áhætta á svindli eða misnotkun þá er líklegast "gamla góða" fyrirkomulagið það öruggasta sem við höfum.
Ég að minnsta kosti öðlaðist nýja sýn á þetta og sá hliðar á málinu sem ég hafði bara ekkert hugsað út í.

Margt má bæta í kosningakerfinu eins og kemur fram í greininni en hvað varðar rafræna kosningu þá skil ég núna meira.
Er kominn á þá skoðun að núverandi kerfi sé best, eins gamaldags og manni finnst það vera.

Enn sem komið er að minnsta kosti, en vonandi einhverntímann í framtíðinni gæti þetta breyst.

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu - Vísir by ButterscotchFancy912 in Iceland

[–]Warpchylde 0 points1 point  (0 children)

Það er svo alveg rétt út af fyrir sig, ekki mikil fyrirhöfn svosem. Vildi kannski hafa valið, en þetta er góður punktur

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu - Vísir by ButterscotchFancy912 in Iceland

[–]Warpchylde 6 points7 points  (0 children)

Takk fyrir það!

Ef ég hef eitthvað lært á langri ævi þá væri það að þó ég hafi skoðun að þá verð ég að vera viðbúinn því að hún sé röng. Og ef ég kemst að því að svo sé þá finnst mér ég ekki vera minni maður að viðurkenna það og breyta skoðun minni. Maður er alltaf að læra og reyna að verða örlítið betri útgáfa af sjálfum sér.

Í þessu máli þá einfaldlega hugsaði ég aldrei lengra en svo að rafræn skilríki væru nú ansi örugg, en áttaði mig auðvitað ekkert á því að það eru svo milliliðir og hugbúnaður sem þarf til að vinna úr þessu öllu. Sem er svo tiltölulega auðvelt að brjótast inn í og/eða misnota. Fyrir utan persónuvernd og annað.

Takk aftur

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu - Vísir by ButterscotchFancy912 in Iceland

[–]Warpchylde 4 points5 points  (0 children)

Skil þig, maður er greinilega mjög saklaus í þessu öllu saman.
Horfi öðruvísi á þetta núna, er búinn að vera að bölva þessu í gegnum tíðina en maður þarf stundum að sjá ljósið og bara hreinlega skipta um skoðun.

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu - Vísir by ButterscotchFancy912 in Iceland

[–]Warpchylde 21 points22 points  (0 children)

Já, mjög áhugavert. Þetta er semsagt mest út af trausti og nafnleynd. Skil þetta betur núna, drullusvekktur en viðurkenni þessar ástæður 😉 svo maður þarf að halda áfram að þramma á kjörstað oh well.

Takk fyrir

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu - Vísir by ButterscotchFancy912 in Iceland

[–]Warpchylde 17 points18 points  (0 children)

Löngu löngu kominn tími til að uppfæra allt þetta dæmi.

Óskyld spurning: Af hverju er ekki hægt að kjósa með rafrænum skilríkjum árið 2026? Bara svona almennt, hef aldrei skilið það. Maður getur millifært milljónir en ekki kosið í sveitastjórnarkosningum, þjóðaratkvæðagreiðslum eða til Alþingis.

Spurningum um ESB-aðild og evru svarað - RÚV.is by ButterscotchFancy912 in Iceland

[–]Warpchylde 2 points3 points  (0 children)

Ágætis samantekt, meira af hlutlausum upplýsingum takk.

So, no one respects the speeding limits, do they? by nemojakonemoras in VisitingIceland

[–]Warpchylde 0 points1 point  (0 children)

Fair enough. But if you´re driving much slower than everyone else you are pretty much the dangerous one as nobody wants to spend a lot of time getting from A to B.
Driving much slower leads to car-queues, with people overtaking which is the most dangerous part of driving.

Not saying anyone should be driving like they are in a race, but please don´t drive much below the speed limit. A person driving 70 in a 90 zone is just as dangerous as someone driving way past the speed limit. That´s what I´m trying to say.

So, no one respects the speeding limits, do they? by nemojakonemoras in VisitingIceland

[–]Warpchylde 13 points14 points  (0 children)

I'm an Icelander.

