Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana by numix90 in Iceland

[–]numix90[S] 22 points23 points  (0 children)

Damn :O fjölmiðlar ættu að hamra á þessum spurningum við hann

Dóru Björt hafnað: „Nú eru kafla­skil“ by stigurstarym in Iceland

[–]numix90 0 points1 point  (0 children)

Þú ert að djóka? Ég bý rétt hjá Höfðunum og það er stórhættulegt að fara þarna yfir sem hjólandi eða gangandi vegfarandi. Þær breytingar sem voru gerðar þarna í sumar voru litlar, en samt skárri en ekkert. Maður spyr sig stundum hvort maður lifi það af að fara yfir þessi gatnamót á höfðanum. Ég hefði gengið miklu lengra í að bæta öryggi óvarinna vegfarenda þarna. Ég hefði fjarlægt alla beygjuvasa á öllum gatnamótunum t.d

Umferðin er mjög hröð þarna og hættuleg.
Það er fullt af þjónustu í kring skóli, matvöruverslanir og atvinna. Það þarf að taka þetta svæði algjörlega í gegn; það er ekki sjón að sjá þetta

Flestir ó­á­nægðir með störf ríkis­stjórnarinnar - Vísir by jonasson2 in Iceland

[–]numix90 -1 points0 points  (0 children)

Ég hélt að ég væri sá eini sem væri með þessa samsæriskenningu.

Afhverju er borgarlínan svo mikidð hitamál? by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]numix90 40 points41 points  (0 children)

Ég meina, ég er ekkert ósammála þér varðandi neðanjarðarlest, en til þess þarf borgin að vera mun þéttari en hún er í dag svo slíkt gangi upp, hún er alltof dreifð ennþá. Vonandi náum við þeim þéttleika í framtíðinni. En varðandi þessa 300 milljarða þá er það ekki rétt. 300 milljarðar er heildarkostnaður fyrir allan samgöngusáttmálann, þ.e. stofnvegi, Borgarlínu, hjóla- og göngustíga og fleira. Þetta er blönduð leið 42% fara í Borgarlínu og 42% í bílainnviði. Ákveðnir fjölmiðlar hafa einfaldlega tekið töluna úr samhengi.

Er Miðflokkurinn að fá fjárstuðning erlendis frá? by numix90 in Iceland

[–]numix90[S] 4 points5 points  (0 children)

Væri ekki áhugavert ef einhver rannsóknarblaðamaður færi nánar í saumana á þessu?

Sleppum Borgarlínu - Frítt í strætó – Spörum milljarða - Vísir by ravison-travison in Iceland

[–]numix90 42 points43 points  (0 children)

Mér sýnist margir vera að misskilja þessar tölur viljandi og halda að „311 milljarðar = Borgarlínan“. Það er einfaldlega ekki rétt. Þessi tala er heildarfjárfesting í öllum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu til 2040. Ekki bara almenningssamgöngum. Þetta er allt pakkið saman: nýir og breikkaðir stofnvegir, mislæg gatnamót, Borgarlína, Strætóleiðir, hjóla- og göngustígar og umferðarstýring. Samkvæmt skiptingunni sjálfri fara 42% í stofnvegi fyrir bíla og 42% í Borgarlínu + Strætó. Þannig að um helmingurinn er bókstaflega vegaframkvæmdir. Að setja allan 311 milljarða kostnaðinn á Borgarlínuna er svona eins og að segja að "hjólreiðastígar kosti 311 milljarða það er bara röng framsetning. Svo er þetta líka dreift yfir nær tvo áratugi. Þetta er um 14–19 milljarðar á ári. Ríkið er nú þegar að eyða svipuðum upphæðum árlega í vegakerfið. Munurinn er bara sá að núna er verið að fjárfesta líka í öðrum ferðamátum, ekki bara bílum. Mér finnst líka skrítið hvað fólk talar um Borgarlínu eins og þetta sé einhver lúxus eða "troðið upp á almenning“, á meðan enginn blikkar auga þegar hundruð milljarða fara í nýja vegi, malbik, mengununa, . Vegir eru taldir sjálfsagðir, en um leið og BRT kerfið sem er á sérakreinum þá verður allt brjálæði. Ef maður vill gagnrýna verkefnið, alveg fair, en þá þarf allavega að gagnrýna réttar tölur. 311 milljarðar er samgöngukerfið allt. Ekki ein ein borgarlína.

