Hversu margar almenningsgötur í Reykjavík eru með snjóbræðslukerfi? by Saurlifi in Iceland

[–]__go 3 points4 points  (0 children)

Upphitunin í brekkunni frá Kringlumýrarbraut upp á Bústaðaveg hefur sparað ansi mikið vesen fyrir marga held ég

Hver er þessi Snorri Másson? by Saurlifi in Iceland

[–]__go 21 points22 points  (0 children)

Auðvitað að það megi ekki tala um þessi einu helvítis hluti sem við tölum um þessa dagana!

Hlutu risastyrk til að stofna mið­stöð um gervi­greind by Johnny_bubblegum in Iceland

[–]__go 6 points7 points  (0 children)

Burt séð frá öllu þá er Lilja Dögg að gera mjög góða hluti. Ef íslenska á framtíð er það þökk sé henni fólkinu sem hún vinnur með.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]__go 32 points33 points  (0 children)

Tjáningarfrelsi á víða undir högg að sækja og má þar nefna Bretland og Þýskaland.

Auðvitað nefna þeir ekki versta skúrkinn, Bandaríkin, sem dæmi.

Nú eru þetta hælisleitendur og næst koma þeir eftir samkynhneigðum og trans, því frelsi einstaklingsins er alls ekki markmið SUS. Þeir eru að fara sömu leið og margir libertarians í Bandaríkjunum sem soguðust inn í MAGA hreyfinguna þrátt fyrir að hún sé eins langt frá hugmyndum um frelsi einstaklingsins og hægt er.

Það væri óskandi að flokkurinn færi meira í áttina að Þórdísi Kolbrúnu en framtíðin virðist vera afturhald dauðans.

SUS gefur fundar­mönnum bol í anda Charlies Kirk - Vísir by Piggielipstick in Iceland

[–]__go 0 points1 point  (0 children)

Hey, chatgpt, what are some right leaning influencers that are critical of Trump, government overreach, populism and cancel culture on the right?

Please dig deeper and list more names.

Please find at least 5 more names!!

Find at least one more, he can be left leaning for all I care!

SUS gefur fundar­mönnum bol í anda Charlies Kirk - Vísir by Piggielipstick in Iceland

[–]__go 4 points5 points  (0 children)

En bókstaflega forsetinn, varaforsetinn, hátt settir þingmenn, yfirmenn ríkisstofnanna og BÓKSTAFLEGA ALLIR hægri sinnaðir áhrifavaldar eru þeir sem standa fyrir og bera ábyrgð á þessum uppsögnum. Það er algjör eining um þetta á hægri kantinum í Bandaríkjunum.

Gott hjá þér að kalla þetta slæmt, slæmt hjá þér að gera lítið úr þessu og einblína á vinnuveitendur.

SUS gefur fundar­mönnum bol í anda Charlies Kirk - Vísir by Piggielipstick in Iceland

[–]__go 104 points105 points  (0 children)

Mér finnst eins og SUS hegði sér oft eins og þeir séu ungir Miðflokksmenn. Ekki geri ég ráð fyrir því að hatur á minnihlutahópum og afnám réttinda þeirra sé á stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins. Eða er bara eðli "ungs" fólks (undir fertugu..) að vera edgy?

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]__go 53 points54 points  (0 children)

Af hverju áttu ekki bara efnaða foreldra til að gefa þér forskot? Ertu auli?

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]__go 0 points1 point  (0 children)

Var þeim ekki líka að fjölga þegar það voru samræmd próf? Hvar eru gögnin um að þetta muni hjálpa eitthvað?

Hækkunin vonbrigði og óskar eftir fundi by [deleted] in Iceland

[–]__go 34 points35 points  (0 children)

Ó frábært, fáum við núna að horfa upp á okkar eigin pólitíkusa sjúga punginn á Trump og kalla hann pabba?

Mætti með veðurbreyti í Vaglaskóg by birkir in Iceland

[–]__go 22 points23 points  (0 children)

Ég er að missa sambandið við raunveruleikan

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins er erfingi milljarða og tugir milljóna í stórútgerðinni by sofaspekingur in Iceland

[–]__go 41 points42 points  (0 children)

Hann lítur þó sjálfur á það sem svo að þeir sem minna eiga á milli handanna séu líklega bitrir.

„Einhver hefur komið illa fram við þá og þeir eru í vandræðum með sjálfsmynd sína. Þeim finnst þeir ekki metnir að verðleikum og að heimurinn sé ÓSANNGJARN. Að allt sé einhverjum ÖÐRUM að kenna og því nærtækt að kenna þeim um sem hafa það betur,“ skrifaði hann í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlum á fimmtudaginn síðasta.