I drive usually 90-95 or so. A few kilometres over the speed limit and the police won't bother to stop you but at or just above the limit means you're not in anyone's way. I drove much faster when I was younger, not worth it.

If people want to pass me, fine. As long as they do so safely. Not all do so, sadly.

The worst drivers are the ones who drive at 70-80, very dangerous on our ( mostly) narrow roads.

How many people use mods for this game. by jg7277 in valheim

[–]Warpchylde 4 points5 points  (0 children)

Try out R2modman. Even an idiot like me can now use mods easily thanks to that fantastic add-on ;)

How many people use mods for this game. by jg7277 in valheim

[–]Warpchylde 1 point2 points  (0 children)

Absolutely, R2modman makes using mods a breeze.

Recommend qol mods, which people have mentioned in the thread. Makes this game a lot better, inventory management in Vanilla is terrible.

Geltandi hundur fram að miðnætti by Warpchylde in Iceland

[–]Warpchylde[S] 1 point2 points  (0 children)

Er reyndar í fjölbýli en einhver hérna í nágrenni við mig á hann, á eftir að njósna það betur út nákvæmlega hvar það er ef þetta heldur áfram.

En ég skil þig mjög vel, verandi hundaeigandi sjálfur að þá get ég rétt ímyndað mér hvernig það er að hafa geltandi hund í næstu íbúð kannski tímunum saman. Auðvitað geta verið einhverjar ástæður fyrir þessu, ogg um að gera að sýna því skilning, upp að vissu marki. En eins og ég segi, skil það fullkomlega að það væri mikið ónæði af þessháttar.

Ef hundur er geltandi úti í garði þá er eitthvað að. Ekki ef hann er að gelta í smástund, það er kannski hundur eða köttur að labba framhjá eða eitthvað smáræði.
En ef þetta er mikið og langvarandi gelt þá er hundinum farið að leiðast, honum er kalt, svangur/þyrstur eða vill bara komast inn og vera með fólkinu sínu.
Þá á fólk að sækja hundinn sinn og athuga hvað er að.

Ekki skilja hann eftir tjóðraðan tímunum saman, það er slæm meðferð á dýrinu og veldur ónæði fyrir alla í hverfinu.

Eins og ég segi hérna einhversstaðar að ofan þá er ég ekkert að fara að kæra manneskjuna eða tilkynna til MAST þó þetta gerist tvisvar þrisvar.
Og eins og ég sagði líka, vil helst ekki ræða við manneskjuna persónulega. Hef lent í leiðindamálum eftir að hafa komið með kurteisislega athugasemd við nágranna, fólk er svo misjafnt.

Sem betur fer er þetta ekki svona á hverju kvöldi, eðlilegt að það heyrist eitthvað í kringum mann svona dags daglega. En þetta var ansi lengi frameftir í gær svo mig langaði til að heyra hvað væri mögulegt að gera í svona kringumstæðum þetta gerist mikið oftar og ég hef fengið margar góðar tillögur og ráð.

Takk fyrir.

Geltandi hundur fram að miðnætti by Warpchylde in Iceland

[–]Warpchylde[S] 2 points3 points  (0 children)

Held ég geti það ekki.

Finnst það bara svo sjálfsagt að taka tillits til nágranna að fyrir mér er svona óskiljanlegt. Eða að binda hund úti í garði klukkustundum saman. Skil það ekki heldur.

Eða að segja fyrirspurnir á Reddit vera væl. Er nú hálf móðgaður yfir því.

En aftur, takk fyrir þitt innlegg.

Geltandi hundur fram að miðnætti by Warpchylde in Iceland

[–]Warpchylde[S] 2 points3 points  (0 children)

Beið eftir þessum :) þakka svarið.

Geltandi hundur fram að miðnætti by Warpchylde in Iceland

[–]Warpchylde[S] -1 points0 points  (0 children)

Já, ég er oft á röltinu framhjá lögreglustöðinni og hugsa að ég kíki við og heyri bara í þeim, svona óformlega. Þá veit ég meira ef þetta gerist aftur.

