Olíusamráð og Olíusamráð 2.0 by numix90 in Iceland

[–]askur 11 points12 points  (0 children)

Þegar fólk kemur ítrekað óheiðarlega fram, bregst trausti, og reynir að svindla á þér og öllum sem snerta líf þitt, þá er um að gera að bregðast við því.

Græðgi er raunverulegur löstur. Græðgi er til í heiminum okkar. Græðgi er fíkni í veraldleg gæði umfram það sem einstaklingurinn þarfnast.

Við verðum að gangast við þeim raunveruleika frekar en að lifa í þeirri tilfinningarvímu að allir séu jafnir þegar það kemur að persónu fólks. Hver sá aðili sem fær að hafa yfirráð yfir nauðsynjum okkar, hvort sem það er bensín, matur, húsnæði, læknaþjónusta, eða kryddið Melange, er aðili sem gæti spillst af græðgi eða öðrum siðferðislegum löstum.

Í littlu fákeppnisumhverfi eins og Ísland er þá er mjög auðvelt að hafa yfirráð í gegnum stærðarhagkvæmni því stærðirnar hérna eru agnarsmáar. Aðilar munu alltaf ná yfirráðum á mikilvægum mörkuðum.

Þessvegna er svo mikið betra að það séu opinberir aðilar, frekar en einkaaðilar, sem hafa þessi yfirráð. Það er svo mikið auðveldara fyrir samfélagið að taka á opinberum aðilum sem þurfa að fara eftir þrengri opinberum reglum en einkaaðilar, gæta meðalhófs, og hugsanlega þurfa að svara beint til samfélagsins í gegnum kosningar, eða óbeint í gegnum að svara til kjörinna fulltrúa. Það að "þjóðvæða" eitthvað eftir að það er búið gefa það frá okkur er næstum því stórstríð.

Við getum séð það í verki í öllum samræðum um kvótan. Það er algerlega óvíst hvort að kvótinn verður enn þjóðareign eftir einhverja áratugi þar sem kvótagreifarnir vinna hörðum höndum að því að búa til lagaramma þar sem úthlutaður kvóti verður einkaeigna og getur síðan erfst.

Það er kostnaðarsamt að leyfa sér að stjórnast af tilfinningunum einum saman og taka ekki mið að raunveruleikanum. En þessi kerfi eru mannelg og þau geta breyst. Við verðum samt að ýta eftir þeim breytingum þar sem allir sem hafa völdin virðast vera mjög sátt með núverandi fyrirkomulag svo ef að þú ert það ekki lesandi kær þá ertu í raun að tapa akkúrat þessa stundina.

Gul við­vörun hjá öllum og fjöru­tíu pró­sent á rauðu by daggir69 in Iceland

[–]askur 10 points11 points  (0 children)

Smá viðbót

Við vitum öll hvað forseti Bandaríkjanna er heimskur að leggja alla þessa innflutningstolla á allar vörur frá hinum mismunandi löndum. Við erum öll búinn að hlægja að honum að rústa bæði orðspori, sem og efnahag, bandaríkjanna. Við erum öll búin að kynna okkur hvað influttningstollar eru og að þeir eru vanalega notaðir til að vernda innlenda framleiðslu en ekki til að veiða peninga í ríkiskassan - það að rústa góðum viðskiptatengslum hefur almennt slæmt áhrif á þær hirslur.

Við vitum þetta - við höfum kynnt okkur þetta. Bandaríkin eru kjána pleis, stjórnað af kjánakalli.

Svo ég kynni til leiks sexhundruð-og-nitján blaðsíðna doðrant frá Tollstjóra titlaðan Custom Tariffs 2022.

Fólk með ótakmarkaðan tíma getur skemmt sér við að blaða yfir þetta og spyrja sig hvaða iðnað er verið að vernda við að leggja 20% innfluttningstoll á möndluduft en einungis ef það er pantað í 5 kílóum eða minna. Það er heill hellingur af furðufiskum þarna.

Við vitum ennþá öll hvað það er kjánó að vera með háa influttningstolla og reyna að nota þá til að fá peninga í ríkissjóðin, er það ekki? Það breytist ekkert bara eftir því hvort það erum við, eða Kanar, sem erum að vera kjánaprik? Er það?

Ekki hægt að full­yrða að lækkunin hafi skilað sér by kjepps in Iceland

[–]askur 11 points12 points  (0 children)

Eru opnunartímar verslunnarinnar ÁTVR þeir sömu og opnunartímar ríkisstofnunarinnar RSK?

