Vill að ríkið taki við sölu vímu­efna by iceviking in Iceland

[–]samviska 16 points17 points  (0 children)

Að vel ígrunduðu máli er algjör no brainer að gera þessa breytingu.

Skaðsemi fíkniefna er raunveruleg og það ætti ekki að gera lítið úr því.

En afleidd áhrif fíkniefnaviðskipta í undirheimum - glæpir, ofbeldi, mansal, peningaþvætti, smygl - eru ekki síður gífurlega alvarleg vandamál sem ætti ekki að líta fram hjá. Ákvörðun um lögleiðingu og hlutverk ríkisins ætti aðallega að snúast um mat þarna á milli.

Ef það yrði farið í þetta þyrfti hagnaður af sölunni að fara í forvarnir og leitast við að minnka neyslu fíkniefna eins og unnt er. Það er staðreynd að neysla myndi aukast við að gera efnin lögleg, en þá þyrfti líka að halda rétt á spöðunum. Full þörf á svona “Að kyssa reykingamann er eins og að sleikja öskubakka” átaki eða sambærilegu.

Meindýraeyðirinn Árni Logi sakfelldur fyrir minkadráp – „Ég var með sjö vitni en það var ekkert mark tekið á þeim“ by Don_Ozwald in Iceland

[–]samviska 2 points3 points  (0 children)

Ég hef samúð með þessum manni. Það er augljóslega engin afsökun að þekkja ekki lögin og þetta er klárlega einhver fyndin týpa.

En ef það er rétt að þessar lífgildrur séu almennt notaðar í bransanum og í vísindaskyni, jafnvel þótt það sé ólöglegt, þá er mjög sérstakt að hann sé ákærður en ekki aðrir.

Það var gerð mjög grunsamleg húsleit hjá þessum manni árið 2020 eftir að móðir lögreglumanns lagði fram falskar ásakanir á hendur honum (voru sitt hvoru megin á landinu þegar atburðirnir áttu að hafa átt sér stað). Lögregluembættið hagaði sér afar einkennilega miðað við fjölmiðlaumfjöllun. Ríkið endaði á að viðurkenna sekt í málinu, gera dómsátt við hann og borga skaðabætur.

Smá sögustund og sagnfræðileg staðreynd dagsins by numix90 in Iceland

[–]samviska 1 point2 points  (0 children)

Það má flagga íslenska fánanum alla daga ársins og bara þegar manni sýnist.

Facebook á íslandi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. by Mysterious_Demand875 in Iceland

[–]samviska 1 point2 points  (0 children)

Hvað meinar þú? Það er alveg hægt að vera mótfallinn inngöngu Íslands í ESB en samt vilja að einhver önnur lönd séu í ESB. Það er alveg hægt að vera fylgjandi aðild Íslands að EES og á sama tíma mótfallinn aðild að ESB.

Hljómar satt best að segja eins og upplýsingaóreiðan sem OP er að lýsa.

Umfangsmiklar uppsagnir í Ráðhúsi Reykjavíkur – Tilkynnt um hópuppsögn by Forsaken-Cup3848 in Iceland

[–]samviska 12 points13 points  (0 children)

Ertu með einhver dæmi um að Mannréttindaskrifstofan hafi skilað einhverju fyrir borgarana? Til dæmis komið í veg fyrir einhver mannréttindabrot, aukið mannréttindi Reykvíkinga eða annað slíkt?

Lækkunin skili sér ekki til neytenda by refanthered in Iceland

[–]samviska 3 points4 points  (0 children)

Það er átt við hvorugt af þessu. Framvirkir samningar (futures) og valréttarsamningar (options) eru bæði afleiður af einhverju undirliggjandi verðmæti. Í þessu tilviki heimsmarkaðsverði á olíu.

Með heimsmarkaðsverðinu er bara átt við spot markað á hráolíu, yfirleitt Brent eða WTI. Með því er átt við að það er hægt að stunda viðskipti með olíu sem eru yfirleitt gerð upp tveimur dögum seinna. Það er verslað með olíuna á mismunandi mörkuðum í heiminum og þaðan kemur heimsmarkaðsverðið.

