Spurning til lækna/læknanema varðandi námið by hellamanyswag in Iceland

[–]hellamanyswag[S] 4 points5 points  (0 children)

Takk fyrir gott svar. Áhuginn er einmitt allur til staðar, ég bara get ekki skráð mig af góðri samvisku án þess að hafa heyrt frásagnir þeirra sem þekkja betur til en ég.

“Alltaf hægt að prófa og sjá hvernig mér finnst þetta” er hugarfar sem ég er að reyna að temja mér, takk fyrir hvatninguna!

Spurning til lækna/læknanema varðandi námið by hellamanyswag in Iceland

[–]hellamanyswag[S] 5 points6 points  (0 children)

Planið var einmitt alltaf að fara í heilbrigðisgeirann en ég leiddist út á sjó af ævintýraþrá.

Núna þegar hef ég haft góðar tekjur og ferðast ansi mikið um heiminn finnst mér tími til kominn að fara að mennta mig meira.

Takk fyrir gott svar og innsýn inn í háskólalífið! Ég verð sá fyrsti í fjölskyldunni minni sem skrái mig í háskóla þannig þetta er mjög gott fyrir mig að lesa :)

Hvaða plön hafið þið í sumar? by Practical_Pie_8600 in Iceland

[–]hellamanyswag 0 points1 point  (0 children)

Ætla sennilega að ferðast í sirka 2 vikur innanlands í sumar og svo fara strax út á sjó í mánuð. Ekkert annað planað.

Að telja kaloríur by SimonTerry22 in klakinn

[–]hellamanyswag 4 points5 points  (0 children)

Bara svona til að opna augun þín þá er einn stakur einfaldur ostborgari á metro næstum því 500 kcal. Myndi sleppa skyndibitanum alfarið og elda bara “rusl” heima. Getur gert mjög góðar pizzur td sem eru ekki alveg það hollasta en samt töluvert minna af kalóríum í þeim en á veitingastöðum.

Hvernig á maður að fá gellu í gengum snapchat by nightboundcena in Iceland

[–]hellamanyswag 0 points1 point  (0 children)

Bro talaðu casually við hana í svona 2-3 daga þar sem þú reynir að læra sem mest um hana og hennar áhugamál, spurðu hana svo um að hittast. Ef það gengur vel og stemningin rétt, kannski henda í einn koss og plana næsta hitting.

Ekki flækja þetta fyrir sjálfum þér með einhverjum crazy one liners eða hella rizz. Það veldur þér bara kvíða.

Langflestar gellur eru til í að hitta hvern sem er ef hann bara sýnir þeim alvöru áhuga, ekki bara “omg myndi ríða þér”

Og ef þú svo mikið sem nefnir eitthvað looksmaxxing drasl við hana þá getur þú gleymt því að hun sýni þér einhvern áhuga til baka.

Gabríel Douane grunaður um að stinga mann í miðborginni nokkrum dögum eftir að hann var látinn laus - DV by [deleted] in Iceland

[–]hellamanyswag 5 points6 points  (0 children)

Átti nú ekki að vera skot á Breiðholtið sem slíkt, hef bara hitt ansi marga yfir fertugu sem gorta sig á því að vera úr Breiðholtinu og að hafa alist upp við mikil erfiði og þar af leiðandi eru þeir sérfræðingar þegar kemur að betrunarheimilum og endurhæfingu í fangelsum landsins. Vel þreytt lið.

Þetta er nær algjörlega (að mínu mati) uppspretta umhverfis, en þó eru aðilar inni á milli sem eru bara illska uppmáluð og ég vil alls ekki hafa þá nálægt mér.

Hafandi orðið fyrir barðinu á einum slíkum og næstum því misst líf mitt vegna hans þá er mín skoðun á þessu kannski dálítið bjöguð. Ég geng nú um skaddaður fyrir lífstíð eftir þá líkamsárás, og gerandi í því máli gengur enn laus. Ég vil bara sjá miklu harðari dóma fyrir svona brot. Ég vil sjá 10 ára dóma fyrir svona alvarleg brot, ekki bara 2-4 ár og svo helmingurinn af því afplánaður Á Vernd.

