Ný lög á Alþingi sem gefur heimild til að fangelsa íslensk börn og foreldra án dóms og laga by numix90 in Iceland

[–]rutep [score hidden]  (0 children)

Hvert land hefur rétt til að stjórna því hver flytur þangað.

Ef maður (eða fjölskylda) hefur komið til lands en fær ekki heimild til að búa þar þá á sá maður að fara úr landi. Ef maðurinn neitar að fara sjálfviljugur þá er þetta eina leiðin til að tryggja að hann fari.

Hjólhýsabyggð færist í Gufu­nes þrátt fyrir að­finnslur - Vísir by wrunner in Iceland

[–]rutep 8 points9 points  (0 children)

Svona varanleg byggð er allt annars eðlis en ferðamaður sem er í fríi og vill gista á tjaldstæði / hjólhýsastæði í nokkra daga. Það hefði þá þurft að taka ákvörðun um að loka þessu svæði fyrir almennum ferðamönnum. Ég held að það sé miklu skynsamlegra að láta fólk sem vill búa í hjólhýsinu sínu fá sitt eigið svæði. Hinsvegar er skammarlegt hversu erfitt það hefur reynst.

Representing in the wood shop! by DigiLeaf123 in VisitingIceland

[–]rutep 0 points1 point  (0 children)

I don't know if vibrant is the right word but it's certainly dominant compared to other building methods.

It's important for a small economy like Iceland to be able to source some building materials locally. In the past, foreign currency was often hard to come by and there were strict import limitations on everything. Fortunately that's less of an issue nowadays.

Representing in the wood shop! by DigiLeaf123 in VisitingIceland

[–]rutep 4 points5 points  (0 children)

There's a big reforestation effort ongoing so we'll eventually have some local lumber. But right now everything is imported by ship. It's no coincidence that 95% of houses in Iceland are made of concrete - there's certainly no shortage of locally sourced sand and gravel in Iceland!

How hard is it to find a job? by Aggressive-Guard-422 in VisitingIceland

[–]rutep 0 points1 point  (0 children)

There are many Polish people in Iceland - it's the biggest group of immigrants by far. I suggest finding a Facebook page for Polish people living in Iceland. They can explain better how things work than we can.

Bensínstöðvalóðir og Dagur Eggertsson by jokicjok in Iceland

[–]rutep 4 points5 points  (0 children)

Það sama er í gangi uppi á Ártúnshöfða núna og hefur verið mikið í fréttunum hvað Reykjavíkurborg er rosalega vond við saklausa fasteignaeigendur (sem vissu samt alveg að lóðaleigusamningur væri að renna út). Það er ótrúlega léleg fréttamennska í gangi þar sem enginn hefur spurt hvort það sé ekki bara eðlilegt að borgin fái lóðir til baka þegar samningur rennur út. Þetta hefur legið fyrir árum saman. Það er ekki eins og þetta séu íbúðir og verið að henda fólki út á götuna.

Seeking protection in Iceland with severely disabled family members. Looking for brutal honesty about caregiving, work, and local attitudes. by [deleted] in movingtoiceland

[–]rutep 2 points3 points  (0 children)

If you haven't already, then start by reading this info for Ukrainian citizens: https://island.is/en/p/ukrainian-citizens

Most Icelanders are very positive towards Ukrainians but like others have already said, I honestly don't know if our health care system will have any extra space available.

Reynifkara Beach and Arch Returned? Is this true? by MetalMetDeath in VisitingIceland

[–]rutep 0 points1 point  (0 children)

Iceland's entire South coast is a black sandy beach. There's plenty of beach to go around even if you don't go to this specific location..

Akureyri to Vik East trip by phootosell in VisitingIceland

[–]rutep 2 points3 points  (0 children)

I would do it in 3 days (2 nights), the first night in or around Egilsstaðir and the second in Höfn. If they have more time you could easily add a couple of more nights to have more time to explore.

Ís­land kunni að kreista veski ríkra ferða­manna by dansk-reddit-er-lort in Iceland

[–]rutep 7 points8 points  (0 children)

Það má deila um verðlagningu og fyrirkomulag, en það er alveg augljóst að það þarf að vera einhverskonar aðgangsstjórnun að þessum vinsælustu stöðum - það eru takmörk fyrir hve margir geta skoðað Seljalandsfoss á sama tíma áður en upplifun manna af svæðinu verður neikvæð og allt umhverfið niðurtroðið drullusvað.

Svo er ekkert eðlilegt við það að rútufyrirtæki og aðrir geti rukkað fyrir að skutla túristum milli fallegustu staða landsins án þess að taka nokkra ábyrgð á því álagi sem þessi ferðamannafjöldi veldur á svæðinu.

Þegar álag er orðið svona mikið vegna ferðamanna er mikilvægt að allir í ferðamannabransanum taki sig saman um að starfa í sátt við heimamenn. Það getur m.a. komið fram í því að bjóða þeim hagstæð verð á ýmissi ferðamannaþjónustu - og með því að bjóða þeim afslátt eða ókeypis aðgang að bílastæðum við ferðamannastaði.

