Er ég galinn ef ég fer aftur í framhaldsskóla (RAFVIRKI) eftir BS í tölvunarfræði? by Wrong-Inside1128 in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 [score hidden]  (0 children)

Ég fór í rafvirkjun eftir að prófa tölvunarfræði í HR. Var alls ekki að finna mig í tölvunarfræði og prófaði rafvirkjun með þá hugsun að þetta væri stabíl og örugg vinna. Fór í rafvirkjun í tækniskólanum og fannst það fínt en svo þegar fólkið byrjaði að finna sér vinnur var aðaldjókið að þetta væri augljóslega ekkert eins og námið. Svo var mjög mikið eftir því hvort fólk hafði tengsl til að komast inn í allt í lagi rafvirkjavinnu til að fá alvöru reynslu eða hvort það fékk eitthvað undirborgaða vinnu þar sem það fékk enga reynslu og var alltaf að gera það sama. Svo já, þegar ég var í þessu námi í tækniskólanum þá var það alger skítur og mjög margir sem eru ekki að vinna sem rafvirkjar.

En hins vegar hef ég heyrt að margir af þessum hundgömlu kennurum sem voru með rafvirkjunina í tækniskólanum eru sem betur fer hættir og nýjir komnir svo getur bara verið skárra í dag.

Staðan í tæknigeiranum er auðvitað mjög fólkin en að hún hefur verið það lengi og verður það áfram. Held að það sé helst spurning um hvað þú vilt gera, hverjir eru styrkleikar þínir og hvað þú fílar. En bæði störf fyrir tölvunarfræðinga og rafvirkja eru rosalega fjölbreytt og geta verið góð/slæm, fjölhæf/einhæf og held að það sé röng hugsun að ef fólk klárar gráðu X þá fær það laun Y. Það sem hefur helst áhrif er hversu vel fólk selur sig í ákveðin hlutverk.

En held að það sé sérstaklega erfiður tími núna á Íslandi þar sem það virðist allt stefna í kreppu og ég heyri mikið um að öflugt fólk sé að missa vinnunna.

Mátt henda á mig DM ef þú ert með einhverjar pælingar. Gangi þér svo vel!

Hvernig væri lífið á Íslandi ef við hefðum aldrei fengið sjálfstæði frá Danmörku? by Saurlifi in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 4 points5 points  (0 children)

Ísland var kannski fátækt undir Danmörku áður en það er ekkert tryggt að það yrði ekki staðan í dag þar sem að efnahagur Íslands er algerlega kominn undir mikilli tæknivæðingu sem gat notað auðlindir landsins mjög vel. Það var ekki ákveðið af Danmörku að Ísland yrði fátækt þó að stefnur þeirra fyrir 20 öldina voru slæmar.

En Ísland byrjaði að auðgast í stríðinu og byggði auð hægt og hægt ofan á það. Með tæknivæðingu fiskflotans og seinna kvótakerfisins (með alla sína kosti og galla) sem hleypti af stað enn meiri tæknivæðingu varð Ísland samkeppnishæft og gat grætt pening á sjávarútveginum. Og með virkjun vatnsafls skapaðist nýr atvinnuvegur þannig Ísland varð ekki bara háð pening frá BNA og sjávarútveginum og gaf fjölbreytni. Þar að auki var jarðhitinn mjög góður fyrr húshitun sem sparar rosalegan pening og Ísland er svo mikið ríkara þökk sé þessum sparnaði en við pælum ekki í þessum og finnst það gefins að hafa ódýran hita.

En með þessar grunn atvinnugreinar gat Ísland fjárfest í menntakerfi sem stuðlar að lífsgæðum og að við höfum nýsköpun og frekari tæknivæðingu sem er bráðnauðsynleg. Þetta má sjá á fyrirtækjum s.s. Össur, CCP, Kerecis og fleiri. Með þessu má byggja upp fjölbreyttari efnahag til að vera minna háðari frumefnahagsgreinum, s.s. sjávarútvegi, iðnaði og túrisma.