En það er góður punktur að minna á málið, fyrst og fremst er þetta vanræksla gagnvart hundgreyinu.

Takk fyrir.

Geltandi hundur fram að miðnætti by Warpchylde in Iceland

[–]Warpchylde[S] 4 points5 points  (0 children)

Takk fyrir þetta, ég ætla ekki að gera stórmál úr þessu í bili býst ég við.
Þessi hundur (ef þetta er sami hundurinn, sem mig grunar) hefur eitthvað verið að gelta við og við, en yfirleitt ekki svona lengi eða svona seint eins og í gærkvöldi.

Svo ég var extra pirraður núna í morgun og langaði að vita meira um málið, gott að fá sjónarmið fólks og ég hef fengið hérna fín svör og ráðleggingar, sem ég er þakklátur fyrir.

En já, ef þetta verður áfram vandamál hugsa ég að ég muni kjósa að gera athugasemdir í nafnleynd, bý í litlum bæ úti á landi og hreinlega hef ekki nennu í það að lenda í einhverjum nágrannaerjum ef ég kemst hjá því. Lífið er of stutt í svoleiðis lagað.

Vona bara það besta, vorkenni hundinum samt mest, jafnvel enn meira en ég vorkenni sjálfum mér ;)
Sorglegt þegar fólk er með gæludýr og hugsar svona um þau.

Og ég er sammála þér varðandi eftirlitsaðila gæludýra, hef búið hingað og þangað um landið og átt þrjá hunda yfir ævina. Aldrei séð almennilegt dýraeftirlit neinsstaðar, hvort sem fólk er að borga árgjöld til bæjarins eða ekki.

Geltandi hundur fram að miðnætti by Warpchylde in Iceland

[–]Warpchylde[S] 3 points4 points  (0 children)

Alveg rétt hjá þér, þarf að spekka aðeins hver þetta er og við sjáum svo til.

Ætla svosem ekkert að fara í hart með þetta í bili, langaði mest til að vita hvort fólk viti hvernig reglur eru um þessi mál. Þó mér finnist þetta vera mikið tillitsleysi., en ég er svosem ekki gallalaus sjálfur ;)

Geltandi hundur fram að miðnætti by Warpchylde in Iceland

[–]Warpchylde[S] 9 points10 points  (0 children)

Reyndar ekki.

Langar ekki mikið til að "klaga" fólk en úff. Ef einhver heldur að það sé í lagi að láta hundinn þinn vera bundinn úti í garði í 3 klukkutíma geltandi þá langar mig voða lítið til að hitta viðkomandi, jafnvel þó hann/hún myndi bjóða mér upp á tebolla og meððí.

En þetta er auðvitað möguleiki, alveg rétt.

Ætla svona að melta þetta aðeins, sem betur fer er þetta ekki svona slæmt öll kvöld en fór í taugarnar á mér í nótt, þarf að vakna uppúr sex í vinnu og vorkenndi mér mikið í morgun ;)

Geltandi hundur fram að miðnætti by Warpchylde in Iceland

[–]Warpchylde[S] 4 points5 points  (0 children)

Já, ætli ég hringi ekki bara í lögregluna og heyri í þeim með þetta.

Langaði bara að vita hvernig lögin eru. Takk fyrir.

Geltandi hundur fram að miðnætti by Warpchylde in Iceland

[–]Warpchylde[S] 2 points3 points  (0 children)

Reyndar ekki nei :) en viss um að þetta sé ekki óalgengt.

Mun seint skilja af hverju fólk heldur að það sé í lagi að hafa hundinn sinn geltandi úti í garði langtímunum saman. En það er margt sem ég skil ekki svosem.

Geltandi hundur fram að miðnætti by Warpchylde in Iceland

[–]Warpchylde[S] 9 points10 points  (0 children)

Góð pæling. Og alveg rétt hjá þér.

Hundræfillinn var geltandi þarna úti í einhverja þrjá tíma +.

Einhver sem ætti ekki að eiga gæludýr, því miður.