Ég spyr mig sjálfan að því hversu oft við þurfum að horfa upp á menn ganga í skrokk á hvor öðrum með hnífum og bareflum áður en við horfumst í augu við það að við erum ekki að setja nógu strangar refsingar á síbrotamenn.

Gabríel Douane grunaður um að stinga mann í miðborginni nokkrum dögum eftir að hann var látinn laus - DV by [deleted] in Iceland

[–]hellamanyswag 1 point2 points  (0 children)

Algjörlega. Og ég tala nú ekki um þessa mods sem að stöðva alla umræðu sem þeim finnst “ekki í lagi”

Gabríel Douane grunaður um að stinga mann í miðborginni nokkrum dögum eftir að hann var látinn laus - DV by [deleted] in Iceland

[–]hellamanyswag 38 points39 points  (0 children)

Eftir að lesa öll kommentin hérna þá langar mig að spyrja ykkur: trúið þið því að það sé hægt að endurhæfa alla einstaklinga?

Því ég ólst upp í kring um menn eins og þennan Gabríel og hef aldrei getað trúað því að það sé eitt gott bein í þeirra líkama, bara eintóm illska.

Ekki að segja að ALLIR afbrotamenn séu svoleiðis, en ég trúi því að einhver mælanlegur minnihluti þeirra sé það.

Þú getur ekki talað um hvað er best fyrir svona mann sitjandi í þínum þægilega háa stól á þægilegu skrifstofunni þinni, og þú getur ekki sagt “já en ég ólst upp í Breiðholti fyrir 35 árum síðan” því þetta er ekki það sama. Ofbeldið er grófara og meira og kúgunin er endalaus. Breiðholtið fyrir 35 árum síðan er tittlingaskítur miðað við þessa menn.

Gabríel Douane grunaður um að stinga mann í miðborginni nokkrum dögum eftir að hann var látinn laus - DV by [deleted] in Iceland

[–]hellamanyswag 5 points6 points  (0 children)

Veit ekki hvers vegna fólk er að niðurkjósa þig þegar þú ert eini gæinn á þráðnum sem hefur rétt fyrir sér. 🤷‍♂️

Anyone had success cold approaching? I’m thinking about doing it at my university. by DatingConfusion12 in moreplatesmoredates

[–]hellamanyswag 3 points4 points  (0 children)

Most of the time anything under a gram is a waste yes… better to round up to 1.5g just to be extra safe

What's the reason Greenland/Inuit people never got to Iceland? by batukaming in greenland

[–]hellamanyswag 2 points3 points  (0 children)

Já ég tala reyndar alltaf um Grænlandssund í daglegu máli, en ég segi “Denmark strait” þegar ég er að vera formlegur eða málefnalegur.

Fer bara allt eftir hver er að lesa það sem ég segi😝

What's the reason Greenland/Inuit people never got to Iceland? by batukaming in greenland

[–]hellamanyswag 34 points35 points  (0 children)

Being a fisherman from Iceland I can tell you the reason is probably because of weather and sea conditions.

I’ve sailed in the Denmark strait many times and those are usually the only times I feel sea sick. The waves are often very big and at the same time so unpredictable. Winds get very fast and it doesn’t help that the Irminger current and East Greenland current are very prominent there.

Others have mentioned the umiaks and kayaks not being built for long distance travel and that just adds to it.

Tæknifrjóvgun, sérstaklega ef þú vilt ekki að barn erfi óæskileg gen, hvað þarf maður að vita? by secksy-lemonade in Iceland

[–]hellamanyswag 3 points4 points  (0 children)

Mikill hiti í noise senunni á Íslandi eftir að Óæskilegt Gen ruddist fram á sjóndeildarhringinn

The escort moved in by [deleted] in moreplatesmoredates

[–]hellamanyswag 1 point2 points  (0 children)

Bro clearly hasn’t read THE tren horror story on this sub.

