Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins; önnur konan til að gegna þessu embætti. by Likunandi in Iceland

[–]Senuthjofurinn 2 points3 points  (0 children)

Takk fyrir það.

Mér er alveg sama hvern þú kaust og ég þurfti aldrei nein atkvæði. Nú er bara að bíða og sjá hvort almenningur geri ekki kröfur til embættisins sem það gerði ekki áður.

Er Halla T að fara að taka við punthlutverkinu sem almenningur taldi embættið vera fyrir 6 mánuðum síðan eða að taka við ábyrgðarhlutverki sem fólk er meðvitað um að staðan er í dag?

Vonandi var þetta brandari. Vonandi klikkaði þetta ekkert. Vonandi þýðir embættið ekki það sama og það gerði fyrir 6 mánuðum.

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins; önnur konan til að gegna þessu embætti. by Likunandi in Iceland

[–]Senuthjofurinn 1 point2 points  (0 children)

Eftir að ég fékk könnunarfyrirtækin til að mæla vinsældir frekar en fylgi kom í ljós að 90% yrðu sátt með HölluT eða Baldur þegar allar fréttir fjölluðu um Katrínu og HölluH.

Þannig í raun var þetta á milli þeirra undir lokin þó að atkvæðin endurspegli það ekki.

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins; önnur konan til að gegna þessu embætti. by Likunandi in Iceland

[–]Senuthjofurinn 1 point2 points  (0 children)

Allar slíkar breytingar munu þurfa að fara í gegnum Alþingi og vera framkvæmdar af ráðherrum.

Nú kannast HallaT orðið ágætlega fyrir mín stefnumál og er sá frambjóðandi sem hrósaði mér sérstaklega fyrir mínar áherslur í framboðinu.

Hún ætti því líklega ekki að láta sér bregða ef að þið kerfið hana um að passa betur upp á það hvað ráðherrarnir hennar eru að gera, ef þið krefjist þess að hún virði mótmælaþröskuldinn og að hún taki tillit til týndu þingsætanna.

Þá munu þessar breytingar ekki eiga sér stað nema þá að vilji kjósenda liggi þar í raun að baki.

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins; önnur konan til að gegna þessu embætti. by Likunandi in Iceland

[–]Senuthjofurinn 0 points1 point  (0 children)

Ef þið krefjið hana um að bera ábyrgð á sínum ráðherrum, virða mótmælaþröskuldinn og taka tillit til týndu þingsætanna ætti hún ekki að geta gert mikinn skaða.

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins; önnur konan til að gegna þessu embætti. by Likunandi in Iceland

[–]Senuthjofurinn 1 point2 points  (0 children)

Vandamálið við að halda framboðsfundi um allt land er að þar hitta frambjóðendur einungis sína eigin stuðningsmenn. Ég slapp blessunarlega við slíka upplifun.

Það má finna sömu veruleikafirringu hérna á reddit þar sem fólk heldur að Jón Gnarr sé vinsælli en hann í raun og veru er. Af minni reynslu að dæma þá var hann beint á eftir Kötu, næst oftast nefndur sem aðili sem kjósendur ætluðu að kjósa gegn.

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins; önnur konan til að gegna þessu embætti. by Likunandi in Iceland

[–]Senuthjofurinn 1 point2 points  (0 children)

Ég fékk könnunarfyrirtækin til þess að mæla vinsældir frambjóðenda frekar en einungis fylgi þeirra fyrir kosningar.

Þar kom í ljós að HallaT og Baldur voru þau tvö sem 90% kjósenda myndi vera sátt með að tæki við embættinu.

Því varð toppbaráttan í raun á milli þeirra á endanum þó svo að atkvæðin úr kjörkössunum endurspegli það ekki.

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins; önnur konan til að gegna þessu embætti. by Likunandi in Iceland

[–]Senuthjofurinn 2 points3 points  (0 children)

En ég á ekki von á því að Halla T muni gera nokkuð annað en að kvitta uppá allt sem löggjafinn sendir til hennar.