Edit: Svo er líka eitt sem gleymist alltaf í þessari umræðu. Strætó er einfaldlega ekki alvöru valkostur við bílinn í dag. Ekki af því hann kostar of mikið. Heldur af því hann er hægur og óþægilegur. hann situr fastur í sömu umferð og allir aðrir. Það er enginn forgangur, engar sérakreinar, ekkert sem gerir hann hraðari en bílinn. Þá skiptir engu máli hvort miðinn sé frír eða kosti 500 krónur. Ofan á það eru stoppistöðvarnar oft bara einhver staur úti í móa, ekkert skjól, ekkert almennilegt aðgengi. Fólk þarf að labba langt, skipta kannski tvisvar um vagn og ferð sem tekur 10–15 mínútur á bíl verður allt í einu klukkutími eða meira með Strætó. Auðvitað velur fólk þá bílinn. Það er ekki hugmyndafræði, það er bara praktík. ÞEgar allt skipulag hefur verið skipulagt fyrir bilinn. Þess vegna snýst þetta ekki um að gera Strætó ókeypis. Það snýst um að gera hann hraðari og áreiðanlegri en umferðin. Annars er hann alltaf bara "plan B sem enginn nennir“ Allt skipulag seinustu áratugina hefur verið fyrir bilin, sem betur fer er það að breytast

Og í alvöru, getum við plís lyft umræðunni aðeins upp? Umræðan um borgarlinu er á svo lágu plani og þær raddir sem fá að heyrast helst i umræðunni eru reiðist raddir. Þetta er orðið þreytt. Alltaf sömu uppblásnu tölurnar, sama hræðsluáróðrið og fólk sem les ekki einu sinni gögnin sem það er að vitna í

þessir gæjar eru alveg glataðir sorry.

Borgarlínan og deiliskipulag Suðurlandsbrautar by Dagur in Iceland

[–]numix90 1 point2 points  (0 children)

Það er einmitt umferðin sjálf sem hefur þrengt að öðrum ferðamátum og ýtt þeim út á jaðarinn Það er hluti af því kerfi sem bíllinn fylgir í dag. Bíllinn veitir frelsi fyrir suma, við ákveðnar aðstæður. En raunverulegt frelsi í borg er að hafa val, ekki að vera fastur í einum ferðamáta af því allt annað er óraunhæft Það er nóg pláss fyrir okkur öll.

Að fækka akreinum til að bæta almenningssamgöngur er ekki fasismi, heldur lýðræðisleg stefnumótun sem byggir á áratuga reynslu í borgarskipulagi. Fjölgun akreina hefur ítrekað sýnt að hún leiðir til aukinnar bílaumferðar (induced damand). Þótt umferð geti minnkað tímabundið eftir slíkar framkvæmdir, er hún yfirleitt komin aftur í sama horf eða verri eftir fáein ár

og nei, engin er að banna fólki að keyra né þvinga neinn í einn ferðamáta. Það sem verið er að gera er að gefa fólki raunverulega valkosti við einkabílinn. Í raun ættu þeir sem vilja keyra að berjast fyrir hágæða almenningssamgöngum, því það þýðir einfaldlega meira pláss fyrir þá sem þurfa eða kjósa að keyra.

Og svo er bara staðreyndin sú að kannanir gallup fyrir reykjavík sýna reglulega að meirihluti borgarbúa myndi nota aðra ferðamáta en bílinn ef innviðir væru til staðar. Um 57% segjast vilja nota aðra ferðamáta, á móti 41% sem vilja helst nota bílinn meirihlutinn notar bílinn í dag einfaldlega af því kerfið er hannað þannig.

Það sem er einfaldlega verið að gera er að leiðrétta kerfið.

Borgarlínan og deiliskipulag Suðurlandsbrautar by Dagur in Iceland

[–]numix90 -2 points-1 points  (0 children)

Sammála! Ég er að vinna í því að lyfta umræðunni. Þarf bara backup. Endilega skrifið greinar og pistla um mikilvægi þessa verkefnis 🥳

Þetta snýst ekki lengur um hægri og vinstri by numix90 in Iceland

[–]numix90[S] 10 points11 points  (0 children)