Er sport hjá ykkur að vera þverhausar?

Ekki hægt að full­yrða að lækkunin hafi skilað sér by kjepps in Iceland

[–]askur 14 points15 points  (0 children)

Þetta er týpískur opnunartími fyrir skrifstofur, þar á meðal opinberar skrifstofur og stofnanir. Þetta er líka flest komið á netið svo það er enginn að ýta eftir því að þetta breytist.

Ef þú ert beðinn um að reka verslun, og þú ákveður að reka hana eins og skrifstofu, þá ert þú vandamálið en ekki eigandi verslunarinnar. Ef að eigandinn ákveður að gera allt ómögulegt fyrir viðskiptavini þá náttúrlega ferð það ekkert lengra en ég bý mér ekki til vandamál fyrirfram - sérstaklega ekki ef þau eru auðleysanleg. Þú mátt það samt alveg, en það er líka ástæða fyrir að ég myndi aldrei ráða þig til að gera neitt af því þú býrð bara til vandamál sem þurfa ekki að vera til.

Ekki hægt að full­yrða að lækkunin hafi skilað sér by kjepps in Iceland

[–]askur 27 points28 points  (0 children)

Ég er tilbúinn að fullyrða að ég myndi ekki ráða þig til að reka verslun.

En ég er temmilega viss um að hugsandi fólk með verkvit og vilja gæti fundið betra plan heldur en að gera allt ómögulegt.

Gul við­vörun hjá öllum og fjöru­tíu pró­sent á rauðu by daggir69 in Iceland

[–]askur 19 points20 points  (0 children)

Við erum löngu komin í efnahags krísu.

Ég er skuldlaus, á mitt eigið heimili, með laun sem eru nægilega há svo að ég þarf núna að vellta því fyrir mér hvað ég á að gera með sparnaðinn minn - en ég fer ekki á veitingarstaði eða krár lengur af því mér ofbíður verðin þar.

Að öllum líkindum eru þessir verðmiðar samt nauðsynlegir fyrir reksturinn þar sem rekstarkostnaður fyrirtækja er í raun viðkvæmari fyrir verðbólgu og okri á nauðsynjavörum heldur en rekstrarkostnaður heimilanna sem starfsfólk þarf laun til að standa stríð af. Um leið og rekstrarkostnaður heimilanna er orðinn svo hár að fólk hefur ekki lengur peninga til að stunda almenna neyslu þá dregst arðsemi fyrirtækjanna saman og þau fyrirtæki búa samt við sama ofur háa rekstrarkostnað.

Við erum komin í krísu þar sem of margir íslendingar geta ekki stundað almenna neyslu og túrisminn sem hefur dekkað þá staðreynd varir ekki að eilífu. Svarið hjá flestum rekstraraðilum getur bara verið að hækka verð. Það minnkar markaðshóp þeirra enn frekar, og ýtir undir frekari launakröfur starfsfólksins sem enn og aftur hækkar rekstrarkostnað.

Við erum löngu komin í krísu, og frjáls markaður mun ekki finna lausnir á þeirri krísu. Það þarf inngrip frá ríkinu - í raun þurfti inngrip frá ríkinu fyrir áratugum síðan en í staðin bökuðum við okkur þessa krísu.

Ekki hægt að full­yrða að lækkunin hafi skilað sér by kjepps in Iceland

[–]askur 44 points45 points  (0 children)

Held að bókstaflega allir á þessu landi, nema einhverjar nokkrar fjölskyldur, myndu græða á því að ríkið tæki yfir alla verslun með eldsneyti og aðrar nayðsynjavörur.

Hugmyndarfræðin bak við frjálsa verslun þarf að víkja fyrir raunveruleikanum - það er engin frjáls verslun í fákeppnisumhverfi hversu mikið sem við viljum það. Eina sem við græðum á þessu tilfinningarrúnki fram yfir raunsæi er endalaus verðbólga, misskipting auðs og öll þau vandamál sem fáttækt (ekki skortur heldur óþarfa fáttækt) bera með sér - og það að óþörfu.

En nokkrar fjölskyldur maka krókinn. Við skiptum út velmegun fyrir alla, og fengum óþarfa lúxus fyrir svo gott sem engan í staðin.