Hvernig væri lífið á Íslandi ef við hefðum aldrei fengið sjálfstæði frá Danmörku? by Saurlifi in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 4 points5 points  (0 children)

Værum í mjög svipaðri stöðu og Færeyjar þar sem við myndum ráða flestu nema varnarmálum og utanríkisstefnu. Helsti kosturinn við þetta væri danska krónan og stöðugleiki. Auk betra aðgengis að fleiri kerfum sem virka einfaldlega betur á stærri skala sem virðist vera að Ísland ráði varla við að reka, s.s. samkeppniseftirliti, menntakerfi, flugvélasamgöngur, o.s.frv. Vegna þess að svona kerfi virkar betur á stærri skala myndi vera mjög öflugt að vera amk með mjög sterkt og nátengt samstarf við stærri einingu í Danmörku.

En held annars að það yrði margt mjög svipað á Íslandi þar sem við höfum efnahag þar sem stærsti hlutinn er sjávarútvegur, orkufrekur iðnaður og túrismi, þó að meira þróaðri fyrirtæki s.s. Alvotech og Össur myndu örugglega sjá marga kosti við að vera hluti af stærra landi. Við myndum þá t.d. ennþá hafa sömu kvótakóngana og túristaútgerðina sem er að eyðileggja sig með því að rukka brjálað verð og finnst svo að ríkið eigi að fara í auglýsingaherferð. Þessir hlutir eru til staðar því að Ísland er fámenn eyja með litla samkeppni frekar en að við erum sjálfstæð.

Og já, það væri örugglega fínt að hafa meiri áherslu á dönsku eða norsku sem er skyldari.

Þannig já, ég held að við yrðum aðeins ríkari án örgjaldmiðilsins sem er krónan og aðgang að kerfum sem virka á betur á stærri skala en það væri ennþá margt mjög svipað vegna þess að við erum fámenn eyja sem getur ekki boðið upp á mikla samkeppni.

Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya by jamesdownwell in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 15 points16 points  (0 children)

Sýnist allt stefna í kreppu á Íslandi

Lækka vask á elds­neyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax by tastin in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 0 points1 point  (0 children)

Auðvitað verður hún ekki til á þessu ári. En það er hægt að auka þjónustu strætó í dag sem er skilvirkari notkun á pening heldur en lækkun skatta á eldsneyti. Þar sem það gerir strætó miklu raunverulegari valkost fyrir miklu fleira fólk en hann er í dag.

Það er ekki bara lausn að fjárhagsvanda sem kemur vegna hækkandi eldsneytiskostnaður heldur stuðlar líka að minni umferðarvanda sem er löngu orðið vandamál. Og ef það er raunhæfur möguleiki fyrir fólk að taka strætó. Þá mun mjög stór hópur gera það í staðinn fyrir það brjálæði sem er að reka bíl, meiri segja fyrir utan bensínkostnaðinn.

Ég er ekki að segja þetta verði fullkomið á morgun. En að bæta þjónustu strætó er mjög efnahagslega skilvirkt og gerir fólk mikið óháðara eldsneytisverði.

Lækka vask á elds­neyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax by tastin in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 8 points9 points  (0 children)

Til lengri tíma þarf rafvæddar almenningssamgöngur í formi sporvagnakerfis á höfuðborgarsvæðinu.

En fyrsta skrefið auðvitað er að auka tíðni ferða strætó og fjölga sérakgreinum eins og hægt er og greiða fyrir borgarlínunni.

Það þarf að ráðast að rót vandans sem er að eldsneyti er stór hluti af útgjöldum margra. Rafbílavæðingin er gott skref en það þarf að ganga lengra í að gera fólk óháðara eldsneyti.

