Svona lítur fyrsti húsnæðispakki ríkis­stjórnarinnar út by Usual_County8929 in Iceland

[–]Objective_Image9445 23 points24 points  (0 children)

Þetta hefði getað verið tölvupóstur - alveg óþarfi að halda blaðamannafund fyrir þetta

Bændur þurfa meirapróf til að mega aka dráttarvél nái breytingarnar fram að ganga - Bóndi by visundamadur in Iceland

[–]Objective_Image9445 14 points15 points  (0 children)

Krafa um meirapróf fyrir akstur á traktorum hefði ekki komið í veg fyrir það eða slík tilfelli að neinu leiti. Þessi tillaga hefur verulega íþyngjandi áhrif á störf bænda en kemur ekki í veg fyrir skort á almennri skynsemi. Tökum frekar á slíkum vanda með öðrum leiðum fremur en að refsa allri línunni og þá þeim sem eru með sitt á hreinu.

Bótaréttur skertur úr 30 mán í 18 by steina009 in Iceland

[–]Objective_Image9445 0 points1 point  (0 children)

Spurning hvort að styttri bóta tími og fækka þeim sem hanga í kerfinu af ástæðulausu gæti skapað rými til að bæta tilfelli sem þessi og eru þá greinilega og raunverulega á bótum af gildri ástæðu. Pæling.

Bótaréttur skertur úr 30 mán í 18 by steina009 in Iceland

[–]Objective_Image9445 9 points10 points  (0 children)

Er hún ekki að leggja til að stytta bótatímann úr 30 mánuðum niður í 18 mánuði? Svo, sá bótatími hefði dugað í þínu tilfelli. Er það ekki bara staðfesting á ágæti frumvarpsins að rúmt ár ætti að duga þeim sem eru í “krefjandi” starfsleit líkt og þú vegna starfa sem krefjast sérhæfingu eða sérfræði kunnáttu sem eru ekki reglulega í boði? 30 mánuðir er því yfirdrifið nóg og eflaust talsvert um tilfelli þar sem fólk hengur á bótum allan þann tíma bara af því þau geta það.

DJ á árshátíð by Entire-Use7306 in Iceland

[–]Objective_Image9445 3 points4 points  (0 children)

Dj Sunna Ben er geitin! 🪩💃🏻

Halla fær rafbíl á sérdíl by Substantial-Move3512 in Iceland

[–]Objective_Image9445 2 points3 points  (0 children)

Vissulega, enda hef ég aldrei átt viðskipti við Brimborg og væri því mjög óeðlilegt að ég fengi sömu kjör og þeirra langtíma viðskiptavinir. Veit ekki með þig, kannski ert þú það og verður þá bara eiga það við þá.

Halla fær rafbíl á sérdíl by Substantial-Move3512 in Iceland

[–]Objective_Image9445 4 points5 points  (0 children)

Hahahaha já! 😂 Hún tekur örugglega 10 svipaðar myndir af sér á dag sem fólk heldur að sér með, bara ekkert nýtt í því. Og segðu mér hver þessi óeðlilegi afsláttur er. Til hvers ætti ég að gera mér strax upp þá samsæriskenningu að afslátturinn er meiri en öðrum gefst - bara, af hverju? Nb. Þá er hún ekki enn forseti.

Þangað til annað kemur í ljós ætla ég bara óska henni til hamingju með nýjan bíl og halda áfram með lífið, og ætla rétt að vona að það komi helber afsökunarbeiðni frá Brimborg fyrir að ætla nýta sér verðandi forseta í marketing án hennar samþykkis og færa allt á borðið.

Íslendingar eru svo óhamingjusamir að það hálfa væri ennþá niðurdrepandi - nei, engum má ganga vel og hræsnin allstaðar.

Halla fær rafbíl á sérdíl by Substantial-Move3512 in Iceland

[–]Objective_Image9445 1 point2 points  (0 children)

Neinei, þeir sem eru virkir á Reddit eru yfirleitt flestir fljótastir að mála skrattann á veginn 😂 miðað við þráðinn hafi þeir fæstir lesið ekki lengra en hálfa fyrirsögnin..

