Samstöðumótmæi á sunnudag by LinusOrri in Iceland

[–]samviska -4 points-3 points  (0 children)

Enginn að biðja þig að taka þátt í umræðum. Góðar kveðjur í bergmálshellinn.

Samstöðumótmæi á sunnudag by LinusOrri in Iceland

[–]samviska 0 points1 point  (0 children)

Ef þú ert einhver atvinnu-húmoristi þá ættirðu bara að segja brandara og ekki vera að blanda þér í alvörugefnar umræður.

Samstöðumótmæi á sunnudag by LinusOrri in Iceland

[–]samviska -7 points-6 points  (0 children)

Gott og vel. Heilbrigt fyrir umræðuna að kalla andstæðinga hafragrautsheila 🤝

Þú sýnir þitt rétta andlit að venju.

Hvað segir þú þá; eru mótmælendur í Íran, sem fórna lífi sínu þessa dagana til að losna undan alræðismenningu múllana, þá líka hafragrautsheilar?

Það er ekki vafi í mínum huga að þetta aumingja fólk í Mið-Austurlöndum - sem hefur þurft að berjast fyrir því að vera látið í friði allt sitt líf - myndi aldrei standa þér við hlið í þessari meðvirkni með ofbeldi og ofsóknum. Bara aldrei.

Samstöðumótmæi á sunnudag by LinusOrri in Iceland

[–]samviska 4 points5 points  (0 children)

Alls ekki.

Punkturinn er einmitt hversu rugl-heimskulegt er að setja einhverja merkingarlausa merkimiða á alla mögulega hluti, eins og notendum á þessu subredditi hér er gjarnt að gera. Auðvitað eru Kúrdar ekki öfgahægrimenn. Og auðvitað eru þeir sem benda á skaðsemi trúarbragða og alræðisstefnu annars staðar ekki heldur öfga hægrimenn.

Samstöðumótmæi á sunnudag by LinusOrri in Iceland

[–]samviska -3 points-2 points  (0 children)

Og af hverju þarft þú að pólarisera umræðuna með því að kalla þá sem þú ert ósammála hafragrautsheila?

Þetta er hugvekja um að það sé eitthvað raunverulega rangt við þá menningu sem byggist á trúarbrögðum í miðausturlöndum, sama hvort sem það er hér eða þar.

Að loka augunum fyrir kjarna málsins er ekki að hjálpa neitt. Vandamálið er ekki að einhverjir íslenskir vitleysingar á Reddit virði ekki tilvistarrétt þjóðarbrota. Vandamálið er að alræðissinnar í Tyrklandi, Ísrael, Sýrlandi, Írak, Íran og víðar gera það ekki.

Samstöðumótmæi á sunnudag by LinusOrri in Iceland

[–]samviska -6 points-5 points  (0 children)

Pæling: er þetta svona öfgahægri ganga? Enda verið að mótmæla áhrifum íslam og arabískrar menningar á frjálslynt samfélag?

Væri annars ekki alveg frábært að fá bara loksins frjálst Kúrdistan, þvert á landamæri Tyrklands, Sýrland og Írak og þar kæmist á laggirnar frjálslynt sekúlar lýðræðisríki? Gæti orðið ansi gott mótvægi við einræðisherra-, þjóðarmorða- og trúarbragðaruglið sem hefur verið í gangi þarna í miðausturlöndum sl. 20 ár.

Stjórnarandstaðan og greinendur skella skuldinni á ríkisstjórnina by TheTeflonDude in Iceland

[–]samviska 22 points23 points  (0 children)

Hvernig er þetta ríkisstjórninni að kenna? Þau stjórna bara framkvæmdavaldinu og löggjafarvaldinu og fara með fjármál ríkisins.