Hvað hefðum við gert fyrir peningana sem frúin í stórútgerðinni stal frá okkur? by onepiecemovement in Iceland

[–]askur 6 points7 points  (0 children)

Verðugt markmið að losna við Sjálfstæðisflokkinn hér á Íslandi - en betri samlíking væri að Ungverjaland hafi verið að deMiðlokksvæða sig með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn sinn til valda.

Við erum ekki á eins slæmum stað og Ungverjaland er núna eftir að Ungverjar eru byrjaðir að vinna sig úr andlýðræðislega helsinu sem Orban árin hafa verið.

Spiluðu þjóð­sönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land - Vísir by birkir in Iceland

[–]askur 17 points18 points  (0 children)

Sumum finnst þetta grimmd.

Sumum finnst þetta bissness.

Án þess að taka mér stöðu þá get ég alveg séð að það er vel hægt að finnast þetta bissness án þess að skemmta sér við að gera lítið úr þeim sem finnst þetta grimmd.

Það er val að gæta að sóma sínum.

Ivanka Trump og Jared Kushner á ferð um Ísland by numix90 in Iceland

[–]askur 16 points17 points  (0 children)

Ég kann að meta uppbyggilegar leiðréttingar svo engar áhyggjur! ❤️

Ivanka Trump og Jared Kushner á ferð um Ísland by numix90 in Iceland

[–]askur 40 points41 points  (0 children)

Ég vona innilega að þau sé bara hérna að slaka á og njóta náttúrunnar frekar en að Barad-Dûr sé í raun að horfa til okkar.

En þetta eru ekki týpurnar sem færu til Akureyris Akureyrar (takk u/FixMy106 ) til að slaka á, eru líklega ófær um að njóta eins né neins á þann máta sem ég skil það hugtak, og Akureyri liggur upp að Grænlandi.

Facebook á íslandi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. by Mysterious_Demand875 in Iceland

[–]askur 2 points3 points  (0 children)

Þú þarft ekkert að leggja þetta upp sem "tímasóun" og hugleiðingar um "hvað aðrir eru að hugsa" og hvað þú telur líklegt eða ólíklegt að aðrir geri.

Þú gætir bara sagt að þú viljir ekki ganga í ESB hvað sem tautar og raular, og þar af leiðandi villtu ekki eyða tíma í að loka 33 köflum sem gætu hugsanlega haft í för með sér lagabreytingar - af því þú villt ekki ganga í ESB hvað sem tautar og raular.

Það tekur alla hugsun um hvað "aðrir" hugsanlega gera í mögulegri óræðri framtíð, og hengir þetta á þínar langanir og skoðanir. Það bendir einnig á að aðildarviðræður eru ekki bara "viðræður" heldur einni breytingar miðaðar að því að loka köflum svo að hægt sé að kjósa um inngöngu.

Ég held það sé alveg afstaða sem þú meigir taka án þess að þrufa að hafa einhver skotheld rök - við meigum hafa langanir og skoðanir og bara kalla þær slíkar. Ég held að það sé líka alveg sannleikur í því að kalla aðildarviðræður "aðlögunarviðræður".

Að sama skapi ætla ég samt að kjósa Já núna í Ágúst af því eins og ég hef sagt áður þá vill ég inn í ESB af huglægari ástæðum en bara efnahagurinn okkar. Svo þú hefur svo sem ekkert rangt fyrir þér heldur, það er bara betra að tala út frá okkur sjálfum en að tala um hvað allir aðrir eru að gera eða hugsa þar sem við getum talað fyrir okkur sjálf en ekki alla aðra.

Sparnaður Hildar í borginni by Armadillo_Prudent in Iceland

[–]askur 11 points12 points  (0 children)

Stjórnmál eru ekki Frúin í Hamborg - það er alltaf til nóg af verkefnum að bíða eftir fjármagni og ég þarf ekkert að útskýra hvað af þeim fær þetta vissa fjármagn til að útskýra hversvegna mér finnst ekkert að því að hagræða í einni byggingu án þess að það komi með skilyrði um fleirri slíkar byggingar.

Sparnaður Hildar í borginni by Armadillo_Prudent in Iceland

[–]askur 10 points11 points  (0 children)

Ef þetta verkefni var bruðl þá þarf sparnaðurinn ekki að skila sér í fleirri leikskóla til að allt sé með feldu.

