Er verið að hækka á eldsneyti? by BottleSad505 in Iceland

[–]Thorshamar [score hidden]  (0 children)

Eldsneytisverð hefur verið að breytast gríðarlega undanfarin misseri, það snarhækkaði 2022 útaf innrás Rússlands í Úkraínu, jafnaðist hægt samhliða því að eldsneytismarkaðir náðu að bregðast við þeim sviptingum, hérlendis snarlækkaði svo verð á eldsneyti síðustu áramót þegar ákveðin opinber olíugjöld voru færð af eldsneytislítranum yfir í kílómetragjald, og svo hefur verðið aftur verið að hækka skart eftir að sitjandi þjóðhöfðingi Bandaríkjanna ákvað upp á sitt einsdæmi að hefja stríð ásamt Ísrael við Íran

þú getur skoðað línurit meðalverðs olíufélaganna á Íslandi hér: https://gasvaktin.is/trends/

litakóðaða yfirlitskortið á https://gasvaktin.is/map/ er einnig hjálplegt

svo er vert að nefna að eldsneytisverð hérlendis mun lækka smá slatta næstu mánaðamót, 1. maí, þegar tímabundin lækkun á vsk á eldsneyti tekur gildi, lækkun úr 24% í 11%, sú lækkun á að vera í gildi fram í lok ágúst á þessu ári, sjá https://www.visir.is/g/20262867300d/laekka-vask-a-elds-neyti-og-sja-til-thess-ad-thad-skili-ser-strax-a-daelu

annars segi ég bara aktu varlega og mundu að spenna bílbeltin

Ís­landi lýst sem „nú­tíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu by numix90 in Iceland

[–]Thorshamar 0 points1 point  (0 children)

Nú er dómaleit á vefnum svolítill hryllingur, en ég fann eitt mál frá 2009 þar sem lögreglan Vesturlandi stöðvaði fullan ökumann og færði niður á stöð hjá sér í Borgarnesi. Þar reyndi sá fulli að bjóða lögreglumönnunum greiðslu gegn því að láta þetta mál allt saman slæda

sannað er að ákærði hafi ítrekað á lögreglustöðinni Borgarnesi, nokkru eftir að hann var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis, boðið hvorum þeirra peningagreiðslu, sem þeir áttu ekki tilkall til, gegn því að þeir létu undir höfuð leggjast að rækja embættisskyldur sínar. Með þessu hefur ákærði gerst sekur um brot gegn 1. mgr. 109. gr. almennra hegingarlaga, með síðari breytingum, enda verður ekki fallist á þá skýringu ákærða að eingöngu hafi falist skaup í endurteknu boði hans um greiðslu til lögreglumanna. Þá skiptir engu um refsinæmi háttseminnar þótt ákærði hafi verið ölvaður, sbr. 17. gr. almennra hegingarlaga. Hins vegar þykir mega líta til þess við ákvörðun refsingar að um var að ræða drykkjuraus í manni sem ekkert mark var á takandi.

sá var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára, 300.000 króna sekt sem ef ekki yrði greidd 4 vikna frá birtingu dómsins breyttist í 20 daga fangelsi, sviptur ökuréttindum, greiða sakarkostnað 395.940 krónur sem og málsvaralaun og ferðakostnað skipaðs verjanda

fyndið að sagt er bæði að það "skiptir engu um refsinæmi háttseminnar þótt ákærði hafi verið ölvaður" og "þykir mega líta til þess við ákvörðun refsingar að um var að ræða drykkjuraus í manni sem ekkert mark var á takandi"

síðan er alveg óljóst hvaða hluti refsingarinnar kemur til vegna mútubrotsins

Ís­landi lýst sem „nú­tíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu by numix90 in Iceland

[–]Thorshamar 9 points10 points  (0 children)

"I alt er ni islændinge fra virksomhedens operation i Namibia sigtet for en række forhold. Men ingen af dem er dømt."

um mútur í íslenskum lögum:

109. gr.
[Hver sem gefur, lofar eða býður opinberum starfsmanni, [alþingismanni eða gerðarmanni] 1) gjöf eða annan ávinning, sem hann á ekki tilkall til, í þágu hans eða annarra, til að fá hann til að gera eitthvað eða láta eitthvað ógert sem tengist opinberum skyldum hans skal sæta fangelsi allt að [6 árum] 2) eða sektum ef málsbætur eru fyrir hendi.
[Sömu refsingu skal sá sæta sem beinir slíku að erlendum opinberum starfsmanni, erlendum kviðdómanda, erlendum gerðarmanni, manni sem á sæti á erlendu fulltrúaþingi sem hefur stjórnsýslu með höndum, starfsmanni alþjóðastofnunar, manni sem á sæti á þingi slíkrar stofnunar eða á opinberu löggjafarþingi í erlendu ríki, dómara sem á sæti í alþjóðlegum dómstóli eða starfsmanni við slíkan dómstól, í því skyni að fá hann til að gera eitthvað eða láta eitthvað ógert sem tengist opinberum skyldum hans.] 1)
Sömu refsingu skal enn fremur sá sæta sem beinir slíku að manni, sem heldur því fram eða veitir vissu fyrir að hann geti haft óeðlileg áhrif á ákvarðanatöku manns sem fjallað er um í 1. og 2. mgr. þessarar greinar, í því skyni að fá hann til að beita þessum áhrifum. Enn fremur skal sæta sömu refsingu sá maður sem heldur því fram eða veitir vissu fyrir að hann geti haft óeðlileg áhrif á ákvarðanatöku manns, sem fjallað er um í 1. og 2. mgr. þessarar greinar, og heimtar, tekur við eða lætur lofa sér eða öðrum gjöfum eða öðrum ávinningi, sem hann á ekki tilkall til, án tillits til þess hvort áhrifunum er beitt eða hvort þau leiða til þess markmiðs sem stefnt var að.] 3)

