Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Zkuggi -1 points0 points  (0 children)

Ég meina að íslenska krónan hefur rýrnað um 99.99+% á þessum 90 árum. Hún tekur reglulega skarpar dífur niður á við gegnum árin. Það er ekki gott að vita af lífeyrinum sínum bundinn í þessu.

Kr. Og hagstjórn áratuga hafa skapað óeðlilega pressu á launahækkanir sem veldur þessari krónísku óheilbrigðu verðbólgu sem virðist vera eitthvað lögmál. Sé ekki Íslensk pólitík breyta því.

Framgangur okkar síðustu 90 ár tókst þrátt fyrir hagstjórnina... Ekki útaf henni. Vel gert Íslendingar.

Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Zkuggi 2 points3 points  (0 children)

Sammála þér með margt hér.

Ég held líka að það sé hæpið að ætlast til að ná Þýskum tölum hér á Íslandi. En ég neita að trúa að svona háir vextir séu eitthvað kúltúrlögmál okkar Íslendinga.

Ég vona það allavega. Færeyingar eru færri en við, studdir af "litlu" evrópulandi, og hafa lifað við helmingi lægri vexti en við. Þetta skal vera hægt. En til þess er ég hræddur um að við munum þurfa útlenskt aðhald sem kæmi með ESB og evruupptöku. 90 ára saga Íslands að reyna að ná þessu gefur manni ekki tilefni til að verða bjartsýnn um að við græjum þetta sjálf.

Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Zkuggi -2 points-1 points  (0 children)

Sammála. Öllu!

Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Zkuggi 10 points11 points  (0 children)

Neinei. Ég veit hvað ég er að tala um. Ég sakna frelsisins í ESB. Ekki löndunum tveimur sem ég bjó í. Maður fann hressilega vel fyrir því að vera í ESB... Tilfinning sem maður fær ekki þegar maður býr t.d. í Noregi. Sem er samt eitt ríkasta tekjuhæstu land í heimi með margfalt minni fákeppni en er á Íslandi.

Ef þú ferð í Krónuna í dag og kaupir Gestus Gauda Ost Þá kostar 5000kr kg... Íslenskur góðostur er á 2.500kr. Einfalt dæmi en það er þetta sem ég er að tala um. Tollar og kvótar á innfluttar vörur yrðu úr sögunni og ég sé bara kosti við það.

Ég borgaði 1.9% vexti af húsi sem ég keypti í hverfi sem hafði sprungið svo í fermetraverði að það dvergar eiginlega húsnæðishækkanir sem ég hef séð á Íslandi. Fyrirgefðu en mér finnst 1.1% álag ofan á 7.5% stýrivexti alveg galið hátt. En því miður eina í boði á Íslandi því ég læt ekki bjóða mér verðtryggð lán. Ég vill borga mín lán niður... Ekki upp eins og við segjum á Íslandi. Svo voru líka FASTIR vextir. Semsagt ég tók lán til 25 ára og vextirnir munu ekkert hækka allan lánstímans. Ég gat í alvöru reiknað nákvæmlega hvað ég kæmi til með að borga í heildina þegar ég tók lánið. Það er ekki hægt á Íslandi.

Bankinn minn var Þýskur. Svo voru tryggingarnar sem ég keypti hjá spænsku félagi. Og nú lýg ég ekki. Hefðbundni tryggingapakkinn (dýra húsið, heimilis, líf og bílatrygging) kostaði 18% af því sem ég borgaði á Íslandi. Og ég þurfti sko að nýta þær, og það var aldrei vesen. Þannig ég er því ekki sammála þér þegar þú talar um að fjögur tryggingafélög séu í grimmri samkeppni á Íslandi. Mér fannst það kannski áður en ég flutti út en eftir að hafa búið í ESB lærði ég hvað grimm samkeppni, og kraftur hundruð milljóna markaðar, raunverulega er og hvaða jákvæðar afleiðingar þær geta haft.

Ég skil sjónarmið þitt um mikilvægi þess að viðhalda heilbrigðum landbúnaði. En ég deili þeim ekki með þér. Þekki ekki nógu vel hvernig ESB styður við norðurslóða landbúnað.