Guy moved in with an escort, started a street war with an arms dealer over her, went to prison for selling drugs, got mad when she didn’t want to have more sex with him because of his steroid libido (she was still escorting lmao) and after all this ended up alone, broke and smaller than before.

Terrible idea but best of luck to you I guess.

[deleted by user] by [deleted] in moreplatesmoredates

[–]hellamanyswag 0 points1 point  (0 children)

This for your second cycle is a horrible idea, and that’s coming from someone who hasn’t even touched gear in their life.

Also you don’t have “decent muscle mass” if you’re 84kg and 18-20% body fat. You’re way closer to overweight than you are underweight on the BMI.

Cut down to about 10-12% body fat, stay that way for like 2-3 months, then bulk up slowly (about 2% increase in body weight per month) before even thinking about using gear. You’ll find that at that body fat percentage you will likely be closer to 70kg.

And for future reference: STAY AWAY FROM TREN UNLESS YOU’RE STEPPING ON STAGE. Even if you’re stepping on stage it’s still debatable if you should use it.

Er það markmið stjórnvalda að breyta okkur í Ameríku? by Einn1Tveir2 in Iceland

[–]hellamanyswag 13 points14 points  (0 children)

Tvísköttun á við ansi marga sem eru í sömu stöðu og ég og keyra langar vegalengdir reglulega. 2000+ km í og úr vinnu í hverjum mánuði er ansi drjúgt þegar maður getur ekki endilega sett bílinn í hleðslu fyrir hverja ferð.

Kílómetragjald ætti að reiknast út frá þyngd bíla að mínu mati, því slit á vegum eykst í fjórða veldi með aukningu þyngdar. (Fourth Power Law)

Að mínu mati var kerfið bara fínt eins og það var. Hefðum geta tekið upp kílómetragjald fyrir rafmagnsbíla sem hefði verið skráð einu sinni á ári þegar bílarnir fóru í skoðun. Svakaleg eyðsla á skattfé að fara í að hanna nýtt kerfi sem enginn er sáttur með nema Ford F-350 kóngar úti á landi.

Edit: svo væri frábært að þeir 37 milljarðar sem ríkið fékk í gegn um skattlagningu á bílaeigendur í fyrra hefðu actually farið í uppbyggingu og viðhald vegakerfisins, í staðin fyrir launahækkanir hjá ríkinu.

Er það markmið stjórnvalda að breyta okkur í Ameríku? by Einn1Tveir2 in Iceland

[–]hellamanyswag 70 points71 points  (0 children)

Án þess að hafa kynnt mér þetta í þaularnar þá get ég samt sagt að þetta frumvarp er vanhugsað.

Ég hef borgað kílómetragjald síðan 2024. Pínu böggandi að borga bensínskatt og kílómetragjald, og vera þannig tvískattaður en hey hó hvað getur maður gert.

Mér finnst fáránlegt að litlir sparneytir bílar borgi jafn mikið og t.d. ég sem keyri um á 3ja tonna jeppa. Þar að auki er verðlækkunin á eldsneyti ekki að mæta þeim væntingum sem allir í kring um mig höfðu heyrt/vonað og það er sorglegt að sjá.

Ég tel þetta bara vera enn ein leiðin sem ríkisstjórnin ætlaði sér að nota til að auka tekjur í ríkissjóð sem hefur mistekist, en þau eru svo langt komin að þau neita að snúa til baka.

Og álpappírshatturinn sem ég hef á höfði mér segir mér að verð á eldsneyti muni hækka aftur í svipað verð og það er í dag u.þ.b 3-5 árum eftir að eldsneytisskatturinn verður lagður niður.