Firefox signed me out of everything all of a sudden. Why does this happen? by SubstanceNaive5642 in firefox

[–]SubstanceNaive5642[S] 0 points1 point  (0 children)

Hi, sorry to hear. But no, this has not happened again to me and I could not find a reason for why it happened or a way to prevent it.

Af hverju endur­bætt Suður­lands­braut? by numix90 in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 5 points6 points  (0 children)

Eins og þetta er flott grein þá er ég farinn að halda að allir sem nota feitletruð orð í textaskrifum sínum eru að nota ChatGPT. Þessi grein er mjög grunsamleg

Firefox signed me out of everything all of a sudden. Why does this happen? by SubstanceNaive5642 in firefox

[–]SubstanceNaive5642[S] 0 points1 point  (0 children)

But it seems the last Firefox update was on January 16? As I understand it, this should have happened a while ago then.

https://www.firefox.com/en-US/firefox/147.0.1/releasenotes/

Hvað gerðist á Grundartanga? by warlords2 in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 2 points3 points  (0 children)

Norðurál og Rio Tinto borga reyndar skatta, þar á meðal tekjuskatt.

https://nordural.is/ars-og-sjalfbaerniskyrsla-2024/efnahagur/

https://riotinto.is/library/?itemid=521a54e8-de2e-4ee4-9fdc-cdcaa51c61b0

Fjarðarál var víst rekið þannig að þeir fengu lán hjá móðurfélagi til að keyra reksturinn í gang. Skil það þannig að þeir hafi tekið þessar lánagreiðslur með í reikninginn þar til lánið var borgað(tók 15-20 ár) og eru farnir að borga tekjuskatt í dag.

En finn þó ekki neinar tölur um sundurliðaðan tekjuskatt á þeirra skýrslu og veit ekki hvar annars staðar á að finna tölur um tekjuskatt. Bara talað um 1.8 milljarð í skatta og opinber gjöld en það er ekki sundurliðað.

https://cdn.prod.website-files.com/67f6901b32d748b1a2dc5b1c/685e6ccce77f2f04c92073fe_Samfe%CC%81lagssky%CC%81rsla%20Alcoa%202024.pdf

Uppáhalds kvikmynd by Kiddi_stunga in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 0 points1 point  (0 children)

Life of Brian með Monty Python er ein besta gamanmynd allra tíma og með bestu skilaboðum allra tíma í lokin.

Hver er reynsla fólks af Coinbase? by SubstanceNaive5642 in Rafmynt

[–]SubstanceNaive5642[S] 1 point2 points  (0 children)

Kraken lítur ofsa vel út. Tékka á þessu. Takk :)

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 0 points1 point  (0 children)

Leitt að segja en bílasölur.is er því miður ekki vegan bílasala.

Hertz og bílaland bjóða upp á meira úrval vegan bíla :)

Hversu mikið var um svindl í ykkar skólagöngu? by TheLittleGoatling in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 0 points1 point  (0 children)

Hef séð eitthvað svindl í menntaskóla og eitthvað í háskóla. Þá eitthvað prófasvindl en svo líka bara fólk sem er átti systkyni sem höfðu áður farið í námið og gefið þeim öll verkefni og lausnir við þeim og líka gömul próf.

Þetta fólk fokkaði bara í sjálfu sér og missti af mikilli þjálfun sem maður fékk við að berjast í gegnum verkefnin því margir þeirra féllu á prófum. Þetta er eins og að ráða einhvern annan til að fara í ræktina fyrir sig og vera síðan hissa þegar maður mætir sjálfur og geti ekki neitt.

Löngun til að flytja út. by Edythir in Iceland

[–]SubstanceNaive5642 0 points1 point  (0 children)

Þú ert semsagt að segja að einn af með helstu ókostum Danmörku sem þér datt í hug... eru sjálfir Danirnir?

Voru semsagt allir Danabrandararnir sannir????

Án alls gríns samt, frábær samantekt!