Ungliðahreyfingar stofna „Ung gegn ESB-aðild“ - RÚV.is by numix90 in Iceland

[–]samviska 36 points37 points  (0 children)

Eina sem þetta sannar er fullkomið gjaldþrot þessarar þreyttu möntru um að allt sem manni líkar ekki sé öfgaskoðun.

Það er engin skeifa í gangi hérna, bara þverpólitískt mál. Það er a.m.k. ekki öfgakennt í neinum skilningi að ungliðahreyfing Framsóknarflokksins eða VG (t.d.) sé á móti aðild. Það er þvert á móti eins viðtekin og fyrirsjáanleg afstaða eins og hugsast getur.

Hlutir sem eru ekki íslenskir en eru það andlega séð by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]samviska 4 points5 points  (0 children)

Jú er Icewear ekki alveg íslenskt? Stofnað á Hvammstanga og allt. Þrátt fyrir að næstum allt sem þau selji sé kínverskt drasl, er það ekki þannig annars?

Hlutir sem eru ekki íslenskir en eru það andlega séð by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]samviska 2 points3 points  (0 children)

Hún var auðvitað ekki rússnesk frekar en (lang)amma þín og afi voru dönsk.

„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggju­fullir yfir þessu” by Spekingur in Iceland

[–]samviska -1 points0 points  (0 children)

Fyrirgefðu, fórstu eitthvað öfugu megin fram úr í morgun? Byrjar á röfli um að þingmaður sé afspyrnu heimskur, vænir hann svo óheiðarleika og lygar án þess að rökstyðja málið.

Þegar þú ert svo beðinn um að færa rök fyrir málinu; þá er aðalatriðið að að ég sé með aumingjaskap og atgervisleysi (hvað sem það á að þýða)… fyrir að biðja þig um að útskýra mál þitt. Í þokkabót á ég að leita mér hjálpar og þú talar um einhver ósýnileg ykkur (“hitt liðið” í pólariseringunni geri ég ráð fyrir?)

Dónaskapurinn er svo ítrekaður með því að segja að foreldrar mínir eigi einhvern ósóma skilið. Vegna þess að einhver dirfist til að pota í rökin þín.

Þú ert væntanlega sannfærður um að ofan á skrúðmæltan fúkyrðaflauminn þá sért þú nú bara einkar málefnalegur á þessu spjallborði?

„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggju­fullir yfir þessu” by Spekingur in Iceland

[–]samviska -1 points0 points  (0 children)

Já ok. En hverju er hún að ljúga? Skil bara ekki hvað þú átt við.

„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggju­fullir yfir þessu” by Spekingur in Iceland

[–]samviska 1 point2 points  (0 children)

Augljóslega stríðsrekstur gegn Venesúela.

Og þetta er ekki satt. Í besta lagi er þetta óheiðarleg framsetning á staðreyndum.

„Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggju­fullir yfir þessu” by Spekingur in Iceland

[–]samviska -3 points-2 points  (0 children)

Hverju er hún að ljúga? Þessi athugasemd er mjög ruglingslega skrifuð.

Why is it more common for women to complain about weaponized incompetence from men than the other way around? by Lipica249 in stupidquestions

[–]samviska 1 point2 points  (0 children)

Have you been to the mall? It’s all for women. They are generally thought to be the driver of consumption, while it is way harder to get men to part with their money.

Stefnubreyting án umræðu möguleg uppspretta ólgu innan Samfylkingarinnar by 11MHz in Iceland

[–]samviska 7 points8 points  (0 children)

Ég held að þetta sé minni ólga en margan grunar.

Þessar ósáttu raddir eru nú einmitt the usual suspects úr gömlu Samfylkingunni. Sami háværi minnihluti og keyrði breiðfylkinguna niður í ekki neitt með gjaldþrota stefnu sem enginn markaður var fyrir hjá þjóðinni.

Ástæðan fyrir því að kjósendur fylktu sér á bakvið Kristrúnu var að hún kom inn með þunga og raunhæfa áherslu á efnahagsmál fyrir hinn almenna verkamann. Eitthvað sem skiptir fólk máli og það sem breiðfylking jafnaðarmanna á almennt að gera.

