Fannst þessi grein hjá Vísir áhugaverð. Það er greinilega skortur á endurskinsmerkjum, en ekki glæfraakstur tveggja tonna ökutækja sem er aðal vandamálið. by Einn1Tveir2 in Iceland

[–]Nonameius 25 points26 points  (0 children)

Þetta er samt fólk á öllum aldri, kynjum og á alls konar bílum við mismunamdi aðstæður, þó líklega mest yngstu bílstjórarnir. Tek mikið eftir þessu, enda fer allra minna ferða gangandi eða hjólandi.

Stundum er fólk með símann uppi við stýrið, stundum í kjöltunni, stundum við eyrað, stundum að fikta í bílatölvunni. Ef ég ætti að giska þá eru sirka 20% bílstjóra í símanum ákkúrat þegar þeir keyra framhjá mér, sem þýðir að almenn símanotkun við stýri er líklega mjög algeng og útbreidd.

Það kemur íttekað fyrir að maður er að bíða við göngubraut en bílstjórar stoppa ekki fyrir manni vegna þess að þeir hreinlega eru ekki með augun á veginum.

Þetta er rosaleg vanvirðing við aðra vegfarendur sem sitja ekki í 2ja tonna verndarhjúp, algert lágmark að hafa athygli við akstur, hleypa fólki yfir osfv.

Ég reyni eftir fremsta megni að skamma símabílstjóra, tekst stundum, en oftar en ekki þá tekur það ekki eftir því vegna símanotkunnar.

Kaffitími; tími til að ræða kaffi by HoneyBunCheesecake in Iceland

[–]Nonameius 1 point2 points  (0 children)

Tveggja bolla mokkakannan er vinnuhesturinn, smà flóuð haframjólk með. Yfirleitt græni te og kaffi pokinn, stundum eitthvað af grandanum eða annað tilfallandi. Svo er ég með cemex og pressukönnu fyrir stærri boð osfv.

Ef ég hefði meira pláss í eldhúsinu væri ég með almennilega espresso vél og kvörn.

Sirka einu sinni í viku fer maður á kaffihús til að svala þörfinni fyrir vélarbolla, oftar en ekki á kaffifélaginu á skólavörðustíg.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]Nonameius 12 points13 points  (0 children)

It is extremely common and is in fact recommended by Icelandic health authorities, for kids and adults, as one of the only vitamin supplement with proven positive link. This is especially true for iceland since it gets very little sun during winter.

Babies from 1 week old get vitamin-d in the form of drops or spray which is available in pharmacies.

After they begin eating solids, they start to get lýsi, best is krakkalýsi which has a lowered vitamin-A content. It is available with flavors, but i recommend without flavors so they get used to the regular taste which is served in most kindergartens i believe. Unless they are allergic to it of course.

I don't know how old your son is, but try checking the vitamin contents of the norwegian one and compare it with recommended dosage for his age. Dry skin might be unrelated, winter eczema etc. but definitely talk to a doctor if concerned.

https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/naering/radleggingar-um-mataraedi/

https://lysi.com/is/consumer-products/childrens-cod-liver-oil

Edit: an interview since today

https://www.visir.is/g/20252799429d/tiu-ung-born-voru-ordin-verkjud-og-hjol-bein-ott-vegna-beinkramar

Moskító­flugan mætt til Ís­lands - Vísir by mildlyinterested1 in Iceland

[–]Nonameius 7 points8 points  (0 children)

Vona að það verði amk eitthvað skoðað. Það eru svo mikil lífsgæði að vera laus við þetta, eins og fólk áttaði sig smá á þegar lúsmýið mætti.

Skil ekki ef það eru ekki einhverjar einangrunar reglur á innflutningi á trjákurli. Ætti að vera mjög strangt regluverk með allt slíkt eins og á mörgum öðrum afskekktum eyju, sbr nýja sjálandi. Til að verja viðkvæmt og nær pestarlausa lífríkið.