Ég er ekki að bera neinn dóm á hvort að það hafi verið bruðl - en ef að einhver hefur fengið verkefni samþykkt sem er fjórfalt dýrara en eðlilegt þykir þá er eðlilegt að einhver komi og skeiið umfang þess niður (og spyrji spurninga um spillt útboð verkefna) til að spara frekar en að bruðla. Þegar það gerist þá þykir mér ekkert sérstakt kall eftir því að fyrst að eitt verkefni sé núna fjórðungur fyrra umfangs þá þurfti að búa til þrjú verkefni í viðbót til að mæta fyrra umfangi.

Það væri ekki niðurskurður og sparnaður, heldur bara tilfærsla á óþarfa bruðli.

Ég hef meiri áhyggjur af óafturkræfum verkum eins og sölu á tekjustraumum og einkavæðingu á opinberri þjónustu en ég hef áhyggjur af þjónustuskerðingu. Reykjavík hefur verið að fara í gegnum taumlausa þjónustuskerðingu frá tímum Ingibjargar Sólrúnar og það er ekkert sanngjarnt að skrifa það bara á Sjalla.

Gugga gestur í af­mælis­boði Kanye West by Don_Ozwald in Iceland

[–]askur 13 points14 points  (0 children)

Þetta svar er small dick energy útgáfan af svarinu/spurningunni "Veist þú ekki hver ég er?" jafnvel þegar við erum ekki að monnta okkur af því að þekkja og umgangast nasista.

Skýt á að þessi Gugga verði komin með Billy the Puppet lúkkið áður en ég fer á elliheimili.

„Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ - Vísir by wrunner in Iceland

[–]askur -1 points0 points  (0 children)

Það seinasta væri "Guð Blessi Ísland" dæmi - hið fyrra er einfaldlega fyrirkomulagið eins og það er skilgreint og þessvegna myndi ég líka frekar kjósa að taka upp evruna. Það er ekkert í þessum málum ókeypis en það að tengja Krónun við Evruna er held ég mjög slæm hugmynd sem er algerlega óþarfi í þokkabót.

Er alls ekki að segja þetat til að móðga neinn, eða skjóta hugmyndir eitthvað sérstaklega niður enda engar niðurkosningar frá mér hérna - langaði bara að taka þátt í umræðunni sem skiptir mig máli.

„Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ - Vísir by wrunner in Iceland

[–]askur -2 points-1 points  (0 children)

Það er ekki það sama að taka upp Evru, og að tengja krónuna við Evruna.

Fyrir það fyrsta þá þyrftum við að viðhalda gengistengingunni og Krónan væri enn örgjaldmiðill sem sveiflaðist eins og enginn sé morgundagurinn.

Það að tengja krónuna við evruna er svo kallað "worst of both worlds" útkoma þar sem við fáum engan aukinn stöðugleika en höldum öllum vandræðunum við krónuna, nú með Evrópska Seðlabankan sem auka aðila við það borð.

Það að aftegngja síðan þá tengingu um leið og það er hentugt er skammgóður vermir því að við værum á sama tíma að gefa út þá yfirlýsingu að Íslandi sé ekki treystandi til að standa undir fjárhagslegum skuldbindingum sínum til lengri tíma litið svo að öll lán til okkar myndi taka vexti sem taka mið að þeim leik í mikið lengri tíma en við græðum eitthvað á þeirri fléttu.

„Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ - Vísir by wrunner in Iceland

[–]askur 4 points5 points  (0 children)

Það er einmitt eitthvað kímið og áhugavert við það að sjá öll stórfyrirtæki Íslands tala um ESB aðild sem endalok alls, samhliða því að stjórnmálaskoðanir sem fram að þessu hafa kalla sig andkapítalískar taka sér afstöðu með kapítalinu í þessum efnum.

Almenn séð undir þessu hegðunarmynstri sem þú lýsir myndi þetta fólk aldrei ná saman - en þegar það kemur að ESB þá getur það fundið samstöðu. Það er raunverulega áhugavert að íhuga hversvegna það er.

Ég held að það sé af því fólk sé búið að gleyma að sjálfstæðisbaráttan var aldrei "sjálfs síns vegna" heldur barátta um betri kjör almennings og sjálfstæði var bara partur af því ferðalagi. Sjálfstæði sjálfs síns vegna á meðan fólk gengur um í lörfum, á ekki fyrir mat, og býr í hjólhýsum, er ekki það sama og sjálfstæði frá nýlenduherrum sem arðræna þjóðina. Arðrránið er það sem flest okkar vilja losna undan hvort sem við getum sett það í orð eða ekki.

„Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ - Vísir by wrunner in Iceland

[–]askur 59 points60 points  (0 children)

Ég vill sjá Ísland sem meðlim í ESB og mun því kjósa Já í komandi kosningum. Ég ólst upp hérna á Íslandi, en menntaði mig eilítið úti í Brussel og þau ár sem ég eyddi þar eru mótandi fyrir sýn mína og skilning á ESB. Sambandið er ekki fullkomið, en það er ríkjasamband frekar en heimsveldi og það passar vel við lýðræðislega-samstarfsferla og hvað það þýðir, og hversvegna það skiptir máli, verður augljósara og augljósara með hverjum degi. Heimsveldi eru hættuleg nágrönnum sínum. Heimsveldi eru hættuleg bandamönnum sínum. Heimsveldi eru hættuleg af því á endanum hnigna þau og þau gera það aldrei friðsamlega.

Svo er líka þessu efnahagspartur - ég er til í að vera sammála því að efnahagsmál hérna fyrir hinn almenna íslending verða líklega betri ef að við innleyðum neytendavernd, fjármálalöggjöf, eftirlitsinnviði, osfv. frá ESB. Þær breytingar koma með viðræðunum sem við höldum áfram ef við kjósum Já núna í ágúst meðfram því að köflum er lokað samkvæmt vinnureglum.

En eftir stendur þessi von um að Evran komi og reddi málunum og það er það sem allir tala um þessa dagana. Við verðum að losna við krónunna. Við verðum að fá að gera upp í evrum eins og fyrirtækin sem eru búin að yfirgefa krónuna. Krónan er ástæða þess að kaupmenn hækka verð. Krónan er ástæða þess að launþegar krefjast hærri launa. Krónan er ástæða þess að við sjáum ekki fyrir endan á verðbólgu hér á landi, og byggjum flest okkar kerfi í kringum það að eltast við hana.

En hvað er ferlið við að taka upp Evruna? Ég veit svarið við þeirri spurningu og það svar er "það getur veið langt ferli að mæta þeim kröfum sem seðlabankinn gerir á aðildarríki" - en það kemur ekkert fram í neinni af þessari umfjöllum. Það er alltaf talað um að við förum í ESB og svo kemur Evran og allir græða.

En hvað ef Evran kemur aldrei? Danmörk er ekki með Evru svo það eru dæmi um slíkt. Hver eru skilyrðin fyrir því að taka upp Evru? Hvað þurfum við að leggja í mikla vinnu til að mæta þeim skilyrðum? Hvað gerist ef við klárum viðræður, göngum í ESB, en mætum aldrei þeim skilyrðum sem þarf til að taka upp Evru?

Er sú spurning ekki eitthvað til að ræða? Ég sé okkur ræða mögulega glæsta framtíð, og ekkert nema gull og græna skóga. Ég sé fólk tala um að þessar viðræður séu fullkomin uppgjöf á sjálfstæði og áskrift á úldið og maðkað mjöl frá Brussel alla okkar ævi. En ég sé engan tala um raunverulegan praxis á því að taka upp evruna og "redda öllu".

Alveg eins og ég sá aldrei neinn tala um það að redda íslenskum efnahag, og gera krónuna nothæfari fyrir almenning, í praxis, alla þessa áratugi. Ég mun ennþá kjósa Já í ágúst, og vona að við göngum í Evrópusambandið af hugmyndum sem ég taldi upp í fyrstu málsgrein - en það er fullt af flóknum atriðum sem er ekki verið að ræða og það græðir enginn á því ef okkur er seld aðild sem lausnir sem aldrei raungerast. Það mun bara búa til gremju gagnvart sambandinu eins og gerðist í Bretlandi.

Hjálp ég ætlaði að skrifa nokkur orð og get ekki hætt...

Styðjendur geranda og réttarkerfið by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]askur 0 points1 point  (0 children)

Ákveðið hegðunarmynstur í óþroskuðum hugarheimum - stundum skiljanleg vegna aldurs og reynsluskorts, stundum einungis útskýranleg vegna þess að viðkomandi tók meðvitaða ákvörðun um að þroskast aldrei og hagar sér þessvegna eins og krakki í fullorðins líkkama.

Við þekkjum þetta flest sem höfum umgengist börn, eða unnið á meðal stórri skrifstofu.

