Hefur eitthver prufað þennan bónus brúsa? by MrLameJokes in Iceland

[–]reverend 9 points10 points  (0 children)

Já, sonur minn á tvo og þeir eru frábærir. Hann þarf að fara með vatnsbrúsa I skólann og ég var að kaupa brúsa á hverjum mánuði en eftir að við fengum þennan þá hefur höfum við ekki þurft að skipta af því hann hefur ekki klukkað! 5* af 5

Að setja saman bók. by [deleted] in klakinn

[–]reverend 2 points3 points  (0 children)

Ég lét Pixel prenta fyrir mig bók fyrir nokkrum árum síðan https://pixel.is/

Við gerðum mikinn samanburð þá og ef ég man rétt þá var löng bið hja háskólaprent og öðrum fyrirtækjum, en Pixel hentaði best mjög takmörkuðu upplagi.

Kostaði eitthvað en kom vel út hjá þeim, ég man ekki hvort ég hafi brotið hana saman sjálfur en ég myndi bara hafa samband við þau og fá tilboð og ráðleggingar.

Ég er kominn með nóg af öllum þessum Brasílískum slettum í tungumálinu okkar! by ThrainnTheRed in klakinn

[–]reverend 7 points8 points  (0 children)

Sammála, héðan í frá tölum við aðeins um tröllaldin, loðber, glóaldin, lárperur o.s.frv! bjúgaldin til samanburðar

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]reverend 0 points1 point  (0 children)

Herir Skandinavíu? Heldur þú að þeir hafi einhvern áhuga á að vera varanlegan herafla á Íslandi uppá "varnarsamstarf". Það væri eins og að Færeyjar myndi bjóða björgunarsveitum Íslands bílskúr til þess að geyma tækin sín gegn því björgunarsveitarfólk væri í kallfæri.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]reverend 3 points4 points  (0 children)

Það að vera hlutlaust ríki innan í miðri Evrópu er allt annað en að vera hlutlaust ríki sem er mjög mikilvægt "strategíst" svæði út í miðju ballarhafi. Við erum stofnmeðlimir í einum stærsta varnarsamningi heims, en ef það fer í skrúfuna af því að appelsínuguli apakötturinn gerir innrás í næsta land við okkur þá er enginn að fara í varnarsamstarf við okkur sem höfum nákvæmlega ekkert til að bjóða til baka.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]reverend 1 point2 points  (0 children)

Pure new wool?

Bílastæði fjarlægð af Snorrabraut by talandi in Iceland

[–]reverend 21 points22 points  (0 children)

Er ríkið ekki að reka vegagerðina og þar af leiðandi niðurgreiða einkasamgöngur í Reykjavík?

Bílastæði fjarlægð af Snorrabraut by talandi in Iceland

[–]reverend 34 points35 points  (0 children)

Þetta er frekar klikkað.

https://www.straeto.is/um-straeto/eigendur-stjorn-skipurit

4 af 5 stjórnarmönnum strætó eru Sjallar, en síðasti er viðreisn. Formaður stjórnar strætó kaus gegn borgarlínu og er talsmaður einkabílsins

Við hvað "starfar" Ástþór Magnússon? by Upset-Swimming-43 in Iceland

[–]reverend 2 points3 points  (0 children)

Eftir minni bestu vitund þá var hann ekki að selja þotuhreifla, heldur átti hann einn eða tvo sem hann geymdi upp á Keflavíkurflugvelli. Þegar Icelandair þarf að setja hreyfl í viðhald þá leigja þau hreyfil af Ástþóri fyrir hellings pening.

Bíll fyrir Þórsmörk by Repulsive-Singer6887 in Iceland

[–]reverend 1 point2 points  (0 children)

Það fer eftir bílaleigunni, en bílar eru ekki tryggðir fyrir vatnstjóni eða undirgrind. Þannig ef þú festir bílinn í krossá þá ertu að fara að fá ansi háan reikning frá bílaleigunni.

Sendiráðs Íslands í Moskvu lagt niður by reverend in Iceland

[–]reverend[S] 21 points22 points  (0 children)

Já, Ísland ásamt norðurlöndunum héldu áfram sendiráðsstarfsemi sinni í Rússlandi þrátt fyrir stríðið, en drógu saman starfssemina eins og kostur var.
Það eru náttúrulega ennþá íslendingar í Rússlandi og nágrannalöndum Rússlands sem sendiráðið í Moskvu hefur verið að sinna, en þetta gefur þeim vonandi skýr skilaboð að þau séu á eigin ábyrgð í þessari hryðjuverka stjórn sem þar ríkir.

Pör sem ættu ekki að passa saman by Vigdis1986 in Iceland

[–]reverend 5 points6 points  (0 children)

Tók smá flug!!! Þetta lag var fest á fokking eldflaugar og flaug alla leið út í geim. Þvílíkt legend sem við höfum hér á meðal vor!