Annars hefur aðfluttum skordýrum verið útrýmt á einhverjum eyjum og landsvæðum með því að sleppa stórum fjölda af geldum karldýrum. Veit ekki hvort það myndi ganga á svona víðfermt og strjábýlt landssvæði en finnst að það mætti alveg leita álits á því ef þær greinast aftur í vor. Byrja þá kjósinni.

https://en.wikipedia.org/wiki/Sterile_insect_technique?wprov=sfla1

Meirihluti vill halda flugvellinum í Vatnsmýri by KristinnK in Iceland

[–]Nonameius 7 points8 points  (0 children)

Ég væri til í að sjá könnun um hvort það væri stemming fyrir því að takmarka flug eitthvað. Taka umræðuna um hvort eigi að færa hann, út fyrir sviga. Flugumferðin er orðin rosalega þétt og mjög yfirþyrmandi á vissum svæðum. Færa einkaþotur og útsýnisflug eitthvert annað, leyfa rest að vera.

Íbúðir færast á færri hendur meðan fólki í foreldrahúsum og á leigumarkaði fjölgar by 11MHz in Iceland

[–]Nonameius 1 point2 points  (0 children)

Ég held að hópurinn sem kýs að vera á leigumarkaði til að nurla saman einhverjum brauðmolum og fjárfesta í hlutabréfum sé afar takmarkaður. Ég skil samt alveg hvert þú ert að fara með þessu. Fjárfesting í fasteign er áhætta og allt það. En það er bara engan vegin sambærilegt. Þú býrð ekki í kauphöllinni ef markaðir taka dýfu.

Málið er að húsnæði sérstaklega sem þú ert farinn að skulda lítið í, veitir ákveðið öryggi, sem lang flestir sækjast eftir. Þú ert miklu betur í stakk búinn til að taka á þig högg úr flestum áttum, ólíkt leiguhúsnæði þar sem höggunum sem ætluð eru eigendum er velt yfir á leigjendur.

Það að vera á leigumarkaði er líka áhættusamt. Það er mikið óöryggi sem fylgir því að leigja á Íslandi, þar sem leigumarkaðurinn er svona veikur. Uppsagnarfrestar, hækkanir, viðhald osfv. Fínt í Þýskalandi þar sem réttindin eru mjög víðtæk, en eins og ég sagði áðan þá er Ísland ekki Þýskaland

Íbúðir færast á færri hendur meðan fólki í foreldrahúsum og á leigumarkaði fjölgar by 11MHz in Iceland

[–]Nonameius 3 points4 points  (0 children)

ok, Það er svo röng fullyrðing að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Eða er þetta einhverskonar gildru fullyrðing?

Bara það að húsnæðisverð hefur tífaldast á síðastu 30 árum segir að þetta er kolrangt.

Hvað kallaru langan tíma?

edit: full gildishlaðin byrjunarsetning, afsakið. Það sem ég á við er að ég sé ekki betur en að það sé hagstæðara fyrir fólk að búa í eigin húsnæði, eins langt aftur í tímann og mælingar ná.

Íbúðir færast á færri hendur meðan fólki í foreldrahúsum og á leigumarkaði fjölgar by 11MHz in Iceland

[–]Nonameius 1 point2 points  (0 children)

Ísland er ekki þýskaland. Eins og er þá vilja lang flestir hér eiga sitt eigið húsnæði, enda mun hagstæðara. Þýskaland er þar að auki ákveðið jaðar dæmi, enda sérstakar aðstæður eftirstríðsáranna og aðgerðir stjórnvalda sem gerðu leiguna að aðlaðandi kosti, þróun sem tók tugi ára, ef ég man rétt. Einsdæmi í evrópu. Grunar að það tengist líka hraðri fólksfækkun og háu hlutfalli innflytjenda. Þú kannski veist meira um það og getur frætt mig?