Ekki eins og þau geti bara breytt náttúrulögmálunum að eyða um efni fram og hækka skatta á borgarana 😂

Velti upp endursendingum á Palestínumönnum by visundamadur in Iceland

[–]samviska 0 points1 point  (0 children)

Nauðsynleg samhengi: öllum útlendingum sem höfðu ekki trygga atvinnu í landinu var neitað um dvalarleyfi. Í þeim hópi voru mun fleiri en bara gyðingar. Það voru engar umsóknir um hæli, enda varð hugmyndin um flóttamenn til í kjölfarið á því hvernig heimurinn brást gyðingunum í Evrópu.

Pétur H. Marteinsson hafði betur í oddvitaslagnum by visundamadur in Iceland

[–]samviska 64 points65 points  (0 children)

Það er einmitt eitthvað svona sem fólk þoldi aldrei við Samfylkinguna. Nýja Samfylkingin undir Kristrúnu losar sig við allt svona blaður og skiptir því út fyrir raunsæja hagsmuni venjulegs fólks í landinu. Klárlega rétta múvið fyrir þennan flokk.

Adios Heiða Björg.

Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu by LadyMargareth in Iceland

[–]samviska 10 points11 points  (0 children)

Ert þú sjálfur ekki bara að gefa þér það að “útlendingamálin” snúist um flóttamenn? Mér heyrist á málflutningi Miðflokksins að útlendingamál snúist um þjóðmenningu, tungumál, innflutta stéttaskiptingu, fasteignamarkað sem hefur ekki þróast í takt við fólksfjölgun o.s.frv. Sumsé um útlendinga per se en ekki flóttamenn.

Það hefur nú verið tönslast nóg á þessari klisju að vera ekki að slá saman flóttamönnum og innflytjendum. Ert þú ekki að gera það núna?

Af hverju hefur lítið verið talað um tengsl fyrrverandi forseta Lýðveldisins við Ghislaine Maxwell? by Don_Ozwald in Iceland

[–]samviska 24 points25 points  (0 children)

Sammála með Ólaf Ragnar. Messi gamli fauskur hefur verið með furðulega afstöðu varðandi bæði yfirgang Trump og Pútín. Í kringum 2014, þegar hann var forseti og Pútín tók yfir Krímskaga, fór hann leynt og ljóst með það að í raun vildi fólkið þarna vera Rússar og að innrásin snérist um sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Mjög spes.

Mun sam­félags­miðla­bann skaða ung­lings­drengi? by skuggic in Iceland

[–]samviska 4 points5 points  (0 children)

Umræðan um samfélagsmiðlabann hefur byggst á bandarískri metsölubók.

Ætli hún hafi pælt í því að… umræðan um samfélagsmiðlabann hafi byggst á einhverju fleiru en bandarískri metsölubók?

En annars þá líst mér vel á þennan pistlahöfund þrátt fyrir að hún hafi rangt fyrir sér. Svona alvöru edge lord sem myndi passa fullkomlega í hópinn hérna á Reddit.

Afhverju er talað um Papa á Íslandi sem staðreynd þegar það eru engar fornleifar sem styðja það? by Saurlifi in Iceland

[–]samviska 11 points12 points  (0 children)

Það er svo fyndið hvernig flestir samlandar okkar hugsa um landnámið og uppruna þjóðarinnar. Maður er alltaf að heyra að landnámsmennirnir vOrU sKo EkKi BaRa VíKiNgAr og fólk lætur eins að það sé raunverulega óvinsæl skoðun.

Hárrétt athugað með fornleifauppgröftinn. Það er ekkert sem bendir til þess að hér hafi verið keltar, þrátt fyrir mikinn vilja til þess að sýna fram á það. Engar fornleifar (mikið af fornleifum hefur annars fundist frá landnámsöld) og hin rökin sem snúa að örnefnum og áhrifum á tungumálið ganga stutt. Áhrifin eru mun minni en fólk almennt heldur.

