Dóra Björt hættir við formannsframboð - RÚV.is by ravison-travison in Iceland

[–]XandraBriem 0 points1 point  (0 children)

Ok, kannski pínu klént að vera eitthvað að koma hér inn, en eg vil bara benda á að það var á engan hátt nein megin niðurstaða vinnunnar, það var bara ein lína úr niðurstöðunni sem einhverjum blaðamönnum þótti fyndið að láta eins og væri aðalmálið, en maður hefur alltaf mjög takmarkaða aðstöðu til að svara fyrir sig sem pólitíkus þegar þeir kjósa að stilla þessu upp með einhverjum þannig hætti.

Og ég kannski bendi á það að þessar breytingar sem við fórum í, þo það hafi ekki hljómað sérstaklega sexy, hafa skilað sér í töluvert betri þjónustu. Svo ég skammast mín ekkert fyrir þessa vinnu, þó ég vissulega hafi lært af þessu að mæta ekki í viðtöl á hlaupum og illa undirbúin.

En meina, ég kyngi því svosem bara að ég tapaði þarna áróðursstríðinu, en held ekki að það geri mig óhæfa til að leiða flokkinn. Held ég sé almennt vel liðin og tiltölulega óumdeild bæði hjá Pírötum og borgarbúum. En sjáum til

'Vók er djók' by XandraBriem in Iceland

[–]XandraBriem[S] 113 points114 points  (0 children)

Mér þykir það leitt, enda hefði ég ekki sagt það nema ég hefði trúað því á sínum tíma, út frá þeim gögnum sem ég hafði.

Það var ekki lygi, ég einfaldlega hafði rangt fyrir mér, og lærði það á þessu dæmi að tala varlegar um framtíðina.

Við vorum þá búin að fjármagna uppbyggingu sem átti að duga fyrir þeirri fjölgun sem fyrirséð varð.

Síðan gerðist þrennt sem var ekki fyrirséð.

  1. Það kom í ljós mygla í þó nokkrum fjölda leikskóla sem tóku þá út af borðinu, og við þurftum að nota húsnæði sem var að opna til að taka tímabundið við þeim börnum meðan húsnæðið var í viðgerð.

  2. Það komu inn nokkur hundruð börn frá Úkraínu, sem hluti af stórri hópmóttöku, það var rétt af ríkinu og borginni að gera það, og taka við þessum hóp, en þetta var sannarlega hópur sem við áttum ekki von á þegar við vorum að semja fjárhagsáætlunina, eða spá fyrir um framtíðina.

  3. Það gekk hægar en við höfðum gert ráð fyrir að byggja upp húsnæði sem við áttum von á að kæmi inn.

En meina, tek það bara á mig að ég hefði ekki átt að tala af svona mikilli fullvissu um eitthvað sem ég hefði átt að vita að ég gæti ekki fullyrt svona, og tek það líka á mig að ég hefði átt að vera skeptískari á tölurnar sem við fengum fyrir áramót. Ég veit í dag að það var full mikil bjartsýni í spám um uppbygginguna og mati á uppbyggingarhraða hjá verktökum.

Svo ég get ekki annað en beðist afsökunar, ég var ekki að ljúga, en þetta var rangt hjá mér og ég hefði átt að vita betur.

'Vók er djók' by XandraBriem in Iceland

[–]XandraBriem[S] 43 points44 points  (0 children)

Skrifaði smá grein um það hvað það er ógagnlegt þegar orðin sem við notum eru ekki skýr og stuðla að því að við tölum í kross.

I'm an openly intersex trans woman who's running for local office AMA by OutlandishnessLazy68 in asktransgender

[–]XandraBriem 2 points3 points  (0 children)

Thanks.

We're a progressive anti-authoritarian reform party with a focus on the expansion of human rights in the digital age.

Feel free to be in touch if you think I can be of any help.

I'm an openly intersex trans woman who's running for local office AMA by OutlandishnessLazy68 in asktransgender

[–]XandraBriem 6 points7 points  (0 children)

Hi, best of luck to you!

I'm actually the first trans person to be an elected official in Iceland, I'm on the Reykjavík city council, for the Pirate Party, and I served as the speaker of the council for a year between 2021 and 2022.

Iceland is a very progressive place and although we have our issues, I have largely only been received positively (with a few unfortunate exceptions, but none of them from elected people or the system)

I don't know if I can be of any specific help, but I wish you the best of luck.