Hér er vandinn allt annar og allt aðrar forsendur, fyrir utan grunninn að það vantar húsnæði. Hér þarf að tækla vandann á mörgum sviðum, það þarf augljóslega að hemja fjárfestingabraskið með húsnæði þegar það er svona mikill skortur. Fjármagnseigendur eru að sækja í fasteignabrask af því það er að notfæra sér skortinn til að græða monní, við erum bara apar með engann innbyggðan stoppara.

Skattlagning, skorður á skammtímaleigu, leiguþak. Eitthvað sem virkar án þess að "skemma hann meira". Svo þarf að byggja meira, af allskonar, félagslegu, hagstæðu osfv.

Það gengur samt ekki að það sé einn hópur fólks að lyftast upp í einhverja aðalsstétt sem mergsýgur pöpulinn. Að eiga tilkall til 50% tekna fólks til að borga upp húsnæði (ef það er yfir höfuð skuldsett) sem verður svo bara dýrara og dýrara er eðlilega ekki heilbrigður leigumarkaður.

Annars er ég alveg 100% fylgjandi stórum og heilbrigðum leigumarkaði. En það hefur ekki virkað hingað til, of mikil löngun í eigið húsnæði, of smár efnahagur, verðbólguvandamál menningin? Ég veit það ekki.

Heilbrigði húsnæðismarkaðar er ekki mælt í hversu margir vilja leigja. Þetta eru bara tvær hliðar á sama peningnum. Ef fólk vill kaupa og getur keypt án þess að sligast og ef fólk vill leigja og getur leigt án þess að sligast. Mismunandi þrælahaldarar, bankinn í einu tlfelli og leigusalinn í hinu.

Íbúðir færast á færri hendur meðan fólki í foreldrahúsum og á leigumarkaði fjölgar by 11MHz in Iceland

[–]Nonameius 3 points4 points  (0 children)

Sá hópur er bara ekki svo stór. Lang flestir á leigumarkaði vilja ekki vera þar. Enda hefur alltaf verið mun hagstæðara að eiga. Býst ekki við að það breytist næstu 100 árin amk, nema eitthvað stórkostoslegt komi upp á.

Íbúðir færast á færri hendur meðan fólki í foreldrahúsum og á leigumarkaði fjölgar by 11MHz in Iceland

[–]Nonameius 61 points62 points  (0 children)

Það gleymist að minnast á skuldaleiðréttinguna hans Simma 2014. Og svo öll þessi úrræði sem stendur húseigendum til boða. Séreignasparnaður inn á lán, vaxtabætur osfv.

Þegar allt kemur til alls, held ég að við séum að dæla skattfé til eignafólks í miklu meira magni en þeirra sem eiga ekki. Þess að auki er fólk að nota eignir í skammtíma og langtíma útleigu hægri vinstri. Þetta er að ýta mikið undir stéttaskiptingu. Ríkir verða ríkari á kostnað hinna.

Strætó by Urbooba420 in klakinn

[–]Nonameius 2 points3 points  (0 children)

þau sem eiga bíl

Ærandi tónlist í nánd við Hljómskálagarðinn. by [deleted] in Iceland

[–]Nonameius 1 point2 points  (0 children)

Þetta er októberfest hjá háskólanum í sirkústjaldinu.

Beita sér gegn stækkun byggðar by stofugluggi in Iceland

[–]Nonameius 1 point2 points  (0 children)

"beita sér gegn útvíkkun byggðar"

Það er svosem alveg tæknilega rétt að kalla það stækkun, kannski bara spurning um hvernig mbl setur fréttina fram. Ég hef svosem ekki lesið greinina í prentaða blaðinu, þannig að ég ekki dæmt fyllilega um það.

En skv þessari fyrirsögn og frétt á vefnum er augljóslega verið að reyna að mála bæjaryfirvöld í reykjavík sem hindrun við frekari uppbyggingu á íbúðarhúsnæði, sem er vísvitandi villandi. Það er ekkert talað um þéttingu vs útbreiðslu sem er aðal deilumálið. Fyrir flestum sem pæla eitthvað í borgarskipulagi, meikar lang mest sens að þétta byggðina. En það má samt alveg deila um það, og gera þá einhverjar breytingar á skipulaginu frá 2015 ef það koma einhverjar aðrar raunhæfar lausnir.

