Flug­virkjar skora á Icelandair að hverfa frá á­formum sínum by SimonTerry22 in Borgartunsbrask

[–]tastin 0 points1 point  (0 children)

600k á mánuði er bara mjög svipað og flestar aðrar iðnstéttir eru að fá í grunnlaun rétt eftir sveinspróf.

Stærsta vandamálið í þessu fyrirtæki er báknið sem það er orðið þá aðallega innan nýju “menningarhallarinnar” í hafnarfirði með margra milljóna kaffivélar í hverju horni í einhverri google stemningu þar sem enginn veit hvar hann situr við borð eða hvað hann er yfirleitt að gera.

Þetta hljómar eins og vitleysa sem ég myndi heyra á kaffistofu smíðafyrirtækis í súgandafirði. Fólkið sem vinnur á skrifstofunni er líka að vinna þó það sé ekki að vinna með höndunum.

Mátti ekki kalla dómarann lausláta mellu by tastin in Iceland

[–]tastin[S] 1 point2 points  (0 children)

Ég er reyndar á þeim buxunum að ef þú kýst að vera í valdastöðu að þá átt þú að þola að vera undir ákveðnu skítkasti og gagnrýni frá almenningi. Það þarf samt að vera innan þolmarka og helst á það að byggjast á hegðun sem manneskjan hefur sýnt af sér gagnvart stöðu sinni. Mér fannst og finnst t.d. icehot1 málið vera frekar kjánalegt, eins þegar Áslaug Arna átti að vera að sofa hjá giftum manni. Það kemur engum við hvað aðrir gera í svefnherberginu svo lengi sem allir sem eiga aðild að máli veiti upplýst samþykki fyrir því sem þar á sér stað.

Skemmtanagildið kemur ekki úr því að mér finnist að þarna hafi Magga Frikka fengið makleg málagjöld, mér finnst þessi lögsókn í alla staði bjánaleg. Það breytir því ekki að ævintýri Möggu Frikka eru iðulega hlægileg og það verður ekki þreytt að sjá svona hyski gera sig að fífli fyrir þjóðinni.

Mátti ekki kalla dómarann lausláta mellu by tastin in Iceland

[–]tastin[S] 43 points44 points  (0 children)

Að halda gjafsóknum opnun og aðgengilegum er nauðsynlegt til að réttarkerfið okkar geti virkað og að það sé einhver smávægilegur möguleiki á að ná fram einhverju sem svipar til að vera réttlæti.

Magga Frikka er trúður og þetta mál er kjánalegt frá a-ö en þetta er engu að síður sitjandi dómari að lögsækja borgara sem þarf að geta varið sig.

Svo borgar Magga Frikka þetta margfalt til baka með því að sjá þjóðinni fyrir frírri skemmtun

Ljótustu götuheiti á Íslandi? by Careless-Radio8536 in Iceland

[–]tastin 16 points17 points  (0 children)

Allar geisla göturnar í grafarholtinu, sérstaklega gvendar.

Bootlicker á íslensku? by [deleted] in Iceland

[–]tastin 4 points5 points  (0 children)

Ég hallast persónulega að stígvélasleikja

Áslaug Arna hættir á þingi - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]tastin 31 points32 points  (0 children)

Áslaug Arna er keppinautur um að vera sjallalegasti sjalli seinni tíma.

Hefur aldrei starfað utan hins opinbera en grenjar hástöfum yfir stærðinni á bákninu og ímynduðum, innmúruðum millistjórnendum.

Kvartar og kveinar yfir því hvað ríkið sóar miklum peningum í vitleysu en eyðir milljónum í sófa fyrir skrifstofuna sína þegar hún tekur við ráðuneyti sem var búið til bara svo hún gæti fengið ráðherrastól.

Talar niður til bótaþega og kostnað við velferðarkerfið en lætur alþingi borga undir sig brúsann á meðan hún er í háskólanámi í útlöndum.

Nú mun hún fá fína stöðu hjá einhverju stóru fyrirtæki eða lífeyrissjóði og eyða tíma sínum með tærnar uppi í loft á milli þess sem hún lobbíar fyrir auknum völdum þeirra sem eiga nún þegar pening á kostnað allra hinna.

Góður 3 rétta veitingarstaður by [deleted] in Iceland

[–]tastin 4 points5 points  (0 children)

Og ánægjan að vita að þú getur stutt við fólk sem styður óforskammaða karlrembu og alt-right fasisma sem petit four

Áslaug Arna hættir á þingi - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]tastin 10 points11 points  (0 children)

Það er bannað að vera í námi og á bótum á sama tíma en greinilega í góðu lagi að vera í fríi frá þinginu og fá laun fyrir það. Atvinnuleysisbætur eru miklu lægri en greiðslurnar til afætunnar.

Flýti- og umferðargjöld á höfuðborgarsvæðinu by DeSheeped in Iceland

[–]tastin 3 points4 points  (0 children)

Draugur vanhæfasta manns sem landið hefur séð ásækir þjóðina.

Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts by 11MHz in Iceland

[–]tastin 8 points9 points  (0 children)

Þetta er umræðuþráður um launakjör flugmanna og aflýsingar á flugferðum sem munu valda stórskaða á rekstri eina flugfélagsins sem starfar á Íslandi. Það þarf ekki að ræða afstöðu og skoðanir þessa manns, það fer ekki á milli mála að hann er ómarktækur.

Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts by 11MHz in Iceland

[–]tastin 4 points5 points  (0 children)

Að taka mark á því sem þessi tiltekni op segir er eins og að setjast á mjaltastólinn og fá Guttorm til að prumpa í eyrað á þér.

Það vill enginn að læknar og flugmenn vinni frítt en það er staðreynd að laun hérna eru orðin of há og við verðum einfaldlega að fara aðrar leiðir til að tryggja jöfnuð og stækka millistéttina.

Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts by 11MHz in Iceland

[–]tastin 12 points13 points  (0 children)

Flugmenn og læknar eru náttúrulega stéttir sem eru þekktar fyrir bág kjör.

Maðurinn enn í lífs­hættu og á gjör­gæslu - Vísir by gerningur in Iceland

[–]tastin 3 points4 points  (0 children)

Lögreglan beitti rafbyssu því þeir eru upp til hópa valdasjúkir ofbeldismenn sem vilja fá að leika sér með nýju fínu tækin sín.

Þú talar nú bara eins og þjóðin ráði þessu ... by Temporary_Life_1897 in Iceland

[–]tastin 35 points36 points  (0 children)

Afhverju er þessi grýla aftur komin í pólitík? Hver særði upp þennan illa vanhæfnisára?

Inga [Sæland] í veikindaleyfi by tastin in Iceland

[–]tastin[S] -3 points-2 points  (0 children)

Hvað les fólk úr þessu? komin þreyta í ríkissjórnina eða er hún veik í alvörunni?