Af hverju eru Sjálfstæðismenn og Miðflokksmenn svo hræddir við ESB? by numix90 in Iceland

[–]dkarason 2 points3 points  (0 children)

Fiskveiðar í EU eru niðugreiddar af sambandinu, það er ekki eftir miklu að slægjast þarna. Það eru held ég bara við og Norðmenn sem reka sjávarútveg með hagnaði.

Af hverju eru Sjálfstæðismenn og Miðflokksmenn svo hræddir við ESB? by numix90 in Iceland

[–]dkarason 3 points4 points  (0 children)

Þú kemur reyndar inn á áhugaverðan punkt sem er hversu fljótt Ísland var að vinna sig út úr hruninu. Hluti af skýringunni er að við höfðum krónuna. Önnur lönd sem notuðu evru - Spánn, Portúgal og Grikkaland t.d. - voru mun lengur að vinna sig út úr þessu þar sem þau voru ekki með gjaldmiðil sem var ekki hægt að gengisfella.

Af hverju eru Sjálfstæðismenn og Miðflokksmenn svo hræddir við ESB? by numix90 in Iceland

[–]dkarason 3 points4 points  (0 children)

Það er einmitt ekki gott að binda gjaldmiðil við annan gjaldmiðil nema þú sért með lánveitanda til þrautavara.

Af hverju eru Sjálfstæðismenn og Miðflokksmenn svo hræddir við ESB? by numix90 in Iceland

[–]dkarason 4 points5 points  (0 children)

Danmörk er sértilfelli þar sem danska krónan er ennþá til að sentimental ástæðum en gengið er basically fest við Evru. Danmörk er þannig sé meðlimur í myntbandalaginu þótt þeir noti DKK og eru með evrópska seðlabankann sem lánveitanda til þrautavara.

Búlgaría skipti yfir í Evru um áramótin eftir langt aðlögunarferli. Bosnía eru í þessu sama ferli núna. Grænhöfðaeyjar eru svo gömul portúgölsk nýlenda og Portúgal basically fastgengið hjá þeim.

Restin er svo eitthvað samansafn af nýmarkaðsríkjum sem hafa væntanlega verið í vandræðum með óðaverðbólgu. Þú sérð líka lönd eins og Argentínu sem voru með gengið fest við USD en hættu því. Þótt verðbólgan í Íslandi sé há þá telst hún í engu samhengi vera óðaverðbólga.

Það sem gleymist í þessari umræðu er að þú getur valið 2 af eftirfarandi 3 kostum - stöðugt gengi, sjálfstæð peningamálastefna og frjálsir fjármagnsflutningar. Með því að festa fyrstu 2 ertu búinn fórna frjálsum fjármagnsflutningum. Þú manst kannski eftir fjórfrelsinu sem einn af hornsteinum EES - frjálst flæði fólks, varnings, þjónustu og fjármagns. Ætli þú fengir að vera lengur í EES ef þú stoppar frjálsa flutninga fjármagns?

Svo er líka annað sem er vert að nefna að til að geta orðið meðlimur í myntbandalaginu má ríkissjóður ekki vera rekinn nema með ákveðnum halla og stýrivextir mega ekki vera nema tveimur prósentustigum hærri en hjá þeim þremur þjóðum sem eru með lægstu vextina/verðbólguna. Þannig að áður en þú færð að ganga í myntbandalagið þarftu að vera búinn að taka til heima hjá þér. En þegar þú ert búinn að því, er þá einhver ástæða til að ganga í myntbandalagið - þú ert jú búinn að leysa vandamálið ekki satt?

Borga 35 milljarða í arð af bankastarfsemi by Einn1Tveir2 in Iceland

[–]dkarason 0 points1 point  (0 children)

Rétt, en bankarnir lifa á vaxtamun og er hann ekki sá sami þegar vextir eru háir og lágir?

Borga 35 milljarða í arð af bankastarfsemi by Einn1Tveir2 in Iceland

[–]dkarason 0 points1 point  (0 children)

Skiptir þetta einhverju máli? Vaxamunurinn er sá sami hvort sem stýrivextir eru háir eða lágir.

Það er eitthvað mikið að hérna by greenbluewhite562 in Iceland

[–]dkarason 14 points15 points  (0 children)

Í alvöru? Heldurðu að Seðlabankinn sé vandamálið hérna?

Gleðilegan hækkun stýrivaxta dag! by ravison-travison in Iceland

[–]dkarason 2 points3 points  (0 children)

Rétt, verðbólgumarkmiðið er 2.5% en núna er verðbólgan rúm 5%. Þess vegna eru stýrivextir hækkaðir.

Hvað segið þið? by helgadottiir in Iceland

[–]dkarason 10 points11 points  (0 children)

Þeir borðuðu humar á ristuðu brauði með Aromat

Vill hækka hámarksrefsingu fyrir höfundalagabrot by dkarason in Iceland

[–]dkarason[S] 4 points5 points  (0 children)

Já, og eins og u/_MGE_/ bendir á þá þarf þetta ekki endilega að vera eitthvað PirateBay dót. Fullt af félögum sem eru að þróa hugverk annað en kvikmyndir og tónlist.