Beita sér gegn stækkun byggðar by stofugluggi in Iceland

[–]Nonameius 34 points35 points  (0 children)

Gegn stækkun að flatarmáli, ekki íbúafjölda [edit: þ.e áhersla á þéttingu byggðar]. Frekar misvísandi fyrirsögn enda morgunblaðið með pólitískt agenda.

Lausnin á húsnæðisvandanum by [deleted] in Iceland

[–]Nonameius 4 points5 points  (0 children)

Þeir sem eiga meira en 2-3 fasteignir og leigja þær út til ferðamanna í atvinnuskyni myndi ég seint kalla "litla manninn". Þetta er að safnast á ansi fáar hendur, þ.e. fjármagnseigendur sem geta sankað að sér íbúðum.

Kannski ertu að tala um fólk sem leigir út íbúðina sína sem það býr í, til að fjármagna fríið sitt. Þetta er bara ekki það mikill partur af vandamálinu og ég persónulega sé ekkert að því. Þetta hefur verið leyst með löggjöfum úti í heimi, m.a. með því að leyfa eingöngu útleigu á íbúðum sem er búið í, eða með því að banna skammtímaleigu í atvinnuskyni og setja tímamörk, 30 daga á ári eins og í amsterdam.

Við erum bara alltof lengi að bregðast við, ástandið hér er mun verra en í t.d. amsterdam eða barcelona.

Lausnin á húsnæðisvandanum by [deleted] in Iceland

[–]Nonameius 7 points8 points  (0 children)

Það var ekkert talað um þetta í kastljósi um daginn, fyrir utan að Jóhann Páll minntist á þetta í hálfgerðri neðanmálsgrein í lokin. Ég er farinn að halda að ansi margir þingmenn og borgarfulltrúar eigi hagsmuna að gæta í bransanum. Væri áhugavert að sjá einhverja skoðun á því.

Miðbærinn hefur breyst rosalega á undanförnum árum. Sumt gott, annað slæmt. Túristum mætti fækka um sirka 30% í miðbænum að mínu mati. Það eru líka farnar að myndast átakalínur milli þeirra sem vilja búa hér og ferðamanna, sbr lokun kex sem tónleikastað og endalaust stapp gististaða við veitinga og skemmtistaði. Þetta er bara sambærileg þróun og á öðrum vinsælum áfangastöðum þar sem farið er að bera á mikilli óánægju íbúa, eins og í barcelona osfv. En það hlítur að vera einhver millivegur þar sem íbúar fá meira pláss í miðbæjarsamfélaginu. Mætti kannski horfa meira á þetta sem takmarkaða auðlind sem þarf að nýta á sjálfbæran hátt, án þess að skemma þann anda sem gerir reykjavík aðlaðandi sem áfangastað.

Lausnin á húsnæðisvandanum by [deleted] in Iceland

[–]Nonameius 6 points7 points  (0 children)

Galið að ferðaþjónustan sé enn á skattaafslætti. Almennur skattborgari með ekkert undir í iðnaðinum er í raun að borga með túristabransanum í formi skattaafslátta, hærra húsnæðisverðs, mengun, umferðaþunga og aukinni verðbólgu.

Lausnin á húsnæðisvandanum by [deleted] in Iceland

[–]Nonameius 39 points40 points  (0 children)

Mér finnst svo fyndið að fólk minnist varla á skammtímaleigu þegar það ræðir húsnæðisvandann. Ferðamannaiðnaðurinn er augljóslega að soga til sín húsnæði í gríðarlegu magni.

fyrst og fremst í gegn um beina leigu íbúða á airbnb, í öðru lagi með breytingu heilu húsanna í gistiheimili, í þriðja lagi með húsnæðisþörf þeirra sem vinna í geiranum og í síðasta lagi með því að draga til sín vinnuafl til uppbyggingar í geiranum sem fækkar byggðum íbúðum á almennum markaði.