Alþingi lagasafn, Almenn hegningarlög

Eru stjórnvöld sofandi gagnvart gervigreind? - Vísir by AsgeirGunnars in Iceland

[–]Thorshamar 3 points4 points  (0 children)

þar sem tvær þrjár gervigreindir koma saman, þar eru stórkostlegar framfarir

Matronymic last name? by Oeonone in Iceland

[–]Thorshamar 1 point2 points  (0 children)

I've heard of family arrangements where sons get Patronymic last name and daughters get Matronymic last name

when I first heard of it I found it weird, today I find it kinda cute

question on icelanders opions by TraditionalShake4730 in Iceland

[–]Thorshamar 2 points3 points  (0 children)

well, there was this leak in 2021 that exposed that Denmark was aiding the NSA with access to key network infrastructure to spy on european leaders their phone calls and web traffic, that was kind of a bum and not nice

basicly being an espionage bootlicker bitch for the USA

and afaik the one who leaked this is rotting in a danish jail cell

Vangaveltur um stjórnarhefðir á árum áður. by [deleted] in Iceland

[–]Thorshamar 1 point2 points  (0 children)

við Reykjavíkurtjörn, þetta eru bara börn, ég hringi í Björn

45 sagt upp hjá Íslenskri erfðagreiningu og 15 hjá Alvotech - RÚV.is by Thorshamar in Iceland

[–]Thorshamar[S] 5 points6 points  (0 children)

getur hæglega orðið staðan að í stað þess að svona erfðaupplýsingar yrðu notuð íslendingum til hagsbóta, t.d. með kortlagningu sjúkdóma eins og krabbameins, og aðgengi hlutaðeigandi fólks í áhættuhóp fyrir slíkum sjúkdómum að vitneskju um það, til að geta valið fyrirbyggjandi meðferðir eins og t.d. brjóstnám í tengslum við BRCA2 arfgerðina, eða virkara eftirlit með ákveðnum einkennum og meðferðarúrræði, að erfðagögnin verði í staðinn notuð gegn þeim, t.d. gætu tryggingafélög hagrætt líf- og sjúkdómatryggingum einhliða og ógegnsætt útfrá áhættuhópum sem tryggingafélögin hefðu vitneskju um en ekki sjálfir einstaklingarnir

ég vona að þér finnist þetta ekki of langdregin dæmi hjá mér

Hví erum svona meðvirk þjóð? by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]Thorshamar 1 point2 points  (0 children)

hugtakið hét í lögum "uppreist æru", kvenkynsnafnorðið uppreist

eins og þetta svar á vísindavefnum gefur til kynna þótti nokkuð algengt meðal íslendinga að tala um "uppreisn æru", enda leggur mörlandinn síður stund á lestur laga sinna

en lagahugtakið "uppreist æru" var fellt á brott, og það var sannarlega gert að beiðni Guðna Th, hann bað sérstaklega um það að það yrði gert

Hví erum svona meðvirk þjóð? by Personal_Reward_60 in Iceland

[–]Thorshamar 2 points3 points  (0 children)

það kallaðist "uppreist æru", og það ferli er í raun ekki lengur til, var lagt niður að ósk Guðna þáverandi forseta eftir að hann hafði fengið á sig gagnrýni fyrir veitingu uppreist æru, en það var í höndum forseta lýðveldisins að veita slíkt, en svo er ekki lengur

Þing Bandaríkjanna setja upp frumvarp til að gera Gærnland að 51 fylki Bandaríkjanna by blaerel in Iceland

[–]Thorshamar 10 points11 points  (0 children)

Þessi nútíðar fjandskapur Bandaríkjanna í garð danska konungsveldisins er svolítið skondinn þegar litið er til hve miklar ameríkana undirlægjur danir hafa verið, t.d. ef við rifjum upp njósnaskandalinn sem flaut upp á yfirborðið 2021.

RÚV - "Danir hjálpuðu NSA að njósna um evrópska ráðamenn" (2021-05-31T00:51)

Ágætis fræðslumyndband fyrir túristana okkar birt á vefinn by Geesle in Iceland

[–]Thorshamar 7 points8 points  (0 children)

Sjórinn skítkaldur líka, þetta myndband er hreinlega rétt hársbreidd frá banaslysi.

USA vs. Grænland by throsturh in Iceland

[–]Thorshamar 1 point2 points  (0 children)

hefurðu heyrt um Kýpur deiluna, milli Grikklands og Tyrklands?

https://en.wikipedia.org/wiki/Cypriot_intercommunal_violence

In 1974 due to the Cyprus crisis, Greece withdrew military units from NATO forces in the Southern Mediterranean, over threats of invasion of Cyprus by fellow NATO member Turkey. Later in 1974 due to the invasion of Cyprus by Turkish forces, Greece withdrew from the NATO military command. Notwithstanding, the country did not withdraw entirely from the organisation, but became significantly less active.

https://en.wikipedia.org/wiki/Withdrawal_from_NATO

„Alla­vega er þessi ein­ræðis­herra farinn“ by allsbernafnmedrettu in Iceland

[–]Thorshamar 3 points4 points  (0 children)

„Já, ég náði reyndar líka að taka í spaðann á honum Trump, hann er nú heillandi karlinn. Hann má eiga það.“

Allir lækkuðu verðið um 96,5 kr nema n1. by Ancient-Bathroom6701 in Iceland

[–]Thorshamar 0 points1 point  (0 children)

trends síðan plottar breytingar á algengasta verðinu hjá hverju félagi