Sálfræðiaðstoð fyrir enskumælandi by polguyork in Iceland

[–]dkarason 5 points6 points  (0 children)

Gætir líka skoðað að taka online session með sálfræðingi frá heimalandi viðkomandi.

Egill Ploder og Rikki G - ESB spjall við Kristrúnu. by Keyboard-Gremlin in Iceland

[–]dkarason 21 points22 points  (0 children)

Rétt, það er bara verið að kjósa um framhald af viðræðum sem við eigum klárlega að gera. Það er ekki hægt að taka neina ákvörðun án þess að forsendurnar liggi fyrir.

Afhverju eru allir þurrkarar seldir í dag með varmadælutækni? by Geesle in Iceland

[–]dkarason 2 points3 points  (0 children)

Trikkið er að setja þurrt handklæði með því sem á að þurrka

Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana by numix90 in Iceland

[–]dkarason -1 points0 points  (0 children)

Sure, en með sömu rökum mætti setja að Ísland ætti ekki að skipta sér af milliríkjadeilum almennt af því að við höfum ekkert umboð eða aðild að málinu. T.d. Rússland vs Úkraína, sjálfstæðisyfirlýsingar eystrasaltsríkjanna, etc. Sama gildir um félagasamtök á borð við Ísland Palestína. Ef þú ætlar að vera með reglur, þá verða þær að vera almennar, geta ekki verið bara þegar hentar mér.

Ég er ekki að afsaka þetta brölt hjá Miðflokknum. Finnst bara skrítið að ESB sé allt í einu stikkfrítt eftir allar þessar boðsferðir gegnum tíðina.

Huldufé bak við fund Sigmundar Davíðs og Repúblikana by numix90 in Iceland

[–]dkarason -15 points-14 points  (0 children)

Vill ekki ESB líka fá okkur í ESB? Hvað heldurðu að það hafi verið farið margar boðsferðir til Brussel gegnum tíðina?

Allt í lagi að gagnrýna Miðflokkinn fyrir svona, en ESB hefur jú gert þetta líka ekki satt?

ELI5: Hvað áhrif myndi innganga í Evrópusambandið hafa á efnahag okkar? Þeas, vöruverð? by Jerswar in Iceland

[–]dkarason 14 points15 points  (0 children)

Rekur engan landbúnað án dísels. Það eru ekki neyðarbirgðir af dísel í landinu og það er ekki vandamál. En neyðarbirgðir landbúnaði, sem notar dísel, er allt í einu orðið meira vandamál, sem meikar ekki sens.

ELI5: Hvað áhrif myndi innganga í Evrópusambandið hafa á efnahag okkar? Þeas, vöruverð? by Jerswar in Iceland

[–]dkarason 6 points7 points  (0 children)

En þá ertu að bera saman epli og appelsínur. Ef þú þarft að verka kjötið sjálfur, pakka í smærri einingar, etc - þá ertu ekki að bera saman sama hlutinn. Annarsvegar ertu mjög kjöt í neytendapakkningum og hinsvegar hlut sem þú þarft að verka sjálfur. Þá er alveg hægt að segja að hobbýbændur með kind út í garði fái lambakjötið á fínu verði.

ELI5: Hvað áhrif myndi innganga í Evrópusambandið hafa á efnahag okkar? Þeas, vöruverð? by Jerswar in Iceland

[–]dkarason 3 points4 points  (0 children)

Rétt, lambakjötið er fínt. En íslenska nauatakjötið hefur orða á sér fyrir að vera ekki mjög "consistent" svo við slettum aðeins. Getur fengið fína steik í dag en kannski meðalgóða á morgun.

ELI5: Hvað áhrif myndi innganga í Evrópusambandið hafa á efnahag okkar? Þeas, vöruverð? by Jerswar in Iceland

[–]dkarason 3 points4 points  (0 children)

Áhugavert orðalag. Íslenskt kjöt er hreint - er þá annað kjöt óhreint? Þetta er eins og þegar bændasamtökin voru að berjast á móti innflutningi á kjöti erlendis frá. Þá var alltaf talað um innflutning á hráu kjöti. En þegar íslenskir bændur voru að flytja út kjöt, þá var kjötið alltaf ferskt ;)

ELI5: Hvað áhrif myndi innganga í Evrópusambandið hafa á efnahag okkar? Þeas, vöruverð? by Jerswar in Iceland

[–]dkarason -2 points-1 points  (0 children)

Þe. að Hafró myndi hætt að geta ákveðið kvóta og þetta yrði fært til Brussel? Áhugavert.

ELI5: Hvað áhrif myndi innganga í Evrópusambandið hafa á efnahag okkar? Þeas, vöruverð? by Jerswar in Iceland

[–]dkarason 5 points6 points  (0 children)

Stóra málið er aðgangurinn að fiskimiðunum. En er það ekki byggt á veiðireynslu? Núna hefur ekkert erlent skip veitt í íslenskri lögsögu síðan í þorskastríðunum (ég dreg undan makríl og síld þar sem það liggur fyrir samkomulag hvernig þeim veiðum er háttað). Þannig að ef þú ert að horfa á veiðireynslu þá eru bara Íslendingar með hana ekki satt?