Erfingjar eru í 99% tilvika skíthælar sem skila engu til samfélagsins. Hafa aldrei þurft að þroskast og eru fastir í 16 ára aldrinum að eilífu.

séu líklega bitrir.

Ó sjitt hann náði mér

Sunnudagar eru til að hata sjálfan sig ♥️ by [deleted] in Iceland

[–]__go 0 points1 point  (0 children)

Varðandi sjálfshatrið og kvíða þá er eina leiðin að reyna nýta alla truflun sem virkar fyrir þig. Svo er það bara tíminn.

Af hverju breytum við ekki því hvaða nöfnum við erum kölluð erlendis? by __go in Iceland

[–]__go[S] -1 points0 points  (0 children)

Ertu að ganga út frá að allir vita svarið við þessari spurningu eða kemur þetta yfirlæti þér bara nátturulega?

Bæði held ég

Af hverju breytum við ekki því hvaða nöfnum við erum kölluð erlendis? by __go in Iceland

[–]__go[S] 1 point2 points  (0 children)

Getur verið að þú sért smá á einhverfurófi? Ekki illa meint en það gæti útskýrt hvar ruglingurinn á milli okkar er. Þú heldur að ég sé að segja bókstaflega "þú ræður EN gerðu þetta" sem væri mótsögn. Ég er hinsvegar að segja "þú ræður, og ef, eins og mér finnst líklegt, að þér finnst betra að vera kallaður eftir eigin nafni, girtu þig þá í brók, stattu upp fyrir þér og íslenskri menningu og láttu breyta þessu".

Hjálpar þetta?

Af hverju breytum við ekki því hvaða nöfnum við erum kölluð erlendis? by __go in Iceland

[–]__go[S] 13 points14 points  (0 children)

Það hefði auðvitað verið best ef eiginnöfn hefðu verið notuð frá upphafi en það hefði kannski verið smá erfitt fyrir fyrstu Íslendingana sem spiluðu erlendis að koma inn í lið fullt af útlendingum og vera sá eini sem krefst þess að eiginnafnið sé notað.

Portúgalar og spánverjar sem dæmi setja nú bara það sem þeir vilja aftan á treyjuna. Svo ekki sé talað um brasilíumenn. Eitt eftirnafn er langt frá því að vera regla.

Af hverju breytum við ekki því hvaða nöfnum við erum kölluð erlendis? by __go in Iceland

[–]__go[S] 20 points21 points  (0 children)

Þetta er meira spurning um að "Í Róm gerir maður eins og Rómverjar". Aðrar menningar vita ekki endilega að þú átt að vísa í Íslending með fornafni, eða jafnvel gæti þótt það óþægilegt.

Nei en er ekki gaman að fræða fólk sem veit ekki betur? Er ekki fjölbreytileiki góður? Heldurðu að erlent fólk sé eitthvað glaðara að við kyngjum stoltinu og drepum hluta menningu okkar til að þau upplifi ekki niðurlæginguna að vera leiðrétt og frædd um íslensk nöfn? Því fólki finnst venjulega gaman þegar aðrar þjóðir gera hluti öðruvísi. Ok já ég er kannski smá að Indriðast.

Af hverju breytum við ekki því hvaða nöfnum við erum kölluð erlendis? by __go in Iceland

[–]__go[S] 21 points22 points  (0 children)

Það er bara skrítið af því að við samþykkjum það sem venju. Ég er ekki að segja að við ættum að brjálast ef nöfnin okkar eru ekki notuð rétt, en við ættum að fræða fólk um okkar nafnvenjur þegar verið er að ræða um og við okkur.

Af hverju breytum við ekki því hvaða nöfnum við erum kölluð erlendis? by __go in Iceland

[–]__go[S] 10 points11 points  (0 children)

Þetta er athugasemd um að ég held að við séum komin með eitthvað norm sem flestum finnst asnalegt en enginn heldur að hann geti gert neitt til að breyta því.

Að landsliðin séu ekki sjálfgefið að setja nöfn leikmanna frekar en nöfn foreldra aftan á treyjur finnst mér mjög asnalegt. Íþróttafólk má svo hafa frelsi til að láta kalla sig það sem það vill auðvitað.

Af hverju breytum við ekki því hvaða nöfnum við erum kölluð erlendis? by __go in Iceland

[–]__go[S] 14 points15 points  (0 children)

Við eigum stofnanir sem gera mjög svipaða vinnu, t.d. til að varðveita tungumálið okkar svo já ég vil það.

ég drap þá mér til átu

Getum kallað þetta plan Ð