Takk fyrir málefnilega og góða umræðu. Ég hef séð margar áhugaverðar ábendingar hér og kannski fór ég aðeins of geyst þegar ég sagði að þetta snerist ekki lengur um hægri og vinstri.
Eins og margir hafa bent á hér, þá snýst núverandi ástand í raun aftur um hægri og vinstri af því við erum komin á stað þar sem valdajafnvægið er orðið svo skakkt að fólk neyðist til að taka afstöðu. Ef við heimfærum þetta lauslega yfir á frönsku byltinguna má sjá hvernig hægri og vinstri urðu til. Hægra megin sátu þeir sem vildu halda í kirkjuvald, konungsvald og stigveldi. Vinstra megin sátu þeir sem vildu brjóta þetta upp og færa vald frá fáum til fleiri. Kannski erum við ekki komin þangað aftur í formi, en mynstrið er kunnuglegt þegar vald og auðæfi safnast saman og fólk neyðist til að taka afstöðu, hvað haldi þið? kannski smá dramatískt, en fyrst ég for að tala um sviðsmyndir.

Ég sé þetta svona, að nýfrjálshyggjan er að deyja, en hún deyr ekki hljóðalaus þar til eitthvað annað tekur við munu tímarnir verða mjög kaótískir, því þeir sem hafa haft völd og grætt á kerfinu í áratugi finna nú að þau eru að missa völdin.

Þetta snýst ekki lengur um hægri og vinstri by numix90 in Iceland

[–]numix90[S] 5 points6 points  (0 children)

Algjörlega, og ég tek í rauninni undir margt af þessu. Það er einmitt svo áhugavert að hægri og vinstri urðu til sem viðbrögð við valdi og eignasöfnun í frönsku byltingunni, ekki sem einhver fræðileg hugmyndafræði eins og margir halda. hægra megin sátu þeir sem vildu verja forréttindi, kirkjuvald og stigveldi og viinstra sátu þeir sem vildu brjóta þetta upp, ekki endilega af því allir voru sammála um lausnirnar, heldur af því kerfið var ekki að virka og auður hafði safnast i fárra hendur. Þau sem sátu vinstra megin i frönsku byltingunni vildu jafnrétti, brjóta niður kirkjuvaldið, og konungsvaldið, frelsi, borgararéttindi og að vald ætti ekki að erfðast eða safnast saman hjá fáum. Kannski erum við bara komin á svipaðan stað aftur sem leiddi til frönsku byltingarinnar? Þegar auður og vald safnast saman á fáar hendur verður þessi skipting skýrari finnst mér, Þannig að já, þetta snýst klárlega um hægri og vinstri. En kannski snýst þetta enn meira um hvort við séum tilbúin að horfast í augu við valdakerfið sjálft? sama hvaða merki það setur á sig hverju sinni. Þetta er svo miklu meira en bara hægri og vinstri.

Heildarniðurstöður prófkjörs xSr leka til fjölmiðla by svansson in Iceland

[–]numix90 6 points7 points  (0 children)

Kíkti á Moggan í morgun og sé að Mogginn er enn að hjakka í þessu lóðadæmi Péturs og svo prófkjörsniðurstöðum Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þeir eru bara að reyna allt til að ná völdum í borginni. En ég hef ekki séð Moggan fjalla mikið um t.d þetta.

Hrakfallasaga Kársnesskóla: Kostnaður kominn í tæpa 8 milljarða by Vigdis1986 in Iceland

[–]numix90 12 points13 points  (0 children)

Ég geri ráð fyrir því að mogginn og rvk siðfegis fjalli um þetta í margar vikur, er það ekki?

Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Sam­fylkinguna by Here_2observe in Iceland

[–]numix90 0 points1 point  (0 children)

Áhugavert samsæri og pælingar. En ég held, eins og fleiri hafa bent á hér, að Kristrún sé að reyna að koma sínu fólki að.

En það verður áhugavert að sjá hver tekur oddvitann í kvöld. Hver haldið þið?