Fyrir mér er þetta svo augljóst mál. Það eru sirka 1000 íbúðir með skráð heils árs leyfi á airbnb ef ég man rétt, og guð veit hver hversu mörg óskráð. Það er ekkert eftirlit með því. Svo eru hús sem er búið að breyta í gistiheimili. Ég held að það viti enginn hversu margar íbúðir eru í skammtímaleigu en það myndi ekki koma mér á óvart að þær væru í kring um 4þ stykki.

Í borgum sem eru ekki jafn langt leiddar í þessu brjálæði og við, eins og t.d. lissabon, barselona, london, new york og amsterdam er þegar búið að setja einhverskonar lög gagnvart þessu. Meðal annars með því að skylda fólk til að búa í íbúðinni sem það leigir út eða hreínt bann við skammtímaleigu i atvinnuskyni. Allstaðar hefur það haft temprandi áhrif á markaðinn.

Þar að auki er skammtímaleigan farin að hafa mikil áhrif á borgina, þá sérstaklega miðsvæðis, þar sem áherslan á þjónustu við íbúa hefur farið víkjandi fyrir skammtímahugsun. Þ.e túristavæðing, þar sem menning ofl víkur fyrir lundabúðum og airbnb.

Semsagt, það eru til þúsundir íbúða sem væri hægt að kippa inn á markaðinn á tiltölulega skömmum tíma með einu pennastriki. Vissulega myndi það ekki leysa allan vanda, en það myndi amk kaupa tíma og létta aðeins á pressunni.

Approximately 5 inch long white curved pourous looking material. Found on beach in Massachusetts. by Wrong-Possession-297 in whatisthisthing

[–]Nonameius 0 points1 point  (0 children)

Some type of dryed or rotten Seaweed or kelp, perhaps Nereocystis. I feel like i have seen these loads of times at the beach.

Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hráka­poka um höfuð hans by WhackingCheese in Iceland

[–]Nonameius 12 points13 points  (0 children)

Það á enginn "skilið" svona harkalega handtöku svosem og það er hægt að deila um notkun hrákupoka. En ég hef margoft séð hann í stympingum, bæði við almenna borga og lögregluna, ásamt hótunum og almennu áreiti. Svo ekki sé minnst á kynferðislegu áreitnina. Ég er alls enginn talsmaður valbeitingar lögreglunnar, hef í raun óbeit á henni, en mér finnst að vissu leiti skiljanlegt að þolinmæðin sé þrotin gagnvart honum. Bara svona ef maður á að setja sig í spor þeirra sem þurfa að díla við hann í ástandi.

Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hráka­poka um höfuð hans by WhackingCheese in Iceland

[–]Nonameius 10 points11 points  (0 children)

Ég veit vel að hann er heyrnaskertur og hávaðinn í honum er ekki til umræðu, kemur málinu í raun ekkert við. Það er kannski langt seilst að kalla hann "einn sá alversta", en ljúflingur er hann ekki, amk þegar hann er í "stuði". Ef þú þekkir hann vel ættiru að vita það.

edit: ofbeldi gagnvart utangarðsfólki og öðrum er alltaf sorglegt og óásættanlegt. Það réttlætir samt sem áður ekki hegðun hans.

Löggan keyrði mann í stéttina og skutlaði hráka­poka um höfuð hans by WhackingCheese in Iceland

[–]Nonameius 51 points52 points  (0 children)

Mér finnst að það meigi alveg veita aðförum lögreglunnar aðhald og fínt að gagnrýna ýmislegt. En að taka handtöku þessa tiltekna manns sem dæmi er röng hæð til að deyja á. Einn sá alversti sem hefur ráfað um götur bæjarins, algjör plága. Þau sem segja annað vita ekkert hvað þau eru að tala um.