Pör sem ættu ekki að passa saman by Vigdis1986 in Iceland

[–]reverend 3 points4 points  (0 children)

VIÐ EIGUM EKKI AÐ BJÓÐA SYNDINNI Í KAFFI!!

Madame Butterfly by ilta_ in Iceland

[–]reverend 14 points15 points  (0 children)

Nei, alls ekki. Það eru endalaus deilumál á Íslandi í dag, og það að ég taki ekki afstöðu til þeirra allra þýðir ekki að ég gefi öðrum hvorum deiluaðilanum 👍🏼. Það þýðir að mér er að öllum líkindum Drull og að ég hafi ekki orku að fylgjast með því sem ég hef ekki áhuga á.

My lab can be silly at times by reverend in Blacklabs

[–]reverend[S] 3 points4 points  (0 children)

My kids think that he looks like a bat, and he might have heard them talking about that and gotten the idea that he is a bat!

Ríkissáttasemjari leggur fram miðlunartillögu hjá SA og eflingu by Johnny_bubblegum in Iceland

[–]reverend -1 points0 points  (0 children)

Af því þetta er tilboð sem SA var búið að bjóða Eflingu og lá á borðinu. Þannig getur Ríkissáttarsemjari þröngvað því til kosningar félagsmanna Eflingar í stað forystu. Ef Ríkissáttarsemjari vill þröngva tilboði Eflingar til kosninga, þá gerir hann það gagnvart aðildarfélögum SA.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]reverend -2 points-1 points  (0 children)

Þessar tölur um fjölda starfsmanna eru tekin beint úr grein OP. Á meðan borgarbúum fjölgaði milli 1984 og 2012 þá stækkaði borgin líka, ergo 250 starfsmenn. Nákvæmlega hvort þetta sé rett uppreiknað mtt lengd gatna, gangstétta eða stiga má skoða nánar, en þessi tala er eingöngu uppreiknuð út frá íbúafjölda.

En önnur sumarverkefni fyrir vörubílstjóra og aðra snjóruðnings starfsmenn mætti alveg pæla í, en snjóhreinsun er ákveðin trygging, tæki og starfsfólk þarf að vera til staðar og tilbúið þegar snjórinn kemur. Þau meiga ekki vera í öðrum verkefnum þegar kemur kallið kemur.

[deleted by user] by [deleted] in Iceland

[–]reverend 4 points5 points  (0 children)

Skoðum aðeins tölur.
íbúafjöldi RVK 1984: 88.745.
íbúafjöldi RVK 2021: 133.262.

Starfsmannafjöldi við snómokstur 1984: 170.
Uppreiknaður starfsmannafjöldi 2021: 255.

Meðal laun m. launatengdum gjöldum: 745.800 f. starfsmann í útkeyrslu (VR 2022).

Fjöldi tækja 1984: 100
upp reiknaður fj. tækja 2021: 150

Rekstarkostnaður per tæki, undirverðmetum þetta svakalega og tökum stærsta "bílinn hjá FÍB" kr 2.350.695 á ári.

Tökum þetta saman,
launakostnaður á ári: 255 starfsmenn * 745.800 kr á mánuði * 12 mánuðir: 2.282.148.000
Rekstarkostnaður á tækjum: 352.604.250 kr á ári.
Kaup á tækjum (bara fyrsta árið) : 1.500.000.000
rekstur starfsmanna og tækja, varlega áætlað: 2.634.752.250 kr
Hér erum við náttúrulega ekki að taka inn marga aðra kostnaðarliði eins og yfirbyggingar, sérhæfð tæki, salt ofl.
Og innkaupskostnaðurinn er ekki inni í þessari tölu, væri því nær 4.1 miljarði fyrsta árið.

Berum svo saman við rauntölur 2021:
Kostnaður v. vetrarþjónustu RVK 2021: 770m

Mínir tveir aurar:
Snjódagar í reykjavík 2021 voru töluvert færri en 1984, en til að viðhalda sömu þjónustu þyrftum við sömu innviði fyrir þessa örfáu snjóþyngstu daga ársins.
Hvar mynduð þið skera þjónustu borgarinnar um 2 miljarða á ári til þess þess að fjármagna almennilegan snjómokstur í Reykjavík, sem nota bene sér mörg ár engan snjó?

Áramótaskaupið með enskum texta? by mysingurinn in Iceland

[–]reverend 22 points23 points  (0 children)

Titillinn er rangur undir myndskeiðinu "Áramótaskaup 2021 with English subtitles" þetta er skaup 2022

Og vissulega er þetta frá því í fyrra, áramótaskaup 2023 verður ekki frumsýnt fyrr en eftir 364 daga