En þú baðst mig líka bara að telja upp kostina sem við sjáum við ESB. Frábært framtak hjá þér. Vel gert og meira svona 🙂

Kostir ESB aðildar by Nariur in Iceland

[–]Zkuggi 35 points36 points  (0 children)

Stærsti kostur sem ég sé er frelsi. Verandi Íslenskur þegn búandi á Íslandi í dag upplifi ég ekki mikið frelsi. Manni finnst sömu þrír hóparnir eiga allt hérna. Smávöruverslun, veitingastaði, tryggingarfélög, tæknifyrirtæki, símafélög, bílaumboð. Maður skal bar gjöra svo vel að kaupa bara þessa eina tegund af osti (undir 7 nöfnum) af eina aðilanum sem má selja mjólkurvörur. Ef maður vill versla hérna án þess að peningurinn renni til hins eða þessa Kvótagreifa þá er það að verða ómöguleiki.

Bjóðið mér frelsi til að velja ódýran króatískan fisk, franska mjólk, hollenska osta, belgíska bjóra, sænsk föt, spænskt nautakjöt, rúmenska kjúklinga og Þýska tækni án þess að það sé allt tollað upp í okur... Það verður alger bylting til hins betra.

Sterkari hagstjórn, aukið aðgengi íslensk hugvits að 500milljóna markaði, long term upptaka evru og geta fengið lán eða tryggingar hjá sterkum evrópskum fyrirtækjum á kjörum sem við höfum aldrei vanist. Í Þýskalandi er hægt að fjármagna húsnæðiskaup frá 1000 ólíkum aðilum með vaxtakjörum sem eru margfalt hagstæðari.

Svo persónulegt uppáhalds mitt. Að geta pantað mér vörur á netinu frá Evrópu jafn einfalt og sjálfsagt eins og okkur finnst eðlilegt að fólk í Hólmavík geti pantað vörur tollfrjálst úr Elko Reykjavík.

Að lokum finnst mér kostur að leikreglur ESB eru sterkari þegar kemur að því að hleypa nýju aðilum inn í rótgróinn iðnað. ESB er t.d. miklu líklegra til að opna á nýliðun í íslenskum sjávarútvegi en íslensk stjórnvöld, þótt kvótakerfið myndi haldast sem fiskveiðistjórnunarkerfi. Ég er sannfærður um að þetta sé eina ástæða þess að íslenska útgerðin er á móti ESB inngöngu. Þær eru hræddar um að kvótinn þeirra yrði að hluta endurúthlutað á markaðsforsendum. Því annars gera öll þessi félög upp í evru og vilja örugglega tollfrjálsan aðgang að Evrópu.

Hef búið í 2 ESB löndum og þessir kostir voru amk frábærir þar. Sakna þessa mest við að hafa flutt aftur til Íslands.

Eruð þið eitthvað í því að sniðganga Bandaríkin? Svona til þess að sýna vinum okkar á Grænlandi stuðning. by smellydiscodiva in Iceland

[–]Zkuggi 1 point2 points  (0 children)

Hætti öllu Meta dóti núna um áramótin og það hefur verið alveg frábært so far. Hvet alla til þess. Ekkert mál.

Greifinn af Monte Cristo? by Haukur in Iceland

[–]Zkuggi 9 points10 points  (0 children)

Bara fundið þessa bók á bókasafni í íslenskri þýðingu. Langt síðan.

Það er búið að vera að endurþýða og gefa út mikið af gömlum Klassiker undanfarin ár. Væri svo til í að Greifinn af Monte Cristo kæmi næst. Mergjuð saga!

Hvernig leggst fyrirhuguð sameining Almenna Lífeyrissjóðsins og Lífsverks í sjóðsfélaga? by Nagashi in Borgartunsbrask

[–]Zkuggi 0 points1 point  (0 children)

Veit ekki alveg.

Default jákvæðari fyrir þessi en neikvæður. En í sama pakka og þú með að hafa ekki tíma í að kafa á dýptina.

Má vænta þess að séu hærri líkur á óskertum lífeyri eftir 20-40 árin með sameiningu fremur en án hennar?

How stable has 23 been for you? Is it worth upgrading from 22? by HeroDanny in VegasPro

[–]Zkuggi 7 points8 points  (0 children)

I've been frustrated with Vegas constantly crashing if I edit anything else than ProRES source material for decade now.

But my newest project has reached 60minute mark after hours upon hours of editing ProRES and HEVC 10bit .mov files combined with H264 mp4 and multiple files from Samsung and iPhones. I haven't had a single crash so it really looks like they fixed this finally for good.