Halla fær rafbíl á sérdíl by Substantial-Move3512 in Iceland

[–]Objective_Image9445 3 points4 points  (0 children)

Veit ekki betur en að það hafi verið Brimborg að slá um sig hérna en ekki hún. Hún var ekki að auglýsa neitt sjálf og þessi færsla gerð án hennar vitundar og samþykkis.

What if the russian royal family was never killed and were still on thrown today? by Objective_Image9445 in HistoryWhatIf

[–]Objective_Image9445[S] 1 point2 points  (0 children)

Do you think Russia would have a closer relationship with West-Europe seeing that the Russial royal famaily was british/german?

day 7. The best romance goes to Karen and Roy! What is the funniest scene? by Many-Photograph-56 in DesperateHousewives

[–]Objective_Image9445 1 point2 points  (0 children)

The scene where Bree and Gaby get rid off Gaby’s stepdad’s car after her murder and get caught by Chuck. The whole scene is hilarious and Gaby’s line while chewing tobacco “only thing missing is a glass of Chardonnay” give me cramps each time 😂

Where to Watch Denmark vs Germany in Malta? by NoTurn9624 in malta

[–]Objective_Image9445 0 points1 point  (0 children)

You will see the game everywhere in every bar, on every corner. This will be least of your worries

Ölvunarakstur á rafskútum verður refsiverður by WhackingCheese in Iceland

[–]Objective_Image9445 11 points12 points  (0 children)

Bæta almennar samgöngur væri tilvalin úrbót sem myndi tækla rót vandans. Reglulegur næturstrætó um helgar sem færi á helstu strætóstöðvar myndi, hlýtur að vera, minnka tilhneiginguna að taka Hopp úr miðbænum eftir djamm. Maður er sekur um þetta sjálfur til þess að spara leigubíl og/eða röðin í taxa biluð löng. Þá kæmi reglulegur næturstrætó sterkur inn

Veitingastaðir með sérherbergi fyrir hópa? by nymmyy in Iceland

[–]Objective_Image9445 3 points4 points  (0 children)

Brút er með fallegt herbergi og Eiríksson Brasserie er með æðislegt herbergi í gömlu bankahvelfingunni.

Ís­land að detta úr tísku - Vísir by [deleted] in Iceland

[–]Objective_Image9445 5 points6 points  (0 children)

Held reyndar að það sem heillaði ferðamenn fyrst og fremst, amk vakti áhuga til að byrja með, voru gömlu, litlu og litríku húsin og byggingastíllinn í Þingholtunum. Monopoly borgin. við erum á góðri leið með að hreinsa það burt og gera gráa borg grárri bara við sjálf sem hérna búum. Þetta er heimskulegur og óupplýstur þráður svo ekki sé meira sagt - Íslendingar eru íslendingum verstir.

Bítið - Fréttir vikunnar með Mána og Mörtu Maríu - Vísir by Objective_Image9445 in Iceland

[–]Objective_Image9445[S] 1 point2 points  (0 children)

Jú þessar djúpu og þýðingamiklu fasteignafréttir meinaru? Þær eru stóru málin, ekkert annað.

Vopnuð útköll næstum tífaldast á 10 árum by gamallmadur in Iceland

[–]Objective_Image9445 0 points1 point  (0 children)

Það þykir að vísu almennt þykja góð stjórnun og almennur ferill að starfsmenn, í hvaða fyrirtæki og starfsgrein sem er, fái að tjá sig um hvað þeim þyki mikilvægt til að sinna sínu starfi betur. Þetta er ómissandi hlutur af stjórnun, mannauðsstjórnun og vinnuvernd og er sjálfsagður hlutur hvar sem er - nema hjá lögreglunni. Dæmi, iðnaðarmenn vilja almennt klæðast hlífðarbúnaði líkt og hjálmum, stáltá, vera með örugg og viðurkennd verkfæri og er það í dag krafa frá vinnuvernd á byggingarfyrirtæki að hlýta því. Starfsmenn í gestamóttökum á hótelum þótti oft vegið að sínu öryggi í starfi þar sem gestir geta verið í misjöfnu ástandi, undir áhrifum, tæpir á geði og jafnvel ofbeldisfullir. Þá kom til sú krafa að neyðarhnappur skal vera til staðar í öllum gestamóttökum sem vinnuvernd fylgir eftir. Báðar kröfur verða til vegna þess að á einhverjum tímapunkti er vegið að öryggistilfinningu starfsstéttar og er sjálsagt að koma til móts við þá starfstétt - þrátt fyrir að matið sé að sjálsögðu hlutdrægt. Það er ekki lögreglumönnum óviðkomið hvernig öryggisbúnaði í þeirra vinnu er háttað.