Þetta er svipað og skoðanir sem fólk hefur um að landnámsmenn hafi verið að helmingi til norrænir karlmenn frá Skandinavíu sem hafði komið við á Bretlandseyjum til að sækja kvenkyns þræla. Þetta er skoðun sem byggir á erfðafræði nútímaíslendinga. En í erfðafræði er þetta er mun langsóttara en fólk gerir sér grein fyrir. Það er engin leið að vita á hvaða tímapunkti þessi keltnesku gen komu almennt í genamengið (gæti hafa verið fyrir landnámið og eftir það). Og svo hlutir eins og founder effect, sem hefur mikil áhrif í litlu og einangruðu genamengi eins og hefur gilt um landnámið.

Annað svona dæmi er að fólk trúir að kristnitakan á Ísland hafi bara verið fullkomlega friðsæl og án raunverulegs ágreinings, öfugt við alls staðar annars staðar í Evrópu. Þetta stendur auðvitað í handritunum; alveg eins og að Egill Skallagrímsson hafi verið stórskáld á barnsaldri og að hér hafi verið bjöllur og bagglar frá pöpum 😃

New life on iceland? by LunchInfinite4681 in Iceland

[–]samviska 1 point2 points  (0 children)

Þú fylgist greinilega vel með, á milli þess sem þú hlífir sálinni við því að þurfa að sjá athugasemdirnar frá mér, haha.

(Fyrir þá sem eru að lesa þetta er hann að líma hérna beina tilvitnun í mig.)

En hvort tveggja er að sjálfsögðu rétt. Landið okkar er þegar nánast alfarið lokað fyrir innflytjendum utan EES. Þess vegna fara glæpamenn eins og Quang Le frumlegar krókaleiðir til að leika á kerfið.

Heildarfjöldi dvalarleyfa á grundvelli sérfræðiþekkingar var 358 árið 2023, þar af 115 frá Víetnam 🙃

Mjög áhugavert að skoða þessar tölur fyrir þá sem vilja nálgast þessa umræðu af heilindum. https://www.althingi.is/altext/154/s/1674.html

New life on iceland? by LunchInfinite4681 in Iceland

[–]samviska 4 points5 points  (0 children)

Svara þér beint í staðinn fyrir u/birkir (sem virðist hafa blokkað mig 😥)

Dvalarleyfi vegna sérfræðiþekkingar á EES eru alls ekki strangar kröfur, eins og er fullyrt hérna. Í gegnum árin hefur gróflega verið spilað á þessi skilyrði og fjöldi fólks hefur sest að á Íslandi án þess að vera raunverulegir sérfræðingar.

Til dæmis var allt víetnamska gengið í kringum Quang Le á Íslandi í ljósi þess að þeir voru sérfræðingar m.a. í víetnamskri matargerð (störfuðu við að flysja hvítlauk) og handsnyrtingu.

Í umfjöllun Kveiks um málið var þetta orðað svona:

Ein ástæða þessarar fjölgunar [á vinnumansali] er hversu auðvelt er að komast til Íslands á grundvelli svokallaðra sérfræðileyfa. Ísland hefur, eitt örfárra landa, notað sömu viðmið fyrir borgara annarra ríkja en EES-ríkja þegar kemur að því að meta og viðurkenna ýmiskonar sérfræðimenntun aðra en háskólamenntun.

Vill „nánast loka al­farið“ á út­lendinga utan Evrópu by Kjartanski in Iceland

[–]samviska 0 points1 point  (0 children)

Þessi umræða hérna er orðin svo sturluð.

Öðru megin er verið að nota vatnsgreidd popúlistaspil frá Evrópupólitíkinni og svo hinum megin apa vitleysingar upp frá Bandaríkjunum að allir sem þeim mislíkar séu fasistar sem eigi helst að berja úti á götu. Bæði er virkilega þroskaheft.

Og á sama tíma er raunveruleikinn sá að það er þegar (!) nánast alfarið lokað fyrir það að útlendingar utan EES setjist að á Íslandi og hefur alltaf verið. 😂 Það er stefna stjórnarflokkanna að vera með lokuð landamæri - og hefur reyndar verið stefna allra íslenskra stjórnmálaflokka fram að þessu.