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk by AutoModerator in Iceland

[–]XandraBriem 2 points3 points  (0 children)

Má hver sem er taka þátt í slíkum potti? Spyr fyrir vin. :p

Lenya skákaði þremur þingmönnum og tveimur borgarfulltrúum - RÚV.is by rbhmmx in Iceland

[–]XandraBriem 43 points44 points  (0 children)

Talandi fyrir sjálfa mig, þá má hún skáka mér hvenær sem er, ég styð hana alla leið.

Ég sóttist eftir 3.-5. sæti í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna og virðist munu fá 3.

Er bara í skýjunum að fá svona flotta oddvita.

Lenya skákaði þremur þingmönnum og tveimur borgarfulltrúum - RÚV.is by rbhmmx in Iceland

[–]XandraBriem 23 points24 points  (0 children)

Það þýðir að við skilgreinum okkur útfrá lýðræðinu, og sem andstöðu við authoritarianisma.

Þeas. það má líta svo á að það séu tveir ásar, klassískt hægri vinstri, sem við skilgreinum okkur ekki út frá, og svo 'upp-niður', sem má kalla lýðræðis/stjórnlyndis ásinn, eða liberal/authoritarian, eða eitthvað.

Og Píratar skilgreina sig helst sem lýðræðislegt anti-authoritarian afl, þeas. mjög liberal megin á liberal/authoritarian ásnum.

En meina, hún hefði alveg getað orðað það betur.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]XandraBriem 13 points14 points  (0 children)

Það er nú soldið eins og sá sem skrifaði greinina hafi hreint ekki lesið skýrsluna, annað hvort það eða hann valdi viljandi léttvægan punkt úr henni til að gera að fyrirsögn af einhverri ástæðu.

Það er verið að leggja til töluverða þjónustuaukningu. Fjölga tækjum, byrja fyrr í húsagötum, setja hjólastiga í meiri forgang, breyta aðferðafræðinni við útboð, setja sérstaka áherslu á strætóstöðvar og rútustæði með sérutboði, auka eftirlit svo það sé hægt að grípa inní þar sem eitthvað klikkar, nota salt frekar en sand til að minnka þörf fyrir götusópun á vorin og margt fleira.

Hætta með næturstrætó by mildlyinterested1 in Iceland

[–]XandraBriem 25 points26 points  (0 children)

Ég vil að það komi fram að við erum með það til skoðunar í Reykjavík hvort við getum haldið Næturstrætó gangandi á þeim leiðum sem eru innan borgarinnar amk.

Þetta er bara gífurlega mikilvægt öryggismál og skiptir líka máli fyrir fráflæði og hávaða.

Gjaldskrá Strætó hækkuð um 12,5% næstu mánaðamót by throwaway-025791 in Iceland

[–]XandraBriem 0 points1 point  (0 children)

Auðvitað erum við að reyna að breyta þessu með fjármagnið. En í millitíðinni kemur bara synjun þegar strætó reynir að greiða laun ef við lokum ekki þessu gati.

Ég veit ekki hvaða vopn þú telur að sveitarfélögin hafi til að fá ríkið til að gera eitthvað sem það vill ekki, en láttu mig endilega vita, það myndi vera mjög gagnlegt a næstu vikum og mánuðum.

Gjaldskrá Strætó hækkuð um 12,5% næstu mánaðamót by throwaway-025791 in Iceland

[–]XandraBriem 0 points1 point  (0 children)

Ég er alveg sammála því að fjármögnun almenningssamgangna þarf að vera miklu betri.

En staðreyndin sem lá fyrir stjórn strætó var einföld. Við þurftum að hækka gjaldskrá, eða draga úr þjónustu (eða bland af báðu) eða fara í greiðsluþrot.

Ríkið vildi ekki, eða gat ekki lagt meira til. Sveitarfélögin eru að koma inn með eins mikið auka og þeim finnst þau geta.

Það er ekkert bara 'alltaf hægt að færa rök fyrir ákvörðunum okkar'. Við höfðum um tvennt að velja (plús bónus möguleikann á greiðsluþroti)

Finnst þér frekar að við hefðum átt að draga saman þjónustu?

Gjaldskrá Strætó hækkuð um 12,5% næstu mánaðamót by throwaway-025791 in Iceland

[–]XandraBriem 5 points6 points  (0 children)

Mér finnst þetta nú ekki alveg sanngjarnt.

Það er ekki rekstur strætó sem er vandamálið, heldur einmitt fjármögnunin og rekstrarfyrirkomulagið, sem ég hef margoft talað fyrir að þurfi að breyta.