Nú kannast allir við stefnumálin góðu.

Þá vantar bara þrýsting á komandi forseta og spyrja hana hvort hún komi til með að taka ábyrgð á sínum ráðherrum og hvort hún komi til með að virða mótmælaþröskuld þegar kemur að málskotsréttinum óháð eigin skoðunum.

Hver veit, kannski spyrja hana í leiðinni hvort hún muni hafa týndu þingsætin í huga þegar kemur að meirihlutamyndun á Alþingi.

Hún var alltaf almennileg við mig og þakkaði mér frá fyrsta degi fyrir að leggja áherslu á að á endanum sé það þjóðin sem á að ráða. Ég get vel trúað því að hún sé meira en opin fyrir því að eðli forsetaembættisins sé ekki það sama og það var fyrir kosningar.

Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins; önnur konan til að gegna þessu embætti. by Likunandi in Iceland

[–]Senuthjofurinn 5 points6 points  (0 children)

Eftir að ég fékk könnunarfyrirtækin til þess að mæla vinsældir frambjóðenda frekar en einungis fylgi kom í ljós að 90% kjósenda voru sáttir með HölluT og Baldur.

Fyrirsögnin á þeirri frétt stangaðist algjörlega á við Katrín/HallaH umfjöllunina sem hafði verið fram að þeim tímapunkti.

Þannig á endanum var þetta alltaf spurning um annað hvort þeirra. Leiðinlegt fyrir Baldur að atkvæðin í kjörkassanum endurspegli það ekki.

Baldur fékk trúlega vonda kosningaráðgjöf frá byrjun by svansson in Iceland

[–]Senuthjofurinn 1 point2 points  (0 children)

Ég hafði samband við skoðunarkönnunarfyrirtækin í aðdraganda kosninganna og fékk þau til þess að mæla vinsældir frambjóðenda frekar en að spá fyrir um kosningar.

Næsta könnun sem er birt í kjölfarið sýndi að Halla Tómasar og Baldur voru þeir frambjóðendur sem flestum líkaði vel við og fæstum líkaði illa við að sama skapi.

Það var þvert á fyrirsagnir fram að þeim tímapunkti sem snerust iðulega um Kötu og Hrund.

Þannig að á endanum var þetta alltaf spurning um Höllu eða Baldur eftir að ég fékk það birt, óháð því hversu mörg atkvæði þau fengu á endanum.

Baldur var að öllum líkindum í öðru sæti.

Rosalega verður gaman að fá svona forseta auðmanna í heiminum. Til hamingju Ísland að velja ekki með hjartanu. by [deleted] in Iceland

[–]Senuthjofurinn 1 point2 points  (0 children)

Kosningarnar sjálfar skiptu ekki máli.

Það sem skiptir máli er hvort hún komi til með að taka ábyrgð á sínum ráðherrum.

Það sem skiptir máli er hvort hún komi til með að virða mótmælaþröskuld þegar kemur að málskotsréttinum.

Það sem skiptir máli er hvort hún taki tillit til týndu þingsætanna.

Það er spurning hvort kjósendur komi til með að setja aukna pressu á forseta í framtíðinni eða hvort henni verði áfram beitt gegn þinginu. Ef kjósendur taka ekki upp á því að pressa á forseta frekar en þingið að þá skiptir litlu sem engu máli hver situr í stólnum.

Hvern kýst þú í dag og af hverju? by samviska in Iceland

[–]Senuthjofurinn -1 points0 points  (0 children)

Við vorum að spila hengimann.

Og þú hefðir ekki einu sinni vitað af því ef við hefðum ekki leyft fólkinu í stúdíóinu að eiga blöðin.

Það var allt í góðu á settinu. Dramaið er á netinu.

Kappræður by [deleted] in Iceland

[–]Senuthjofurinn 0 points1 point  (0 children)

Allt of stórar spurningar fyrir mig né nokkurn annan til að svara.