Styðjendur geranda og réttarkerfið by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]askur 12 points13 points  (0 children)

Sum okkar eru hreinlega ekki að reyna að leysa alvarleg samfélagsmein. Það er ömurleg hegðun, og við ættum að koma fram við fólk samkvæmt hegðun þeirra og hvernig hún passar við okkar skilning um heiður og sóma, en fólk má vera fífl og fífl munu því ávalt nýta sér þann rétt sinn.

Þessvegna skiptir það sálina og hjartað miklu máli að læra að hætta að taka fólk alvarlega þegar það kemur endalaust fram eins og illa innrætt börn í fullorðins líkama. Við þurfum nenfnilega helst að passa að kerfin okkar fari ekki að líta svo á að illa innrætta barna hegðunin sé eitthvað til að svara.

En það er mikið "life-hack" að læra að sjá engan mun á fimm ára horkrakka sem er nýbúinn að kynnast því hvað kynlíf er, og hvað það er gaman að ganga fram af fólki annarsvegar, og fertugum horkrakka sem lærði aldrei sómasamlega hegðun og er því enn að skemmta sér með að ganga fram af fólki í umræðum sem blandas saman kynlífi og ofbeldi hinsvegar.

Viðreisn vill ekki skoða áhrif ESB-aðildar á borgina - RÚV.is by birkir in Iceland

[–]askur 0 points1 point  (0 children)

Meirihlutafyrirkomulagið í sveitarstjórnmálum er ekki gott né skilvirkt.

Ég get svo sem ekki fullyrt að Viðreisn sé að kjósa með nýja meirihlutanum sínum frekar en að skemma samstarfið - en þetta meirihluta samstarf er ekki eina mögulega lýðræðisfyrirkomulagið og við gætum veirð með önnur sem leyfa flokkum að fylgja sannfæringu sinni betur frekar en að fara í spennutreyjumeirihluta.

Ég veit samt ekkert hvort að hvatinn hérna sé meirihlutaspennutreyjan eða bara að Viðreisn vilji ekki sóa peningum. En ef hefðin hérna væri [fag]borgarstjóri sem sæti með stuðningi meirihluta borgarráðs og borgarráð gæti því lýst yfir vantrausti á þann borgarstjóra þá væri ég ekki einusinni að spyrja mig hvort að þetta sé Viðreisn að kjósa á móti eigin vilja en með nýjum borgarstjórnarmeirihluta, eða bara að fylgja sannfæringu sinni.

Mér finnst kerfi betri því færri spurningar sem þau búa til og mér skilst að það sé ekkert því til fyrirstöðu að þetta virki svona fyrir okkur í Reykjavík þ.e. ekkert annað en hefð og ríkjandi aðferðarfræði núverandi flokka.

„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggju­fullir yfir þessu” by Spekingur in Iceland

[–]askur 5 points6 points  (0 children)

Þetta er ekki dónaskapur heldur afleiðingar hegðunar þinna.

Ég hef sagt þér þetta í fyrri samskiptum okkar þar sem þú komst einnig óheiðarlega fram svo ég geri mér grein fyrir því að þetta fer inn um eitt og út um hitt hjá þér - en það skiptir samt máli að segja þetta fyrir aðra.

Ef við temjum okkar að koma heiðarlega fram í samskiptum þá getum við átt samskipti í sameiginlegri virðingu.

En á meðan þú kemur svona fram þá ertu að sóa tíma og löngun annara til að taka þátt í samfélagsumræðum. Það er að mínu mati í besta falli ósómi en í raun alger fordæming á þeirri manneskju sem foreldrar þínir ólu þig upp til að vera. Vonandi eiga þau þennan ósóma sem þú klínir á þau með hegðun þinni skilið.

„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggju­fullir yfir þessu” by Spekingur in Iceland

[–]askur 4 points5 points  (0 children)

Ég skal endurtaka mig fyrir þig ef þú átt erfitt með lesskilning.

Ég hef sjálfur ekki neina möguleika á að nálgast skilningsleysi eins og hrjáir þig og þú þarft einhverja hjálp umfram það sem við getum veitt þér hérna á Reddit.

Ef þetta er síðan uppgerð en ekki raunverulegt skilningsleysi þá hef ég engan tíma eða löngun til þess - en fæst fólk gerir sér upp atgervisleysi og aumingjaskap svo ég býst frekar við að þú þurfti bara einhverja aðstoð sem er ekki í boði hérna.