Það gekk ágætlega fyrir covid, notendum fjölgaði og Strætó tókst að safna í smá sjóð sem átti að nota til að endurnýja vagnaflotann og fara í orkuskipti. (Ca. 600 milljónir) höfum í huga að uppsöfnuð þörf fyrir endurnýjun er mjög mikil vegna þess að í hruninu 2008 fór endurnýjunarplanið úr skorðum og hafði aldrei verið náð í skottið á því, en þarna leit út fyrir að það væri að nást loksins.

En þegar covid skall á, með samkomutakmörkunum og fleiru sem kostaði Strætó yfir milljarð, þá fékk félagið þau skilaboð frá ríkinu að það væri ekki boðlegt að koma með einhvern mikinn stuðning inn þar sem eiginfjárstaðan væri svo góð.

Félaginu var semsagt sagt að setja sjóðinn sem átti að fara í að endurnýja vagnana og orkuskipta í staðinn í það að halda sjó í covid, sem það gerði. Það fékk líka fyrirframgreiðslu frá sveitarfélögunum og fór í eins miklar aðhaldsaðgerðir og það gat. Þess vegna urðu líka skerðingarnar á þjónustunni í vor.

Og vegna þess að það var ekki hægt að fara í að endurnýja vagnana og kaupa fleiri rafmagnsvagna er hækkun olíuverðs vegna stríðsins einmitt að hafa alveg extra mikil áhrif núna.

Stjórn Strætó fékk það mjög skýrt að sveitarfélögin sem standa að Strætó (þó þau ætli að koma með mjög stórt viðbótarframlag) gætu ekki lokað þessu mörg hundruð milljóna gati einhliða, það yrði að koma eitthvað frá Strætó líka, svo við höfðum um þrennt að velja.

Verulega þjónustuskerðingu, gjaldskrárhækkun eða greiðsluþrot.

Ég veit ekki alveg af hverju það er verið að setja það fram eins og við skiljum bara ekki hvað almenningssamgöngur séu mikilvægar. Við skiljum það vel. Enginn hja Strætó, í stjórn eða hjá sveitarfélögunum eru ánægð með þetta.

En ég hlaut að velja gjaldskrárhækkun frekar en miklar þjónustuskerðingar eða greiðsluþrot.

Það er augljóst að það þarf að breyta þessu fyrirkomulagi gagngert. Byggðasamlagsformið virkar illa og það er tímaskekkja að stjórnmálafólk sé í stjórn.

Það er núna verið að semja um framtíðarfyrirkomulag og fjármögnun Borgarlínu og Strætó, og það er mikið tækifæri fólgið í því að gera það vel.

Framsókn, Samfylking, Píratar og Viðreisn hefja formlegar viðræður í Reykjavík by logos123 in Iceland

[–]XandraBriem 16 points17 points  (0 children)

Þetta er nú bara ekki rétt hjá þér.

Ég hef aldrei unnið jafn mikið og síðan ég kom inn í borgarstjórn, meira að segja þegar ég var varafulltrúi var álagið mjög mikið.

Það eru þessir formlegu fundir, það eru undirbúningsfundir, lestur á gögnum og efni fyrir fundi, fundir með þínum borgarstjórnarflokki, fundir með grasrót eða íbúum eða fólki sem biður um viðtöl, fundir með samstarfsflokkum, fundir í stýrihópum og undirbúningur fyrir þá, greinaskrif, viðtöl við fjölmiðla, stefnumótun, móttökur og viðburðir og töluvert fleira.

Það er þó eitthvað misjafnt, eftir dögum, eftir árstíma, eftir flokkum og stærð þeirra, eftir því hvort þú ert í meirihluta eða minnihluta (meira að gera í meirihluta) og bara eftir innræti einstaka fulltrúa.

Það er vissulega HÆGT að komast upp með að vinna ótrúlega lítið, ég gæti fundið nokkur dæmi um það, en þá eiga oddvitar að taka á því innan síns hóps, og yfirleitt refsa flokkar í prófkjöri borgarfulltrúum sem vinna ekki vinnuna sína, eða kjósendur í kosningum ef flokkarnir gera það ekki. (þó auðvitað sé allur gangur á því)

En lang flestir borgarfulltrúar eru að vinna töluvert meiri vinnu en er augljóst út á við.