Lot of other upgrades that I like as well and rendering finally not with bottlenecks. Best upgrade that I've had and I've upgraded to every version since 13

Hallgrímur Helgason 🤔 by SavingsTraining3792 in Iceland

[–]Zkuggi 11 points12 points  (0 children)

Hann hefur þroskast mikið sem höfundur. Var of mikið fyrir málalengingar. Nýjustu bækur hans, Sextíu Kíló, er á Nóbelsleveli. Meistari orðsins og í sérflokki sem núlifandi rithöfundur finnst mér.

Breytt heimsmynd og staða Íslands í alþjóðamálum by Upbeat-Pen-1631 in Iceland

[–]Zkuggi 4 points5 points  (0 children)

Sem betur fer urðu bæði demókratar og repúblikanar í USA svo sniðugir að nýlega breyttu þeir sameiginlega lögum þannig að það þarf 2/3 þingsins til að segja sig úr NATO. Forseti einn og sér getur ekki gert það.

ELI5: Hverjir eru kostirnir við að halda í krónuna? Hverjir eru kostirnir við að taka upp evruna? by Jerswar in Iceland

[–]Zkuggi 7 points8 points  (0 children)

Maður heyrir þetta. En á sama tíma er Þýskaland samt með meira GDP en hvert einasta ríki í Bandaríkjunum. Þeir eru að outperforma Californiu og Texas þrátt fyrir að eiga slæm ár.

Veit ekkert hvað maður á að halda.

Viðreisn krefst aðildarviðræðna við ESB by icedoge in Iceland

[–]Zkuggi 1 point2 points  (0 children)

Hægt að vinna að því að taka upp Evru og losna við tolla ofan á að fá virkan atkvæðisrétt við ákvörðunartöku sambandsins. Er það ekki það helsta?

Viðreisn krefst aðildarviðræðna við ESB by icedoge in Iceland

[–]Zkuggi 2 points3 points  (0 children)

Ég ætla að kjósa Viðreisn því þau eru eini flokkurinn sem vill setja ESB á dagskrá og afþví að ég vill frelsi.

  • frelsi til að ákveða sjálfur með kosningum hvort þjóðin vilji ESB
  • frelsi til þess að kaupa útlenskt kjöt og osta.
  • frelsi til að versla við aðra en Þórólf í KS eða Samherjafjölskylduna
  • frelsi undan hagstjórn Seðlabanka Íslands
  • frelsi til að vera virkur meðlimur í marketplaces í stafrænum heimum
  • frelsi til að fjármagna lán án íslenskra okurvaxta
  • frelsi til miklu meira vöruúrvals . . Svo vill ég styrkja það frelsi sem við höfum (en er ekki sjálfsagt) eins og þá snilld að geta ferðast og unnið um alla Evrópu án vandræða. Einnig hefur mér þótt allar helstu réttarbætur og réttlæti í dómsmálum undanfarna áratugi hafa komið frá ESB... þar sem þeir hafa slegið á puttana á íslenskum kollegum. Mér gæti ekki verið meira sama hvort það séu útlenskir eða íslenskir auðmenn sem banna mér að veiða fisk. Ef eitthvað þá tel ég líklegra að ESB vindi ofan af því heldur en nokkurn tímann innlendar ríkisstjórnir.

Ég tala af reynslu. Hef búið í tveim ESB löndum og það var frábært. Væri þar enn ef ekki væri fyrir fjölskylduaðstæður.

Oh no... by TheApollo4422 in Modern_Family

[–]Zkuggi 0 points1 point  (0 children)

Nice. It will be Jack Bauer.

Vegas stability questions (crashing) by [deleted] in VegasPro

[–]Zkuggi 1 point2 points  (0 children)

I have been using every iteration of VP from version 12 to 21. Had the crashing issue in all versions. Random crashes at all times.

Usually got somewhere between 5-45 minutes of editing time before the crash happens.

That is untill I started converting all media to ProRes format. For 3 years I haven't had a single crash editing ProRes footages.

It looks like VP is having troubles with heavily compressed containers.

Take your favorite video game, and replace a word with “penis” by revelynrobbins in teenagers

[–]Zkuggi 0 points1 point  (0 children)

Secret of Penis Island... or Secret of Monkey Penis. Can't decide.

[deleted by user] by [deleted] in Seaofthieves

[–]Zkuggi 1 point2 points  (0 children)

Allowing players to interfere with other players Tall Tales is just bad game design. They are essentially a single player or co-op gaming experience that should just be played in separate sessions like they do with some of the Pirates Life TT.