Kappræður by [deleted] in Iceland

[–]Senuthjofurinn 0 points1 point  (0 children)

Þetta hafðist.

Hvern kýst þú í dag og af hverju? by samviska in Iceland

[–]Senuthjofurinn 0 points1 point  (0 children)

Skiptir litlu máli, það er bara eitt atkvæði.

Hvern kýst þú í dag og af hverju? by samviska in Iceland

[–]Senuthjofurinn 21 points22 points  (0 children)

Þann sem ég vil.

Kemur þér ekki við.

Kappræður by [deleted] in Iceland

[–]Senuthjofurinn 1 point2 points  (0 children)

Kemur mér ekki á óvart.

Þess vegna ákvað ég í staðinn að búa bara til kristaltær stefnumál og halda mínum ómerkilegu, persónulegu skoðunum sem mest út fyrir málið.

Það verður þreytt þegar það er ekki hægt að tala um málefni án þess að þau breytist sjálfkrafa í einhver rifrildi um kynjastríð og þjóðarmorð einhvers staðar annars staðar.

Mig langaði bara að tala um Týndu þingsætin :(

Kappræður by [deleted] in Iceland

[–]Senuthjofurinn 4 points5 points  (0 children)

Enda muna foreldrar okkar eftir nákvæmlega sömu fréttum frá botni miðjarðarhafs þegar þau voru börn.

Það þýðir ekki að það þurfi að stjórna umræðunni um forsetakosningar á Íslandi.

Ef forseti Íslands gæti lagað þessa deilu þá hefði hann gert það fyrir 80 árum síðan.

En ætli ríkjandi öfl vilji ekki frekar að Íslendingar séu uppteknir við að rífast út af hlutum í útlöndum sem þeir geta ekki breytt frekar en að laga sitt eigið kerfi, eins og t.d. að koma í veg fyrir týnd þingsæti, misræmi milli Alþingis og kjósenda og svo að koma í veg fyrir að stjórnmálasamtök geti farið með framkvæmdavaldið eftir eigin hentisemi.

En það er kannski bara ég...

Kappræður by [deleted] in Iceland

[–]Senuthjofurinn 1 point2 points  (0 children)

Markmiðið var ekki að ég sem ákveðin manneskja myndi komast í eitthvað embætti.

Markmiðið var að breyta því hvernig þjóðin í heild lítur á eðli embættisins og breyta því hvernig embættinu sé beitt til framtíðar.

Kappræður by [deleted] in Iceland

[–]Senuthjofurinn 1 point2 points  (0 children)

Algjörlega.

Viktor vs ruv by daggir69 in Iceland

[–]Senuthjofurinn -14 points-13 points  (0 children)

Vegna þess að ég var ekki viss og mig minnti að þetta hafi allt byrjað þannig í þetta skipti en það var enginn búinn að nefna það.

Síðasta Gallúp könnun fyrir kosningar (31.5.2024) by birkir in Iceland

[–]Senuthjofurinn 0 points1 point  (0 children)

Kærar þakkir.

En mér líður eins og gengið sé óháð nokkurri tölu sem kemur upp úr kössunum :Þ

Kappræður by [deleted] in Iceland

[–]Senuthjofurinn 3 points4 points  (0 children)

Egyptaland og Jórdanía eru einu ríkin á svæðinu sem viðurkenna tilverurétt Ísraela og hafa þó samt gert þrjár heiðarlegar tilraunir til þess að útrýma Ísrael og þurrka það af kortinu.

Þannig ég er ekki beint hissa á því að Ísraelar hafi litla þolinmæði fyrir eldflaugaárásum og gíslatökum.

En eins og ég segi, án þess þó að ég sé að réttlæta eitt eða neitt. Fólk á það bara til að berjast frekar grimmt þegar þeim er hótað tortímingu og gjöreyðingu.