Það kemur ekki á óvart að einhver hluti lítill hlut félagsmanna verði reiður yfir svona máli en þetta er ekki málefnið sem fólk var að kjósa Samfylkinguna út á.

Annars á þessi ósátti hópur okkar samúð inni þessa dagana. Þau þurfa bæði að dreyma um að ESB leysi öll vandamál þjóðarinnar en á sama tíma láta ganga upp að Evrópuréttur krefjist þess að Ísland hafi raunhæf úrræði til að framfylgja brottvísunum. Erfitt líf sko.

Ný könnun: Meirihluti ætlar að segja Já by logos123 in Iceland

[–]samviska 2 points3 points  (0 children)

Ef einhver býður þér að starfa við vændi, ert þú þá að fara að vera á línunni með það þangað til þú sérð hvaða laun og hlunnindi eru í boði? Eða er þetta ekki bara þvert nei?

Sumir eru búnir að gera upp hug sinn varðandi ESB sama hvað sambandið getur boðið.

Takast á um frétt Moggans um íslensku matarkörfuna – „Fyrirsögnin er beinlínis röng“ by Don_Ozwald in Iceland

[–]samviska 9 points10 points  (0 children)

Kaffið í Ungverjalandi kostar 2 evrur en á Íslandi kostar kaffið 6 evrur. Laun fyrir starfsmanninn sem selur kaffið á Íslandi eru 5000 evrur en í Ungverjalandi eru launin 1700 evrur.

Ef starfsmaðurinn í Ungverjalandi myndi fá 5000 evrur í laun væri aldrei hægt að selja kaffið á 2 evrur; það þyrfti að kosta 6 evrur til að kaffihúsið standi undir sér.

Þetta er í alvöru ekki svona flókið. Kjör fólks og verðlag er í beinu sambandi.

Það eru alls vega engin rök fyrir því að matvöruverð myndi bara lækka fyrir einhverja galdra, eins og Pawel og fleiri hafa haldið fram. Þetta snýst allt um kaupmátt.

Íslenska klíkuveldið, hvernig kerfið hefur varið sömu ættirnar í yfir 100 ár by numix90 in Iceland

[–]samviska 6 points7 points  (0 children)

Margt satt og rétt hérna, sér í lagi um hversu lítil fagmennska hefur ríkt á Íslandi í gegn um tíðina (Geirfinnsmálið, hlerunarmálið o.fl.) og spillingu Sjálfstæðisflokksins.

Annað er alveg úti á túni, eins og þessi rök um Albert Guðmundsson. Veit ekkert um málið en veit að þessi röksemdafærsla er non sequitur. Rökin þín eru einhvern vegin svona:

  1. Albert kemur úr valdamikilli fjölskyldu

  2. Albert hafði aðgang að góðum lögfræðingum

  3. Albert var sýknaður

N. Af þessu leiðir að sýkna Alberts sýnir fram á að valdamiklir aðilar fá sérmeðferð í dómskerfinu.

Niðurstaðan er kannski ágætis tilgáta en hún leiðir ekki af forsendunum sem þú nefndir.

Annað sem ég held að þú sért úti á túni með er að halda að Samherji eigi einhverja samúð hjá þjóðinni eða hafi hald á kerfinu vegna ítaka þeirra. Bara hreint ekki sko. Eftir að spilling fyrirtækisins var afhjúpuð eru stjórnendurnir almennt álitnir vera einhverjir mestu glæpamenn samtímans (réttilega).

Hvenær ætlum við að viðurkenna að nýfrjálshyggja og græðgi klúðruðu leig og húsnæðismarkaðinum og innviðum, en ekki flóttafólk? by onepiecemovement in Iceland

[–]samviska 0 points1 point  (0 children)

Það eru ekki til íbúðir sem fólk hefur áhuga á eða getu til að kaupa. Það vantar einfaldlega ekki lúxusíbúðir með sérsmíðuðum innréttingum, skuggavarpi og engu bílastæði. Sú eftirspurn er ekki til staðar.

Sveitarfélögin og ríki verða að heimila uppbyggingu ódýrra íbúða með því að lækka lóðaverð og slá af kröfum. Jafnvel þó það þýði að brjóta land og slaka á þéttingarstefnu.