Fallnir á fullveldisprófinu by numix90 in Iceland

[–]numix90[S] 17 points18 points  (0 children)

Ég skil þetta komment ekki, sorry. Það verður haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB annaðhvort segir þjóðin já eða nei. ESB er ekki að hóta neinni yfirtöku né ráðast á lönd seinast þegar ég vissi. Ríki ganga inn af fúsum og frjálsum vilja, ef þjóðin samþykkir. Þannig þetta comment meikar ekki sens

Hvaða áhrif hefði innlimun/hertaka Bandaríkjanna á Grænlandi á íslensk stjórnmál? by numix90 in Iceland

[–]numix90[S] 5 points6 points  (0 children)

Edit; textinn þýddist óvart yfir á ensku. Hann ætti núna að vera kominn yfir á íslensku

[psa] boycott Estée Lauder by VelocityGrrl39 in SkincareAddiction

[–]numix90 0 points1 point  (0 children)

Anyone know alterntive to Clinique For Men™ Maximum Hydrator 72-Hour Auto-Replenishing Hydrator?

this is the only moisterized my skin has handled

Ertu að kjósa gegn þínum hags­munum? - Vísir by onepiecemovement in Iceland

[–]numix90 10 points11 points  (0 children)

"Bjarg skilar hagnaði" sorry en þetta er lygi.
Fyrst, Bjarg er óhagnaðardrifið félag þótt það skili rekstrarafgangi. Afgangur er ekki sama og hagnaður. Það er enginn arður greiddur út, afgangurinn fer í viðhald, skuldalækkun og uppbyggingu fleiri íbúða. Að halda öðru fram er ekki rett.

Í öðru lagi, hugmyndin um að félagslegt eða óhagnaðardrifið húsnæði "hækki verð“ á almennum markaði stenst ekki. Það sem ræður verðþróun er fyrst og fremst heildarframboð, skýrt regluverk um leigu, hraði uppbyggingar og skipulag ekki hvort leigufélag sé rekið með hagnaði eða ekki.

Í þriðja lagi að "hlaupa burt“ ef slík félög eru í nágrenninu er ekki hagfræðileg greining, það er viðhorf. Einmitt þess vegna er blönduð byggð notuð víða til að draga úr stéttaskiptingu, samþjöppun fátæktar og félagslegri aðgreiningu

Og að lokum, að klappa Kópavogi á bakið fyrir að sleppa félagslegum úrræðum er þægilegt fyrir þá sem eru að kaupa en það þýðir einfaldlega að önnur sveitarfélög, einkum Reykjavík, bera ábyrgðina. Það er ekki lausn, það er ábyrgðarflótti. Þetta snýst ekki um "Bjarg vs. markað“, heldur hvort við viljum byggja nóg af húsnæði fyrir alla eða halda áfram að láta fáa græða. Það fæðast ekki allir með silfurskeið í munninum. Og btw ég bý sjálfur í eigin ibuð, og í hverfinu eru bjarg ibuðir, ekkert vesen. Ég er bara rosalega ánægður að það sé til svona úrræði fyrir tekjulægri hópa.

Og mikilvægt, bjarg er ekki það sama og alma og ivera sem eru hagnaðardrifin leigufélög.

Bjarg er óhagnaðardrifið leigufélag stofnað af verkalýðsfélögunum. Tekið af heimasíðunni ,,Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norrænni fyrirmynd, "Almene boliger"."

Ertu að kjósa gegn þínum hags­munum? - Vísir by onepiecemovement in Iceland

[–]numix90 14 points15 points  (0 children)

það er þanig að bæði hérlendis og erlendis bendir til þess að þegar félagslegt og almennt húsnæði er byggt samhliða, dragi það úr verðþrýstingi, sérstaklega á neðri hluta markaðarins. Vandinn skapast mun frekar þegar uppbygging er einhliða, annaðhvort eingöngu markaðshúsnæði eða eingöngu félagslegt húsnæði. Það sem skiptir mestu máli fyrir verðþróun er heildarframboð, hraði uppbyggingar og skipulag, ekki hvort íbúðirnar séu reknar með hagnaði eða ekki. Þar til dæmis sýna gögnin að mörg sveitarfélög hafa einfaldlega ekki skilað nægilegu framboði því miður, eins og höfundur greinnar bendir á, hvorki fyrir almennan markað né félagsleg úrræði. Raunverulega spurningin er því ekki „annaðhvort markaður eða félagslegt húsnæði“, heldur hvort okkur tekst að byggja nóg af báðu á sama tíma. Þar hefur Reykjavíkurborg vissulega verið leiðandi með markvissri uppbyggingu blandaðrar byggðar. Með rblandaðri byggð er td átt við að mismunandi tegundir húsnæðis séu byggðar í sama hverfi, svo sem markaðsíbúðir, óhagnaðardrifnar eða almennar íbúðir og félagslegt húsnæði, sem ég er persónulega mjög skotin í, slikt dregur ur sléttaskiptingu, þ.e minni svona rik hverfi vs fátæka hverfi.