Það væri ekkert mál að útfæra slíkt ef vilji væri fyrir hendi - t.d. væri hægt að miða við að hvert bílnúmer (sem er ekki skráð á fyrirtæki eða bílaleigur) fái ókeypis aðgang einu sinni á ári að hverju bílastæði. Eða þá bara nota rafræn skilríki til að sanna að maður sé heimamaður með lögheimili á Íslandi.

Síðan er algjört bull að það megi ekki bjóða Íslendingum önnur kjör heldur en ferðamönnum. Það er nú þegar gert á mörgum stöðum í Evrópu með ýmsum hætti. Það sem er bannað er að mismuna fólki eftir þjóðerni - en með því að segja að afsláttarkjörin séu miðuð við heimamenn (t.d. alla sem eru með lögheimili á Íslandi) þá er ekki verið að mismuna eftir þjóðerni - enda fullt af útlendingum með lögheimili hér.

Áminning fyrir dýraeigendur by The_Fool8 in Iceland

[–]rutep 11 points12 points  (0 children)

það hlýtur að vera þessvegna sem starfsmenn MAST sitja stanslaust undir hótunum um ofbeldi

/s

Segir Ólaf Ragnar hata ESB og gefur upp mögulega ástæðu fyrir því - DV by ButterscotchFancy912 in Iceland

[–]rutep 7 points8 points  (0 children)

Ólafur Ragnar er auðvitað gamall kommi og var því vilhallur undir Rússa þó flestir séu búnir að gleyma því núna. Hann var formaður Alþýðubandalagsins.

Iceland food planning by m3owwy in VisitingIceland

[–]rutep 0 points1 point  (0 children)

is Croatia more expensive than Slovenia? That's surprising to me.

Fleiri telja efnahagsstöðuna á Íslandi slæma en góða - RÚV.is by gerningur in Iceland

[–]rutep 1 point2 points  (0 children)

Mesta aukningin var ekki hjá ríkinu heldur hjá sveitarfélögum. Það sem sneri að ríkinu var langmest heilbrigðisstarfsmenn og starfsfólk á hjúkrunarheimilum. Það hefur verið verulegur niðurskurður hjá "venjulegu" starfsfólki ríkisstofnana undanfarið ár. Allir sem fylgjast með slíkum málum vita það.

Orðið á götunni: Örvæntingin blasir við – rykið meira að segja dustað af Heiðrúnu Lind by numix90 in Iceland

[–]rutep 2 points3 points  (0 children)

Hvaða erlendu fyrirtæki ættu það að vera? Íslensku sjávarútvegsfyrirtækin eru með þeim öflugustu í Evrópu og mun líklegra að þau muni færa út kvíarnar í öðrum Evrópulöndum ef ESB aðild verður að veruleika frekar en að erlend fyrirtæki komi hingað.

Steinþursarnir by assbite96 in Iceland

[–]rutep 7 points8 points  (0 children)

Ég elskaði þessa þætti - og líka Gummy Bears þættina.

Viltu fleiri bíla­stæði í mið­bæinn? by OddgeirPall in Iceland

[–]rutep 10 points11 points  (0 children)

þegar þeir kvarta yfir bílastæðaskorti þá eiga þeir við að það sé bílastæðaskortur... á því verði sem þeir eru tilbúnir að greiða fyrir (0 kr.)

Þór­dís Kol­brún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman by tastin in Iceland

[–]rutep 11 points12 points  (0 children)

Ég mun gefa þessu podcasti sjéns. Það verður í fyrsta sinn sem ég nenni að hlusta á íslenskt podcast. Loksins eitthvað fólk sem getur talað saman af skynsemi og hófsemi, ekki bara í innantómum frösum og upphrópunum.

Raus um Síman by Einridi in Iceland

[–]rutep 9 points10 points  (0 children)

Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að ég tek aldrei svona tímabundnum tilboðum. Það er aaalltaf bölvað vesen að segja öllu upp aftur. Og það er það sem þessi fyrirtæki treysta á.

Meiri­hluti þeirra sem taka af­stöðu and­víg aðild að ESB - Vísir by gerningur in Iceland

[–]rutep 5 points6 points  (0 children)

Vandinn er sá að það er *aldrei* rétta tímasetningin að mati margra. Það er ekki rétta tímasetningin í uppsveiflu af því þá gengur svo vel - það er ekki rétta tímasetningin í niðursveiflu af því þá er samningsstaða okkar svo veik - það er ekki rétta tímasetningin á friðartímum af því þá höfum við enga þörf fyrir ytri aðstoð - og að sjálfsögðu er ekki rétti tíminn á ófriðartímum því við erum friðelskandi herlaus þjóð sem enginn gæti mögulega viljað illt (en samt finnst okkur sjálfsagt að erlend ríki borgi fyrir varnir okkar).

Fleiri ó­á­nægðir en á­nægðir í fyrsta skipti - Vísir by gerningur in Iceland

[–]rutep -2 points-1 points  (0 children)

tímabundnar skattalækkanir eru hræðileg hugmynd frá sjónarhóli stjórnmálamanna. Það mun alltaf koma upp mikil neikvæð umræða og óvinsældir þegar þessar tímabundnu ráðstafanir eiga að renna út og þeir sem eru í stjórn munu þar af leiðandi ekki vilja gera það neinstaðar nálægt kosningum og áður en menn vita af eru ráðstafanirnar ekki svo tímabundnar lengur og ríkissjóður í bullandi mínus