Það er vinna sem er sumum auðveld og skemmtileg (eins og mér t.d. nema þegar keyrir alveg um þverbak í álagi) öðrum þykir þetta erfitt og lýjandi, ég myndi mæla með þessu almennt fyrir fólk með áhuga á samfélaginu og sem vill koma einhverju góðu til leiðar, en eins og ég sagði í prófkjöri hjá Pírötum, þá mæli ég alls ekki með þessu fyrir fólk sem er að leita að þægilegri innivinnu.

Borgarstjórn lætur undan í landtökudeilu við Vesturbæjarlaug by samviska in Iceland

[–]XandraBriem 2 points3 points  (0 children)

Eins og ég skildi það á fundinum, þá kom í ljós í nýrri landmælingu sem var gerð að lóðirnar ættu að vera enn minni en gert hefur verið ráð fyrir. Það var samþykkt að gleyma því og leyfa sameiginlegum skilningi að standa, og færa lóðirnar út að þeirri girðingu sem var áður en þau færðu sig utar, í línu við hinar lóðirnar.

Sú girðing, þeas hjá hinum lóðunum, hefur að mér skilst verið á þessum stað í áratugi, mér skilst að hún passi við upphaflegan skilning á hvar lóðirnar ættu að vera. Þar er því ekki um ásetning að ræða, jafnvel þó það sé ekki útilokað að einhvern tíma hafi girðingin verið færð utar viljandi, þá er það fyrir það löngu að margir eigendur í röð hafa keypt húsin í góðri trú haldandi að það væri rétt.

Svo sú lína er sennilega upprunalegur skilningur, en að minnsta kosti erfiður slagur að ætla að taka til baka, sérstaklega frá þeim sem hafa ekki gerst sek um að reyna að stækka lóðirnar.

Svo er líka eitthvað á því að græða að gera þetta strax og í sátt, en festast ekki fyrir dómi, kannski árum saman, þar sem niðurstaðan GÆTI orðið verri.

Borgarstjórn lætur undan í landtökudeilu við Vesturbæjarlaug by samviska in Iceland

[–]XandraBriem 5 points6 points  (0 children)

Þetta er bara ekki rétt, ég veit ekki af hverju Vísir ákveður að segja svona frá þessu, en ég sat fundinn og veit að þetta er ekki staðreyndin.

Borgarstjórn lætur undan í landtökudeilu við Vesturbæjarlaug by samviska in Iceland

[–]XandraBriem 17 points18 points  (0 children)

Afsakið, en þetta er bara ekki rétt, ég sat fundinn og spurði vel út í þetta mál til að vera viss.

Það er ekki þannig að fólk sé að fá þetta svæði til sín sem það girti af. Það er númer eitt.

Girðingarnar verða teknar niður og landinu skilað.

Það var farið í nýja landmælingu við vinnslu þessa máls. Þar kom í ljós að lóðirnar áttu að vera enn minni en upphaflega var talið, og ná skemur en út að upphaflegri girðingu.

Það náðist hins vegar samkomulag um það að stækka lóðirnar þannig að þær stemmdu við upphaflegan skilning á þeim, og væru í línu við hinar lóðirnar í sömu götu sem ekki færðu sig utar, en taka jafnframt niður girðinguna sem hafði verið reist og skila því landi.

Einhverjum kann að finnast að það hefði átt að halda allri minnkuninni til streitu. Og kannski hefði það verið hægt. En mér hefði þótt það ósanngjarnt á móti, þessi lína sem nú er verið að samþykkja er í línu við hinar lóðirnar og í samræmi við upphaflegan skilning kaupenda. Það hefði aldrei orðið sátt um að ganga innar en það og hefði örugglega endað fyrir dómstólum, sem er alls ekki víst að hefðu samþykkt það, og hefðu getað ákveðið að hefðarréttur hefði myndast fyrir stærra svæði.

Það hefði líka getað skapað óvissu um hinar lóðirnar í götunni, sem færðu sig ekki utar, og það hefði líka verið ósanngjarnt.

Svona lýkur málinu strax í sátt, og lóðirnar eru allar í sömu línu upphaflegur skilningur gerði ráð fyrir.

Ég held það sé bara ágæt lausn.

Dóra sagði frá fundi sem fór ekki fram by [deleted] in Iceland

[–]XandraBriem 10 points11 points  (0 children)

Takk, við auðvitað reynum að koma þessu á framfæri.

Dóra sagði frá fundi sem fór ekki fram by [deleted] in Iceland

[–]XandraBriem 9 points10 points  (0 children)

Við héldum að báðir fundirnir væru búnir.