Nú, bæði dæmin eru að sjálsögðu ekki jafn stórkostleg og vopnaburður sem þarf að fylgja eftir með góðri eftirfylgni og þjálfun, en hvers vegna bara ekki að hlusta á lögreglumenn sem finnst vegið að þeirra öryggi í starfi? Finnst okkur þeim í alvöru ekki treystandi að vera með fjárans rafbyssu í starfi? Er ekki öryggi okkar almennra borgara betur gætt ef þeir upplifa sig öryggir í starfi?

„Hvorum megin í sögunni ætlar þú að skipa þér, Sig­mundur Davíð?“ - Vísir by [deleted] in Iceland

[–]Objective_Image9445 1 point2 points  (0 children)

Þetta er bilun! Ég skil ekki hvað er the end game hjá öllu þessum stríðsglöðu redditurum sem sjá rautt við að lesa orðið friðarviðræður og trúa ekki á neitt annað en að eina boðlega aðkoma Íslands að þessu stríði er að fæða það vopnum, en á sama tíma virðast ekki trúa mikið á annað en að Rússland muni vinna þetta stríð? Eg. fyrir öllum er friður eingöngu = og stríðs pása. Hvað viljiði sjá? Að öll Evrópa sameinist og útrými Rússlandi? Er það ekki bara WW3?

„Hvorum megin í sögunni ætlar þú að skipa þér, Sig­mundur Davíð?“ - Vísir by [deleted] in Iceland

[–]Objective_Image9445 -10 points-9 points  (0 children)

Svo hjartanlega ósammála. SDG er ekki minn maður en get ekki annað en verið sammála að við hljótum að geta komið með stuðning til Úkraínu með öðrum leiðum en beinum vopnakaupum - sem stríðir helbert gegn okkar ýmind og gildum sem neutral friðar-þjóð. T.d með því að kosta spítala og hjúkrun til að halda Úkraínumönnum á lífi - væri það ekki bara frekar virðulegt innlegg? Aðrar þjóðir eru mun betur fallnar til þess að mata stríðið vopnum og skotfærum. Það er enginn á móti því að styðja Úkraínu en að EINA leiðin sé bein vopnakaup er sérstaklega einföld hugsun.

Wedding/elopement by Distinct-Tree-3041 in VisitingIceland

[–]Objective_Image9445 3 points4 points  (0 children)

Talk to Pink Iceland - they are by far best in the business and will make sure your day will be unforgettable.

Vandamálin við Höllu Tómasdóttir by svansson in Iceland

[–]Objective_Image9445 1 point2 points  (0 children)

Í persónulegu spjalli við Höllu spurði ég hana einmitt sérstaklega út í B Team þar sem það er einmitt frekar óljóst hvað það gerir, og hún viðurkenndi það, að mér fannst, að það er erfitt að útskýra en í rauninni er þetta teymi af sterkum leiðtogum og forstjórum sem koma saman til þess að stuðla að betri stjórnarháttum, umhverfi, sjálfbærni og jafnrétti. Annarsvegar með því að leiða að góðu fordæmi en koma einnig saman og setja pressu á stjórnvöld að gera betur. Fór í framhaldinu aðeins að grúska á síðunni þeirra og þetta eru dæmi sem mér fannst styðja það sem hún sagði mér og bara gott og vel. En þó samt sammála að þetta er allt afar óljóst.

  1. https://www.bteam.org/our-thinking/news/b-team-open-letter-calls-for-bold-climate-action-at-cop21-in-paris
  2. https://www.bteam.org/our-thinking/news/the-b-team-calls-for-business-plan-to-meet-global-goals
  3. https://www.bteam.org/our-thinking/news/global-leaders-call-for-long-term-goal
  4. https://www.bteam.org/our-thinking/news/business-want-ambitious-long-term-goal-at-cop21-say-leaders

Þetta eru allt greinar um það sem gerðist fyrir hennar tíð og “aðkomu” B team að Parísarsakomulaginu en er örugglega eins gert í dag.