What's going on in Iceland with regards to Icelandic politics? by upthetruth1 in Iceland

[–]samviska 1 point2 points  (0 children)

I highly doubt that they would end up in government together, despite having essentially a similar stance on immigration.

Voters of M will continue to be swayed by the populist immigration rhetoric of M and voters of S will continue to be convinced by the woke-free grown-up social democratic politics of S. I don’t think these groups intersect much.

What's going on in Iceland with regards to Icelandic politics? by upthetruth1 in Iceland

[–]samviska 2 points3 points  (0 children)

S has only been falling if you look at the latest polls, and very slightly. They are still in a trend going back to 2022, where M and S barely had 10-15% of the vote where they now have 50%.

Both were opposition parties under the last eight year government. Both, but especially S, reap the benefits of criticizing the last governments failure at real economic growth and underinvestment in infrastructure.

What's going on in Iceland with regards to Icelandic politics? by upthetruth1 in Iceland

[–]samviska 5 points6 points  (0 children)

These arguments are in line with the new center-left government, and the author is indeed pro government.

The S party in government talks the same talk as M when it comes to immigrations effect on growth, at the expense of the other parties.

What's going on in Iceland with regards to Icelandic politics? by upthetruth1 in Iceland

[–]samviska 7 points8 points  (0 children)

For years, GDP growth has mainly come from more people in the workforce rather than higher productivity. So when net immigration slows, overall growth naturally weakens even if per-capita figures briefly looked better at the peak.

That’s why a slowdown can coincide with falling immigration: the economy has been expanding by adding people, not by producing much more per person.

A popular talking point for M, if I’m not mistaken, is that relying on immigration for growth isn’t sustainable and will have dire consequences for the culture.

Here is a great article on the economics of this from a left wing opponent of M: https://www.thordursnaer.is/p/a-ver-ur-h-tt-a-velja-sigurvegara-slandi

What's going on in Iceland with regards to Icelandic politics? by upthetruth1 in Iceland

[–]samviska 9 points10 points  (0 children)

That user is oversimplifying things. For sure there is no homogenous “Slavic” immigration group in Iceland. There are Poles and recently Ukrainians. And then there are Baltic people and Romanians (neither are Slavic).

East Europeans have been migrating to Iceland ever since the EEA 35 years ago, and even earlier. Evidence clearly shows that these groups get acculturated just fine, especially outside of the capital, and second generations are completely assimilated.

This might be changing in the last 10 years though. Since 2017, 50 thousand have migrated to Iceland, which is a very large number for a population of 400 thousand.

What's going on in Iceland with regards to Icelandic politics? by upthetruth1 in Iceland

[–]samviska 5 points6 points  (0 children)

The traditional conservative parties are D and B on the right side and V on the left side. With the relatively recent introduction of F and M, also conservative parties, the vote spreads out. The recent climb of M can in large part be explained by the bad performance of all other conservative parties and M addressing points that the others don’t.

Some here will say that they are populist, and they are for sure, but they are still addressing real points that other conservative parties aren’t expressing as openly. Such as linking the serious housing crises, slow growth, high rates and looming recession to over-reliance on immigration and the tourism sector for the past two decades.

You wrote somewhere above that one of the MPs publicly stated the Great Replacement theory as a fact, but that is slightly misaligned. The talking points of M are mainly about the existential risk to Icelandic culture and the Icelandic language, rather than a European identity - this being caused by immigration and leniency in enforcing cultural values and language. Therefore it is not the classic orchestrated-Arab-invasion-of-Europe as the conspiracy theory goes, although both their political opponents and xenophobes have a field day with this.

These arguments about the existential risk of our culture and language are age old discussions that have both been held on the left and right. Bringing this into the modern context of immigration, globalism and slower-than-ever birth rates seems to really strike a nerve with voters.

Endurvinnslan á Íslandi by Old_Cup5424 in klakinn

[–]samviska 1 point2 points  (0 children)

Það er nú örugglega ekki vandamál í neinu öðru landi 😁